Morgunblaðið - 01.08.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. AGUST 1975
17
Maharanían af
Jaipur fangelsuð
Nýju Delhf, 31. jiílí — AP.
MAHARANlAN af Jaipur,
Gayatri Devi, höfuð einnar
auðugustu aðalsættar Ind-
lands og fyrr á árum köll-
uð ein af fegurstu konum
heims, var f gær handtekin
og fangelsuð, ákærð fyrir
brot á smygl- og gjaldeyris-
löggjöf landsins, að því er
rfkisstjórnin skýrði frá í
dag. Tilkynningin um
handtökuna var lesin upp f
þinginu, þar sem
maharanfan hefur átt sæti
f 10 ár. Hún bætist nú f hóp
meira en tylftar þing-
manna, sem fangelsaðir
hafa verið eftir að Indira
Gandhi lýsti yfir neyðar-
ástandi f landinu, en hún
er fyrsti þingmaðurinn
sem handtekinn er fyrir
sakir, sem óskyldar eru
stjórnmálastarfsemi.
Handtakan fór fram
fimm mánuðum eftir að
skattalögregla stjórnar-
innar uppgötvaði 17
milljón dollara virði af
gulli og skartgripum í höll-
um fjölskyldunnar í Jaip-
ur, hinni sögufrægu bleiku
borg, um 300 km fjarlægð
suður af Nýju Delhí.
Höfðu verðmæti þessi
verið falin í leynigeymsl-
um. Ef maharanían sem er
56 ára verður sek fundin á
hún yfir höfði sér langa
fangelsisvist, háar sektir
og eignaupptöku.
Eiga ísraelsmenn
kjarnorkuvopn?
Washington, Tel Aviv,
31. júlf. AP.
STÓRBLAÐIÐ Boston Globe
skýrir frá þvl I dag, að sérfræð-
ingar I Bandarfkjunum telji að
Israelsmenn hafi framleitt a.m.k.
tfu kjarnorkusprengjur, sem hver
um sig hefur álfka sprengikraft
og sprengjur þær sem Banda-
rfkjamenn vörpuðu á Japan f lok
sfðari heimsstyrjaldarinnar. Skv.
upplýsingum blaðsins er talið að
tsraelsmenn eigi flaugar sem geti
flutt sprengjurnar hundruð
milna út fyrir landamæri Israels.
Hafi þessar fréttir við rök að
styðjast er Israel sjöunda kjarn-
orkuveldið í heiminum. Hin eru
Bandarikin, Sovétrfkin, Bretland,
Frakkland, Kfna og Indland.
Staðfesting á þessum fréttum
hefur ekki fengizt i Israel, en
sérfræðingar hafa lengi talið, að
næg tækniþekking væri til staðar
f landinu til að framleiða þessi
vopn, án þess að vitað væri, hvort
þau hafa f raun og veru verið
smíðuð.
I desember sl. sagði forseti Isra-
els, Ephraim Katzir, að Israels-
menn hefðu möguleika á að smíða
kjarnorkuvopn og mundu gera
það, ef þeir teldu sig þurfa þess
með. Rabin forsætisráðherra end-
urtók stuttu sfðar, þá afstöðu
stjórnarinnar að Israelsmenn
mundu ekki verða fyrstir til að
nota slfk vopn fyrir botni Miðjarð-
arhafs.
Frú Peron hótar
að segja af sér
Buenos Aires, 31. júlf. AP.
MARIA ESTELLA PERON for-
seti Argentínu hélt í dag fyrsta
stjórnarfund sinn á tveimur vik-
um. A fundinum missti hún vald
á tilfinningum sfnum og brast f
grát og hótaði að segja af sér
embætti, en ráðherrar hennar
töldu hana af því að segja af sér.
Frú Peron, sem er 44 ára hefur að
undanförnu átt við ofþreytu og
lasleika að stríða og hefur ekki
getað sinnt stjórnarstörfum né
einbeitt sér að vandamálum þeim
sem stjórn hennar hefur átt við að
strfða.
Leiðtogar hinna þriggja strfðandi frelsishreyfinga f Angólu. F.v. Neto leiðtogi MPLA, Roberto leiðtogi
FNLA og Savimbi leiðtogi UNITA.
Hart barizt í Ansólu
Lúanda, 31. júlf. AP, Reuter.
BARDAGAR héldu áfram f dag f
borginni Malanje f Angólu milli
niarxistahreyfingarlnnar MPLA
og Þjóðfrelsishreyfingarinnar
FNLA, sem nýtur stuðnings
stjórnar Zaire. Brugðið gat til
beggja vona f bardögunum, að
sögn portúgalsks talsmanns f Lú-
anda.
Portúgalski flugherinn neitaði
áfram að fljúga með hjálpargögn
til Malanje, þar sem skotið hafði
verið á flugvélarnar á leið þang-
að.
Hvftir og svartir flóttamenn
streyma frá höfuðborginni Lú-
anda, en lengi hefur verið búizt
við áhlaupi FNLA á borgina, sem
hreyfingin tapaði til MPLA fyrr í
mánuðinum. Fregnir f dag
hermdu, að svo virtist sem árás-
inni á Lúanda hefði verið frestað
og liti svo út sem FNLA væri að
reyna að einangra borgina og þar
með MPLA-hreyfinguna frá
stuðningsmönnum annars staðar í
landinu.
Leiðtogi FNLA, Holden Rob-
erto, sem I síðustu viku sneri til
baka úr útlegð f Zaire var í for-
ystu fyrir sveit FNLA, sem f dag
lagði undir sig borgina Caxito.
Fréttir bárust af bardögum i
Þetta kort sýnir norðurhluta
hafa verið
nágrenni Lúanda, en f borginni
var i dag haldinn óformlegur
fundur fulltrúa fylkinganna
tveggja um möguleika á vopna-
hléi. Allar fyrri tilraunir til að fá
vopnahléi framfylgt hafa mistek-
izt.
Fundur æðstu manna Einingar-
samtaka Afrfku ákvað f dag að
senda nefnd til Angólu til að
Angólu, þar sem mestu átökin
reyna að koma á sættum milli
hinna strfðandi fylkinga. Nefndin
mun gefa samtökunum skýrslu
um ástandið og þá verður ákveðið
hvort samtökin senda friöar-
gæzlusveitir til landsins. Fylking-
arnar þrjár sem berjast um völdin
f Angólu eru allar mótfallnar af-
skiptum samtakanna af málum
landsins.
r
Astandið í Nígeríu að
færast í eðlilegt horf
Brezkum kaupsýslu-
manni rænt í annað sinn
Bueonos Aires, 31. júlí. AP.
BREZKUM kaupsýslumanni var í
dag rænt f annað sinn á tveimur
árum. Maðurinn, Charles Lock-
wood að nafni, var á leið til vinnu
sinnar f bifreið ásamt dætrum sín-
um og tveimur lffvörðum, þegar
bifreið hans var umkringd. Skipt-
ust mannræningjarnir á skotum
við lffverði Lockwoods og særðust
þeir sfðarnefndu og einnig bíl-
stjóri Lockwoods. Árið 1973 var
Lockwood fyrst rænt, en síðan
sleppt úr haldi, þegar greiddar
höfðu verið milljónir Bandarfkja-
dala í lausnarfé.
Lagos, 31. júlí.
AP.REUTER.
HINIR nýju leiðtogar í Ní-
geríu afléttu í dag út-
göngubanni því sem verið
hafði f. landinu sfðan her-
inn gerði byltingu sl.
þriðjudag. Einnig var á-
kveðið að innanlandsflug
hæfist á ný.
Er talið að nýja stjórnin
telji sig nú orðna trausta í
sessi. Hinn nýji þjóðarleið-
togi, Mohammed hershöfð-
ingi, sagði í gærkvöldi, að
Gowon fyrrum leiðtoga
landsins væri frjálst að
snúa heim óskaði hann
'KrlTTrf
þess, og væri öryggi hans
og fjölskyldu hans ábyrgzt.
Jafnframt voru Gowon
boðin eftirlaun hershöfð-
ingja.
Nýja stjórnin hefur
gengið beint til verks og
skipt um embættismenn í
helztu stöðum og sömuleið-
Flugslys á
Taipei, Formósu, 31. júlf. AP.
VISCOUNT flugvél í innanlands-
flugi á Formósu fórst f dag á
flugvellinum í Taipei, þegar
flugmaður hennar ætlaði að lyfta
vélinni úr aðflugi yfir flugbraut
til þess að gera dðra lendingar-
is um helztu herforingja.
Engar fregnir hafa bor-
izt af aftökum í sambandi
við byltinguna. Landamæri
Nígeríu eru enn lokuð og
alþjóðlegar flugsamgöngur
hafa enn ekki hafizt, en
búizt er við að þær hefjist
fljótlega.
Formósu
tilraun. Annar vængur flugvélar-
innar rakst þá í jörðu og brotnaði
vélin í þrjá hlutff. 75 farþegar
voru með vélinni og létu tæplega
30 lífið. Mikil rigning var þegar
slysið varð og lendingarskilyrði
erfið.
Þrír írskir tónlistarmenn
myrtir á Norður-Irlandi
Belfast, Newry, N-trlandi,
31. júlf. AP.
ÞRfR tónlistarmenn úr þekktri
frskri popphljómsveit voru
skotnir til bana þegar þeir voru á
leið með hljómsveit sinni til
heimaborgar þeirra, Dublin, eftir
að hafa leikið á hljómleikum f
Banbridge á Norður-frlandi.
Það voru N-frskir öfgamenn,
mótmælendatrúar, sem myrtu
tónlistarmennina með vélbyssu-
skothrfð þegar bílar þeirra stöðv-
uðu á veginum við landamæra-
borgina Newry. Bílarnir stöðvuðu
þegar sex menn klæddir her-
mannabúningum gáfu um það
merki, og héldu bflstjórarnir
að um væri að ræða reglu-
bundið eftirlit landamæra-
varða. Þegar farþegarnir
stigu út var þeim raðað upp við
bflana á meðan tveir úr hópi
árásarmanna hugðust koma
sprengju fyrir f öðrum bílnum.
Sprengjan sprakk þó á undan
áætlun og drap báða árásarmenn-
ina. Mikið óðagot kom þá á hina
fjóra og hófu þeir skipulagslausa
skothríð á fórnarlömb sín. Þrír
tónlistarmannanna biðu- bana,
einn særðist, en sá fimmti slapp
lítið meiddur lfkamlega, en fékk
alvarlegt taugaáfall. Samtök sem
nefna sig „Sjálfboðasamtök Ulst-
ers“ tilkynntu eftir á, að þau
bæru ábyrgð á atburðinum.
Þessi samtök hafa áður framið
mörg hryðjuverk.
Soares í
Svíþjóð
Stokkhólmi, 31. júlí
Reuter.
MARIO Soares leiðtogi portú-
galskra jafnaðarmanna kom til
Stokkhólms f dag til að taka þátt i
fundi leiðtoga vestur-evrópskra
jafnaðarmannaflokka. Meðal
annarra þátttakenda á fundinum,
sem hefst á laugardag, verða
Harold Wilson forsætisráðherra
Bretlands og Helmut Schmidt
kanslari Vestur-Þýzkalands.
Ástandið í Portúgal verður helzta
málið á dagskrá.