Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 1
28 SÍÐUR
146. tbl. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 2. JULl 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Karami og Arafat
krefjast vopnahlés
Beirut 1. júlí —AP, Reuter.
Forsætisráðherra Líbanon,
Rashid Karami, og leiðtogi
Palestínuskæruliða, Yasser Ara-
fat, komust á þriðjudagskvöld að
samkomulagi um að framfylgja
tafarlaust vopnahléi um allt land-
ið. 1 opinberri tilkynningu, sem
lesin var upp í Beirut útvarpinu
sagði að leiðtogarnir tveir hefðu
orðið sammála um að „óeirðar-
öfl“ yrðu handtekin og dregin
fyrir dómstðla.
Leiðtogarnir komust að þessu
samkomulagi aðeins örfáum
klukkustundum eftir að ný 6
manna stjórn hafði tekið við völd-
um sem lokatilraun til að binda
endi á borgarastríðið, sem virðist
vera að kljúfa landsmenn i tvær
stríðandi fylkingar.
Götubardagar í Beirut, höfuð-
borg Líbanons, hafa síðustu átta
daga kostað næstum 250 mannslíf
og fleiri hundruð hafa særzt. Það
eru aðallega sveitir kristinna
hægrisinnaðra falangista og
vinstrisinnaðra múhameðstrúar-
manna sem berjast. Leiðtogarnir
tveir kröfðust þess að hætt yrði
þegar i stað að skjóta og að
öryggissveitir mundu sjá til þess
að hver sá er færi ólöglega með
skotvopn eða stæði að manndrápi
yrði handtekinn. Öll þung vopn
yrðu gerð upptæk og að herinn
mundi opna vegi fyrir umferð.
Vopnahlé, sem átti að ganga í
gildi klukkan 11 í morgun að ís-
lenzkum tíma, var ekki virt og
kenndi stjórnin „uppreisnaröfl-
um“ um það. Á mánudagskvöld
þurftu höfuðborgarbúar að þola
Framhald á bls. 26
Flótti lögreglumannanna:
„Grófleg móðgun
við byltinguna
Lissabon 1. júlí —AP. Reuter.
SEXTlU fyrrverandi leynilög-
reglumenn léku enn lausum hala
á þriðjudagskvöld, en kröfur
urðu æ háværari um harðar refs-
ingar þegar þeir nást. Flóttj
89 leynilögreglumanna gömlu
hægri einræðisstjórnarinnar úr
fangelsi hefur verið lýst af blöð-
um og vinstriflokkum, sem gróf-
legri „móðgun við byltinguna.“
Hefur herstjórnin verið harð-
lega gagnrýnd fyrir að geta ekki
haldið pynturunum inni, eins og
lögreglumennirnir hafa verið
kallaðir, og segja sum blöð að
þetta sér merki um að öryggis-
eftirlit sé í lágmarki, ekki aðeins
við Alcoentre fangelsið heldur á
öllum öðrum sviðum.
Síðdegis á þriðjudag hafði tek-
izt að ná 29 flóttamönnum en talið
er að hinir leynist í skógivöxnum
hæðum í grennd við fangelsið.
Hermenn lögreglumenn með
hunda og óbreyttir borgarar
vopnaðir lurkum vinna að því að
fínkemba svæðin.
Kommúnistaflokkurinn sagði á
þriðjudag að flótti lög-
reglumannanna væri merki um
að gagnbyltingaröflin héldu vöku
Um 50 eiginkonur leyni-
lögreglumannanna söfnuðust
saman framan við forsetahöllina
til að mótmæla þeim töfum, sem
orðið hafa á því að mál eigin-
manna þeirra verði tekin fyrir af
Framhald á bls. 26
LÍBANON — Unglingur í Beirút kastar handsprengju (efri myndin)
skjóls þegar reykur stígur upp eftir sprenginguna (neðri myndin).
Símamynd AP
og leitar
Brezka stjómin setur há-
mark á launahækkanir
London 1. júlí AP-Reuter.
Brezka stjórnin fyrirskipaði á
þriðjudag að allar Iaunahækkanir
eða hækkanir á arðgreiðslum,
skuli þegar takmarkaðar við 10%
og kvaðst hún reiðubúin til að
framfylgja þessari skipun með
lögum ef nauðsyn krefði. Er þetta
gert í því skyni að draga úr verð-
bólgu í landinu og að stöðva fall
pundsins á gjaldeyrismörkuðum.
Fjármálaráðherrann, Denis
Healey, skýrði þinginu frá þessu
og sagði að stjórnin vonaðist til að
fá aðila vinnumarkaðarins til að
fallast á að takmarka launahækk-
anir við 10%, svo að draga megi
úr verðbólgunni, sem nú er 25%.
En gagnstætt þvi, sem forustu-
menn Verkamannaflokksins hafa
hingað til sagt, að þeir séu að móti
lögboðnum takmörkunum á
launahækkunum, þá segir Healey
að stjórnin verði að setja lög um
hámarkslaunahækkanir náist
ekki samkomulag um þær á milli
Amin náðar Hills
Kinshasa 1. júli — Reuter
IDI Amin Ugandaforseti náðaði
í dag brezka lektorinn Denis
Hills, sem taka átti af Iffi á föstu-
dag, eftir að forseti Zaire, Mobuto
Sese Seko, hafði miðlað málum.
Amin — fyrir vináttu sakir.
Amin, sem er í tveggja daga
, heimsókn í Zaire, tilkynnti þetta
á óvæntum blaðamannafundi,
sem hann hélt f bústað Mobutus f
N’Sele, 50 km utan við höfuðborg-
ina.
Azap, fréttastofa Zaire, hafði
það eftir Amin, að hann hefði
náðað Hills vegna vináttu sinnar
við Mobutu hershöfðingja. Azap
sagði að Ugandaforseti hefði sagt
á blaðamannafundinum að hann
hefði verið mjög í vafa um hvað
gera skyldi, en hann hefði neyðzt
til að breyta afstöðu sinni vegna
einlægrar vináttu þeirra
Mobutus.
Hills var sekur fundinn um
landráð, sem fólust í því að hafa í
Hills — beið aftökusveitarinnar.
handriti að bók líkt Amin við
harðstjóra. Zaire var eitt fjöl-
margra landa, sem boðizt höfðu til
að miðla málum á milli Uganda og
brezku stjórnarinnar í deilu
þeirra um örlög Hills.
samtaka launþega og vinnuveit-
enda þegar í næstu viku.
Yfirlýsing Healeys vakti ó-
ánægju i þinginu, en hafði þegar
góð áhrif á stöðu pundsins, sem
náði sér verulega á erlendum
gjaldeyrismörkuðum. Það hækk-
aði um 2 cent gagnvart dollar og
töluverð hækkun varð á því gagn-
vart Evrópugjaldmiðlum. Undan-
farna daga hefur gengi pundsins
sigið verulega og i gærkvöldi var
verð þess 27,8% lægra en í desem-
ber 1971. Á tímabili var fall þess
orðið 29,2%.
Healey sagði þinginu að stjórn-
in væri ákveðin i að koma verð-
bólgunni niður i 10% um það bil
sem gerð næstu heildarsamninga
milli launþegasamtaka og at-
vinnurekenda lýkur og niður fyr-
ir 10% í lok ársins 1976.
Undanfarið hefur verið samið
um kauphækkanir til margra
hópa launþega og eru þær yfir-
leitt i kringum 30%. En um það
leyti, sem Healey hélt sina ræðu í
þinginu voru sjómenn á kaupskip-
um að fella samninga, sem gerðu
ráð fyrir 32% kauphækkunum
þeim til handa.
Vinstri armur Verkamanna-
flokksins tók tillögum rikistjórn-
arinnar illa. Talsmaður hans, Nor-
man Atkinson, sagði að þær brytu
i bága við stefnuyfirlýsingu
flokksins frá þvi fyrir kosningar.
Ihaldsmenn fögnuðu hins vegar
tillögunum og sagði Sir Geoffry
Howe að timi hefði verið kominn
til að rikisstjórnin sneri sér að
efnahagsmálunum.
Brezka Alþýðusambandið,
T.U.C., hefur þegar lýst því yfir
að það telji að nauðsynlegt sé að
takmarka launahækkanir en leið-
Framhald á bls. 26
Solzhenytsin
Herferð fgrir
frelsi fanga
Washington 1. júli — Reuter.
NÓBELSVERÐLAUNAHÖF-
HÖFUNDURINN Alexander
Solzhenitsyn og tveir fyrrver-
andi fangar C sovézkum fanga-
búðum hafa uppi áform um
mikla áróðursherferð I þií
skyni að frelsa pólitíska fanga
í Sovétríkjunum.
Solzhenitsyn ræddi áa'tlun-
ina fram undir morgun á
mánudag við litháenska sjö-
Framhald á bls. 26