Morgunblaðið - 01.08.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGÚST 1975
3
Helsinki, 31. júlf. NTB.
TRYGVE Bratteli forsætis-
ráðherra Noregs og Knut
Frydenlund utanrfkisráð-
herra tjáðu Geir Hall-
grímssyni forsætisráð-
herra íslands í dag efni
svars Noregs við yfirlýs-
ingu íslendinga um að þeir
muni í haust færa út fisk-
yeiðilögsöguna f 200
sjómflur.
Norðmenn áttu frumkvæði að
fundinum, þar sem þeir töldu
áríðandi að tilkynna Islenzkum
ráðamönnum hver formleg svör
þeirra yrðu við ákvörðun Is-
lendinga. Bratteli og Frydenlund
tjáðu norskum blaðamönnum i
Helsinki að samningaviðræður
milli landanna um Iandhelgismál
mundu hefjast síðar. Að sögn
ráðherranna notaði Geir
H^illgrímsson tækifærið á fundin-
um til að undirstrika enn á ný
sérstöðu tslands í fiskveiðimálum
og sögðu þeir að svo virtist sem
Islendingum væri annt um að aðr-
ar þjóðir fylgdu I kjölfar þeirra
og lýstu yfir einhliða útfærslu
fiskveiðilögsögunnar.
„Forsætisráðherra átti I dag
viðræður við Trygve Bratteli for-
sætisráðherra Norðmanna í há-
degisverðarboði i norska sendi-
ráðinu hér I Helsinki," sagði
Björn Bjarnason deildarstjóri í
forsætisráðuneytinu, þegar Mbl.
hafði samband við hann á örygg-
ismálaráðstefnunni. „Ráðherr-
Einhamar s.f.:
Ibúðirnar 28,6%
undir vísitöluverði
UM ÞESSAR mundir er Ein-
hamar s.f. að Ijúka við byggingu
þriggja fjölbýlishúsa með sam-
tals 61 fbúð við Austurberg f
Breiðholtshverfi. Eru þær af
stærðinni 2—i herbergja, og allar
fbúðirnar eru afhentar fullgerðar
með malbikuðum bflastæðum,
grasi á lóð og gangstfgum.
Verð á 2 herb. íbúð er 3.334.500,
á 3 herb. 3.847.500 kr. og á 4 herb.
kr. 4.252.500.— Er þetta einstak-
lega lágt verð og samkvæmt rúm-
metra hverrar íbúðar 28, 65%
lægra en byggingarvfsitöluverð.
Einhamar er eign 13 bygginga-
meistara og var stofnaður árið
1970 í marz, en þá hófust fyrstu
framkvæmdir á vegum félagsins
og hefur síðan verið haldið áfram
án hvfldar. Á þessum tíma hefur
fyrirtækið smiðað nokkuð á
þriðja hundrað fbúðir og verð
þeirra hefur alla tfð verið miklu
lægra en ibúðarverð samkvæmt
byggingavfsitölu.
Gissur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Einhamars sagði f
gær, í hófi sem fulltrúar í borgar-
ráði sóttu m.a., að fyrirtækið
hefði verið stofnað f þeim tilgangi
að byggja hagkvæmt en um leið
vel og það hefði alla tið tekizt. Á
tímabilinu maí-nóvember á þessu
ári myndu þeir afhenda 61 íbúð.
Þar er meðalsöluverð kr.
13.635.00 á rúmmetra, en vísitölu-
verð er nú kr. 17.489.00 á rúm-
metra, sem er 28.65% hærra verð,
og f krónum talið er mismunur á
rúmmetra kr. 3.854.00
Sagði Gissur, að á þeim 5 árum,
sem Einhamar hefði starfað,
hefðu þeir byggt ýmsar tegundir
íbúða, þar á meðal eitt háhýsi.
Útkoman hefði orðið sú, bæði
fyrir og eftir að byggingu var
lokið, að það væri mun dýrara að
byggja háhýsi, og i það skipti
hefðu þeir verið 19% undir vfsi-
töluverði, en þá hefðu þeir aðeins
gjallfyllt bflastæðin.
Hann sagði, að galdurinn við að
byggja svona ódýrt væri, að vinna
hlutina á réttan hátt, raðvinna þá
og staðla hverja einingu. Að veru-
legu leyti væri unnið ávenjulegan
hátt, en meðan fýrirtækið væri
ekki öruggt um að fá ióðir hverju
sinni, þýddi ekki að kaupa sérstök
mót upp á milljónatugi. Fram-
undan væri ekkert annað en að
pakka niður, og hver eigandi færi
að hokra í sinu horni, þar sem
engin loforð um lóðir hefðu feng-
izt hjá borgaryfirvöldum, — Ég
get fullyrt að þessi stærð af
húsum sem við erum með, er
mikið skemmtilegri fyrir fbú-
ana, þar sem minna er um alls-
konar ónæði. Þeir hefðu alla tfð
verió mjög heppnir með við-
skiptavini, það væri fólk með
mikla sjálfsbjargarviðleitni, þótt
margir hefðu átt í erfiðleikum
með greiðslur.
Albert Guðmundsson, fluttí
kveðjur frá borgarstjóra, sem
ekki gat komið til að skoða íbúð-
irnar. Albert sagði f upphafi að
honum litist mjög vel á þessar
fbúðir og vonandi ætti eftir að
leysast úr lóðavandræðunum.
Fyrir þvf væri vilji allra borgar-
fulltrúa.
Á ÖNDVERÐUM MEIÐI — Makarfos erkibiskup og forseti kýpur sést
hér horfa á eftir Demirel forsætisráðherra Tyrklands í ræðustól, en
deila þeirra tveggja setti mjög svip sinn á leiðtogafundinn f gær.
Stjórn Einhamars ásamt Gissuri Sigurðssyni framkvæmdastjóra, sem
er annar frá hægri. Hinir eru Ölafur Pálsson, Þórður Þórðarson,
Magnús Jónsson, Baldur Bergsteinsson og Ingimar Haraldsson.
arnir ræddu um fyrirhugaða út-
færslu íslenzku fiskveiðilögsög-
unnar í 200 mílur og um landhelg-
ismál almennt", hélt Björn áfram,
„og voru viðræðurnar mjög
vinsamlegar".
Á fundinum voru, auk forsætis-
ráðherranna tveggja, Knut
Frydenlund utanrfkisráðherra
Norðmanna, Vibe skrifstofustjóri
pólitísku deildar norska utan-
rfkisráðuneytisins, íslenzkir
embættismenn og norski sendi-
herrann í Helsinki, sem bauð til
hádegisverðarins.
Þegar Mbl. hafði samband við
Helsinki í gær var ekki fullákveð-
ið hvort Geir Hallgrfmsson mundi
eiga viðræður við aðra þjóðar-
leiðtoga í dag. Yfirlýsing ráð-
stefnunnar verður undirrituð
seinni partinn f dag.
RÚSSAR OG TYRKIR — Leonid Brezhnev, leiðtogi sovézka Kommúnistaflokksins og Suleyman Demirel,
forsætisráðherra Tyrklands ræddust við f Helsinki f gær, en fregnir hermdu að Sovétmenn væru nú að
leita hófanna um vopnasölu til Tyrkja eftir að Bandarfkjaþing felldi að aflýsa vopnasölubanni.
Ford bauð Tyrkjum vopn
vegna
Senda Sovétmenn
Helsingfors, Washington
31. júlf AP—Reuter.
• FORD Bandarfkjaforseti bauð
Suleyman Demirel, forsætisráð-
herstöðvarmálsins
Tyrkjum vopn?
herra Tyrklands á morgunverðar-
fundi þeirra f Helsingfors f dag
50 milljón dollara virði af vopn-
um, ef Tyrkir opnuðu herstöðvar
Bandarfkjanna f landinu að nýju,
en boðinu var hafnað. Það var
Henry Kissinger, utanrfkisráð-
herra sem skýrði fréttamönnum
frá þessu f kvöld. Er hánn var
spurður um iagalegan rétt forset-
ans til að gera þetta tilboð, þar eð
Bandarfkjaþing hefur fellt tillög-
ur um að aflétta vopnabanninu á
Tyrkland, svaraði Kissinger:
„Forsetinn bauð þetta sem val-
kost, en honum var ekki tekið“.
Kissinger sagði, að ákvörðun
Tyrkja um lokun stöðvanna virt-
ist vera endanleg, þótt en væru
opnar leiðir til að miðla málum.
Hann kvað Ford og Demirel hafa
lýst gagnkvæmum vilja til að
bæta sambúð rfkjanna, en fundur
þeirra hefði að engu leyti breytt
ástandinu, sem hann sagði stór-
kostlega alvarlegt, Ifkti þvf við
harmleik. Kissinger sagði að af-
staða Bandarfkjaþings hefði stór-
lega veikt stöðu Atlantshafs-
bandalagsins og Bandarfkjanna.
Tass-fréttastofan skýrði frá þvf
f dag, að eftir fundinn með Ford
hefði Demirel rætt við Leonid
Brezhnev, sovézka flokksleiðtog-
ann, og Andrei Gromyko, utanrík-
isráðherra um samband landanna
tveggja og fleiri mál. Sagði Tass
fundinn hafa einkennzt af „gagn-
kvæmum skilningi“. Þá hermdu
fréttir frá Washington, að Sovét-
menn hefðu boðið Tyrkjum þyrl-
ur og væri það fyrsta skrefið f
hugsanlegum tilraunum Sovét-
manna til að koma í stað Banda-
rfkjamanna og selja Tyrkjum
vopn. Er Kissinger var spurður
um þetta taldi hann afar ólíklegt
að Tyrkir myndu gera vopnasölu-
samninga við Sovétmenn.
Fyrr f dag þóttu ummæli Dem-
irels að afloknum fundinum með
Framhald á bls. 35
Toppfundur um
efnahagsmálin
Helsingfors, 31. júlí. Reuter.
BANDARlKIN, Bretland, Vest-
ur-Þýzkaland og Frakkland
munu nú hefja undirbúning að
fjögurra rfkja toppfundi um
efnahags- og gjaldeyrismál,
sem Japönum verður qjnnig
boðið að taka þátt f, að því er
vestur-þýzki stjórnartalsmáð-
urinn Klaus Bölling sagði á
leiðtogafundinum f Helsingfors
í dag. Hann sagði að þessi hug-
mynd hefði verið rædd í hádeg-
isverðarboði sem Gerald Ford,
Bandaríkjaforseti, Harold Wils-
on, brezki forsætisráðherrann,
Valery Giscard d’Estaing,
Frakklandsforseti og Helmut
Schmidt, Þýzkalandskanslari
sátu. Engin dagsetning var á-
kveðin fyrir toppfund þennan,
en nefnd háttsettra embættis-
manna verður falið að undir-
búa hann.
Bratteli og Geir
ræðast við um land-
helgismál 1 Helsinki