Morgunblaðið - 01.08.1975, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 1975
Annasamir sólarhringar
hjá Þjóðdansafélaginu
UNDANFARNA daga hafa
félagar Þjóðdansafélags Reykja-
víkur átt mjög annríkt. Nýlokið er
norrænu þjóðdansamóti, sem stóð
frá 19. júli til 27. júli. Þar voru
meðal þátttakenda um 300 erlend-
ir gestir frá hinum norðurlönd-
unum. Þeir ferðuðust um landið i
þrem hópum dagana 23. — 26. júlí
og voru mjög ánægðir með
tslandsferðina í heild. Ung-
Landanir á Akranesi
Akranesi 30. júlí.
SKUTTOGARINN Krossvík AK
300 kom hingað í gær með 160
lestir af blönduðum fiski og vs.
Sigurborg AK 375 með um 15
lestir. Aflinn fer til frystingar og
sumt (stórufsinn) í salt. Skuttog-
arinn Ver AK 200 kemur væntan-
lega af veiðum á morgun með um
200 lestir af fiski. "
— Júlíus.
mennafélag tslands sá að mestu
um skipulagningu á móttökum og
sýningum úti á landi, en fram-
kvæmd mótsins hér í Reykjavík
hvildi að mestu leyti á herðum
félaga Þjóðdansafélagsins.
Þá hefur um tuttugu og fimm
manna hópur frá félaginu æft
söng og dansa fyrir ferð til
Kanada, þar sem hann tekur m.a.
þátt I hátiðahöldunum á Gimli.
Sigriður Valgeirsdóttir æfir og
stjórnar danssýningum, tónlistina
hefur Jón Ásgeirsson samið og
raddsett. Efnt var til sýningar f
Þjóðleikhúsinu. Flestir erlendu
gestanna á norræna þjóðdansa-
mótinu komu á þá sýningu, en
hún hlaut ágætar undirtektir
áhorfenda.
Að loknum hátiðahöldunum í
Gimli verður haldið til nágranna-
byggða og sýnt þar. Þá eru m.a.
ákveðnar sýningar í Winnipeg
þann 10. til 15. ágúst. En þar
Frá æfingu hjð Þjóðdansafélaginu.
stendur þá yfir svokölluð
„Folklorama week“ eða þjóð-
hátíðarvika. I þeirri hátið eru
þátttakendur frá fjölmörgum
löndum, sem sýna daglega ýmis
þjóðleg atriði frá hverju landi.
Flestir þátttakenda koma heim
aftur þann 22. ágást.
Hundar
leggjum við net
fyrir útgerðarmenn
Útgerðarmenn og sjómenn eru manna dómbærastir á net. Þeir leggja aðeins
bestu net fyrir fiskinn. Þess vegna þýðir ekkert annað fyrir okkur en að leggja
það besta og hagstæðasta fyrir þá.
Útgerðarmenn
Sjaldan er ein báran stök. Kaupið strax - kaupið ódýrt, úrvals japönsku
þorskanetin frá Nichimo, til afgreiðslu strax af lager í Reykjavík, á hinu
ótrúlega lága Nichimo verði.
Hafið samband við umboðsmenn okkar á íslandi áður en þið festið ykkur
aftur í netum frá öðrum.
Umboðsmenn
Sími 24120
KRISTJANO.
SKAGFJÖRÐ
Ég verð fyrirfram að biðjast af-
sökunar á, að ég skuli dirfast að
fara fram á að mál mitt verði
tekið til birtingar I fjölmiðli og
ekki sízt i víðlesnasta blaði lands-
ins.
Það, að ég reyni að strnga niður
penna nú, voru vangaveltur ung-
frú Elinar Pálmadóttur í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins 27. júli
s.l.
Hún, ef ég má taka svo til orða
ræðst gegn hundum og auðvitað
getur þessi víðreista og gáfaða
kona sagt margt hundum i óhag.
Ég hef hvorki dvalið í Afríku né
Asiu, en ég sýti það ekki. En ég er
móðir, sem þurfti að vinna utan
heimilis míns i mörg ár. Börnin
mín báðu mig að gefa sér hund.
Ég hummaði það fram af mér
alltof lengi vegna þess, að það er
bannað. Að Iokum stóðst ég ekki
mátið.
Ég ætla ekki að segja að hund-
urinn ali börn upp fyrir okkur en
hundur er vinur og betri vinur en
flestur maðurinn.
Ég drap á Gárur ungfrú Elínar
Pálmadóttur. Ef til vill hefur
henní aldrei orðið hált á öðru í
lífinu en að renna á hundaskit og
þá er vel. En ég held, að við
mæður, sem reyndar hefur hlotn-
ast það dásamlegasta, sem enginn
skilur nema móðir, verðum að
fara fram á, að aðrir reyndari
skrifi um það, sem okkur við-
kemur og þá ekki sízt hvað
hundur getur gert fyrir börnin
okkar.
Kópavogi 30. júli
Steinunn Jónsdóttir.
Akraborgin reynir
nýju bílabrautina
Akranesi, 30. júlí.
I DAG féllu niður nokkrar ferðir
Akraborgar vegna þess að verið
var að „aðhæfa" hana nýjum
löndunarskilyrðum á Akranesi,
þar sem bílar aka í land. í Reykja-
vik er verið að leggja síðustu
hönd á bifreiðabrautina og getur
Akraborgin væntanlega hafið
flutninga með bíla á bíladekki um
helgina. Getur hún þá tekið um 60
bíla í stað aðeins 11 áður.
— Július.
Heitasti dagurinn
í Mývatnsveit
Mývatnssveit, 30. júlí.
EFTIR nálega hálfsmánaðar
óþurrka er hér í dag einn af heit-
ustu dögum sumarsins. Hefur hit-
inn komizt yfir 20 stig, og blæja-
logn. Margir eiga mikið hey úti til
að þurrka. Má því búast við að
annasamt verði hjá bændum
næstu daga, ef þurrkurinn helzt.
— Kristján.