Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 19 Umdeild vítaspyrna tryggði IA sigur og þar með titilinn ÞAÐ VAR ekki mikil reisn yfir sigri Akurnesinga í leik þeirra við Keflvfkinga á Akranesi á laugardaginn. Naumara gat það ekki verið en 1:0 og sigurmarkið auk þess skorað úr umdeildri vítaspyrnu. En markið var Akurnesingum dýrmætt því það tryggði þeim sigur f tslandsmótinu annað árið í röð og jafnframt tryggði það Matthfasi Hallgrímssyni markakóngstitilinn f mótinu. En þrátt fyrir að ekki hafi verið mikil reisn yfir Skagamönnum á laugardaginn blandaðist engum hugur um að liðið var miklu betra en andstæðingarnir f þessum leik sem fram fór við mjög erfiðar aðstæður. Og ef litið er á frammistöðu Akurnesinga í sumar getur varla nokkur mótmælt því að liðið er verðugur Isíandsmeistari. George Kirby getur vissulega verið ánægður með sinn hlut, tvö ár þjálfari liðsins og tveir meistaratitlar. En hann hefur Ifka haft úr að moða bezta efniviðnum, því segja má að valinn maður sé f hverju rúmi. Það rigndi látlaust á Skipa- skaga á laugardaginn og aðstæður til knattspyrnuleiks voru herfi- legar. Völlurinn rennblautur og háll og leikmenn urðu fljótlega gegnblautir og kaldir ef þeir voru ekki á stöðugum hlaupum. Og ekki fór betur um áhorfendur sem voru ótrúlega margir þrátt fyrir þetta slæma veður. Fyrsta marktækifæri leiksins féll Kefl- víkingum í skaut á 4. mínútu en þá átti Guðjón Guðjópsson ágætt skot að marki sem Hörður varði. Fleiri umtalsverð skot áttu Kefl- víkingarnir ekki á mark Skaga- manna eftir það og hægt er að telja á fingrum annarrar handar þau skipti sem þeir komust eitt- hvað nálægt markinu. Það voru Akurnesingar sem sáu að mestu um að sækja í leiknum og halda uppi spili eða tilburðum í þá átt, en aðstæður settu öllu slíku mikl- ar skorður. Sóknarlotur Skagamanna gáfu þrjú mörk í fyrri hálfleiknum en þau voru öll dæmd af. Um tvö markanna var ekki vafi, Matthías Hallgrímsson skoraði annað þeirra með hendinni og hitt með því að skjóta boltanum beint í markið úr óbeinni aukaspyrnu. í því tilfelli snerti knötturinn eng- an mann á leið sinni í netið og útspark því hárréttur dómur. En um þriðja markið má eflaust deila og um það var deilt manna á meðal á laugardaginn. Knöttur- inn barst fyrir mark ÍBK frá hægri og Jón Gunnlaugsson stökk upp hærra en allir aðrir og skall- aði boltann í netið. Áhorfendum til augsýnilegrar gremju var markið dæmt af og sagði dómar- inn í leikslok að til þess hefðu legið tvær gildar ástæður. I fyrsta lagi hefði línuvörðurinn veifað rangstöðu á Jón og í öðru lagi hefði hann hindrað Þorstein markvörð um leið og hann skor- aði. Sama úrfellið var þegar leik- mennirnir hófu seinni hálfleik og jafnvel ekki laust við að rigning- una herti aðeins þegar á hálfleik- inn leið. Leikurinn fylgdi sama farvegi og áður, Skagamenn sóttu en Keflvíkirigar vörðust. Sóttu Skagamenn mest fram miðjuna eða hægra megin en vinstri kanturinn var sáralítið notaður. Og upp úr einni slíkri sóknarlotu á 16. mínútu seinni hálfleiks skor- uðu þeir sigurmarkið. Eins og svo oft áður var Jón Alfreðsson upphafsmaðurinn. Hann lék hratt fram miðjan völlinn og gaf síðan góðan bolta út til hægri á Hörð Jóhannesson. Hörður lék sig í skotfæri og skaut að markinu. Boltinn fór í Gísla Torfason og af honum út fyrir endamörk. Og nú var það stóra spurningin, fór bolt- inn af hendi Gísla og út fyrir endamörk eða af síðu hans? Dómarinn var ekki í aðstöðu til að sjá það og spurði álits hjá línuverði sínum og útkoman varð vítaspyrnudómur. „Það var engin vafi, boltinn fór I höndina á Gísla,“ sagði Sævar Sigurðsson Iínuvörður eftir leikinn en Gísli Torfason sagði. „Þetta er hreinn delludómur, boltinn fór aldrei f höndina." Höfundur þessara lína horfði á atvikið í gegnum mynda- vélarlinsu og gat ekki betur séð en boltinn færi í höndina á Gísla. En ekki þýðir að deila við dómar- ann stendur einhvers staðar og vítaspyrnudómnum varð ekki breytt þrátt fyrir áköf mótmæli Texti og mynd: Sigtryggur Sigtryggsson. Keflvíkinga. Ur vítaspyrnunni skoraði Matthías nokkuð örugg- lega hægra megin við Þorstein markvörð. Þorsteinn henti sér í rétt horn en náði samt ekki til knattarins. Þessi spyrna Matthías- ar er vafalaust sú mikilvægasta i öllu Islandsmótinu því hún tryggði Akurnesingum Islands- meistaratitilinn annað árið í röð og jafnframt tryggði hún Matthiasi markakóngstitilinn, en hann gerði samtals 10 mörk í mótinu. Eftir þetta mark Matthíasar gerðist fátt markvert og sjaldan hafa sézt ánægðari menn en leik- menn þessara tveggja liða þegar Bjarni Pálmason dómari flautaði til leiksloka. Flýttu leikmenn sér f heitt baðið hver sem betur gat. Erfitt er að dæma um frammi- stöðu einstakra leikmanna við þessar aðstæður. Akurnesingarn- ir voru mun sterkari í þessum leik og hefðu átt að vinna hann með meiri mun. En vörn IBK barðist vel svo og Þorsteinn markvörður sem átti prýðisleik. Miðjumenn liðsins og framlínumenn voru hins vegar varla með í leiknum. I Akranesliðinu voru tveir menn áberandi beztir, Jón Alfreðsson fyrirliði þess, sem hefur ótrúlega yfirferð og er sífellt að byggja upp, og Karl Þórðarson sem sýndi aðdáunarvert jafnvægi og ótrú- lega leikni á glerhálum vellinum. I stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Akranes- völlur 29. ágúst. IA — ÍBK 1:0 (0:0). Mark ÍA: Matthías Hallgríms- son á 61. mínútu. Áhorfendur: 1142. Áminning: George Kirby, þjálf- ara ÍA sýnt gult spjald fyrir að kalla ábendingar til leikmanna sinna. Þorsteinn Olafsson hafði nóg að gera I leiknum og hér hefur hann slegið boltann í horn. 1 baksýn sést Matthías Hallgrímsson markakóngur mótsins, en hann hefur einu sinni áður verið markakóngur, árið 1969. Takið eftir, að Akurnesingar leika ekki I sfnum venjulega búningi heldur varabúningnum sem er blár og hvftur, alveg eins og enski landsliðsbúningurinn. ap r W Knötturinn siglir í mark Fram í annað sinn f leiknum á sunnudagskvöldið, og það er ekki að furða þótt Guðmundur Þorbjörnsson sé broshýr. SPENNA FRAM Á SÍÐUSTU MÍNÚTU EN VALSSIGUR FÆRÐIÍA SIGURINN ÞAÐ VAR ekki fyrr en á síðustu mínútum leiks Fram og Vals á Melavellinum á sunnudagskvöld- ið að Skagamenn meðal áhorf- enda gátu farið að anda léttar. Sigur Vals f leik þessum þýddi að Skagamenn gátu tekið við verð- launum sfnum strax að leiknum loknum, en sigur Fram hefði hins vegar þýtt aukaleik milli þeirra og Akurnesinga um titilinn. Þótt Skagamenn hafi sjálfsagt verið tilbúnir að leika þann leik, var hitt auðveldara fyrir þá að taka við bikarnum f sparifötunum, ekki sfzt vegna þess að þeir eiga mjög strangt leikjaprógramm eftir, bæði með liði sfnu og eins landsliðinu. t leiknum ífyrrakvöld leitlengi vel út fyrir öruggan sigur Vals- manna. Þegar liðnar voru 30 min- útur af seinni hálfleik var staðan 3:0 þeim í vil, en á þeim stundar- fjórðungi sem éftir var settu Framarar mikla spennu í leikinn með tveimur mörkum á tveimur mínútum og nokkrum ágætum færum sem ekki nýttust. Það gat því allt gerzt í þessum leik, allt til loka, en Valsmenn og Skagamenn höfðu heppnina með sér og það voru því Valsmenn sem bundu endahnútinn á hina mjög svo skemmtilegur stigabaráttu sem verið hefur í mótinu í sumar. Leikurinn á sunnudagskvöldið var annars gífurlegur baráttuleik- ur, og var engu líkara en það væru Valsmenn sem hefðu allt að vinna í þessum leik. Liðið hefur ekki sýnt svo’góða baráttu í fyrri leikjum sinurri i sumar, og þrátt fyrir óhagstæð skilyrði, eins og jafnan eru á malarvöllum, sýndi liðið oft ágæta tilburði til þess að leika knattspyrnu. Má mikið vera ef þetta er ekki einn af betri leikjum Valsliðsins I sumar, og hefur áhangendum liðsins sjálf- sagt fundizt timi til kominn að það sýndi eitthvað. — Greinilegt var, allt frá upphafi leiksins, að mikilvægi hans virk- aði mjög þrúgandi á Framliðið. Það náði um tima ekki vel saman, og of mikil taugaveiklun var ein- kennandi fyrir margt sem ein- stakir leikmenn liðsins gerðu. Það var ekki fyrr en staðan var orðin 3:0 fyrir Val og leikurinn raunverulega tapaður fyrir Fram, að liðið náði sér vel á strik og tók völdin á vellinum. Breytti þá einnig mikluaðMarteinn Geirsson var færður framar á völlinn, og var þá ekki að sökum að spyrja að mun meiri ógn og hætta skapaðist í sóknartilburðum liðsins. Undir lok leiksins hætti Fram öllu í sóknum sinum, og mátti þá þakka fyrir að fá ekki á sig mark, er þrfr sóknarleikmenn Valsliðsins sóttu tvívegis fram gegn tveimur varnarmönnum Fram. Valsmenn ákveðnir Það kom i ljós sLax í byrjun leiksins á sunnudagskvöldið að Valsmenn léku mjög ákveðið og góð barátta var í liðinu. Þeir voru jafnan á undan Fram í baráttunni um knöttinn og einstaka sinnum brá fyrir góðu spili, þar sem knött urinn gekk frá manni til manns. Uppi við markið höfðu Valsmenn- irnir þó ekki heppnina með sér fyrr en á 16. mínútu, að miklum Ioftbardaga fyrir framan mark Framara lauk með því að Magnúsi Bergs tókst að skalla knöttinn framhjá Árna Stefánssyni, sem hafði hætt sér út í þvöguna. Nokkru síðar fékk Hermann Gunnarsson það færi sem alla framherja dreymir um. Hann komst með knöttinn inn fyrir vörn Framliðsins og var svo gjör- samlega frír, að hann gat gefið sér þann tima sem hann vildi. Lék Hermann að markinu, og þegar Árni Stefánssin kom út á móti honum renndi hann knett- inum framhjá honum, en svo óná- kvæmt að hann hrökk í stöng og þaðan út. Þetta var færi sem Her- mann Gunnarsson hefði einhvern timann nýtt betur en hann gerði nú. Texti: Steinar J. Lúðviksson Myndir: Ragnar Axelsson. Aukin Valsforysta Guðmundur Þorbjörnsson hinn ungi og efnilegi Ieikmaður Vals sá hins vegar um að lið hans fékk aukið forskot i leiknum. Eftir hornspyrnu og dans á marklínu Framnrarksins tókst honum að ná til knattarins og skora með skalla. Stóð þannig 2—0 fyrir Val í hálf- leik, en það bar að taka með í reikninginn að í fyrri hálfleikn- um léku Valsmenn undan nokk- urri golu og var það þeim til sýni- legs hagræðis. Bæði Valur og Fram áttu nokkur góð tækifæri i hálfleiknum, og mátti Sigurður Dagsson i Valsmarkinu stundum taka á honum stóra sínum til að verja, eins og t.d. er Dýri Guð- mundsson átti sendingu á hann, sem stefndi í hornið uppi. Rangstöðumark Þriðja mark Valsmanna kom á 22. mínútu seinni hálfleiksins, og var aðdragandi þess sá að Berg- sveinn Alfonsson fékk sendingu inn fyrir vörn Framliðsins. Var hann greinilega rangstæður. Ragnar Magnússon, línuvörður, virtist hins vegar hafa hugann við eitthvað annað og Bergsveinn fékk næði til þess að senda fyrir markið á koll Hermanns Gunnars- sonar, sem átti auðvelt með að skalla framhjá Árna Stefánssyni. Spenna f leikinn En Framarar höfðu ekki sagt sitt síðasta orð. Það hlaut að koma að þvf að barátta þeirra bæri árangur, og það gerðist á 30. mfn- útu er Trausti Haraldsson bak- vörður átti skot á Valsmarkið af löngu færi. Félagar Sigurðar Dagssonar byrgðu honum algjör- lega sýn, og hann sá ekki knöttinn fyrr en hann var að renna fram- hjá honum í markið. Glæsilegt mark Og aðeins tveimur mínútum síð- ar bættu Framarar öðru marki við, og var það jafnframt fal- legasta mark leiksins. Undirbún ingur-þess var einnig eóður T év,, Framarar knettinum á milli sin unz hann var sendur til Marteins Geirssonar út að vítateigshorninu hægra megin, en þaðan skaut Marteinn fallegu skoti í bláhornið niðri, fjær, og þrátt fyrir að Sig- urður væri í miklum ham f Vals- markinu átti hann enga mögu- leika á að verja. Tveir báru af Tveir leikmenn báru af á vell- inum f þessum leik. Sigurður Dagsson, markvörður Vals, og Marteinn Geirsson, Framari. Sig- urður sem hefur ekki leikið með liði sínu siðan landsleikurinn við Norðmenn var hér heima i sumar, fyrr en í bikarleiknum á móti ÍA, sýndi það ekki að það væri honum mikill fjötur um fót þótt æfingin væri lítil. Sigurður mun hafa ver- ið settur út úr Valsliðinu eftir umræddan landsleik fyrir aga- brot. Fór hann síðan utan í sumar- leyfi, og hafði lítið eða ekkert æft, er hann var tekinn í sátt hjá lið- inu að nýju. Hefur Sigurður sann- að í tveimur undanförnum leikj- um Valsliðsins, að hann er tví- mælalaust okkarbezti markvörð ur og bæði synd og skömm að hann skuli sitja heima þegar landsliðið er að fara í jafn þýð- ingarmikla keppnisferð og lagt var í nú. I leiknum á sunnudags- kvöldið sýndi Sigurður mikið ör- yggi og varði oft erfið skot án sýnilegrar áreynslu. Marteinn var eins og svo oft áður kóngur Framliðsins. I þess- um leik hætti hann sér ef til vill of framarlega á kostnað varnar- innar, en þau varnarmistök sem Fram urðu á í leiknum verða þó tæpast skrifuð á hann. Og þegar Fram átti sóknir sem hætta staf- aði af var Marteinn jafnan mikil- v*gasti maðurinn. Sérstaka at- hygli í þessum leik vakti einnig ungur piltur í Framliðinu, Pétur Ormslev. Þar er á ferð eitt af meiri efnum sem fram hefur kom- ið í íslenzkri knattspyrnu, og verður fróölegt að fylgjast með þeim pilti í framtíðinni. Bæði hefur Pétur ágæta knattmeðferð og gott auga fyrir leiknum. KRbjargadi sér en IBV á enn von KR-INGAR hafa oft undanfarin ár staðið f botnbaráttu f 1. deildinni f knattspyrnu, en alltaf tekizt að bjarga sér á síðustu stundu. Það gerðu þeir einnig f ár er þeir á sunnudaginn unnu lið IBV með einu marki gegn engu á Melavellinum. Skutust Vesturbæingarnir þar með upp í 7. sæti deildarinnar, en settu Eyjamennina f botnsætið. Leikmenn IBV halda þó enn í þá von að sigra Þrótt í aukaleik um viðbótarsætið f deildinni og vissulega eru Vestmannaeyingarnir líklegir sigurvegarar í þeim leik. Sölvi Óskarsson þjálfari Þróttar sagði á sunnudaginn að ekki skipti máli hvoru liðinu, IBV eða KR, Þróttur mætti. Hann vildi þó heldur leika gegn ÍBV, því sem sannur Vesturbæingur vildi hann ekki verða til þess að senda KR-inga niður f 2. deild f fyrsta skipti í sögunni. Það gerir róðurinn heldur ekki léttari hjá Eyjamönnum, að þeir verða sennilega að vera án sfns sterkasta leikmanns í leiknum við Þrótt, þar sem Ólafur Sigurvinsson sá leikur fer fram. Það var Halldór Björnsson, sem skoraði mark KR-inganna í leikn- um á sunnudaginn, en að vísu fékk hann hjálp frá einum varnarmanni ÍBV. Það var á 17. mínútu leiksins að Halldór skaut mjög föstu skoti að ÍBV-markinu, en á leið sinni þangað fór knöttr urinn í Magnús Þorsteinsson, sem lék þennan leik fyrir Friðfinn Finnbogason. Breytti knötturinn um stefnu og fór í hornið nær úti við stöng, en Ársæll hafði kastað sér í hitt hornið. Mark þetta reyndist sigur- markið I þessum þýðingarmikla leik. KR-ingar sóttu mun meira undan allsterkum vindinum f fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik snerist dæmið við, nú voru það Eyjamenn, sem áttu leikinn. Lítið var þó um marktækifæri í leikn- um, sem var mjög slakur. Litlu munaði þó að Haraldi Júlfussyni tækist að jafna í seinni hálfleikn- um, er hann vippaði knettinum yfir Magnús markvörð, en Stefán Örn Sigurðsson var á réttum stað á marklínunni og skallaði yfir. Þá átti Örn Óskarsson marktækifæri í fyrri hálfleiknum og sömuleiðis áttu þeir Hálfdán og Atli Þór möguleika á að skora f leiknum en tókst ekki. Leikur IBV og KR átti að fara fram á Laugardalsvellinum á laugardaginn, en varð að fresta og flytja á Melavöllinn vegna þess að Eyjamennirnir komust ekki til lands. Var talsverður f jöldi áhorf- enda mættur á Laugardalsvöllinn. er tilkynnt var um frestunina. verður Ifklega ekki á landinu þegar Flogið var til og frá Eyjum á laugardagsmorgun, en upp úr hádeginu fór veður að versna. Enn var þó fært er iBV-liðið ætl- aði að leggja af stað, en þá kom það babb í bátinn að flugvél Vængja sem ætlaði með þá bilaði og þegar tekizt hafði að fá aðra vél var orðið ófært. Svo aftur sé vikið að leiknum þá lögðu KR-ingarnir alla áherzlu á það í seinni hálfleiknum að halda forskotinu og treystu vörn- ina með því að fækka í framlín- unni. Tókst þeim það sem þeir ætluðu sér og náðu Eyjamenn sjaldan að skapa sér marktæki- færi. Þá var líka of mikill æsingur í Eyjamönnunum og er þeir nálg- uðust vftateig KR-inganna rauk öll skynsemi út f veður og vind. Enginn leikmanna ÍBV átti góðan leik, en einna skástir voru þeir Snorri Rútsson og Karl Sveinsson. Af KR-ingunum stóðu þeir sig bezt Ottó Guðmundsson, Halldór Björnsson og Stefán Örn Sigurðs- son. 1 stuttu máli: Islandsmótið 1. deild, Mela- völlur 31. ágúst KR — ÍBV 1:0 Mark KR: Halldór Björnsson á 17. mfnútu. Áminning: Engin. Texti: Ágúst I. Jónsson. Mynd: Ragnar Axelsson. Ilaraldur Júlfusson var þarna andartaki of seinn f knöttinn. Magnús Guðmundsson markvörður KR, nær að góma hann. Bak við Harald sézt I Hálfdán Örlygsson — einn af ellefu varnarmönnum KR f sefnni hálfleiknum. Knapp býðst starf í Noregi — Jú það er rétt, ég hef fengið tilboð frá Noregi um að taka að mér 1. deildarliðið Rosenborg, sagði Tony Knapp þjálfari KR-inga er við spurðum hann um þetta atriði að loknum leiknum við ÍBV. — Ég sagði þeim að ég vildi ekki ákveða neitt og alls ekki bínda mig meðan ég væri samningsbundinn hér. Síðan hef ég ekki heyrt meira frá þeim, en það gæti allt eins verið að ég yrði þjálfari þar næsta sumar. Er við sfðan spurðum hann hvort þetta hefði verið sfðasti leikur KR-inga undir hans stjórn, svaraði hann stutt og laggott: — Kannski. Knapp sagðist mundu taka sér góða hvfld er keppn- istfmabilinu hér lyki. — Þetta hefur verið erfitt sumar og f mörgu að snúast, bæði með landsliðið og KR-Iiðið. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri þegar ég kem til Englands f haust, en sennilega veiður það eitthvað f sambandi við knattspyrnu. Landsliðsþjálfarinn var að vonum ánægður með sigurinn f leiknum gegn IBV og sagði að KR- strákarnir hefðu barizt vel og sýnt hvað í þeim býr þegar mest hefði á riðið. I seinni hálfleiknum hefði KR-Iiðið spilað 4-4-2 f staðinn fyrir 4-3-3 f fyrri hálf- leiknum. Vörnin hefði orðið traustari og mark Hall- dórs hefði dugað til sigurs f leiknum. Þó svo að KR heföi orðið i nætneðsta sætinu í 1. deild þá hcfði sumarið ekki verið scm verst KR hefði unnið Reykjavfkurmótið og komizt f 4-liða úrslit bik- arkeppninnar. Þá væri liðið með 10 stig f 1. deildinni og það lið sem hefði sigrað í deildinni væri aðeins með 9 stigum meira. Heppnin hefði ekki verið ieikmaður með KR-liðinu f sumar og margir leikir hefðu tapazt á ódýrum mörkum og KR hefði engum leik tapað með miklum mun. *»* ** • % #% v \ \ S'^£L Á Eyjaskóm skoraði Halldór gegn ÍBV HINN eitilharði Halldór Björnsson skoraði hið þýð- ingarmikla mark KR-inga í leiknum gegn lBV á sunnudaginn. Við markið fékk hann þó góða aðstoð frá einum varnarmanna IBV-Iiðsins og Eyjamenn hjáipuðu honum á fleiri sviðum í sambandi við þcnnan leik. — Ég fékk skóna lánaða hjá kunningja mfnum, sem fyrir nokkrum árum var leikmaður með meistaraflokki tBV, sagði Halldór eftir leikinn. — Ég lofaði honum að ég skyldi skora f skónum, en ég er alls ekki viss um að hann verði ánægður þegar ég segi honum að ég hafi staðið við þau orð mín. Ilalldór hefur f mörg ár staðið f baráttunni í knatt- spyrnunni. Hann lék með KR og landsliðinu á sfnum tfma, sfðan gerðist hann þjálfari og lcikinaður með Völsungum og með þvf liði lék hann í þriðju deild. Sfðan lá leiðin til Armanns þar sem hann þjálfaði f fyrra, en fór svo á ný „heim“ til KR f vetur. Hefur Halldór þvf lcikið í öllum deildunum þremur og f þeim öllum hefur hann skorað. Er við spurðum Halldór að þvf eftir leikinn hvaða lið væri raunveru- lega lakast f 1. deildinni, sagði hann að það væru Eyjamenn, en FH-ingar væru þó lftið skárri. Ekki voru allir sammála Halldóri f þessum dómi hans og eftir að Halldór hafði látið þessi orð út úr sér hófust háværar deilur meðal KR-inga um hverjir væru léleg- astir. Einhverjir töldu Keflvíkinga eiga lélegasta liðið, aðrir sögðu FH-ingana slakasta og nokkra átti Halldór skoðanabræður, sem sögðu að Eyjamenn væru á réttum stað f botnsætinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.