Morgunblaðið - 24.06.1975, Síða 16

Morgunblaðið - 24.06.1975, Síða 16
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNl 1975 Sigurlaug Sœmundsdóttir: Heimsókn Þjóð- leikhúss Islands til Miinchenar með leikritið „ Inuk - m aðurinn ’ ’ Dagana 21. til 25. maí haföi leikflokkur frá Þjóðieikhúsi Is lands óvænta viðdvöl í Miinch- en með leikritið „Inuk- maðurinn". Þetta mun hafa verið fyrsta heimsókn Þjóðleik- hússins, jafnvel fyrsta heim- sókn íslenzks ieikflokks, til Miinchen, og var því sérstök ástæða til eftirvæntingar, þar sem telja verður þá borg meðal helztu menningarborga í Evr- ópu. Leiklist og aðrar listir standa þar með mikium blóma, og vitnar tala leiklistarhúsa í borginni um það, en þau eru alis um 22: opinberir aðilar, ríki og borg, reka sjö, þ.e. óperuhús, óperettuhús, þrjú Ieikhús af mismunandi stærð- um, auk þess æskulýðsleikhús og tilraunaleikhús, þar sem einkum ný framúrstefnuverk eru uppfærð. Leiklistarhús, sem rekin eru af einkaaðilum, eru ekki færri en fimmtán, og eru þau af ýmsum stærðum. Sum hafa sérhæft sig, ef svo má segja og einbeita sér að því að færa upp vissa tegund verka, að því er efni og form varðar. Sýningar Þjóðleikhússins fóru fram í einu af minni einka- leikhúsum Míinchenar, theater k Spielzentrum (leikhús k leik- miðstöð), en það tekur 85 manns í sæti. Viðfangsefni leik- hússins eru að jafnaði að efni til vinstri sinnuð ádeila á ýmis þjóðfélagsmál, og sum sérstak- lega samin og uppfærð af ieik- flokki leikhússins. I stúdenta- blöðum, sem eru hiiðholl þeim vinstri sinnuðu öflum, sem styðja kommúnista, birtast um- sagnir um leikrit leikhússins, hvatnin^ar um að sækja þau og auglýsingar frá leikhúsinu. Leikhúsið er í nánd við há- skóla og tækniháskóla borgar- innar, í hinu víðþekkta stúd- enta- og listamannahverfi Schwabing. Eins og títt er um leikhús af þessu tagi, er theater k spielzentrum í kjallara fbúð- arhúss frá því um aldamótin, og gengið inn í það að húsabaki. Húsnæðið er því sfður en svo byggt með þarfir leikhúss i huga, og allt innan dyra sem utan hefur á sér blæ bráða- birgða sem takmarkast við það LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR Samband hverfafélaga Sjálfstæðismanna í Reykjaviky Sumarferð VARÐAR, sunnudaginn 29. júní 1975. Að þessu sinni verður fe/ðast um sveitir Borgarfjarðar, skoðuð Skógraekt rikisins að Stálpastöðum i Skorradal. Ekinn Hestháls að Reykholti og þar snæddur hádegisverður. Siðan ekið að Húsafelli með viðkomu við Hraunfossa. Eftir viðdvöl i Húsafelli verður ekið suðúr Kaldadal i Bolabás, — þar sem snæddur verður kvöldverður. Áætlaður komutimi til Reykjavíkur er um kl. 22:00. Fararstjórn áskilur sér rétt til þess að breyta ökuleiðinni. Leiðsögumáður verður Árni Óla. Farðseðlar verða seldir i Galtafelli, Laufásvegi 46, simi 15411 og 17100 og kosta kr. 1.650.00. Innifalið i verðinu er hádegis- og kvöldverður. Lagt verður af stað frá Austurvelli klukkan 8 árdegis stundvís- *e9a- Ferðanefnd. alnauðsynlegasta: sviðsbúnað- ur, innréttingin og stóiarnir, sem er samahsafn af stofu-, borðstofu- og veitingahússtól- um úrýmsum áttum. Heimsókn Þjóðleikhússins til Múnchenar var kunngerð með nokkurra daga fyrirvara með smáfrétt í fréttadálki um leik- húsmál í dagblaðinu „Abend- zeitung", síðan með veggspjöld- um (plakötum) í nánd við há- skólann, flugblöðum meðal stúdenta, og sýningardagana fimm var auglýsing frá leikhús- inu i dagblöðum borgarinnar, en þar mátti meðal annars lesa: Frá heimsleikhúshátíðinni í Naney — Þjóðleikhús Islands — Inuk (maðurinn) —Eskimó- ar leika kúgunarsögu Eskimóa. Fyrstu þrjár sýningardagana var aðsókn dræm, en hún jókst og siðustu sýningarnar fóru fram fyrir fullu húsi og hafði aukastólum verið bætt við. Undirtektir áhorfenda voru mjög góðar og mikið lófatak sfðustu kvöldin. I tveim af fjórum dagblöðum Múnchenar birtust umsagnir um Ieikinn og fer þýðing á þeim hér á eftir: Umsögn I dagblaðinu „Múnchner Merkur" föstudag- inn 23. maí 1975. Kvöld á Grænlandi. „Inuk — maðurinn" heitir gestaleikur Þjóðleikhússins í Reykjavík í thetar k spielzentr- um (leikhúsi k leikmiðstöð). I tvö ár hefur leikflokkurinn föndrað við það, kynnt sér sögu, limaburð og hárgreiðslu Græn lendinga. Það er nærri þvi orð- ið til eitthvað á borð við lifandi þjóðháttasafn, sem á töframátt sinn að rekja til framandleik- ans. Þarna, á ferköntuðu kjallara- sviði, sem er tjaldað svörtu, stendur stór trérammi, strengd- ur selskinnum. Þegar leikend- urnir ganga inn í hvítum segl- strigabúningum sinum, virka þeir í fyrstu eins og geimfarar, sem koma til tunglsins. Þeir laða fram rétt hughrif hjá áhorfendum með hljóðum, láta vind hvína. Við hin ýmsu dýra- hljóð man maður eftir: Þetta hefur maður nú þegar heyrt hjá Grzimek. (Skýring þýðanda: Dr. Bern- hard Grzimek, prófessor i dýra- fræði og fyrrverandi forstöðu- maður dýragarðsins i Frank- furt, er mjög þekktur fyrir sjónvarpsþætti sína og blaða- greinar um dýralíf, en einnig fyrir baráttu sína fyrir náttúru- vernd og friðun.) Þeir leika selsdráp, liggja fjögur á gólfinu, á meðan sá fimmti læðist að. Mjög áhuga- verður er veiðibráðardansinn. Þeir sýna, hvernig lífssviðið breytist með byssum og pening- um, að ofneyzla áfengis varð mikið vandamál. Og þeir láta þjóðlagið í lokin hljóma eins og mótmælasöng: regnhlíf, plastikpokar, niðursuðudósir lenda i ruslatunnunni. Maður fær aðeins að vita, hve indælt var, áður en landið fannst, þegar mokkasínur voru saumaðar og stigvél tuggin mjúk, það er sýnt mjög ná- kvæmlega. Listrænt séð jaðrar látbragðsleikur þeirra hins veg- ar við þjóðlega list, sem er áhugaverð, þótt maður þekki ekki málið. — Hinar þýzku skýr ingar af og til gegnum hátalara Húsgagnasmiður óskast til að annast viðgerðir og eftirlit með vörum húsgagnaverzlunar. Vinnu- tími frjáls. Uppl. í síma 28900. IMokkrir vanir kranamenn óskast til starfa strax. Einnig nokkrir járn- iðnaðarmenn. Upplýsingar í síma 1 1 790, þriðjudag og miðvikudag 24. og 25. þ.m. Einnig á skrifstofu vorri á Keflavíkurflugvelli. íslenzkir aðalverktakar s. f. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar | Ríka ekkjan sem ég sendi tilboðið 13. júni í Morgunblaðinu, vin- samlegast hringdu í sima 18271 föstudaginn 27. júní á milli 8 og 9 e.h. eða fyrr er við á kvöldin. bíiaf Fallegur Pontiac Le Mans árgerð 1972. Til sýnis og sölu bifreiðarsölu- skála Þóris Jónssonar, Skef- unni. Til sölu nýtt stillanstimbur: 1x6 336 m og 2x4 184 m. uppl. í sima 41 277 eftir kl. 1 8,30. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27, Sími 25891. Til sölu við Þingvallavatn i landi Skálabrekku 50 fm sumarbú- staður með aðgangi að vatn- inu. Tilb. sendist Mbl. merkt: „Þingvallavatn — 6982" fyr- ir föstud. 27. júni 1 975. Verzlið ódýrt fumarpeysur kr. 1000.— Siðbuxur frá 1000.— Denim jakkar 1000.— Sumarkjólar frá 2900.-- Sumarkápur 5100,— Verðlistinn, Laugarnesvegi 82. húsn®6' Húseignin Skóla- vörðustig 45 til leigu. Húsið er 2 hæðir, kjallari og rishæð, gólfflötur um 90 fm. hver hæð. Hent- ugt fyrir félagsheimili, skrif- stofur, heildverslun eða létt- an iðnað og þess háttar. Upp- lýsingar i síma 13841 kl. 6— 8 e.h. íbúð til 2ja ára Til leigu er 100 fermetra ibúð á 1. hæð i blokk í Hafn- arfirði. Sérlega þægileg ibúð. Hún leigist til 2ja ára — hugsanlega lengur. Fyrir- framgreiðsla samkv. sam- komulagi. Upplýsingar i sima 51 484 eftir kl. 20. 2ja—3ja herb. íbúð óskast til leigu i Vesturbæ eða nálægt miðbænum fyrir 1. sept. n.k. Fyrirfram- greiðsla. Upplýsingar i sím- um 831 55 og 83354. Keflavík Til sölu eldra einbýlishús 5 herb. og eldhús. Um 100 fm verkstæðishús fylgir með, tæki og áhöld til bilaviðgerða geta fylgt. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, simar 1263 og 2890. Húsnæði til leigu Einstaklingsíbúð við miðbæ- inn til leigu fyrir rólega eldri konu. Upplýsingar í sima 16443. □ EDDA 59752467 — 1 H & V. Kvenfélag Laugarnes- sóknar Vestfjarðarferðin verður farin 4 — 7. júlí. Þátttaka tilkynnist i sima 3741 1 (Margrét), 37475 (Auðbjörg) og 32948 (Katrin) fyrir 27. júni. Filadelfia Reykjavik Garðar Ragnarsson og fjöl- skylda tala á samkomu I kvöld kl. 18.30. Framleiðum nýjar springdýnur. Gerum við notaðar springdýnur sam- dægurs. Skiptum einnig um áklæði, ef óskað er. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til kl. 7 alla virka daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði simi 53044.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.