Morgunblaðið - 01.08.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1975
35
Hermann
skoraði 5
VALUR sigraði Selfoss f leik lið-
anna f Bikarkeppni KSl á Laugar-
dalsvellinum f gærkvöldi með
átta mörkum gegn engu. Her-
mann Gunnarsson skoraði fimm
mörk, en Atli Eðvaldsson, Alex-
ander Jóhannesson og Guðmund-
ur Þorbjörnsson eitt hver. 1 hálf-
leik var staðan 2—0. Nánari f
blaðinu á morgun.
Sigfinnur ráð-
inn bæjarstjóri
Á FUNDI bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja f fyrradag var Sig-
finnur Sigurðsson ráðinn bæjar-
stjóri f Vestmannaeyjum frá 1.
ágúst. Fékk Sigfinnur 5 atkvæði
meirihlutans en 4 bæjarfulltrúar
voru á móti.
Minnihlutinn flutti tillögu um
að áður en Sigfinnur yrði ráðinn
yrði rætt við Björn Ólafsson bæj-
arráðsmann f Kópavogi um það
hvort hann væri fáanlegur f starf-
ið, en Björn hefur töluvert starf-
að í Eyjum. Tillaga minnihlutans
var felld 5:4.
Sigfinnur Sigurðsson hefur um
nokkurra ára skeið starfað sem
framkvæmdastjóri Samtaka sveit-
arfélaga á Suðurlandi en áður var
hann borgarhagfræðingur f
Reykjavík. Hann er 38 ára.
— Réðst á konu
Framhald af bls. 36
hálftfma. Var hún að vonum mjög
miður sfn þegar hún losnaði úr
prísundinni, enda var hún ný-
komin heim af sjúkrahúsi. Fyrir
þessa fruntalegu árás var piltur-
inn úrskurðaður f 90 daga gæzlu-
varðhald.
— Ný stjórn
Framhald af bls. 1
verði frá þvf hverjir eiga sæti í
nýju ríkisstjórninni, fyrr en f
fyrsta lagi á morgun, föstudag eða
laugardag. Ráðamenn vörðust
allra frétta um þetta I kvöld.
Goncalves gekk aðeins brosandi
burt er fréttamenn spurðu hann
um stjórnina, og þrír valdamiklir
menn I byftingarráðinu sögðust
ekkert vita um málið. Sama var að
segja um upplýsingamálaráðherr-
ann, Jorge Correira Jesuino. Bæði
jafnaðarmenn og alþýðudemó-
kratar hafa sem kunnugt er neit-
að að taka þátt í stiórn undir
forsæti Goncalves og staðfest hef-
ur verið að nokkrir óflokksbundn-
ir ráðherrar úr fyrri stjórn hafi
einnig lýst tregðu sinni við að
vera áfram í embætti. Þeirra á
meðal eru utanríkisráðherrann,
Ernesto Melo Antunes, iðnaðar-
ráðherrann, Joao Cravinho, ný-
lendumálaráðherrann Antonio de
Almeida Santos, og landbúnaðar-
ráðherrann, Fernando Oliveira
Babtista, að sögn góðra heimilda.
Þeir yfirmenn f hernum sem
handteknir voru í kvöld höfðu
mætt andspyrnu undirmanna
sinna, og höfðu hinir siðarnefndu
samþykkt f atkvæðagreiðslu að
taka af þeim völdin. Greip þá Car-
valho inn í og fyrirskipaði brott-
flutning mannanna, sem orð lék á
að væru hægri sinnaðir. Umrædd
herdeild er sérhæfð f hörkulegum
aðgerðum og er hún oft tilkvödd
af COPCON til að stilla til friðar
þegar mikið liggur við. Yfirmaður
hennar, sem er meðal hinna hand-
teknu, heitir JaimeNeves.
— Ihlutun
Framhald af bls. 1
tilliti til Tékkóslóvakfu lft ég svo,
á að þessi ummæli hafi mjög
mikla þýðingu."
^ Að öðru leyti trufluðu deilur
Tyrkja og Grikkja um Kýpur hið
vinsamiega andrúmsloft
„detente“ á leiðtogafundinum f
dag. Tyrkir mótmæitu formlega,
að Makarfos erkibiskup fengi að
ávarpa fundinn sem fulltrúi
Kýpur, og lýstu þvf yfir að endan-
iegar ákvarðanir fundarins væru
ekki bindandi fyrir samband
þeirra við Kýpur. Áður hafði
Suieyman Demirel forsætisráð-
herra Tyrklands gengið út úr
Finlandiahöllinni með 12 manna
sendinefnd sinni, þegar Makarfos
ávarpaði fundinn.
I ræðu sinni réðst Makarfos
harkalega á Tyrki vegna innrásar-
innar á Kýpur og sakaði þá um að
gerast brotlega við ákvæði lokayf-
irlýsingarinnar sem undirrituð
verður á morgun. Ekkert benti til
að stjórn Tyrklands myndi fram-
fylgja samkomulaginu eða virða
það á nokkurn hátt, en það tekur
til tilmæla um að forðast valdbeit-
ingu, virða óbreytt landamæri,
fullveldi rfkja, friðsamlega lausn
deilumála og jafnrétti og sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóða. „Þvert á
móti reyna Tyrkir nú að viðhalda
núverandi ástandi sem þeir hafa
skapað á Kýpur með hernaðarí-
hlutun," sagði Makaríos.
Demirel sagði í sinni ræðu að
vera erkibiskupsins á fundinum
væri hvorki lögleg né lögmæt, þvf
að hann væri aðeins fulltrúi
grískumælandi Kýpurbúa, en
ekki tyrkneskumælandi. Hann
sakaði Konstantín Karamanlís
forsætisráðherra Grikklands um
að hafa verið með falskar ásakan-
ir í garð Tyrkja í ræðu sinni á
leiðtogafundinum í gær.
Þessar deilur komu upp á sama
tíma og viðræður voru að hefjast f
Vínarborg undir forsæti Kurt
Waldheims framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna milli full-
trúa beggja þjóðarbrota á eynni.
Einnig var unnið að því bak við
tjöldin f Helsinki að leysa deil-
una, og hafði Aldo Moro forsætis-
ráðherra Italiu forystu um það
sem núverandi forseti ráðherra-
nefndar Efnahagsbandalags Evr-
ópu.
• •
— Olvaðir menn
Framhald af bls. 2
ur hefðu þeir fyrst og fremst ætl-
að sér að snúa þar öllu við og
spilla. Kvað hann skemmdir hafa
orðið á nokkrum hlutum f kirkj-
unni, en í sumum tilvikum væri
dálftið erfitt að meta tjónið til
fjár. Tjónið væri þó ekki tilfinn-
anlegt að þvf leyti, heldur væri
fyrst og fremst um vanhelgun á
kirkjumunum og kirkjunni að
ræða, sérstaklega altari og skfrn-
arfonti.
Sr. Kristján hringdi strax til
lögreglunnar á Hvolsvelli, er
mennirnir réðust á kirkjuna, og
kom hún á staðinn nokkru sfðar
og handtók þá. Voru þeir færðir
til yfirheyrslu, en var sleppt eftir
að þeir höfðu gengizt við verknað-
inum. Enga gáfu þeir skýringu á
þessari framkomu sinni. Þeir
hafa ekki komið við sögu áður hjá
lögreglunni á Hvolsvelli fyrir at-
hæfi f þessum dúr.
Þykkvabæjarkirkja hefur nú
verið að mestu hreinsuð og um-
merki eftir næturheimsóknina
eru flest horfin.
— Ford
Framhald af bls. 3
Ford, þess efnis að stöðvunum 24
hefðu verið lokað „f bili„“, benda
til þess að lfkur væru á lausn
málsins bráðlega. I Washington
er nú unnið að því að fá ákvörðun
Bandaríkjaþings breytt og í gær-
kvöldi samþykktu leiðtogar í öld-
ungadeildinni að takmarka um-
ræður í deildinni um málamiðlun-
artillögu um bannið, og virtust
þvf möguleikar á því að báðar
deildir þingsins gætu samþykkt
aðgerðir í þessum efnum, áður en
þær fara í mánaðarlangt sumarfrf
á morgun, föstudag". Ekki var á-
kveðið hvenær umræður hæfust f
þinginu, en sennilega verður það
i kvöld eða á morgun, og verða
samhljóða þeirri, sem felld var f
fulltrúadeildinni með 17 atkvæða
mun f fyrri viku.
— Mismunar?
Framhald af bls. 2
skóla en veitingaskálinn að Brú
og sömuleiðis var öll aðstaða f
Staðarskála bæði veitinga- og
snyrtiaðstaða, stækkuð verulega
og endurbætt i fyrra.
Að sögn Björns Vilmundar-
sonar hafa á þriðja hundrað
fjölskyldur tekið þessu sértilboði
um sumarleyfisferð og „virðist
það hafa fallið í góðan jarðveg hjá
fólki sem ekki hefur hugsað sér
að dveljast á hótelum yfirleitt,"
sagði Björn.
— Útiskemmtanir
Framhald af bls. 2
verSa dansleikir öll þrjú kvöld
he -srinnar. I Festi I Grindavlk
leika hljómsveitimar Paradfs og
Vikivaki fyrir dansi og útihljóm-
leikar veröa f Svartsengi á morg-
un. f Amarstapa á Snæfellsnesi
verður Prfmusarmessa. Þar er það
hljómsveitin Brimkló, sem leikur
fyrir dansi öll kvöldin, en á sunnu-
dagskvöldið bætist þeim liðsauki,
þvf hljómsveitin Change leikur
með þeim. f félagsheimilinu Ár-
nesi f Gnúpverjarhreppi verður
það hljómsveitin Haukar, sem
leikur fyrir dansi öll kvöldin, en
auk þess leikur Pelican með þeim
f kvöld, en hún fer sfðan til Hafnar
f Hornafirði og teikur þar fyrir
dansi f Sindrabæ. f Húnaveri verð-
ur það hljómsveitin Gautar frá
Siglufirði og teikur fyrir dansi öll
þrjú kvöldin. Á sunnudeginum
verður sérstök dagskrá með
skemmtiatriðum. f Skúlagarði,
rétt hjá Ásbyrgi verða hljómsveit-
irnar Völundur og Svarti túlipan-
inn og leika fyrir dansi. Sérstakir
útihljómleikar verða á laugardag
og unglingadansleikur á sunnu-
dag. Einnig má geta þess að
hljómsveitin Change verður á ferð
um Borgarfjörð og leikur þar f
Brautartungu f kvöld, og annað
kvöld f Logalandi. Allir þessir stað-
ir auglýsa að þeir bjóði upp á
tjaldstæði.
Bergstaðastræti,'slmi 14-350
Bankastræti, sími 28-350
Gallabuxur úr þvegnu denim —Flauelsbuxur, margir Htir
Herra- og dömuskór í ú
Bonfl^iius
PEYSUR ÖG
SKYRTUR
• -