Morgunblaðið - 02.07.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULI 1975
7
ll-
Línan
frá Moskvu
Þegar úrslit urðu kunn
í kosningum þeim til
stjórnlagaþings Port-
úgals, sem fram
fóru í vor og Ijóst varð,
að jafnaðarmenn undir
forystu Mario Soares
höfðu unnið mikinn sig-
ur en kommúnistar
beðið afhroð, upphófst
samræmd tilraun af
hálfu kommúnista um
heim allan til þess að
leyna þessum ósigri
kommúnista i Portúgal
og varpa allt öðru Ijósi á
úrslit kosninganna en
vera bar. Í Sovétrikjun-
um var ekki skýrt frá
ósigri komrnúnista
heldur voru úrslitin lögð
út á þann veg, að „hin
sósíalísku öfl" hefðu
unnið mikinn sigur i
kosningunum og fengið
mikinn meirihluta á hinu
nýja þingi. Þessi túkun
kosningaúrslitanna var
auðvitað fáránleg af
þeirri einföldu ástæðu,
að hatrömmustu and-
stæðingar i port-
úgölskum stjórnmál-
um frá byltingunni hafa
einmitt verið komm-
únistar og jafnaðar-
menn og kosningar
þessar voru eins konar
einvigi þeirra i milli um
fylgi almennings í
Portúgal. Þess vegna
var það blekking ein og
fals að leggja úrslit
kosninganna út á þann
veg sem gert var austur
i Moskvu. En að sjálf-
sögðu endurómuðu
áróðursöfl kommún-
ismans um heim
allan þessa linu frá
Moskvu og gilti þá einu.
hvort um var að ræða
önnur kommúnistriki,
kommúnistaf lokka á
Vesturlöndum eða
fréttaritara rikisútvarps-
ins islenzka i Paris, sem
túlkaði úrslitin i frétta-
auka á sama veg og gert
var austur i Moskvu. Á
undanförnum árum hafa
hinir svonefndu Alþýðu-
bandalagsmenn hér á ís-
landi gert itrekaðar til-
raunir til þess að sann-
færa almenning hér á
landi um, að hin gömlu
tengsl milli Sósíalista-
flokksins og Rússa
hefðu verið rofin, og i
þvi skyni hefur verið
beitt margvislegum að-
ferðum til þess að fela
þessi tengsl. En þeir
Alþýðubandalagsmenn
hafa átt ákaflega erfitt
með að leyna hinu rétta
hugarfari i ræðu og riti
um atburðina i
Portúgal. Þannig gerir
einn af ritstjórum Þjóð-
viljans i gær enn eina
tilraun til að skýra af-
stöðu blaðs sins til at-
burðanna i Portúgal og
segir að Þjóðviljinn
„styður af einlægni
framfarasókn sósialiskra
flokka i Portúgal, sem
hafa samanlagt hreinan
meirihluta kjörfylgis. Af-
staða Þjóðviljans fer
þannig ekkert á milli
mála." Það eru orð að
sönnu. Linan frá
Moskvu blífur!
Óánægja
skal það vera
Enda þótt flestir eða
allir togarar landsmanna
hafi nú haldið úr höfn
eftir 2Vz mánaðar stopp
og atvinnulifið þar með
að komast í eðlilegt horf
eiga kommúnistar ákaf-
lega erfitt með að sætta
sig við þessi úrslit mála.
I þessum dálkum var i
gær gerð að umtalsefni
sú óskhyggja Þjóð-
viljans, að togara-
samningarnir yrðu felld-
ir. Þeir voru að sjálf-
sögðu samþykktir og
reiði kommúnista leynir
sér ekki. I myndatexta
með frétt Þjóðviljans i
gær um samþykkt
togarasamningana segir
svo: „Þrátt fyrir mjög
mikla óánægju togara-
sjómanna, sem glöggt
kom fram á fundi þeirra
um togarasamninga s.l.
föstudag, voru samn-
“ --------------------1
ingarmr samþykktir
með yfirgnæfandi
meirihluta."! Er það
ekki furðulegt, að
samningar skuli sam-
þykktir með yfirgnæf-
andi meirihluta, ef rétt
er að „mikil óánægja "
ríki meðai togarasjó-
manna?!
Útgáfa
Repúblika
Þjóðviljinn hafði lítinn
áhuga á því að skýra frá
fréttum um stöðvun út-
gáfu málgagns jafnaðar-
manna I Portúgal,
Repúblika, fyrir nokkr-
um vikum. Hins vegar
hafa kommúnistar að
sjálfsögðu mikinn áhuga
á að veita skoðana-
bræðrum sinum I Portú-
gal stuðning i viðleitni
þeirra til að koma i veg
fyrir, að frjáls útgáfa og
frjáls blaðamennska
megi þroast i
Portúgal. Þannig kemur
einn af skriffinnum
Þjóðviljans i gær fram
með alveg nýja
kenningu um það, hvers
vegna útgáfa Repúblika
var stöðvuð. Skv. henni
urðu prentarar, sem
unnu hjá Repúblika,
óttaslegnir um að blaðið
mundi hætta að koma út
vegna fjárhagserfið-
leika, og þeir þar af
leiðandi mundu missa
vinnu sína Niðurstaðan
af aðgerðum þeirra varð
hins vegar sú, að
blaðið hætti alveg að
koma út!
Vill vekja athygli
á karlmönnum sem
vinna kvenmannsverk
JAMES Levine svaraöi dyra-
bjöllunni á heimili sínu um
daginn og framan á honum
hékk grænn barnapoki úr
striga. Ut úr pokanum hékk
pinulítill handleggur, klæddur
flóneli, og litið dökkt höfuð, og
tilheyrði hvort tveggja Joshua
Levine, 19 daga gömlu yngra
barni Levine og konu hans
Joan. Uppi var 'Jessica, 4 ára
gömul, að ljúka við hádegismat-
inn, sem faðir hennar hafði
matreitt fyrir hana. Móðir
hennar var að heiman þennan
morgun og var í tíma í skapandi
ritsmíðum.
Levine var ekki aðeins að
gæta barnanna. Hannn var að
sinna þeim störfum sem marg-
ar mæður en nærri engir feður
þurfa að inna af hendi á hverj-
um degi þegar þær þurfa að
hugsa um heimilið og tvö ung
börn. Því hann er húsmóðir að
hluta til.
Levine fór smátt og smáttt að
taka þátt í heimilisstörfunum
og uppeldi barnanna. Það byrj-
aði þegar hann fékk sér
kennarastöðu við smábarna-
skóla í Berkeley, Kaliforníu, og
var jafnframt að búa sig undir
doktorspróf í ensku. Þetta starf
gerði það að verkum að hann
fékk frest á því að gegna her-
skyldu.
En þegar sá möguleiki var
ekki lengur fyrir hendi að hann
yrði kallaður í herinn, þá hélt
hann áfram samskonar störfum
og tók síðan að sér stjórn barna-
verndunar-áætlunar í
Worcester, Massachusetts, og
fluttist síðan til New Yourk og
fór að vinna fyrir Barnahjálp
Sameinuðu þjóöanna og gaf þar
ráðleggingar um barnahjálp.
„Ég held að það sem kom mér
af stað,“ sagði Levine, sem er
grannur maður með gleraugu
og snyrtilegt dökkt skegg, „hafi
verið allt fólkið sem spurði mig
þegar ég var að kenna í smá-
barnaskólanum: „Hvað er það
eiginlega sem þú gerir?.“
Þegar Levine kom til New
York hafði hann tekið tvær
ákvarðanir. Hann ætlaði ekki
aðeins að gera barnauppeldi að
atvinnu sinni heldur einnig að
taka virkan þátt i uppeldi sinna
eigin barna.
„Ég komst að þeirri niður-
stöðu," sagði hann, „að maður
hefur jafnmikla ábyrgð og kona
á uppeldi þeirra barna, sem
þau eiga saman." (Frú Levine ,
•NeUrJJorkSftmeia;
Eftir
Lisu Hammel
sem áður var kennari, skrifar
nú barnabækur.)
Ennfremur ákvað Levine,
eftir að hafa talað við fólk um
allt land í sambandi við starf
sitt hjá Barnahjálpinni, að
athuga nánar þau fyrirbæri
þegar karlmenn hafa annað-
hvort af persónulegum ástæð-
um tekið að sér barnauppeldi
eða gert það að atvinnu sinni. I
þessu skyni fékk hann styrk frá
Fordsjóðnum síðastliðið vor.
„Kvennahreyfingin hefur
vakið athygli á konum, sem
vinna kralmannsverk og ég
vildi fara öfugt að og vekja
athygli á karlmönnum, sem
vinna kvenmannsverk,“ sagði
hann.
„Uppeldi annarra er grund-
vallarþörf, sem karlmönnum er
neitað um að uppfylla i okkar
þjóðfélagi," bætti hann við.
„Það er einn þáttur í mannlegu
eðli, sem ekki er þroskaður til
fulls.“
„Og,“ sagði hann, „eftir því
sem fleiri konur fara út á
atvinnumarkaðinn, þeim mun
lægra er uppeldisstörfum gert
undir höfði.“ Hann benti á að
þetta væri furðuleg staðreynd,
þegar tekið er tillit til þess að
það sem um er að ræða er um-
hyggja fyrir mannlegum verum
— Kynslóð framtiðarinnar.
Hjá þeim 100 karlmönnum,
sem hann talaði við i sambandi
við athuganir sínar, fann hann
marga sameiginlega eiginleika.
Þetta voru, sagði hann, yfirleitt
menn’sem höfðu til að bera
mikla þolinmæði, umburðar-
lyndi, sjálfstæða hugsun,
öryggi, allmikla sjálfsþekk-
ingu og sterka sjálfsvirðingu.
Þeir urðu að hafa nokkuð
mikið sjálfsöryggi, bætti Levine
við, „vegna þess þeir voru í
mjög erfiðri aðstöðu”. Ekki
aðeins vegna þess að í flestum
tilfellum var um fjárhagserfið-
leika að ræða, vegna þess að
kvenfólk, sem að hluta eða að
öllu er fyrirvinna heimilisins,
fær einfaldlega ekki eins mikið
kaup, heldur einnig vegna
þeirra augljósu og ekki svo aug-
ljósu erfiðleika sem verða á
vegi þeirra, sem taka að sér
hlutverk, sem ekki eru viður-
kennd í þjóðfélaginu.
Um eitt er Levine sannfærð-
ur: „Ef allir litu á uppeldi, sem
ánægjulegt, þroskandi og heil-
brigt starf þá mundi þjóðfélag-
ið smátt og smátt breytast."
Öll uppbygging vinnu-
markaðarins mundi breytast og
bæði karlar og konur fengju
tækifæri til að vinna hálf störf.
Stjórnmálamenn myndu gefa
rétti barna meiri gaum.
Og að lokum, eftir þvi sem
betri efnahagslegir möguleikar
verða til fyrir kvenfólk — aðal-
lega vegna kvennahreyfingar-
innar, sagði hann — þeim mun
meira frjálsræði fá karlmenn
tilaðvelja. (Þýð:J.Þ.Þ.)
A f alhug þakka ég öllum þeim, sem á margvís-
/egan hátt stuðluðu að því að gera 75 ára
afmælisdag minn, hinn W. júní s.l. ógleyman-
/egan. Sérstakar þakkir færi ég skólast/óra
kennara og starfsfólki Barnaskóla Keflavíkur
fyrir góðar gjafir. Guð b/essi ykkur öll.
Skú/i Oddleifsson,
Kef/avík.
Til sölu
stór lóð undir einbýlishús á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar í síma
28719 í dag og á morgun kl. 9 —13 og
19—22.
Frá Happdrætti Grensáskirkju
Vegna þeirra, sem þegar hafa keypt miða, þykir
okkur leitt að verða að tilkynna að sökum
ónógrar sölu happdrættismiða er drætti frestað
til 30. september n.k.
Vacumpökkunarvél óskast
Óskum eftir að kaupa vél til pökkunar í lofttæmdar umbúðir (Vacum-
pökkun). Upplýsingar i slmum 28590, 1 2388 og 74575.
Rowentðk
Straujárn
i mörgum gerðum
og litum.
Heildsolubirgðir
Halldór Eiríksson & Co
Simi 83422 a
<
I
l
l
1
I >
1 >
Eigum nokkur stykki af
þessum hljómfögru
píanóum, á gömlu verk-
smiðjuverði. Eins árs
ábyrgð, mjög gott verð,
staðgreiðsluafsláttur.
Hljóðfæraverslun Pálmars Árna
Borgartúni 29 sími 32845.
TÆKIFÆRI
Til að veita viðskiptavinum okkar enn betri
þjónustu óskum við eftir sambandi við duglega,
áreiðanlega menn úti á landi, sem gætu tekið
að sér kynningu og sölu á ýmsum vörum, sem
við flytjum inn eins og.
Hjólhýsum
Tjaldvögnum
Sumarhúsum
Vélsleðum
Kerrum og fleiru
Æskilegt væri að væntanlegir samstarfsmenn
gætu veitt einhverja þjónustu, þar sem flestir
þessir hlutir eru í ábyrgð.
Gís/i Jónsson & Co Hf
Sundaborg, Klettagörðum 1 1
Sími 86644.