Morgunblaðið - 01.08.1975, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGÚST 1975
14
verzlunar-
mannahelgina.
Tj aldið
í Svartsengi
avik
\/EP,ÐA
SKtRTEtN!
Alþjóðlegt mót
í Suður-Afríku
I sfðasta þætti var skýrt lítil-
lega frá skák I Mongólíu. Við
skulum halda áfram að rekja
slóð skákmóta i fjarlægum álf-
um og verður þá næst fyrir að
bregða sér til Suður-Afríku.
Þar er skák stunduð allmikið,
og mun Suður-Afrika vera eina
landið í Afriku, auk Túnis, þar
sem menn tefla skák að ein-
hverju ráði. Suður-Afríkumenn
hafa teflt á nokkrum Ólymplu-
skákmótum að undanförnu, og
hafa oft komið þar á óvart, eins
og Islendingar fengu svo óþægi-
lega að kenna á I Nizza.
Nú nýlega lauk í borginni
Roodepoort I S-Afríku alþjóð-
legu skákmóti, þar sem teflt var
eftir svissneska kerfinu. Tefld-
ar voru 7 umferðir og urðu úr-
slit þessi: 1. H. Ree (Holland)
6,5 v., 2.—3. Westerinen (Finn-
land) og Robatsch (Austurríki)
6 v., 4.—6. O’Kelly (Belgla),
Hug (Sviss) og Friedgood (S-
Afrika) 5,5 v. Hér fylgir nú ein
skák frá mótinu. Hún var tefld I
síðustu umferð, en þegar hún
hófst voru þeir Ree og O’Kelly
efstir með 5,5 v. O’Kelly tapaði
fyrir Westerinen I slðustu um-
ferðinni.
Hvftt: Ponelis (S-Afríka)
Svart: Ree (HoIIand)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — e6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
d6, 6. Be2 — a6, 7. a4 — Be7, 8.
0—0, 0—0 9. f4 — Rc6, 10. Be3
— Dc7, ll. Del —e5,
(Þessi hugmynd hefur verið
vinsæl slðan Spassky beitti
henni 11. einvígisskákinni gegn
Karpov 1973. Hér er leikurinn
þó enn sterkari en I þeirri stöðu.
sem Spassky lék honum I).
12. Rb3
(Ekki 12. fxe5 — dxe5, 13. Rf5
— Bxf5, 14. Hxf5 — Rd4! og
svartur stendur til vinnings,
Enklaar — Ree, Holland 1974),
12. — Rb4, 13. Dd2
(Betra en 13. Hcl — Be6 og
svartur hótar Rxc2).
13. — Bd7, 14. a5 — Hac8, 15.
Bb6 — Dc6,
(Ekki 15. — Db8, 16. fxe5 —
dxe5, 17. Hxf6 — Bxf6, 18.
Dxd7).
16. Bf3 — Be6,17. Hacl
(Ekki 17. Ha4 — Rxc2, 18. Dxc2
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
— Dxa4 og vinnur).
17. — Bc4, 18. Hfdl — Rd7, 19.
Bf2 — Had8, 20. Be2 — Bxe2,
21. Dxe2—Bf6,
(Auðvitað ekki 21. — exf4, 22.
Rd5 og hvltur vinnur mann).
22. f5 — b5, 23. Dh5 — Be7, 24.
Df3 — Bg5, 25. Rd2 — Rf6, 26.
h4 — Bxd2, 27. Hxd2 — Dc4,
(Nákvæmari leikur var 27. —
h5).
28. Hcdl — Ra2, 29. Rxa2 —
Dxa2, 30. Bb6 — He8,
(Betra var 30. — Hd7).
31. h5 (?)
(Þessi leikur veikir hvltu peða-
stöðuna. Betra var 31. c3).
31. — h6, 32. c3 — Dc4,
(Betra var 32. — Hc6).
33. Hel?
(33. Hxd6 var betra. Eftir 33. —
Dxe4, 34. Dxe4 — Rxe4, þarf
hvítur ekkert að óttast).
33. — Hc6, 34. Bf2 — b4,
(Nú ræðst svartur til atlögu á
drottningarvæng. Takið eftir
þvl, hve gagnslítill hviti biskup-
inn er).
35. Bh4 — bxc3, 36. bxc3 —
Rh7, 37. He3
(Síðasta von'hvíts var fólgin i
37. f6).
37. — f6,
(Nú vinnur svartur óhjákvæmi-
Iega lið og þá er eftirleikurinn
auðveldur).
38. Ddl — Dc5, 39. Bf2 — Rg5,
40. Hed3 — Dxa5, 41. Hxd6 —
Hxd6, 42. Hxd6 — Rxe4, 43.
Db3+ — Kh7, 44. Hd7 — Dxc3,
45. Dxc3 — Rxc3, 46. Ha7 — e4,
47. Hxa6 — e3, 48. Bel —
Re2+, 49. Kfl — Rd4, 50. g4 —
He4, 51. Bc3 — Hxg4, 52. Bxt 4
— Hxd4, 53. Ke2 — Hd5 og
hvftur gafst upp.
Að lokum kemur svo smáfrétt
um skákþing Indlands, en því
lauk með sigri Aarons, sem
hlaut 14,5 v. af 18, 2. Nasir Ali
13 v. 3.—4. Nataran og M.
Kassan 11 v.
Ferðatöskur
Handtöskur
Snyrtitöskur
Mjög fjölbreytt úrval
GEísIP"