Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 5
Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON Organ- sláttur Orgelleikari: Harald Gullichsen 0 Efnisskrá: Sweelinck Toccata £ Bach Canzona i d-moll £ Bach Prelúdia og fuga í A dúr ® Böhm Sálmaforspil, Vater unser in Himmelreich Q Bach Sálmafor- spil, Valet will ich dir geben Wenn wir in höchsten Nöten sein 0 Buxtehude Passakaglia I d- moll ^ Bach Toccata og fúga í C-dúr. í útgefnu riti félags. ís- lenzkra hljómlistarmanna, Tónamál, eru orgeltónleikar Harald Gullichsen ráðgerðirí Dómkikrjunni, og á efnis- skránni eru talin upp verk eftir Bach, Arild Sandvold, Egil Hovland og César Franck. Eftir að orgelleikar- inn hafði kynnzt hljóðfærinu í Dómkirkjunni tók hann þann kostinn að leika heldur að orgelið í Háteigskirkju. Orgel eru margvísleg að gerð, allt frá einföldu stofu- orgeli upp í 7 hljómborða orgel með 1 200 registur og eiga fátt sameiginlegt nema nafnið. Þessi munur á stærð og gerð hefur í för með sér margvísleg vandamál fyrir orgelleikara. Orgel Háteigs- kirkju er aðeins 7 radda og að byggingu þokkalegt stofuorgel. Fá registur og takmarkanir í styrkleika- breytingum valda því að flutningur verður blæbrigða- fátækur og síbyljulegur, auk þess sem mikill hluti orgel- bókmenntanna verður ekki fluttur, svo vel sé, á svo lítið orgel eins og er í Háteigs- kirkju, þótónfallegt sé. Þrátt fyrir fáa valkosti í „registrasjón" bar leikur Har- alds Gullichsen þess vott að hann er góður orgelleikari. Á stærra orgel af þeirri gerð- inni, sem hann er vanur, hefði mátt gera mun meira úr síðustu tveimur verk- unum. Það er leitt til þess að vita að ekki er til í hljóm- leikasal hérlendis frambæri- legt orgel, því þó slík hljóð- færi séu sögulega og tilfinn- ingalega tengd trúarathöfn- um kristinnar kirkju, er org- eltónlist og reyndar mikill hluti kirkjulegra tónlista' mest um hönd höfð á tón- leikum jafnvel orðin tízku- fyrirbrigði. Sú ákvörðun Gullichsen að leika á stofu- orgel Háteigskirkju dró úr möguleikum hans til að sýna getu sína til fullnustu. Af leik hans mátti þó ráða að hann er vandaður orgelleik- ari. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 ENNÞÁ ER HÆGT AÐ GERA o REYFARAKAUP o Á HINNI MARGUMTÖLUÐU SUMARÚTSÖLU OKKAR c c STÓRKOSTLEGT VÖRUÚRVAL AF 1. FL. VÖRUM FATNAÐUR-SKÓR- HLJÖMPLÖTUR 40%—60% AFSLÁTTUR Ég meina það . . . Þú skalt alls ekki láta þessa útsölu fram hjá þér fara. Ég veit með vissu að á henni eru einungis nýjar og nýlegar vörur — ekkert drasl. Svo er framleitt beint fyrir útsöluna stakar buxur og föt m/vesti _ úr hinu frábæra efni Terylene & ull. Allt til að valda þér ekki vonbrigðum — því þú ert jú góðu vanur — sem sagt — stórkostlegt. MIKIÐ ÚRVAL AF: □ STÖKUM BUXUM ÚR TERYLENE & ULL — 3 SNIÐ n FÖTUM M/VESTI □ GALLABUXUM OG FLAUELSBUXUM FRÁ UFO—USA □ SPORTJAKKAR DÖMU- OG HERRA □ KJÓLAR — PILS. LÁTIÐ EKKIHAPP ÚR HENDISLEPPA LÆKJARGÖTU 2 SÍMI FRA SKIPTIBORÐI 28155 SIMI FA SKIPTIBORÐI 28155 í >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.