Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975
3
litli honum I bak og fyrir af
einskærri gleði,“ sagði Hjördls.
Hjördfs og maður hennar,
Steinþór Eiríksson, fluttu inn I
nýja íbúð við Kjarrhólma I
Kópavogi á laugardaginn ásamt
börnunum tveimur. Pétur litli
fór stráx að líta í kringum sig
eftir hentugu leiksvæði. Rétt
fyrir kvöldmat á sunnudaginn
fór hann út að leika sér og fór I
þetta skipti bakdyramegin út,
en þar er svæðið alveg ófrá-
gengið og ennþá unnið að fram-
kvæmdum. Hálftfma síðar
kallaði móðir Péturs litla á
hann, en fékk ekkert svar. Fóru
þau hjónin þá að svipast um
eftir honum en án árangurs.
Síðan voru vinir og kunningjar
fengnir til aðstoðar en þegar
það bar enn ekki árangur, var
haft samband við lögregluna í
Kópavogi, enda þá komið myrk-
ur. Hún kallaði til hjálparsveit-
ir af Reykjavíkursvæðinu,
Hveragerði og Njarðvíkum.
Einnig var auglýst eftir sjálf-
„ÉG SKÆLDI bara pfnu-
lítið þegar ég fann ekki
pabba og mömmu. Svo
lagðist ég niður undir
svölunum, breiddi yfir
mig plastið og fór að
sofa. Og svo fór mig að
dreyma og mig dreymdi
að ég væri kominn
heim.“ Þetta sagði Pétur
litli Jenssen Kjarrhólma
22 f Kópavogi, 4 ára
Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Pétur Jensen ásamt móður
sinni, Hjördfsi Pétursdóttur, og
litla bróður sfnum, Eirfki.
„ Og svo fór ég að sofa og mig
dreymdi að ég vœri kominrMtein
200 manns leit-
uðu fram á nótt
að 4 ára snáða
úr Kópavogi
sem rataði ekki
heim til sín
Hér sýnir Pétur litli okkur hvar hann lagðist fyrir og sofnaði, og
hann heldur í plastdúkinn sem hann breiddi yfir sig.
drengur, sem týndist f
fyrrakvöld og fannst ekki
fyrr en klukkan eitt um
nóttina, og höfðu þá allt
að 200 manns leitað hans.
Pétri litla varð ekki
meint af þessari
„útilegu“ og var hann
hinn hressasti þegar
blaðamenn Morgunblaðs-
ins hittu hann f gær, og
hann sýndi þeim staðinn
þar sem hann sofnaði.
„Ég var orðin alveg óskap-
lega hrædd um drenginn, hélt
að eitthvað ægilegt hefði komið
fyrir. Gleðin var lfka ólýsanlega
mikil þegar leitarmennirnir
komu með hann heim um nótt-
ina heilan á húfi,“ sagði móðir
Péturs litla, Hjördfs Péturs-
dóttir. Og Hjördís bætti því við
að hræðslan hefði smitað út frá
sér, því að litli bróðir Péturs
virtist finna á sér að hann væri
týndur og gat ekki sofnað.
Hann heitir Eiríkur og er 1V$
árs. „Og þegar þeir komu heim
með Pétur, klappaði Eiríkur
boðaliðum í útvarpinu og gáfu
margir sig fram. Er talið að 200
manns hafi leitað þegar mest
var. Leitað var mjög nákvæm-
lega við húsalengjuna þar sem
Pétur á heima og sfðan var
leitarsvæðið stækkað.
Það var svo um klukkan eitt
eftir miðnætti að leitarmaður
fann Pétur litla sofandi undir
svölum hússins númer 12 við
Kjarrhólma. Hafði hann breytt
yfir sig plastdúk og því ekki
fundizt fyrr þegar leitað var á
þessu svæði. Var Pétur orðinn
nokkuð kaldur enda mun hann
hafa blotnað er hann var að
leika sér um kvöldið. Hefur
hann ekki ratað heim til sín,
enda allir stigagangarnir í
þessari húsalengju eins og
Pétur litli aðeins átt heima
þarna einn dag. Var hann að
vonum ruglaður fyrst eftir að
leitarmennirnur fundu hann,
en jafnaði sig brátt eftir að þeir
höfðu komið með hann heim til
pabba og mömmu.
Hjördfs móðir Péturs bað
Morgunblaðið að koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra
sjálfboðaliða sem leituðu að
Pétri litla og það sama gerði
lögreglan f Kópavogi, er Mbl.
ræddi við hana. Sagði lögreglu-
varðstjóri að það væri ómetan-
legt fyrir lögregluna að vita af
svo mörgu hjálpfúsu fólki við
höndina þegar hjálpar væri
þörf.
Iscargo vill flutn-
inga Varnarliðsins
FLUGFÉLAGIÐ Iscargo
hefur sótt um til utannkis-
ráðuneytisins að fá að
annast vöruflutninga
Varnarliðsins til fslands
frá Bandaríkjunum, en
Varnarliðið flytur mjög
mikið af vörum flugleiðis,
oft yfir 100 lestir á viku.
flytja kálfa um þessar mundir frá
írlandi til Italfu.
Páll Ásgeir Tryggvason deildar-
stjóri f Varnarmáladeild utan-
rfkisráðuneytisins sagði, að um-
sókn Iscargo hefði ekki enn borizt
til Varnarmálanefndar, en kæmi
sennilega fljótlega þangað. Þvf
væri ekki að neita, að Varnarliðið
flytti mikið af varningi með flug-
vélum, en ekkert væri hægt að
segja um málið að svo stöddu.
Agreements
A Flying Start for
MEWS FROM KXLAND
News from Iceland
komið út öðru sinni
ANNAÐ tölublað ritsins
„News from Iceland“ er
komið út, en það er gefið út
mánaðarlega af Iceland
Review. í þessu tölublaði
ræðir ritstjórinn, Haraldur
J. Hamar, nokkuð um við-
tökur fyrsta blaðsins.
Ritstjórinn segir að vissulega
hefði ekki þurft að hafa áhyggjur
af viðtökum þeim, sem blaðið
fékk, þar sem mikil kynning hafði
átt sér stað fyrirfram og hún gefið
mjög góð og jákvæð svör, t.d. hafi
utanríkisþjónustan tekið frum-
kvæðinu mjög fagnandi, svo og
flugfélögin. Þá hafi hótelin I
Reykjavík jafnframt tekið blað-
inu mjög vel.
News from Iceland er prentað í
Prentsmiðju Morgunblaðsins.
Lárus Gunnarsson einn af eig-
endum Iscargo, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta væri rétt
og hefðu þeir sótt um þessa flutn-
inga, þar sem það væri yfirlýst
stefna stjórnvalda að Islendingar
önnuðust sem flest störf fyrir
Varnarliðið. Ef af þessu verður
mun Iscargo festa kaup á þotu, en
öðru vísi gæti félagið ekki annað
flutningunum.
Mikið hefur verið að gera
hjá Iscargo á undanförnum mán-
uðum, bæði innanlands og utan,
en félagið er með fastar ferðir frá
Islandi til Rotterdam og Dan-
merkur. Þá er töluvert um það að
félagið taki að sér flutninga á
kvikfénaði erlendis, t.d. er það að
Ný ljóðabók
UT er komin ný ljóðabók eftir
ungan mann Bjarna Bernharð
Bjarnason. Nefnist bókin Upp og
ofan, og er útgefin af höfundi.
Þetta er fyrsta Ijóðabók Bjarna
Bernharðs, en hann hefur stund-
að sjómennsku af og til. I bókinni
eru 30 ljóð. Káputeikning er eftir
Pétur Stefánsson, en Letur fjöl-
ritaði.
Harðorð forystugrein í Vísi:
Krefst afsökunarbeiðni for-
manns Stéttarsambands bænda
vegna „grófrar aðdróttunar,, í garð blaðsins
t harðorðri forystugrein f gær
krefst dagblaðið Vfsir þess, að
Gunnar Guðbjartsson formaður
Stéttarsambands bænda biðjist
opinberlega afsökunar á um-
mælum, er blaðið segir hann
hafa haft f ræðu á aðalfundi
Stéttarsambands bænda á
Laugarvatni, en Vfsir segir
hann hafa drðttað þvf að Vfsi,
að fyrrverandi ritstjóri blaðs-
ins hefði verið látinn fara frá
blaðinu vegna skrifa þess um
landbúnaðarmál. Vegna for-
ystugreinarinnar reyndi Mbl.
að ná tali af Gunnari Guð-
bjartssyni f gærkvöldi en það
tðkst ekki. Um þetta segir f
forystugrein VIsis í gær: „Hér
er um svo rakalausa og grðfa
aðdrðttun að ræða, að Vfsir
krefst þess, að formaður
Stéttarsambandsins biðjist
opinberlega afsökunar á um-
mælum sfnum. Ritstjóraskiptin
á Vfsi fyrir skömmu stððu f
engu sambandi við land-
búnaðarskrif blaðsins né
nokk'ur önnur skrif þess. Ut-
gáfustjðrnin hafði aldrei af-
skipti af stefnu blaðsins eða
forystugreinum þess. I fundar-
gcrðum stjðrnarinnar er hvergi
að finna athugasemdir þar að
lútandi. Fráfarandi ritstjðri
var og er raunar enn einn af
hluthöfum f útgáfufélagi Vfsis.
Hann átti sjáifur sæti sem vara-
maður f stjðrn þess og skráði
fundargerðir hennar. Þau um-
brot, sem átt hafa sér stað f
útgáfufélagi Vfsis, Reykja-
prenti hf., stafa af deilum hlut-
hafa og áhrifamikilla stjðrn-
málamanna um yfirráð yfir
hlutabréfum f félaginu. Áður
en þær deilur komust á alvar-
legt stig nú f sumar, hafði frá-
farandi ritstjðri sjálfur
ákveðið að láta af störfum.“
Eins og Morgunblaðið skýrði
frá sl. laugardag sagði Gunnar
Guðbjartsson f setningarræðu
sinni á aðalfundi Stéttar-
sambands bænda að stjórn þess
hefði kannað möguleika á að
stefna Vísi fyrir atvinnuróg. I
forystugrein Vísis í gær segir
m.a.:
„Forystumenn bænda hafa i
raun réttri ekki þolað opin-
berar umræður um íslenzkan
landbúnað. Um'þverbak keyrði
þó fyrir sfðustu helgi er for-
maður Stéttarsambands bænda
hélt ræðu á afmælisfundi
sambandsins á Laugarvatni.
Sennilegt er að fáir menn hafi
skaðað málstað landbúnaðarins
jafn mikið og formaður Stéttar-
sambandsins f þeirri ræðu. . .
að sögn formanns Stéttar-
sambandsins átti m.a. að stöðva
þessar umræður með máls-
höfðun fyrir dómstólum. Þá er
Vfsi kunnugt um að stjórn
Stéttarsambands bænda gerði
tilraun til þess á sl. vetri að
koma í veg fyrir opinberar um-
Framhald á bls. 35