Morgunblaðið - 02.07.1975, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULI 1975
Hefur misst 100
kindur úr riðu
— ÉG gæti bezt trúað, að ég væri
búinn að missa yfir 100 kindur úr
riðu á síðustu þremur árunum, og
menn á öðrum bæjum hcr í sveit-
inni hafa einnig misst fé úr þess-
um ógnarlega sjúkdómi, en ekki f
eins ríkum mæli og ég, sagði Jón
Bjarnason, bóndi á Skorrastað í
Norðfirði í samtali við Morgun-
blaðið f gær, en Jón hefur misst
40—50 kindur úr riðu á þessu ári.
Jón sagði, að veikinnar yrði
ekki vart á öllum bæjum f Norð-
fjarðarsveit, en bændur á Hofi, í
Grænancsi og Miðbæ hefðu misst
kindur úr riðu, cn nokkuð hcfði
dregið úrsjúkdómnum í Miðbæ.
Hann sagði, að hefði hann ekki
kýrnar til að styðjast við væri
hann löngu búinn að segja sig til
sveitar, og nú væri reyndar svo
komið að hann væri að hugsa um
að lóga öllu fénu í haust. Sjúk-
dómurinn stingur sér helzt niður í
ungt fé, svona þriggja ára gamalt.
Þá sagði Jón að einmuna blíða
hefði verið á Norðfirði að undan-
förnu, sól og brakandi þurrkur
hvern dag. Gróðri hefði fleygt óð-
fluga fram og færi nú að styttast í
að menn gætu byrjað að slá. Menn
væru helzt hræddir um að
þurrkurinn yrði búinn þegar
sláttur hæfist.
Blaðamenn sömdu
SAMKOMULAG varð milli launa-
málancfndar Blaðamannafélags
tslands og fulltrúa Félags blaða-
útgefcnda á áttunda tfmanum í
gærmorgun, en þessir aðilar
höfðu þá setið á fundi hjá sátta-
semjara, Torfa Hjartarsyni, frá
þvf kl. 10 á mánudagskvöld. Sam-
komulagið var sfðan samþykkt á
félagsfundi hjá Blaðamanna-
félagi tslands f gærdag með 23
atkvæðum gegn 4, en 35 félags-
mcnn sátu hjá.
Samningurinn er i meginatrið-
um hliðstæður rammasamkomu-
lagi ASl og VSl frá því í siðasta
mánuði, þ.e. að 13.700 krónur
koma á alla iaunaflokka frá 13.
júni. Félagar i lægstu launafokk-
um B.I. fá auk þess launajöfn-
unarbæturnar, 4.900 kr., frá 1.
marz, líkt og kveðið var á um i
bráðabirgðasamkomulagi ASl og
VSI og miðað við sömu launa-
mörk og þar. Samningurinn gildir
til áramóta. Helztu ágreiningsefn-
um þessara aðila var að öðru leyti
skotið á frest til næstu samninga-
gerðar, en þau snúast einkum um
skipun handritalesara í launa-
fiokka Blaðamannafélags Islands
Lýst eftir
vitnum
AÐFARARNÖTT sunnudagsins
11. maí sl., laust eftir kl. 02, varð
umferðaróhapp á Suðurlands-
braut við skemmtistaðinn Sigtún,
er bifreið ók á opna hurð leigubif-
reiðar, sem þar hafði staðnæmzt
til að taka farþega. Nú óskar
rannsóknarlögreglan í Reykjavík
að ná tali af þessum farþegum
leigubifreiðarinnar vegna máls-
og umboð féiagsins til að semja
fyrir prófarkalesara. Báðir þessir
starfshópar hafa nýlega verið
teknir inn í Blaðamannafélagið
með lagabreytingum.
Blaðamenn höfðu veitt stjórn
félagsins verkfallsheimild, en
verkfall hafði ekki verið boðað,
þegar samningar tókust. Þó voru
um tima horfur á að útgáfa dag-
blaðanna frá og með miðviku-
deginum stöðvaðist vegna yfir-
lýsingar útgefenda um að þeir
mundu ekki greiða blaðamönnum
laun fyrirfram fyrir júlímánuð af
ótta við verkfall af þeirra hálfu.
Blaðamenn töldu þá, að þeim væri
ekki skylt að vinna, þar eð ákvæð-
ið um fyrirframgreiðslu væri i
eldra samningi, sem lagður væri
til grundvaliar launagreiðslum til
blaðamanna í einu og öllu, þar til
nýr samningur hefði verið gerð-
ur.
Landsvirkjun:
Lítil saga um
ökugjaldssvik
SVO bar við um síðustu helgi i
höfuðborginni, að ungur maður
hitti tvær álitlegar dömur á
skemmtistað og fór vel á með
þeim. Bauðst hann að lokum til að
aka þeim heim, sem þær þáðu.
Kallaði hann á leigubil — og segir
ekki af ferðum þeirra fyrr en
komið er að heimili annarrar
stúlkunnar, eftir að hinni hafði
verið ekið heim. Þarna stigu
stúlkan og herramaðurinn út og
var leigubílstjórinn beðinn að
hinkra við, á meðan herrann
fylgdi stúlkunni inn.
Leið nú nokkur stund og ekkert
bólaði á herranum. Fór þá bil-
stjórinn á stúfana og spurði um
hann í húsinu. Varð stúlkan þá
meira en litið hissa og sagði herr-.
ann hafa farið fyrir löngu. En
hún bauðst þó til að taka á sig
helminginn af ökugjaldinu, sem
ógreitt var.
Bílstjórinn ók síðan leiðar sinn-
ar og skammt þar frá, á Hring-
brautinni, sá hann mann, sem
veifaði eftir leigubil. Var þar
kominn „herramaðurinn“ sem
læðzt hafði í burtu án þess að
borga. Bilstjórinn stanzaði, tók
hann upp í — og ók svo beina leið
niður á lögreglustöð.
Lýkur þar lítilli sögu um öku-
gjaldssvik!
Þessi klæðnaður hæfir vel um þessar mundir.
ÍNæsl kaldtisli júramánuðurinn
SÁ júnímánuður, sem nú er
rétt liðinn, reyndist vera sá
næst kaldasti í Reykjavík á
þessari öld, en meðalhitinn
mældist 7,9 stig. Júnímánuð-
urnir f kringum 1920 voru
reyndar mjög kaldir og sá kald-
asti var 1921, en þá mældist
meðalhitinn 7,8 stig, og árið
1922 var sama hitastig f mánuð-
inum og í þeim sem nú er nýlið-
inn.
Knútur Knudsen veðurfræð-
ingur, sagði í gær, að úrkoman f
mánuðinum hefði Ifka verið yf-
ir meðallagi, þannig að þessi
mánuður hefði verið óhagstæð-
ur f marga staði.
Orgeltónleikar
I KVÖLD, miðvikudag 2. júlí kl.
20.30, verða orgeltónleikar i Fila-
delfiu, Hátúni 2. Arni Arin-
bjarnarson mun leika orgelverk á
hið nýja orgel Fíladelfíu, sem
tekið var í notkun s.l. sunnudag.
A efnisskránni eru verk eftir
Pál Isólfsson, Buxtehude og Bach.
Allir eru velkomnir á þessa tón-
leika og er aðgangur ókeypis, en
þeim, sem vildu styrkja þessi
orgelkaup safnaðarins, gefst kost-
ur á þvf í lo.k tónleikanna.
Tungnaárvirkjun þarf að vera
tilbúin eigi síðar en 1980
A STJÖRNARFUNDI Lands-
virkjunar, sem haldinn var f gær,
voru lagðar fram endurskoðaðar
áætlanir um virkjun Tungnaár
við Hrauneyjafoss og upplýst, að
útboðslýsingar yrðu fljótlega til-
búnar miðað við virkjun f áföng-
um. — Orkuspár Landsvirkjunar
sýna að til að fullnægja almennri
orkuþörf á orkuveitusvæði Lands-
virkjunar þurfi ný virkjun að
vera komin þar f gagnið eigi sfðar
Laxá í Aðaldal
Helga Halldórsdóttir ráðs-
kona í Vökuholti sagði okkur að
þar væri aflinn aðeins að glæð-
ast og veiddist vel fyrir neðan
fossa í gær og dag, en veiði í
uppánni er ennþá treg. Mjög
mikið vatn er f ánni og fylla, og
það svo að vanir veiðimenn
telja sig vart muna eftir Laxá
svo stórri, og er þá mun erfið-
ara að fást við laxinn því að
hann færir sig af hinum hefð-
bundnu tökustöðum. Mikil veð-
urbliða hefur verið nyrðra
undanfarna daga, en þó
kóinaði aðeins í morgun.
Rúmir 20fl laxar eru nú
komnir á land á svæði Lax-
árfélagsins. Þá höfum við
þær fregnir frá veiðiheintilinu
Á, þar sem l'A stöng er leyfð á
svæðinu milli Laxárfélagsins
og svæðis Hermóðar í Arnesi,
að þær væru 15 laxar konnir á
land.
Norðurá
Stefán Brynjólfsson i veiði-
húsinu við Norðurá sagði okkur
að í gær hefði verið að taka við
fyrsti útlendingahópurinn og
ERU ÞEIR
/ AÐ
1 FÁ’j
verða útlendingar í meirihluta
fram í ágúst. Um 550 laxar eru
komnir á land og mikill lax
genginn I ána. Vatn fer nú
minnkandi í Norðurá eftir mik-
il flóð undanfarið og horfir vel
með veiði.
en á árinu 1980, en þar á að rfsa
170 MW virkjun. Var samþykkt
að stefna að þvf, að gera tillögu til
eignaraðila Landsvirkjunar um
næstu virkjun á orkuveitusvæði
fyrirtækisins eigi sfðar en á
hausti komanda, en auk undir-
búnings virkjunar Tungnaár við
Hrauneyjafoss standa nú yfir á
vegum Landsvirkjunar athuganir
á virkjunarmöguleikum f Þjórsá
við Sultartanga og;í samvinnu við
Reykjavíkurborg, á jarðgufu-
virkjun á Hengilsvæðinu.
Fundurinn i gær var haldinn I
tilefni þess, að þá voru 10 ár liðin
frá stofnun Landsvirkjunar. Var
Landsvirkjun stofnuð með sam-
eignarsamningi ríkisins og
Reykjavíkurborgar, sem undirrit-
aður var hinn 1. júlí 1965 af þeim
Ingólfi Jónssyni þáverandi orku-
málaráðherra og Geir Hallgríms-
syni þáverandi borgarstjóra. Var
sameignarsamningur þess gerður
með stoð í lögum um Landsvirkj-
un nr. 59 frá 20. maí 1965. Sam-
kv'æmt lögunum er fyrirtækið
sjálfstæður rekstraraðili, er hefur
sjálfstæðan fjárhag og reiknings-
hald. Það er sameign rikisins og
Reykjavíkurborgar og á hvor aðili
um sig helming þe§s.
Við stofnun Landsvirkjunar
voru eftirtaldir menn skipaðir i
stjórn: Formaður Jóhannes Nor-
Hálendisvegirnir ófærir
SEGJA má, að nær allir hálendis-
vegir Iandsins séu enn lokaðir, en
það er orðið mjög óvenjulegt að
þeir séu ekki færir um þetta leyti
árs, sagði Þórður Kristjánsson
hjá Vegaeftirlitinu í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði,
að frost hefði farið mjög seint úr
jörðu og vfða væri landið ein for-
arvilpa, en á næstu dögum og
vikum yrði farið að reyna að opna
þessa vegi.
Þórður sagði, að Kaldidalur
væri enn lokaður, en athuga ætti
veginn í vikunni. 1 Kerlingarfjöll
er fært á jeppum og framdrifabíl-
um, en hinsvegar er Kjalvegur
lokaður, en ætlunin er að reyna
að opna hann þann 6. júlí. 1 Land-
mannalaugar er svo fært úr
Sigöldu og í Eldgjá er hægt að
komast neðan úr Skaftártungu.
Að sögn Þórðar er enn ekki
vitað hvenær hægt verður að
ópna Sprengisandsleið, en vonast
er til að vegurinn verði fær í
þessum mánuði. Þá er orðið fært
úr Blöndudal að Hveravöllum
fyrir bíla með drif á öllum hjói-
um.
dal, Árni Grétar Finnsson, Baldv-
in Jónsson og Sigtryggur Klem-
enzson kosnir af alþingi, og Birgir
Isleifur Gunnarsson, Geir Hall-
grimsson og Sigurður Thoroddsen
kosnir af borgarstjórn.
Framhald á bls. 26
Jósafat
stefnir
Seðla-
bankanum
JÖSAFAT Arngrimsson kaup-
sýslumaður hefur höfðað mál
fyrir bæjarþingi Reykjavíkur
gegn Seðlabanka íslands. Krefst
Jósafat 1,4 milljóna króna í
endurgreiðslu fyrir innheimtu-
gjald ásamt dráttarvöxtum, sem
hann telur Seðlabankann hafa
haft ranglega af sér.
„Opið hús” 1 Norræna húsinu
„Opið hús“ er nú að taka til
starfa á ný í I Norræna húsinu, en
það gaf mjög góða raun s.l. sumar.
1 fyrra voru þessi kvöld á fimmtu-
dagskvöldum og verður svo einn-
ig i sumar. Á þessum kvöldum
verður allt efni, sem flutt verður,
af Islenzkum toga spunnið, en
flutt á öðrum Norðurlandamál-
um. Meðal efnis má nefna fyrir-
lestra um land og þjóð, tónleika,
þjóðdansasýningu, kvikmyndir og
balletsýningar, og annað kvöld, 3.
júli, hefjast kvöldstundirnar með
frumflutningi dagskrár um
islenzka þjóðtrú eftir Unni
Guðjónsdóttur. Ennfremur verð-
ur sýnd ný kvikmynd gerð af
Magnúsi Magnússyni.