Morgunblaðið - 02.07.1975, Side 16

Morgunblaðið - 02.07.1975, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLl 1975 Piltur óskar eftir vinnu Hefur stúdentspróf úr máladeild. Tilboð sendist augl.d. Mbl. merkt: „Máladeild — 2938" fyrir 7. júlí n.k. Laus staða Staða kennara i ensku við Menntaskólann ! Kópavogi er laus til umsóknar. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um námsferil og störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja- vík, fyrír 27. júlí n.k. — Umsóknareyðublöð fást ! ráðuneyt- inu. Menntamálaráðuneytið, 27. júní 1975. Byggingatækni- fræðingur Við óskum eftir að ráða byggingatækni- fræðing til starfa frá og með 1. september n.k. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir sendist Fast- eignamati ríkisins fyrir 1 0. ágúst n.k. Fasteignamat ríkisins, Lindargötu 46, Reykjavík. Eitt af stærri iðnfyrirtækjum landsins, staðsett í Reykjavík, óskar að ráða innheimtustjóra. Ábyrgðarmikið framtíðarstarf. Verslunar- skóla- eða hliðstæð menntun áskilin. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Tilboð sendist Félagi íslenskra iðnrek- enda, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, merkt „innheimtustjóri". Kröflunefnd óskar eftir að ráða yfirverkfræðing til starfa við undirbúning og framkvæmdir við Kröfluvirkjun. Starfinu fylgir m.a. eftirlit með smíði véla, og tækja fyrir virkjunina og yfirumsjón með uppsetningu, einkum vélbúnaðar. Þá er yfirverkfræðingnum ætlað að fylgjast með og vera tengiliður Kröflunefndar við aðra framkvæmdaaðila við virkjunina. Starfinu munu fylgja mikil ferðalög bæði utanlands sem innan. Starfið er laust til umsóknar strax. og er ráðningartími óákveðinn. Umsóknir um starfið með upplýsingum um ævi og starfsferil, skulu sendast til formanns nefndarinnar, Jóns G. Sólnes, P.O. Box 5, Akureyri fyrir 1. ágúst n.k. Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur búi yfir starfs- reynslu, góðum stjórnunarhæfileikum og málakunnáttu. Frekari upplýsingar um starfið veitir Páll Lúðvíksson, Álfheim- um 25, Reykjavík, sími 37070. Hjúkrunarkonur Hjúkrunarkonur vantar að Fjórðungs- sjúkrahúsinu Neskaupstað frá 1. sept- ember 1975. Uppl. gefa yfirhjúkrunarkona í síma 97- 7403 og forstöðumaður í síma 97-7402. Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað. Starfsmaður óskast frá 1. ágúst n.k. til almennra skrifstofu- starfa. Vélritunar og tungumálakunnátta nauðsynleg. Evrópuviðskipti h. f. Tryggvagötu 4, sími 25366 Skrifstofustarf Lögreglustjóraembættið óskar að ráða mann til skrifstofustarfa. Starfið er við bifreiðaskráningar o.fl. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 1 0. júlí n.k. L ögreglus tjórinn í Reykja vík 2 7. júní 1975. Viðskiptafræðingur Fyrirtæki óskar eftir að ráða ungan og efnilegan viðskiptafræðing til að annast og hafa umsjón með eftirfarandi verkefn- um: Fjármálum Bókhaldi Kostnaðarreikningum Áætlanagerð Innflutningi Birgðahaldi Statistik Launamál. Umsóknir sendist Mbl. fyrir 4. júlí n.k. merkt „Viðskiptafræðingur — 5107. Með þær verður farið sem trúnaðamál og þeim öllum svarað fyrir 31. júlí. Framkvæmdastjóri Æskulýðs- og félagsheimili Seltjarnarness óskar að ráða framkvæmdastjóra. Æskilegt er að viðkomandi sé framreiðslu- maður eða matreiðslumaður. Umsóknir og uppl. um fyrri ströf, ásamt launakröf- um, sendist Mbl. fyrir 1 1. júlí n.k. merkt- ar: Framkvæmdastjóri — 2936. St. Jósefsspítali Landakoti Staða sérfræðings í geislagreiningum við röntgendeild Landa- kotsspítalans er laus frá 1. ágúst 1975. Laun samkvæmt samningi læknafélags Reykjavíkur við Reykjavíkurborg. Um- sóknir ásamt uppl. um námsferil og fyrri störf sendist starfs- mannahaldi fyrir 20. júlí 1 975. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir röntgendeildar. Rafsuðumenn og píparar Þekkt norskt fyrirtæki óskar að ráða nokkra góða rörsuðumenn og pípulagn- ingamenn strax til Stafanger. Tekjumöguleikar ca. 8 —10 þús norskar á mán. Þeir sem kynnu að hafa áhuga leggi nöfn, heimilisfang og símanúmer inn á Mbl. merkt: R — 5108. Auglýsing íslenzka Álfélagið óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf í‘fjárhagsdeild fyrirtækisins. 1 . Við áætlanagerð og kostnaðareftirlit 2. Við athugun og frágang á fyrlgiskjöl- um og vélritun á skýrslum. 3. Við vélritun á greiðslubréfum á ensku og íslenzku. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf um miðjan ágúst. Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri, sími 52365. Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík og bókabúð Olivers Steins Hafnarfirði. Um- sókr.ir óskast sendar fyrir 1 5. júlí 1 975 í pósthólf 244, Hafnarfirði. íslenzka Á/félagið h. f., Straumsvík Kvenfólk ræður lands- sambandi símstöðvarstjóra — Kynlegar kenningar Framhald af bls. 15 skoðun sinni með fullri karl- mennsku og er það þó virðingar- vert. Hann segir: .. dauðinn, tortíming einstaklingsins, út- þurrkun sjálfsins, hefur það í för með sér, að líf eínstaklingsins verður gjörsamlega tilgangslaus fífladans, sem hefst með mark- lausu áræði og óraunsæum fram- tíðarórum dauðadæmdrar æsku, en lýkur með því, að allt það sem okkur dreymdi, allt okkar starf og stríð verður að engu, þegar með- vitundin slokknar að fullu, og það sem eftir kann að liggja um stundarsakir máist burtu, hverfur, fer.“ Það er því næsta einkennilegt, að þessi guðsmaður, skuli telja það ómaksins vert að vera að eyða hluta af þeim „tilgangslausa fífla- dansi“ sem hann kallar líf sitt, til þess að espa fólk til ofsókna á hendur meðbræðrum sínum. En séra Heimir Steinsson lætur sér ekki nægja að lýsa þessum furðurlegu lifsskoðunum sjálfs sín, heldur gerir hann einnig grein fyrir þvi, hverju hann telur kristna menn yfirleitt trúa í þess- um efnum. Eg hygg að flestir Is- lendingar hafi hingað til talið sig fara nokkuð nærri um, hvað það væri. En er þeir hafa heyrt út- skýringar séra Heimis, má ætla að það kunni að fara að koma á þá nokkurar vöflur í þessum efnum. Séra Heimir fullyrðir nefnilega: „Kristnir menn... játa það... að þeir ekki skilji þessa tilveru, að í þeirra augum sé hún ekki aðeins tilgangslaus, heldur einnig vit- laus, í frummerkingu þess orðs, að hún hvorki verði skilin með raunvísindalegum aðferðum, trúarheimspekilegum heilaspuna, rökstuddum abstraktionum né á nokkurn annan hátt. Svo langt ganga kristnir menn í þessari tómhyggju sinni, að þeir telja þessa tilgangslausu og vk-lausu tilveru illa. Þeir búa ýiir þeim grun, að einhver ósköp — einnig í frummerkingu þess orðs — hneppi þessa tilveru í fjötur fá- nýtis og tóms.“ Já, hvað segja kristnir menn um þessa nýju trúarjátningu, sem þeim er eignuð? Eða hafa menn hingað tii ekki haft minnstu hug- mynd um, hvað það er að vera kristinn? Á einum stað í timaritsgrein sinni segir höfundur að við séum „vitibornir menn“ samkvæmt skilgreiningu. Er gott að fá það viðurkennt. En sá er bara hængur . á, að Heimir hefur sett beitingu vitsmunanna alveg tvímælalaus takmörk. Þegar komið er inn á svið trúmálanna, þá er skylda að afsala sér þegar í stað vitinu og setja trú í staðinn. Skiftir engu máli þótt beiting vitsmuna verði til þess að styrkja þessa trú. Þeim má alls ekki beita í þessu sambandi! Á þeim sviðum er og á allt að vera óskiljanlegt! Þegar maður kynnir sér þá óskiljanlegu hringavitleysu sem trú séra Heimis Steinssonar virðist vera, þá verður að sjálfsögðu augljóst, hvers vegna hann krefst þess að menn afsali sér skynseminni. Laugardaginn 28. júní 1975 var haldinn fulltrúafundur Lands- sambands símstöðvarstjóra á 2. og 3. flokks stöðvum. Á fundinum voru rædd kjaramál og gerðar voru ýmsar ályktanir um kjör þess fólks, sem vinnur við Póst og síma á þessum stöðvum. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt samhljóða: „Landsfundur símstöðvarstjóra á 2. og 3. flokks stöðvum haldinn á Hótel Sögu 28. júní 1975 beinir þeim tilmælum til samgönguráðuneytisins, að við- ræðum verði haldið áfram hið fyrsta um kjaramál stöðvarstjór- anna á grundvelli tillagna sem fyrir liggja, samkvæmt bréfi ráðuneytisins til sambandsins dags. 25.6. 1975, Fundurinn legg- ur áherzlu á þá ósk sambandsins að allir stöðvarstjórar á 2. og 3. flokks simstöðvum verði viður- kenndir sem opinberir starfs- menn með þeim réttindum og skyldum, sem því fylgi. Fundur- inn felur stjórn sambandsins að fylgja þessu eftir." Fundurinn lagði áherzlu á úr- bætur í mörgum atriðum kjara- málanna og samvinnu á milli svæða um ýmis efni. Ríkti mikill samhugur á fundinum. I stjórn eru Guðrún L. Ásgeirsdóttir, Mælifelli, Bjarni Pétursson, Foss- hóli, og Kristjana Vilhelmsdóttir, Gerðum. Stjórn landssambandsins var falið að vinna áfram að úrlausn þessara mála. AUtiI.ÝSINOASÍMINN Ett: 2^22480 J 2H»rgtiní>I«t>it>

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.