Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULl 1975
13
Portúgal:
Vaxandi vanda spáð
í efnahagslífinu
EFNAHAGSASTANDIÐ f
Portúgal hefur farið sfversn-
andi sfðastliðið ár og frétta-
skýrendur teija að svo kunni að
fara að það verði ráðatnönnum
byltingarráðsins öðru erfiðara
úrlausnar. Birt hefur verið
skýrsla byltingarráðsins um
efnahagsástandið og kemur þar
meðal annars eftirfarandi f
ljós:
Atvinnuleysi hefur þrefald-
azt á síðustu sex mánuðum og
eru nú 250 þúsund manns at-
vinnulausir eða 8%. Ekki eru
teknir með f skýrslunni þeir
sem reiknað er með að snúi
heim frá Mozambique og An-
gola á þessu ári og án efa verð-
ur mjög erfitt að útvega mörg-
um þeirra atvinnu enda þar um
tugi þúsunda manna að ræða.
— Spáð er 6% samdrætti f
framleiðslu á árinu. Ekki er af
skýrslunni ljóst hvort samdrátt-
urinn er reiknaður samkvæmt
núgildandi verðlagi í landinu.
Ef verðbólguþátturinn hefur
ekki verið tekinn með í dæmið i
skýrslunni getur samdráttur í
framleiðslu orðið enn meiri og
þá eru og líkur á auknu at-
vinnuleysi.
— Eftir að hafa i allmörg ár
haft hagstæðan viðskiptajöfnuð
virðist nú útlit fyrir greiðslu-
halla að upphæð 1.2 milljarðar
dollara. Gjaldeyrissjóðir lands-
ins hafa rýrnað mjög verulega
og verður Portúgal þá að grípa
til þeirra ráða að selja af gull-
forða sinum eða fá lán út á
gullinnstæður sfnar.
— Þá er Ijóst að meira en
milljón Portúgala, sem hafa
sótt vinnu til annarra landa,
munu eiga erfiðara uppdráttar
og er þetta talið tengt bæði
efnahágs- og stjórnmálaástand-
inu i landinu.
Stjórnmáíasérfræðingar
benda á að Portúgalir séu mjög
háðir Vesturlöndum í sambandi
við viðskipti sín út á við. Engu
að síður er yfirlýst stefna
byltingarráðsins að þoka land-
inu á braut til sósíalisma og
taka litið tillit til vestrænna
skoðana varðandi málið og gæti
þetta haft hinar afdrifaríkustu
afleiðingar á utanríkisverzlun
Portúgala.
Bent er á að skýrsla þessi
þyki ekki trúverðug í alla staði
þar sem byltingarráðið leyni
ýmsum staðreyndum, sem
kunni að hafa í för með sér enn
meiri erfiðleika i efnahags- og
atvinnulífi Portúgala á næst-
unni, þar sem ráðamönnum sé í
mun að vekja ekki upp meiri
ólgu meðal almennings í land-
inu en þegar hefur gert vart við
sig.
Setjið
inguí
Moskvu 1. júlí — Reuter.
Bandarískur öldungadeildar-
þingmaður lagði á mánudag til
við sovézku stjórnina að hún aug-
Indira Gandhi lofar endur-
bótum í efnahagsmálum
F—16, bandariska orustuþotan, sem fjögur Evrópulönd, Danmörk, Noregur, Holland og Belgfa hafa
ákveðið að kaupa fyrir flugheri sína, hefur sig á loft frá Værlöse flugvelli við Kaupmannahöfn. Eftir
flugbrautinni skrfður Phantom F—1 orustuþota danska flughersins, en báðar flugvélarnar hófu
flugtakið samtfmis.
Nýju Deií 1. júli — AP. Reuter.
INDIRA Gandhi, forsætisráð-
herra Indlands skýrði I dag frá
nýjum tillögum f efnahagsmál-
um, sem aðallega miða að þvf að
aðstoða fátæka I borgum og sveit-
um og að draga úr skattsvikum,
smygli og jarðabraski með harð-
ari refsingum. Sagði hún frá til-
lögunum I útvarpi eftir tveggja
og hálfrar klukkustundar fund
með miðstjórn Kongressflokks-
ins.
Þessar tillögur koma í kjölfar
loforða hennar um endurbætur
þegar stjórn hennar lýsti yfir
neyðarástandi í landinu í síðustu
viku. Hún sagði í þinginu I dag að
lýðræðið I Indlandi væri illa sært
af þeim, sem létust vera „bjarg-
vættir lýðræðisins", en tillögur
hennar væru tilraun til „að koma
þjóðinni á sporið aftur", svo að
landsmenn gætu búið við eðli-
legar framfarir.
Gandhi sagði að engir töfra-
lyklar væru að lausn efnahags-
vandamála Indlands og að tillög-
Ur hennar væru f raunenginveru-
leg nýjung. Það bar aðallega
fólki til sveita sem hún lofaði
endurbótum, sem felast meðal
annars í hækkun lágmarkslauna,
endurskiptingu ónotaðs lands,
banni við nauðungarvinnu og
hjálp til að grynna á skuldum
landlausra, handverksmanna og
fátækra bænda.
Gandhi boðaði skattalækkun
hjá hinum lægst launuðu i borg-
unum og lofaði aukinni þátttöku
starfsmanna í rekstri fyrirtækja.
ára gamall, hefur barizt gegn
spiliingu í landi sínu og var einn
676 stjórnarandstæðinga, sem
handteknir voru. Hann mun vera
hjartveikur.
auglýs-
Pravda
lýsti í Pravda eftir Gyðingum,
sem vilja flytjast til Israel.
Charles Percy, sem er í hópi
bandarískra öldungadeildarþing-
manna, sem nú eru í iieimsókn í
Sovétríkjunum til viðræðna um
viðskiptasamning landanna, sagði
að hann hefði lagt þetta til við
sovézka embættismenn, þar á
meðal ritara miðstjórnar
Kommúnistaflokksins, Boris
Panomarev, er til umræðu voru
flutningar fólks frá Sovétríkjun-
um.
Hann sagði að hann hefði lagt
til á fundinum að Sovétríkin
stefndu að því að 35 þúsund Gyð-
ingar fengju að flytja úr landi ár
hvert eins og var þegar brott-
flutningur þeirra náði hámarki
1973. I ár munu þeir verða færri
en 10 þúsund.
Percy sagði að Sovétmennirnir
hefðu sagt að þeir gætu ekki
fundið svo marga Gyðinga, sem
vildu flytjast lir landi, svo að
hann hefði lagt til að þeir settu
auglýsingu í Pravda.
Snemma á þessu ári riftuðu
Sovétríkin verzlunarsamningi
sínum við Bandaríkin, sem gerður
var 1972, í mótmælaskyni við til-
raunir Bandarikjaþings til að
blanda málefnum sovézkra Gyð-
inga við viðskiptakjör Sovét-
manna í Bandarikjunum.
Indira Gandhi
fátækra.
vill bæta kjör
Narayan — f hungurverkfalli.
Skattsvikarar fengu kveðju frá
forsætisráðherranum og hótaði
hún þeim harðari refsingum, svo
og jarðabröskurum og smyglur-
um. Lofaði hún þeim að meira
yrði gert til að brjóta starfsemi
þeirra á bak aftur.
Bandaríkin hafa mótmælt því
að blaðamanni Washington Post i
Indlandi, Lewis Simons, var vísað
úr landi á þriðjudag. Var ástæðan
sú að Simons hafði neitað að
beygja sig undir lögin um ritskoð-
un. Frú Gandhi reyndi samdæg-
urs að koma í veg fyrir að sambúð
landanna versnaði vegna brott-
reksturs Simons, og sagði i ræðu
að Indlandsstjórn myndi kapp-
kosta að eiga áfram góða sambúð
við Bandaríkin og að Indverjar
hefðu margt af Bandarikjamönn-
um lært.
Frá London berast þær fregnir
að stjórnarandstöðuleiðtoginn
Jayakrapash Narayan, sem
hnepptur var í fangelsi er neyðar-
ástandi var lýst, sé i hungurverk-
falli og hafi verið fluttur þungt
haldinn úr klefa sinum i fangels-
issjúkrahús. Það var Alþjóðasam-
band sósíalista, sem skýrði frá
þessu. Sagðist talsmaður þess
hafa þetta. eftir áreiðanlegum
heimildum. Narayan, sem er 72
:OFNt>URRKAÐURi
HARÐVIDUR
17 VIÐARTEGUNDIR
ABAKKI
ASKUR
BEYKI
EIK, japönsk
EIK# Tasmania
HNOTA amerísk
HNOTA (afríka)
IRAKO
LIMBA
MAHOGNY
OREGON PINE
PAU MARFIN
RAMIN
YANG
TEAK
WENGE
Panga panga
HARÐVIÐAR- GEREKTI
GÓLFLISTAR á útíhurðir úr OREGON
ÚR EIK, JELLUTONG MAHOGNY, TEAK OG WENGE PINE OG TEAK.
Panell á útihurðir úr teak
SOGIN HF.f
HÖFÐATÚNI 2. — SÍMI 22184.