Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGUST 1975 33 VELMOKAIVIDI Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 4—1 5, frá mánudegi til föstu- dags. 0 Hnykklækningar Vegna uppástungu Tryggva Jónssonar, sem birtist hér í dálkunum á miðvikudag, um að orðið „hnykklækningar" verði notað fyrir það sem á útlenzku er kallað „chiropractic", og felur f sér meðferð á taugasjúkdómum og bakveiki, hafði Sigriður Gísla- dóttir samband við Velvakanda og kom með eftirfarandi ábend- ingu: Að þvi er ég bezt veit hefur orðið hnykklækningar verið not- að um árabil í Islenzku máli. Er þar átt við sérstaka aðferð er beinasjúkdómalæknar (ortoped- ar) og sjúkraþjálfarar beita til lækninga vissra sjúkdóma og er- lendis er kölluð „maipulation". % Hundaand- stæðingar og ofsjónir Eftirfarandi bréf barst Velvak- anda frá Guðjóni V. Guðjónssyni, en hann hefur margt við mál- flutning andstæðinga hundahalds að athuga. „Andstæðingar hundahalds i þéttbýli magna nú um allan helm- ing áróður sinn. Svo glórulaus eru skrif sumra að þeir geta varla talist heilbrigðir. í Mbl. 29. júlí sl. getur að líta þessi orð eftir ein- hvern Jakob: „Tvífætlingar verða nauðugir viljugir að spóla sig áfram um gangstéttir ataðir hundaskít, sem mælist í tonnum fremur en í kílóum, er þeir halda til vinnu sinnar." Þetta eru ógeðs- leg skrif og sá er svona skrifar á að leita sér lækningar og það strax vegna þess að hann sér of- sjónir, sem er slæmur sjúkdómur. Ef þetta eru ekki ofsjónir, þá skora ég á þennan mann að fara með mig á þessa staði og sýna mér það, sem hann er að tala um. Eitt er það atriði, sem hundaandstæð- ingarnir nota óspart á okkur hina, þ.e.a.s. hvað hundurinn sjálfur hafi um þessa hluti að segja. Skyldu þessir sömu menn spyrja lambið álits, þegar það er leitt til slátrunar á haustin og síðan étið, eða öll hin dýrin? Hvað með rjúpuna, sem elt er upp um Holt og heiðar? Ekki er það nú svo vel, að hún sé alltaf drepin. Oft finnst hún særð löngu seinna eða dauð af sárum sínum. Þá má nefna hið villimannlega athæfi erlendra þar sem er nauta- atið. Þegar svo nokkrir einstaklingar vilja hafa hjá sér hund, sem þeir umgangast í öllu sem sannan og trúan vin, þá er það bannað, og þeir, sem vilja ekki sætta sig við svona skerðingu á sjálfsögðum og stóð skömmu sfðar f stóru her- bergi þar sem hátt var til lofts og vftt til veggja, en allt tilhalds- laust. Birtan úr gluggunum féll heint á olíumálverk á veggnum á móti og David tók að virða það fyrir sér, áhugasamur. — Lízt yður á það? sagði rödd að haki hans. David sneri sér við og kom auga að karlmann sem stóð f bogadyr- um yzt f herberginu. — Já, tvímælalaust. — Celia konan mfn málaði það. Hún leggur sanna tilfinningu í sfn verk, þótt tækninni sé ábóta- vant. En ég skal ekki þreyta yður með of mikium útlistunum. Hvað get ég gert fyrír yður? — Hr. Brahm. Ég heiti David Link, rannsóknarlögreglumaður. ftg verð að biðja yður að afsaka ónæðið, en ég er sannfa-rður um, að þér getið orðið okkur að liði og ég skal reyna að vera stultorður. — Gerið svo vel að koma þessa leið, sagði listamaðurinn og gekk á undan honum inn í lítinn borðkrók, sem sneri úl að garðin- um. I björtu skörpu Ijósinu gafst David ágætt tækifæri til að vírða Eugene Brahm fyrir sér. Hann var sennilega um fimmtugt, með- mannréttindum, eru úthrópaðir sem verstu lögbrjótar, sjálfselsku- fullir og tillitslausir gagnvart öðr- um. Hundurinn hefur fylgt mannin- um um aldaráðir og vináttan þar á milli er einstök. Það eru til svo óteljandi dæmi um þetta stórkost- lega samband manns og hunds, að ekki fer á milli mála, að hundin- um lfður vel f sambýli við mann- inn. Við sem eigum hunda höfum aldrei viljað að hver sem er geti haft hjá sér hund, enda er það útilokað og fjarstæða að tala um slfkt. Það eru tiltölulega fáir, sem áhuga hafa á því. Þetta er stað- reynd, sem ætti að vera þung á metunum. Við viljum, að þeir, sem geta það, hafi aðstöðu til að eiga og hafa hjá sér hund, auðvit- að með mjög ströngum skilyrðum um heilbrigði dýranna, eftirlit dýralæknis með þeim, svo og, að þess sé gætt, að þau valdi ekki ónæði. Engum er betur ljóst en hundaeigendum sjálfum að strangt aðhald er nauðsynlegt I þesum efnum, en það er alveg fráleitt að banna öllum undir öll- um kringumstæðum að hafa þessi dýr hjá sér. Frelsi manna á að vera sem alíra mest á öllum svið- um, en allt verður þó að vera innan ákveðins ramma. Þeir sem misnota frelsið og fara út fyrir rammann, þeir hinir sömu hljóta þá að taka afleiðingunum. Tökum dæmi: Fólkið i næstu Ibúð er með gleðskap fram á nótt og tekur ekkert tillit til nágrannans. Hvað getur viðkomandi gert? Talað við fólkið og beðið það að stilla gleði- látunum f hóf. Sjaldnast hefur þetta áhrif, enda er Bakkus oftast með í spilinu. Hvað er þá til ráða kalla á lögregluna. Jú, hún kemur og talar við fólkið, en þegar hún er farin þá halda lætin áfram og í enn meiri mæli. Ég tek þetta dæmi vegna þess, að það er tákn- rænt og það sem oftast veldur deilum manna á meðal. Ég hef áður sagt f blaðagrein og segi enn: Það er til meðalvegur i hundamálinu. Hvers vegna má alls ekki fara hann? Það er kominn tími til þess og það fyrir löngu fyrir menn að athuga alvarlega sinn gang, fara að sýna skilning og tillitsemi hver öðrum. Þvf meir, sem við fjar- lægjumst dýrin og gróðurinn,allt það sem við köllum náttúruna sjálfa, þeim mun meiri tómleiki verður I tilverunni og hvað er þá framundan? Guðjón V. Guðmundsson" 0 Takið plastpokana meö ykkur heim E.Pá. skrifar: „I Velvakanda var um daginn þakkað framtak F.Í.B. að gefa vegfarendum plastpoka til að setja í rusl á ferðum sínum um landið og tek ég undir það. En í því sambandi skiptir höfuðmáli að þeir góðu vegfarendur kunni með slfka plastpoka að fara. Þeir eru til mikils þrifnaðar i bllum og f áningarstað, þar sem rusli er safnað f þá. En ef þeir eru svo eki teknir með heim, þar sem þeir geta farið f ruslatunnuna eða þá grafnir með draslinu djúpt í jörðu, þá eru þeir verri en ekki. Margir virðast halda, að það sé þrifnaður i því að safna rusli í poka og stinga honum svo undir stein eða í holu, eða þá í grunnan jarðveg. Slíkt felur draslið bara meðan viðkomandi er að koma sér í burtu og kannski örlitið lengur, en svo kemur það í ljós aftur. Og það sem verra er, plastpokinn kemur f veg fyrir að matarleifar og slíkt geti rotnað og eyðst. Viða f hvömmum gjótum og tjaldstæð um, gægjast þvf þessir pokar með innnihaldi sínu, oft hálfrifnir út undan steinum, upp úr jörðinni eða hillir í þá með tilheyrandi þef úr gjótum. Þar eiga þeir alls ekki heima. Og með tilkomu slfkra poka teVur enn lengri tfma fyrir draslið að eyðast og rotna. Þeir sem safna drasli f plastpoka ættu þvf helzt að taka þá með sér heim í bflnum eða a.m.k. að hafa með sér góða skóflu til að geta stungið upp torfu, grafið draslið djúpt undir henni og lagt hana svo ofan á. Minna dugar ekki, ef draslið á ekki að koma aftur f ljós. En þá eru plastpokarnir lika til mikils gagns." HÖGNI HREKKVISI © 1Í75 /.//r McNaught Synd., Ine. 9 c&CöQ - Heyrðu Palli: Hann Rosti vill óður fá að baka Högna! En ég skil vel að Högni vilji komast hjá því. S3F SIGGA V/öGA £ íilvzMu Útgerðarmenn vita: að þeir geta treyst SAM HAE þorskanetum að verðið er hagstæðast á hverjum tíma að ánægðum- notendum fjölgar með hverju ári. llriAiUö.(!]JaAQii@ ~ Hverfisgötu 6, simi 20000. EHN ERU ALLAR VÖRUR OKKAR AN VÖRUGJALDS LOFTLAMPAR VEGGLAMPAR BORÐLAMPAR GÓLFLAMPAR ÚTILAMPAR FORSTOFULJÓS GANGALJÓS STOFULJÓS BORÐSTOFULJÓS ELDHÚSLJÓS BAÐLJÓS KRISTALLJÓS GLERLJÓS MÁLMLJÓS KERAMIKLJÓS VIÐARLJÓS POSTULÍNSLJÓS MARMARALJÓS VINNULJÓS LAMPASKERMAR VERZLIÐ ÁÐUR EN VERÐIÐ HÆKKAR LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut ÍZ sínii 84488 i / i Pi \ \ 'fj \ y\I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.