Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 26

Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLI 1975 Heppnismark breytti leiknum Fram í hag Fram - Valur 3:1 FRAM sigraði Val 3:1 I 1. deild Islandsmótsins í gærkvöldi. Leik- ið var í Laugardalnum við erfiðar aðstæður á hálum og gljúpum velli. Með þessum sigri hafa Framarar tekið forustu í 1. deild með 10 stig. Sigur þeirra í gærkvöldi var hálfgerður heppnissigur. Vals- menn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og áttu fjölda marktæki- færa en nýttu aðeins eitt þeirra. Guðmundur Þorbjörnsson skoraði fallegt mark á 35. mínútu eftir góðan undirbúning Harðar Hilm- arssonar. Á 45. mínútu jafnaði Fram metin. Eggert Steingrims- son tók aukaspyrnu inni í vitateig Vals, Bergsveini Alfonssyni mis- tókst að hreinsa frá, og barst bolt- inn til Jóns Péturssonar sem nýtti vel mistökin i vörn Vals og jafn- aði 1:1. Þannig var staðan í hálf- leik. I byrjun seinni hálfleiks héldu Valsmenn áfram ákafri sókn og Hermann Gunnarsson átti þá m.a. skot i stöng, en hann fékk ótal- mörg marktækifæri í leiknum. Svo var það að Fram fékk horn- Ekið á bíl á stæði Á TlMABILINU frá kl. 18.20 til kl. 19.40 á mánudag var ekið á brúna Cortina-bifreið, árgerð 1973, R-10022, þar sem hún stóð á stæði við Borgarspítalann og dælduð vinstri hliðarhurð og yfir- byggingin fyrir aftan hana. Var líkast því sem bílstuðari hefði strokizt þar utan í. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ákeyrsluna, eru beðnir að láta rannsóknalögregluna í Reykjavik vita. Stolið úr veskjum NÆR 18 þúsund krónum var stol- ið úr veskjum starfsfólks í tveim- ur fyrirtækjum i Morgunblaðs- húsinu um miðjan dag á þriðju- dag á meðan starfsfólkið var í kaffi. Sáttafundur SÁTTAFUNDUR hófst i gær kl. 16 í deilu Verkalýðsfélaganna í Rangárvallasýslu og verktaka við Sigöldu. Þegar Mbl. fór i prentun stóð fundurinn enn og sagði Logi Einarsson sáttasemjari að óvíst væri hvenær honum lyki. Sigurð- ur Óskarsson formaður Verka- lýðsfélagsins Rangæings sagði, að lítið hefði míðað i samkomulags- átt. — Grófleg Framhald af bls. 1 dómstólum og fjölskyldur þeirra fái ekki nægilega fjárhagsaðstoð. Konurnar sögðu fréttamönnum að mótmælin hafi verið skipuiögð áöur en menn þeirra flýðu. Þær virtust taugaóstyrkar og hurfu á braut áður en þær höföu afhent forsetanum mót- mælaskjal eins og ráðgert hafði verið. Herstjórnin gerði á þriðjudag nýja tilraun til að ná samkomu- lagi á milli prentara og ritstjórnar dagblaðsins Republica. Kom stjórnin á fundi milli deiluaðila, en ekkert hafði fréttzt á þriðju- dagskvöld um úrslit fundarins. Utgáfa blaðsins var bönnuð 19. maí, en leyfð svo aftur fyrir 2 vikum. Þá lögðu prentarar, sem styðja kommúnista, blaðið undir sig og neituðu að hleypa ritstjór- um og blaðamönnum inn í byggingu blaðsins. spyrnu á 56. mínútu sem Eggert Steingrímsson tók. Hann gaf lág- an bolta fyrir markið og enn urðu mistök i vörn Vals. Varnarmaður hitti ekki boltann þegar hann ætlaði að hreinsa frá og Marteinn Geirsson ýtti boltanum inn fyrir marklínuna án fyrirhafnar. Við þetta tók leikurinn nýja stefnu, Valsmenn skiptu inn á tveimur mönnum en það stoðaði lítið, þeir misstu alveg móðinn og Framarar tóku leikinn í sínar hendur og héldu undirtökunum til loka. Sigur sinn innsigluðu þeir á 59. mínútu er þeir Kristinn Jörunds- son og Rúnar Gíslason Iéku saman i gegnum götótta vörn Vais og Kristinn rak endahnút með þvi að lyfta boltanum yfir Sigurð Haraldsson markvörð Vals og í netið. A morgun verður nánar sagt frá leiknum. —SS. Leiknisfélagar Aðalfundur handknattleiks- deildar Leiknis verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í Fellahelli. — Brezka stjórnin Framhald af bls. 1 togar þess hafa ekki viljað tjá sig um hvar þeir telji að takmörkin eigi að vera. Vinstrisinnaðir verkalýðsleiðtogar eins og Hugh Scanlon, formaður samtaka vél- smiða, og Arthur ScargiII, formað- ur samtaka kolanámumanna í Yorkshire, hafa hins vegar for- dæmt tillögur Healeys harðlega. — Herferð Framhald af bls. 1 manninn Simas Kudirka og Alexander Dolgun, sem er bandarískur ríkisborgari, en var í sömu fangabúðum og Solzhenitsyn. Kudirka var sleppt úr fangelsi eftir 4 ár en hann fékk 13 ára fangelsisdóm fyrir tilraun til að leita hælis i bandarisku varðskipi árið 197). Að sögn fundarmanna er aðalatriði áætlunarinnar „áróður, áróður og aftur áróður“. Tilgangurinn er að fá lausa pólitíska fanga i fanga- búðum, geðsjúkrahúsum og í fangelsinu i Vladimir, sem gert er fyrir „sérstaka fanga“, og er 160 km austan við Moskvu. — Vopnahlé Framhald af bls. 1 verstu óeirðir í sögu borgarinnar, og týndu 60 lífi. A fundi leiðtoganna tveggja, Karamis og Arafats, voru einnig Khaddam, utanríkisráðherra Sýr- lands, sem vill miðla málum í Libanon, og háttsettir menn úr her Líbanons og leiðtogar Pale- stínu-Araba. Meginverkefni nýju stjórnar- innar, sem mynduð var með sam- komulagi allra flokka, er að losna við leyniskyttur og að friða höfuð- borgina. Þó að bardagar síðustu vikna hafi aðallega verið á milli Líbanonbúa, þá snúast þeir að miklu leyti um málefni Palestínu- Araba, og hafa nokkrir þeirra fallið í bardögunum. Khaddam, sagði eftir fundinn, áður en hann hélt heim á leið, að fundurinn hefði verið gagnlegur og að Palestínu-skæruliðar hefðu fyrir sitt Ieyti lofað að virða vopnahléð. A þriðjudagsmorgun nötraði Beirut af sprengingum. Ekkert lát var á vélbyssuskothríð. Hvar- vetna mátti sjá rústir verzlana og hrundar byggingar. — Loðnan Framhald af bls. 28 andi fengist lítið sem ekkert lýsi úr henni. Páll Guðmundsson skipstjóri sagði þegar Mbl. ræddi við hann, að ef loðnuverðið gæti orðið þetta hátt yfir sumartímann gjörbreytti það þessum málum. Það hlyti líka að vera þjóðhagslega hagstætt að veiða loðnuna yfir sumartímann þegar mesta og bezta hráefnið fengist úr henni. Skipstjórar og útgerðarmenn hefðu lítillega rætt um loðnuveiðar I sumar og vitað væri að Arni Friðriksson færi bráðlega til loðnuleitar og rannsókna, — og ég hef von um að einhverjir bátar muni fá leyfi til þessara veiða þá um leið, sagði Páll. Hann sagði ennfremur að það væri orðið sárgrætilegt að heyra það að skipafélögin tækju nú 6600—7000 krónur fyrir að flytja hvert tonn af mjöli frá tslandi til næstu hafna I Evrópu og væri þó miðað við það, að allt væri tekið á einni höfn. Utgerðarmenn og sjó- menn fiskiskipa myndu sennilega hafa gott upp úr þvl að flytja mjölið út sjálfir og til væru ágætis skip í það. — Landsvirkjun Framhald af bls. 2 Kjörtímabil stjórnar Lands- virkjunar er 6 ár og I stjórn henn- ar sitja nú þeir sömu og í hana voru kjörnir í upphafi, að þvi undanskildu að Guðmundur Vig- fússon tók sæti Sigurðar Thorodd- sen á árinu 1969, en Sigurður lét af störfum að eigin ósk, og nokkru eftir fráfall Sigtryggs Klemenz- sonar á árinu 1971 tók Einar Ág- ústsson sæti hans i stjórninni. Skömmu eftir að stjórn Lands- virkjunar var skipuð á árinu 1965 réð hún Eirík Briem rafmagns- verkfræðing sem framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, en auk hans eru nú helztu forstöðumenn fyrir- tækisins þeir Hálldór Jónatans- son aðstoðarframkvæmdastjóri, Páll Flygering verkfræðingur, Ingólfur Agústsson rekstrarstjóri og Rögnvaldur Þorláksson bygg- ingastjóri. A fundinum í gær var lögð fram skýrsla um þróun starfseminnar fyrstu 10 árin. I upphafi tók Landsvirkjun við orkuveitusvæði Sogsvirkjunar og nær það frá Vík I Mýrdal vestur um að Snæfells- nesi, en á þessu svæði bjuggu í árslok 1974 um 155.000 manns eða um 71 % þjóðarinnar. Á fyrstu 10 árunum E rekstri Landsvirkjunar hefur orku- vinnslugeta Landsvirkjunar auk- izt úr 500 millj. kwst í 2150 millj. kwst á ári eða um 330% og ástimplað afl vatnsafls- og vara- aflsstöðvar úr 108 MW í 353 MW eða um 226%. Með tilkomu Sig- ölduvirkjunar á árunum 1976 og 1977 eykst aflið í 503 MW og árleg orkuvinnslugeta Lands- virkjunar í 2900 millj. kwst. — Slysavarna- félagið Framhald af bls. 3 11.200.000.00. Þannig leggja deildirnar liðlega kr. 12.000.000.00 fram til starfsem- innar, auk þess sem öll vinna björgunarsveitanna er sjálf- boðaliðsstarf. I ræðu Gunnars Friðriksson- ar kom og fram, að hann hefði í byrjun júnímánaðar sótt al- þjóðlega ráðstefnu sjóbjörgun- arsamtaka, sem haldin var í Helsinki í Finnlandi, en auk hans sóttu ráðstefnuna af hálfu S.V.F.I. þau Hulda Sigurjóns- dóttir og Hannes Þ. Hafstein. Var Hulda eini kjörni kvenfull- trúinn á ráðstefnunni og vakti það mikla athygli. Var af því tilefni samþykkt sérstök álykt- un á ráðstefnunni, þar sem þess var farið á leit við forseta henn- ar, að i tilefni kvennaárs kæmi hann á framfæri innilegu þakk- læti til allra þeirra kvenna, sem með frjálsu og fórnfúsu fram- lagi sínu hafa lagt svo mikið af mörkum til að efla slysavarnir á sjó. Hannes Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóri S.V.F.I., flutti og erindi á aðalfundinum, þar sem hann skýrði frá nýjungum f björgunarmálum, er kynntar voru á framangreindri ráð- stefnu. Voru þar m.a. sýndir nýir björgunarbátar, birtar skýrslur um ýmis konar björg- unartæki og sýndar kvikmynd- ir um slysavarnir og sjúkra- hjálp. Á aðalfundinum urðu miklar umræður um slysavarna- og ör- yggismál. M.a. voru umferðar- slysavarnir ræddar sérstaklega og hvert vera skyldi hlutverk S.V.F.Í. á þeim vettvangi. Kom fram eindregið álit féiags- manna í þá átt að félagið hefði þar jafnan veigamiklu hlut- verki að gegna, bæði með aðild sinni að Umferðarráði svo og með sjálfstæðu starfi. Einnig var rætt mikið um björgunar- sveitir félagsins, aðstöðu þeirra og skipulag á starfi þeirra. Lagðir voru fram og sam- þykktir reikningar félagsins fyrir árið 1974, og einnig fjár- hagsáætlanir fyrir síðari hluta árs 1975 og árið 1976. Þá var skýrt frá árangri deildahapp- drættis, sem nýlokið er, en á- góði af því reyndist rúmlega 3,5 milljónir króna. Var félags- stjórn falið að efna enn til slíks happdrættis á næsta ári svo framarlega, sem ekki fyndust aðrar vænlegri fjáröflunarleið- ir. Fundarstjórar aðalfundarins á Blönduósi voru þeir Egill Júl- íusson frá Dalvík og Hjálmar Eyþórsson, . Blönduósi, en fundarritarar Haraldur .Henrysson, Reykjavík, og Guð- mundur Sig. Sigurðsson, Blönduósi. — Viljum leggja Framhald af bls. 19. ýmissa tegunda frá fjarlægum löndum auk fræs af islenzku birki, og trjáplöntur gróðursett- ar I Heiðmörk eru aldar upp af fræi í gróðrarstöð Skógræktar- félagsins I Fossvogi. Gróðurfar á Heiðmörk hefur tekið mjög verulegum breyting- um við 25 ára friðun fyrir ágangi búfjár. Blágresi og aðr- ar blómjurtir setja svip sinn á margar brekkurnar um hásumarið. Birki og víðir fá nú að vaxa óáreitt og hafa veru- lega teygt úr sér á liðnum aldarfjórðungi. Nokkrar er- lendar trjátegundir eru smám saman að nema land á Heið- mörk, og virðast lofa góðu um að verða fullgildir þegnar í ís- lenzku gróðurríki, og það hér á Reykjanesskaganum. Og Alaskalúpfnan, sem skartar með ljósbláum blómum snemma sumars eins og sjá má og gefur gránm melunum hvanngræna ábreiðu fram á haust, er jafnframt stórvirkt landgræðslujurt. Núverandi forustumaður skógræktar á Islandi hefur sem kunnugt er boðað, að hér á landi séu skilyrði til skógrækt- ar slík, að er tímar líði ætti viður úr íslenzkum skógum að mestu leyti að geta fullnægt timburþörf landsmanna. Aðrir hafa talið slfkt fjarstæðu, og er ekki örgrannt um að deilur hafi risið út af þessu. Slíkar deilur snerta okkur, sem leggjum stund á skógrækt á Heiðmörk, harla lftið. Við er- um ekki að rækta „nytjaskóg" eða „gagnviðarskóg“, svo að ég taki mér í munn þau fremur hvimleiðu nýyrði. Við erum einfaldlega að rækta skóg. Við erum að rækta skóg á útivistar- svæði Reykvíkinga. Takmark okkar er, að Heið- mörk megi, er fram líða stund- ir, bera nafn með rentu, að hún verði að verulegum hluta skóg- lendi, mörk. Við viljum leggja þá alúð í ræktunina, sem við og aðrir okkar jafnfróðir og fróðari menn höfum bezt vit á. Við viljum rækta þær trjátegundir, sem reynslan leiðir í ljós að geta þrifizt og dafnað. Þær eru ekki svo ýkja margar, en geta e.t.v. orðið fleiri þegar tfmar líða og berangur hefur breytzt í skjólgóðan skóg. Heiðmörkin á ekki að verða neinn þaulskipulagður parkur, svo að notað sé erlent orð, en hinsvegar skal ávallt hafa í huga við skógrækt og aðrar framkvæmdir á þessu svæði, að hér er um að ræða útivistar- svæði fyrir fólk. Vissar reglur hafa því verið settar með tilliti til þess. Eru þær m.a. á þá leið, að ekki skal gróðursetja trjá- plöntur f hraunbolla eða skjól góðar lautir, þar sem fólk vill- gjarnan hafast við, og ekki á grasflötum, þar sem börn og fullorðnir gætu haft gaman af að bregða á leik. Á stöku stað kunna þessar reglur að hafa verið brotnar fyrir mistök eða slysni. Nærtækt dæmi um smá- vegis slysni af því tagi er brekk- an hér andspænis, þar sem þið, góðir tilheyrendur, sitjið. Þegar gróðursett var á þessu svæði, var ekki vitað, að hér yrði haldin útisamkoma á aldar- fjórðungsafmæli Heiðmerkur, annars hefði ekki verið plantað í þessa brekku. En við tímdum ekki f þetta sinn að fjarlægja þessar fallegu plöntur. Skógræktarstarfið á Heið- mörk á ekki að taka enda, held- ur taka breytingum er tímar líða. Skógurinn á Heiðmörk verður að verulegu leyti ræktaður skógur, og hann á ekki að fara f vanhirðu. Eins og hér hefur aðeins ver- ið drepið á, eru sumir vantrúað- ir á, að sú viðleitni til skógrækt- ar, sem fyrir þremur aldar- fjórðungum hófst hér á landi og lögð hefur verið stund á í einn aldarfjórðung á Heiðmörk, beri árangur. Okkur, sem ekki erum haldnir slíkri vantrú, sýnist að hér séu að gerast kraftaverk f íslenzkri mold við íslenzkt veðurfar. Þó er rétt að hafa í huga, að einn aldarfjórðungur er ekki nema brot úr æviskeiði þeirrar tegundar gróðurs, sem hér er um að ræða, og árangur 25 ára tilrauna þess vegna öllu fremur vísbending um endan- legt svar. En þau fyrirheit sem felast í þöglum vitnisburði, þar sem vel hefur tekizt, eins og t.d. hér allt í kring hvetja til þess að hik- laust skuli fram haldið því starfi, sem hér hefur verið unn- ið á hverju ári undanfarinn aldarfjórðung. — Iþróttir Framhald af bls. 27 anna enn þyngri, en Þróttarar vörðust vel. Á 83. mín. opnaðist vörnin illa, þannig að Magnús Steinþórsson, sem kom inn sem varamaður í síðari hálfleik, átti auðvelt með að skora. Fleiri urðu mörkin ekki í þess- um skemmtilega baráttuleik og hlutu Þróttarar þarna dýrmæt stig, sem gerir það að verkum að spenna er enn á toppnum í 2. deild eftir 6 umferðir. Þetta er fyrsti tapleikur Blik- anna í 2. deild í ár. Vera kann að leikmenn liðsins hafi verið tauga- óstyrkir, því heföu þeir unnið þennan leik væru þeir komnir með 4ra stig- forskot, þannig að erfitt hefði verið að ná þeim. Eng- inn leikmaður bar af öðrum í þessum leik, en greinilegt er að Blikarnir hafa á að skipa sterkasta liðinu i 2. deild. Flestir leikmenn búa yfir talsverðri leik- reynslu og það var hrein óheppni eða klaufskapur að fara ekki a.m.k. með annað stigið frá þessum leik. Lið Þróttar er að mestu skipað ungum og lítt leikreyndum mönn- um, ef frá eru taldir þeir Halldór og Gunnar. Að þessu sinni vantaði þá tvo menn, Guðmund Gislason og Sverri Brynjólfsson, sem báðir eru leikreyndir. Liðið er efnilegt og ef rétt er á málum haldið, má búast við að þeir verði ekki lengi i 2. deild. Beztu menn Þróttar f þessum leik voru þeir Halldór Bragason, og Þorvaldur Þorvaldsson. Leikinn dæmdi Einar Hjartar- son og gerði það nokkuð vel, en það var langt frá því, að auðvelt væri að dæma hann, sérstaklega þó undir lokin. Hdan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.