Morgunblaðið - 01.08.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGÚST 1975
Útlit fyrir góða færð á
þjóðvegum um helgina
FÆRÐ á þjóðvegum landsins um
Verzlunarmannahelgina ætti að
sögn Hiörleifs Ölafssonar vega-
eftirlitsmanns að verða með því
bezta sem gerist ef ekki rignir
mikið. jlðustu daga hefur verið
unnið að þvl að hefla aðalvegi og
Þýzki kórinn
í Háteigskirkju
ÞÝZKI kórinn Luruper
Kantorie frá Hamborg, sem
verið hefur á tónleikaferðalagi
um landið að undanförnu, lýk-
ur ferð sinni með tónleikum I
Háteigskirkju í kvöld, og hefj-
ast þeir kl. 21.
Á tónleikunum verða flutt
verk eftir Bach, Mendelssohn,
Bruckner og Kodaly. Söng-
stjóri er Ekkehard Richter og
einsöngvari Angelika Hánsch-
en. Auk þess leikur Jiirgen
Hánschen einleik á orgel kirkj-
unnar.
Kórinn hefur hvarvetna
fengið hinar beztu viðtökur og
eru kórfélagar mjög ánægðir
með land og þjóð. Aðgöngu-
miðar verða seldir við inn-
ganginn.
Smygl í Skaftá
TOLLVERÐIR fundu I fyrra-
dag smyglvarning I m.s. Skaft-
á. Skipið var þá I höfn I
Reykjavfk, nýkomið frá Ant-
werpen og Hamborg. Var
þarna um að ræða 150 flöskur
af 75% vodka og 1200 vindl
inga. Söluverðmæti þessa
varnings er einhvers staðar ná-
lægt 500 þúsund krónum.
Meginhluti smyglsins var
falinn milli þilja I stýrishúsi
skipsins. Fjórir skipverjar,
stýrimaður, háseti,, matsveinn
og vélstjóri hafa viðurkennt að
vera eigendur smyglvarnings-
Stórþjófnaður-
inn upplýstur
Rannsóknarlögreglan hefur
nú upplýst stórþjófnaðinn sem
framinn var I vöruskála Haf-
skips áEiðisgranda um sfðustu
helgi. Eru hljómflutningstæk-
in komin til skila óskemmd.
Verðmæti þeirra var öllu
meira en talið var I fyrstu eða
um 900 þúsund krónur.
Fjórir piltar um tvítugt
reyndust vera þeir seku.
Frömdu þeir innbrotið aðfara-
nótt s.l. mánudags og notuðu
bifreið við verknaðinn. Tveir
piítanna hafa litillega komið
við sögu lögreglunnar áður.
Eins og fram kom I Mbl. á
miðvikudaginn var stolið 4
hljómflutningstækjum, 5
plötuspilurum, hvorttveggja af
Yahama gerð, og 4 bllaútvörp-
um.
í frétt Mbl. var óskað eftir
upplýsingum frá fólki i sam-
bandi við Iausn málsins og
varð ábending frá einum les-
enda blaðsins til þess að rann-
sóknarlögreglan upplýsti mál-
ið.
Skortur á blóði
áKORTUR er á blóði I Blóð-
bankanum við Barónsstlg
þrátt fyrir góðar blóðsöfnunar-
ferðir undanfarið. Mikil um-
ferðarhelgi er nú framundan.
Menn eru þvl vinsamlega
beðnir um að gefa blóð I dag.
Féll úr kaðli
ÞAÐ SLYS varð við Dalshraun
i Hafnarfirði slðdegis I gær, að
13 ára piltur féll úr kaðli, sem
hann var að sveifla sér á og
festur var I húsgafl. Pilturinn
var þegar fluttur á slysadeild
Borgarspltalans og reyndist
hann hafa hlotið höfuðmeiðsl.
eru allir vegir I byggð opnir, en á
fjallvegum eru einstaka undan-
tekningar.
Sú breyting hefur verið gerð á
Þórsmerkurvegi, að vegmót hans
hafa verið færð um nokkur
hundruð metra til vesturs eða
nær Markarfljótsbrú. öllum
bílum er fært I Landmannalaugar
en Fjallabaksleið austan Land-
mannalaugar er tæpast fær fólks-
bflum. Vegurinn upp I Laka er
fær jeppum og fært er öllum
bllum að sunnan úr Skaftár-
tungum, I Eldgjá. Sprengisandur
á að vera fær jeppum og stórum
bllum, en Kjalvegur er sæmilegur
nema kvað mikið er I ám, t.d. er
Sandá illfær jeppum, og vegurinn
um Uxahryggi og Kaldadal er
þokkalegur. Á Vestfjörðum er
Djúpvegur ekki fær fólksbílum I
Hestfirði, þar sem ekki er enn
lokið smlði brúar þar. Vegir á
Norður- og Austurland eru allir
greiðfærir og búið er að opna
Hellisheiði eystri.
Um 1000 manns
hlýddu á Change
HLJÓMSVEITIN Change lék í gær á úll-
hljómleikum f Austurstræti á göngugötu-
kaflanum framan við Útvegsbankann, en það
var verzlunin Karnabær hinum megin göt-
unnar, sem gekkst fyrir þessum hljómleik-
um. Talið er, að um þúsund manns hafi hlýtt
á leik hljómsveitarinnar. Veður spillti nokk-
uð fyrir hljómgæðum, en að öðru leyti eru
hljómleikarnir álitnir hafa heppnazt hið
bezta. — Fjallað verður um hljómleikana á
Stuttsfðu Morgunblaðsins á morgun.
Jóhannes á
Gauksstöð-
um er látinn
Jóhannes Jónsson útvegsbóndi
á Gauksstöðum I Garði lézt laug-
ardaginn 26. júlf s.I. 87 ára að
aldri.
Hann var um langt árabil far-
sæll skipstjóri og síðar þekktur
útgerðarmaður, rak m.a. fisk- og
slldarvinnslustöð á Gauksstöðum,
en sonur hans, Þorsteinn, stjórn-
ar nú fyrirtækinu I landi, en GIsli
sonur hans er skipstjóri á bát
þeirra, Jóni Finnssyni.
Jóhannes var kvæntur Helgu
Þorsteinsdóttur og eignuðust þau
14 börn og eru 11 þeirra á lífi.
Þessa merkismanns minnist
Gunnar Flóvenz I minningargrein
I Morgunblaðinu I dag, en útför
Jóhannesar fer fram frá Utskála-
kirkju kl. 3 síðdegis.
( gær var lokaundirbúningur hjá Týrurum I Vestmannaeyjum fyrir ÞjóðhátlS Vestmannaeyja, sem hefst á Breiðabakka
eftir hádegi I dag og stendur I 3 daga og 3 nætur. Reiknað er með miklum mannfiölda á hátíðina en Flugfélagið flýgur
stanzlaust milli lands og Eyja og næstu daga og myndar loftbrú og Herjólfur siglir milli Þorlákshafnar og Eýja
viðstöðulaust. Myndina tók Guðlaugur I Eyjum I gær af strákum að leika sér I fótbolta á túninu á Breiðabakka, en I
fjarska sést klnverska hofið sem verður Ijósum skrýtt á hátlðinni.
Útiskemmtanir víða um land
um verztunarmannahelgina
GERA MÁ ráð fyrir að mikil
umferð verði á þjóðvegum lands-
ins um verzlunarmannahelgina.
Færð á vegum ætti að verða góð,
ef ekki rignir verulega. Stærstu
útisamkomurnar verða að öllum
llkindum Þjóðhátlðin I Eyjum og
Bindindisgleðin I Galtalækjar-
skógi. Þá verða á nokkrum stöð-
um sérstakar hátlðir og dansleikir
verða I fjölmörgum félagsheimil-
um landsins. Útlit er fyrir að norð-
læg átt verði rlkjandi á Norður-
landi en norðvestan eða vestan
átt á Suðurlandi. Trúlegt er að
veður verði einna skást á Suð-
Austurlandi. Gert er ráð fyrir að I
Vestmannaeyjum verði rigning I
dag en á laugardag verði að mestu
þurrt. Sæmilegt veður ætti að
verða á Suðurlandi á laugardag.
f Vestmannaeyjum halda Eyja-
skeggjar Þjóðhátlð slna og verður
hún sett I dag kl. 14. Ekki var
hægt að fljúga til Eyja I gær, en I
dag eru ráðgerðar 13 ferðir
þangað og fara um 600 manns
með þeim. Allt er þó óvlst um,
hvort hægt verður að fljúga til
Eyja I dag. Þjóðhátíðin fer fram á
Breiðabakka og er dagskrá hennar
fjölbreytt. Meðal þeirra sem þar
skemmta eru Hljómsveit Ingimars
Eydal og Dixielandhljómsveit frá
Ein súlan I þjóðhátlðarhliðinu I Vest-
mannaeyjum er að sjalfsögðu prýdd |
myndum af lundum.
Eyjum. A miðnætti I kvöld verður
hin hefðbundna brenna.
Bindindisgleðin I Galtalækjar-
skógi hefst með dansleik I stóru
tjaldi I kvöld. Á Bindindisgleðinni
er lögð áherzla á að hafa eitthvað
fyrir alla fjölskylduna. Fyrir dansi
á dansleikjum þar leika hljóm-
sveitirnar Júdas, Dögg og Hljóm-
sveit Ólafs Gauks. Á sunnudegin-
um verður sérstök barna-
skemmtun.
f Vatnsfirði halda Vestfirðingar
héraðshátlð slna um helgina.
Hefst hún með dansleik I kvöld. Á
laugardag og sunnudag verður
fjölbreytt dagskrá með Iþróttum,
skemmtiatriðum og dansi. Það eru
hljómsveitirnar B.G. og Ingibjörg
og Þrymur sem leika fyrir dansi.
Að Eiðum heldur UÍA skemmtun,
þar sem á dagskrá verða Iþróttir,
dansleikir o.fl., föstudag, laugar-
dag og sunnudag. Hljómsveitirnar
Einsdæmi og Þokkabót skemmta.
Á Laugum I Þingeyjarsýslu heldur
Héraðssamband Þingeyinga
Laugahátlð '75. Þar verður fjöl-
breytt dagskrá með Iþróttum og
skemmtiatriðum. Hljómsveit
Pálma Gunnarssonar leikur fyrir
dansi á Laugahátlðinni.
I nokkrum félagsheimilum
Framhald á bls. 35
Olvaðir menn unnu helgi
spjöll í Þykkvabæjarkirkju
TVEIR ölvaðir menn brutust inn
I Þykkvabæjarkirkju aðfaranótt
mánudags og unnu þar talsverð
spjöll og vanhelguðu kirkjuna.
Að sögn séra Kristjáns Róberts-
sonar sóknarprests I Þykkvabæ
urðu skemmdir I sjálfu sér ekki
mjög miklar, en miklu var um
rótað og fært úr lagi og altarið og
skfrnarfontur voru greinilega
vanhelguð af ásettu ráði.
Um miðja nótt, aðfaranótt
Mismunar Ferðaskrifstofa
ríkisins veitingastöðum ?
Gerir sérsamninga við þrjá veitingastaði
án þess að gefa öðrum færi á samningum
FERÐASKRIFSTOFA rfkisins
hefur gert samning við þrjá veit-
ingastaði úti á landi um að veita
sérstaka þjónustu þeim ferða-
mönnum, sem fara I svonefnt
„viku sumarleyfi fyrir viðráðan-
legt verð“, sem ferðaskrifstofan
hefur boðið á sérstöku verði. I
þessu sumarleyfistilboði felst, að
ferðafólk fái gistingu, morgun-
verð og kvöldverð á Eddu-
hótelum, en þau eru nfu, vfða um
land. I þremur tilvikum geta
hótelin, sem ferðaskrifstofa rfkis-
ins býður þannig gistingu hjá, þó
ekki boðið ferðafólki upp á kvöld-
verð og varð skrifstofan þvf að
gera samninga við veitingastaði
um að veita þá þjónustu, þ.e.
kvöldverðinn, á ákveðnu verði.
Þeir þrfr veitingastaðir, sem
þannig hafa verið gerðir samn-
ingar við, eru Veitingaskálinn á
Brú I Hrútafirði, Kaffiterfa
Hótels KEA á Akureyri og Veit-
ingastofan Hérmn á Höfn I
Hornafirði. Að sögn Björns Vil-
mundarsonar, forstjóra Ferða-
skrifstofu rlkisins, í samtali við
Mbl. i gær, var öðrum veitinga-
stöðum ekki gefinn kostur á að
taka að sér þessa þjónustu eða
gera tilboð I hana, heldur valdi
Ferðaskrifstofan sjálf þessa þrjá
staði og var þá haft I huga að veita
ferðamönnum sem bezta
þjónustu. Morgunblaðið spurði
Björn í því sambandi hver væri
munurinn á veitingaskálanum að
Brú og Staðarskála í þessu sam-
bandi, og kvað B jörn veitingaskál-
ann að Brú vera nýrri og að
mörgu leyti skemmtilegri. Þau
þrjú hótel sem ekki geta veitt
kvöldverðarþjónustu eru Eddu-
hótelin að Reykjaskóla I Hrúta-
firði og I Menntaskólanum á
Akureyri og sumarhótelið I Nesja-
skóla I Hornafirði, en ferðaskrif-
stofan hefur sérstakan samning
við sumarhótelið um að það taki
við ferðafólki I gistingu á fyrr-
greindu sértilboði, þegar Eddu-
hótelið á Kirkjubæjarklaustri er
fullt, en það er sérlega ásetið.
Þess má geta I þessu sambandi,
að Staðarskáli er nær Reykja-
Framhald á bls. 35
mánudags, komu þrír ölvaðir
menn að prestssetrinu I Þykkva-
bæ og vöktu þar upp. Kröfðust
þeir þess að séra Kristján opnaði
kirkjuna og hleypti þeim þar inn.
Nefndu þeir þó ekki I hvaða tií-
gangi þeir ætluðu inn I kirkjuna
og voru I þannig ástandi, að prest-
urinn sá sér ekki fært að verða
við kröfu þeirra, að þvf er hann
tjáði Mbl. I gær. Gerðu þeir þá
aðsúg að prestssetrinu og reyndu
að brjótast þar inn um bakdyrnar,
en urðu frá að hverfa. Tveir
þeirra brutu þá rúðu í kirkjunni
og réðust til inngöngu. Kvað séra
Kristján það greinilegt, að þeir
hefðu ekki brotizt inn I kirkjuna
til þess að stela verðmætum, held-
Framhald á bls. 35