Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 7
r
Þá er þögnin
skálkaskjól
Róttæk vinstri öfl á
íslandi hafa jafnan verið
hraðskreiðust til og há-
værust I mótmælum
hvers konar, einkum og
sér I lagi ef Sovétríkin
og alheimskommúnism-
inn eiga ekki hlut að
máli. Oft hitta þessi
mótmæli i mark og eiga
við rök að styðjast, en
þessi háværi hópur er
naumast marktækur
sökum þess, að' mat
hans á verknaði, eins og
ofbeldi og frelsis-
skerðingu, byggist
aldrei á eðli gjömings-
ins, heldur þvi, hver að
honum stendur. Þannig
er rautt ofbeldi gott of-
beldi og hlýtur undan-
tekningarlitið þann
gæðastimpil, sem veitir
verknaðinum óskeikula
I______________________
réttlætingu i hugum
hópsins.
Vinstri meirihlutinn S
Stúdentaráði Háskóla
Islands var ófáanlegur
til að mótmæla rauðu
ofbeldi i Portúgal. Þar
má banna blöð, frjálsa
skoðanamyndun og
tjáningu, fangelsa fólk.
hunza vilja meirihlutans,
sem fram kom i leynileg-
um kosningum, vegna
þess, og þess eins. að
kommúnistar eiga hlut
að máli.
Otelo Saravia de Car-
valho yfirmaður öryggis-
sveita portúgalska hers-
ins hótaði i fyrradag
fjöldahandtökum og
hernaðaraðgerðum gegn
andstæðingum hers og
kommúnista. Hann
sagði ekki unnt að fram-
kvæma sósialiska bylt-
ingu eftir friðasamleg-
um leiðum einum
saman, smala þyrfti
„andbyltingarsinnum"
inn á nautaatshringinn í
Lissabon. Hann lét jafn*
vel að því liggja að
Mario Soares, leiðtogi
jafnaðarmanna, myndi
sæta sams konar útlegð
og á dögum Salazar-
stjórnarinnar. Enginn
veit i dag hver þróun
mála verður i Portúgal,
þó Ijóst sé, að allra
veðra er von. Hitt vita
allir, að hversu fyrirlit-
leg sem viðbrögð ein-
ræðisafla þar verða,
mæta þau halelújaaf-
stöðu þess hraðskreiða
og háværa hóps hér-
lendis, sem sjáandi sér
ekki og heyrandi heyrir
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGUST 1975
7
ekki, ef það þjónar trú
hans á kommúnismann.
Þá er þögnin það skálka-
skjól sem samþykki
hópsins leitar vars i.
Hið afleita
lýðræði á
íslandi
Þessi grafarþögn
einkennir ekki sizt skrif
Þjóðviljans um fram-
vindu mála I Portúgal.
Það blað skortir þó
hvorki stórar fyrirsagnir
né hárbeitt orð þegar
veilur finnast i fram-
komu vestrænna rikja.
Stundum, en hvergi
nærri alltaf. eru bæði
fyrirsagnirnar og orðin
réttlætanleg. Þögn Þjóð-
viljans um hvers konar
rautt ofbeldi er hins
vegar naumast réttlæt-
anleg. Innrásin i Tékkó-
slóvakiu, hernaðarof-
beldi i Ungverjalandi og
Austur-Berlin, Gyðinga-
ofsóknir i Sovétrikjun-
um og ofbeldið i Portú-
gal, svo örfá dæmi séu
nefnd, eru þagnarmál
Þjóðviljans. Og hinir
sjálfskipuðu islenzku
mótmælendur, þeir
háværu og hraðskreiðu,
hreyfast ekki og heyrast
ekki.
Fjöldi fólks, sem léð
hefur Alþýðubandalag-
inu fylgi og atkvæði i
góðri trú. haidandi það
verkalýðssinnaðan lýð-
ræðisflokk, undrast
þessa afstoðu, þessa
þögn, og ekki að
ástæðulausu. Það hlýtur
að verða skýlaus krafa
þessa fólks að Þjóð-
viljinn geri hreint fyrir
sinum dyrum, taki um-
búðarlausa afstöðu til
þeirra atburða sem nú
eru að gerast i Portúgal.
Þeir atburðir eru ekki
sérmál þarlendra, heldur
angi ofbeldis, sem grúfir
yfir sameiginlegum
heimi okkar.
Vinstri stúdentar hafa
tekið gagnrýni af þvl
tagi, sem hér er fram
sett, mjög báglega. Þeir
hafa hlaupið með grát-
konuskrif i dagblöðin og
sagt hana vott þess, að
Morgunblaðið sé á móti
námslánum til stúdenta,
hvern veg sem þessi
óskildu mál koma nú
heim og saman!
Morgunblaðið birti fús-
lega eina slika langloku
frá piltungi úr þessum
hópi. Hann taldi það
fram, hvort tveggja. sér
til varnar, að ekki
bærust nægjanlegar
fréttir frá Portúgal, sem
þá voru þó umfangs-
mestar i heimsfréttum;
og að sú hætta væri fyrir
hendi, ef spornað væri
gegn ofbeldi I Portúgal
með sterku almennings-
áliti i hinum vestræna
heimi, að þar yrði á fót
komið jafn afleitu og
óþolandi lýðræði og
væri til staðar á fslandil
Þá vita menn það, hvort
sem fólk vill svo skipta á
þegnréttindum hér og i
kommúnstarikjum.
FRA BELGIU
Rokoko-stólar
með og án arma fáanlegir.
Bólstraðirí rósóttu plussi eða góbelíni.
Einnig grindurnar til ísaums.
Rokoko — Kommóður —
Skatthol
© Vörumarkaðurinn hf.
| Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2 Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-113
Ný þjónustumiöstöö
KASK
SKAFTAFELLI
í versiuninni:
Allar nauðsynlegar matvörur,
búsáhöld og vefnaðarvara
miðuð við þarfir feröamanna.
í veitingastofunni:
Heitur matur og grillréttir.
/ . -Q -
Opið frá kl. 9 til 23 alla daga.
Þjónustumiðstöð
Kaupféiag Austur-Skaftfellinga
Þjóögaröinum SKAFTAFELLI
Vestur-þýzkar
eldhúsviftur
Við höfum tekið að okkur umboð fyrir vest-
urþýsku Röhl eldhúsvifturnar. Þetta eru tæki í
háum gæðaflokki og er verðið afar hagstætt.
Vifturnar blása bæði út og inn og er fljótlegt að
breyta þeim eftir því hvað við á hverju sinni.
Vifturnar eru með fitusíu og kolasíu, sem eyðir
matarlykt.
Þrír hraðar, innbyggt Ijós og gufuskermur.
Leitið frekari upplýsinga.
Verzlunin