Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULI 1975
Ferðabílar
Bilaleiga, simi 81260
Fólksbílar — stationbilar —
sendibilar — hópgerðabilar.
BÍLALEIGAN
MIÐBORG hf.
sími 19492
Nýir Datsun-bilar.
HÖGGDEYFAÚRVAL
FJAÐRIR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLEST í RAFKERFIÐ
HELLA aðalluktir, lukta-
gler luktaspeglar og
margs konar rafmagns-
vörur
BOSCH luktiro.fi.
S.E.V. MARCHALL luktir
CIBIE luktir
LJÓSASAMLOKUR
BÍLAPERUR altar gerðir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6 — 24 volt
ÞURRKUMÓTOR 6—24v
ÞURRKUBLÖÐ
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR i úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
AURHLÍFAR
MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMI OG LÍM
HOSUR
HOSUKLEMMUR
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
STÝRISHLÍFAR
KRÓMILISTAR
BENSÍNLOK
TJAKKAR 1V2—30 T
VERKSTÆÐISTJAKKAR
FARANGURSGRINDUR
BÖGGLABÖND
ÞOKULJÓS
DEKKJAHRINGIR
RÚÐUKÍTTI
ÞVOTTAKÚSTAR
BARNAÖRYGGIS-
STÓLAR
4 tegundir
BARNABÍLBELTI
BÍLBELTI
HNAKKAPÚÐAR
ÖSKUBAKKAR
MÆLITÆKI f. rafgeyma
SWEBA sænskir úrvals
rafgeymar.
ISOPON OG P-38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI-KOTE spray
lökkin til blettunar o.fl.
Athugið
allt úrvalið
(j^)naust h.t
Siðumúla 7
Simi 82722
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22410
JHtrgwbltibib
R:©
Útvarp ReykjaviK
AIIÐNIjaJDkGUR
frlORGUNIN^^^^^^^B
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen les
söguna „Höddu“ eftir Rachel
Field (9).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25:
Gabriel Verschraegen leikur
Prelúdfu og fúgu f a-moll eft-
ir Brahms/ Birgit Finnila,
Theo Altmeyer, William
Reiner, Bach-kórinn og
hljómsveitin f Herford flytja
„Missa brevis" í g-moll eftir
Bach.
Morguntónieikar kl. 11.00:
Fflharmonfusveitin í Vfn
leikur Spænska rapsódfu eft-
ir Ravel/ Hljómsveitin
Philharmonia leikur „Tón-
list fyrir strengjasveit" cftir
Arthur Bliss/ Sinfónfu-
hljómsveit Lundúna leikur
„Gullöldina“, ballcttsvftu op.
22 eftir Sjostakovits.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
SIDDIGH)
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
Iffs og moldar'* eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson
Höfundur les (5).
15.00 Miðdegistónleikar
Itzhak Perlman og Vladimir
Ashkenazy leika Sónötu nr. 2
f D-dúr op. 94a fyrir fiðlu og
pfanó eftir Prokof jeff.
Barokk-trfóið f Montreal
leikur Tilbrigði fyrir flautu,
óbó og sembal eftir Harry
Freedman.
Alfred Mouledous, Sinfónu-
hljómsveitin f Dallas og kór
flytja „Prometheus“, tón-
verk fyrir píanó, hljómsveit
og kór eftir Scrjabin; Donald
Johanos stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.00 Lagið mitt
Berglind Bjarnadóttir sér
um óskalagaþátt fyrir börn
yngri en 12 ára.
17.30 Smásaga: „I útlegð" eft-
ir Anton Tsjekoff
Áslaug Arnadóttir þýddi.
Guðmundur Magnússon leik-
ari les.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
KYOLDIÐ
19.35 Á kvöldmálum
Gfsli Helgason og Hjalti Jón
Sveinsson sjá um þáttinn.
20.00 Einsöngur í útvarpssal
Margrét Bóasdóttir syngur
lög eftir fslenzka og erlenda
höfunda. Guðmundur Jóns-
son leikur á pfanó.
20.20 Sumarvaka
a. Tvö á tali
Valgeir Sigurðsson ræðir við
Auði Eirfksdóttur Ijósmóður.
b. Úlafur þögli
Gunnar Valdimarsson les
brot úr Ijóðaflokki eftir
Benedikt Gfslason frá Hof-
teigi.
c. Veiðivötn á Landmanna-
afrétti
Gunnar Guðmundsson flytur
fyrsta erindi sitt: Leiðin til
Veiðivatna.
d. Kórsöngur
Blandaður kór og hljómsveit
flytja lög eftir Þórarin Guð-
mundsson; höfundur
stjórnar.
21.30 Ctvarpssagan: „Móðir-
in“ eftir Maxim Gorkf
Sigurður Skúlason leikari les
(19).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Rómeó og
Júlfa f sveitaþorpinu" eftir
Gottfried Keller
Njörður P. Njarðvfk les
22.35 Orð og tónlist
Elfnborg SteTánsdóttir og
Gérard Chinotti kynna
franskan vfsnasöng.
23.20 Fréttir f stuttu máli.
FIM/HTUDtkGUR
I MOHí.l NlVN
3. júlf
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Geir Christensen les
söguna „Höddu" eftir Rachel
Field (10).
Tilkynningar kl. 9.30. létt lög
milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Trausti
Eirfksson vélaverkfræðingur
ræðir um söfnun og vinnslu
loðnuhrogna.
Morguntónieikar kl. 11.00:
Barokkhljómsveit Lundúna
leikur „Litla sinfónfu" eftir
Gounod/Josef Suk og Jan
Panenka leika fjögur verk
fyrir fiðlu og pfanó eftur Suk
/ Felicja Blumental og
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leika „Fantasie Polonaise"
fyrir pfanó og hljómsveit eft-
ir Paderewski.
Slf)l)I(.H)
A frfvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Máttur
Iffs og rnoldar" eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson.
Höfundur les (6).
15.00 Miðdegistónleikar
Fflharmonfusveitin í Brno
leikur „Dansa frá Lasské"
eftir Janácek; Jiri Waldhans
stjórnar.
Sandor Konya, Ingeborg
Exner, Charlotte Kamps, kór
og hljómsveit útvarpsins f
Köln flytja atriði úr óper-
unni „Cavalleria Rusticana"
eftir Mascagni.
Hljómsveitin Philharmonia
leikur „Svipmyndir frá
Brasilfu" eftir Respighi;
Alceo Galliera stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli ba. natíminn
Margrét Gunnarsdóttir sér
um þáttinn.
17.00 Tónleikar
17.30 Bréfið frá Peking eftir
Pearl S. Buck. Málfrfður
Sigurðardóttir endar lestur
þýðingar sinnar.
Jón frá Pálmholti skráði og
les (1).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þættir úr jarðfræði Is-
lands
Ingvar Birgir Friðleifsson
jarðfræðingur talar um eld-
virkni á fsöld.
20.00 Gestir f útvarpssal
Margareta Jonth syngur
sænsk þjóðlög.
Leif Lyttkens leikur á gftar.
20.25 Leikrit: „Friður sem
með yður“ eftir Þorstein
Marelsson.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Persónur og leikendur:
Maður .....Gísli Haildórsson.
Kona .... Guðrún Stephensen
Stúlka .. Sólveig Hauksdóttir
Nágrannakona .. Herdfs Þor-
valdsdóttir
Frambjóðandi .. Rúrik Har-
aldsson
Blaðamaður .. Margrét Guð-
mundsdóttir
fyrsta rödd .. Helgi Skúlason
Önnur rödd Jón Múli Arna-
son
21.15 Lev Oborfn leikur á
pfanó
verk eftir Chopin.
21.45 „Homunculus“, smá-
saga eftir Ólaf Hauk Sfmon-
arson
Erlingur Gfslason leikari les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Rómeó og
Júlfa f sveitaþorpinu" eftir
Gottfried Keller Njörður P.
Njarðvfk endar lestur þýð-
ingar sinnar (8).
22.35 Ungir pfanósnillingar
Nfundi þáttur: Michel Béroff
og Jean Rodolphe Kars.
Halldór Haraldsson kynnir.
23.25 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
HQ HEVRR rP
Nú þegar sjónvarp er hætt,
er útvarpið eitt um að fræða
og skemmta þeim sem
heima sitja. Við spurðum
Guðmund Jónsson hvort út-
varpið „spýtti í byssuna" af
þessum sökum, en hann
sagði að fjárhagur veitti ekki
sérstakt svigrúm til þess. En
ávallt væri reynt að hafa eitt-
hvað létt efni á sumrin og
væri svo nú. Þegar sjónvarp-
ið væri ekki, hefðu útvarps-
menn aftur á móti svolítið
óbundnari hendur með að
raða dagskránni, þyrftu ekki
að keppa að því að koma
merkilegum erindum fyrir
fréttir. Engin hætta á að
Onedin drægi hlustendur frá
útvarpinu nú. Að því leyti
væri þetta svolítið léttara í
júlí.
í kvöld eru á dagskránni
orð og tónlist kl. 22.35. í tíu
þáttum kynna þau Elínborg
Stefánsdóttir og Gerard
Chinotti franskan vísnasöng
annan hvern miðvikudag og
er þetta annar þátturinn.
Gerard Chinotti er franskur
og Ellnborg var í 5 ár við
nám í bókmenntum í Frakk-
Gerard Chinotti og Elfnborg Stefánsdóttir hlusta á franskan söngvara flytja list slna, en þau gefa útvarpshlust-
endum kost á að hlusta með sér kl. 22.35 f kvöld.
landi. Vísnasöngur nýtur
mikilla vinsælda þar í landi,
enda til hans vandað og
hann byggist á gamalli hefð.
Upp úr heimsstyrjöldinni
varð mikil vakning á þessum
vísnasöng. Fyrstu árin fluttu
söngvararnir vísur sínar á
veitingahúsum og fólk
hópaðist þangað til að hlusta
á þá, en nú orðið syngja þeir,
sem þekktir eru, í hljómleika-
sölum og inn á plötur. Þau
Elínborg og Gerard hlustuðu
mikið og söfnuðu plötum
með vísnasöng í Frakklandi
og eru það mikið þeirra eigin
plötur sem þau nota, en fá
einnig viðbót. Þau endur-
segja textana, sem sungnir
eru á frönsku.
Fyrsti þátturinn var
nokkurs konar formáli, þar
sem kynntar voru eldri þjóð-
vísur og trúbadorasöngvar,
sem vísnasöngur nútímans
er sprottinn upp úr. En í
hinum þáttunum taka þau
fyrir sérstaka söngvara og
velja þá sem bæði semja og
flytja sjálfir. Nú I kvöld ert.d.
tekinn visnasöngur frá 1945
og hinn kunni flytjandi
Georges Brassens er kynnt-
ur. Búið er að taka upp alla
þættina og í síðari þáttum
koma fram Jacques Brel,
Barbara, Jean Ferrat, Leo
Ferré, Felix Leclerc, sem er
kanadískur, Guybéart,
Esposito o.fl. en þetta eru allt
mjög þekktir söngvarar.
í Frakklandi er slíkur vísna-
söngur vel virtur. Textarnir
eru vel gerðir og hafa mikla
þýðingu enda hefur vísna-
flutningur af þessu tagi mjög
skoðanamyndandi áhrif þar.
Vísnaflutningur er því mjög
sterkur liður í nútímaþjóðlífi í
Frakklandi.