Morgunblaðið - 25.09.1975, Side 5

Morgunblaðið - 25.09.1975, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975 5 Myndir sovézkra barna I DAG fimmtudag, verður opnuð sýning á myndum sovézkra barna í húsakynnum M.I.R. að Lauga- vegi 178 og mun sýningin standa til 5. október n.k. — Á sýningunni eru 46 myndir eftir 38 börn á aldrinum 7—13 ára. Myndirnar koma víðs vegar að frá Sovétrfkj- unum m.a. frá Kákasus, Mið- Asiu-löndum og víðar. Áður en þessi sýning var sett upp á íslandi voru myndirnar sýndar f Dan- mörku. r Aðalfundur Rauða kross Islands: Ragnhildur Ólafsdóttir Nlna Björk Árnadóttir. Minna á kvennaárið TVÆR íslenzkar Iistakonur, ljóð- skáldið Nína Björk Árnadóttir og rithöfundurinn Ragnhildur Ölafs- dóttir, er skrifað hefur skáldsög- una „Fólk á förum“, munu á morgun, föstudag 26. september, frá kl. 16—18 verða til viðtals i Helgafelli, Veghúsastíg 7, og árita bækur sfnar fyrir þá sem þess óska. Báðar eru listakonurnar bú- settar í Kaupmannahöfn, en á meðan þær staldra hér við vilja þær minna landa sína á kvennaár- ið. Aætlaðar tekjur 87,5 milljónir króna Jassklúbbur stofnaður í Hafnarfirði NÆSTKOMANDI laugardag, 27. september, verður stofnaður jass- klúbbur i Hafnarfirði. Stofnfund- AÐALFUNDUR Rauða kross Is- lands var haldinn ( Reykjavfk dagana 13.—14. september f nýj- um höfuðstöðvum félagsins að Nóatúni 211 Reykjavfk. Formaður félagsins, Björn Tryggvason, setti fundinn og bauð 75 fulltrúa 22 deilda velkomna til fundarins. 6 deiidir sendu ekki fulltrúa á fundinn. Fundarstjóri var Kjartan J. Jóhannsson úr Kópavogi. Á fundinum voru lagðar fram skýrslur og reikningar um starf- semi félagsins. Formaður flutti skýrslu stjórnar og kom í henni fram að vöxtur félagsins hefur verið mjög ör undanfarin ár, starf f deildum hefur vaxið mjög, nýjar deildir stofnaðar og er vfða starf í undirbúningi úti um landið. Félagatala hefur vaxið mjög und- anfarin ár og almennur áhugi virðist vera um að hrinda í fram- kvæmd samkomulagi þvf sem Almannavarnaráð og Rauði kross- inn gerðu með sér um verkaskipt- ingu, ef til neyðar kæmi. Rekstur sjúkrahótels hefur gengið betur en vænta mátti og sjúkraflutning- ar Rauða krossins hafa eflst. Þá hefur undirbúningi nýrra verk- efna miðað nokkuð áleiðis og ber þar hæst stofnun hjálpartækja- banka og nýtt kennslukerfi f skyndihjálp og aðhlynningu sjúkra í heimahúsum. Erlend samskipti hafa aukist verulega og RKl lagt sitt af mörkum til efl- ingar neyðarvarna með því að kosta útgáfu á nýrri alþjóðlegri handbók i neyðarvörnum sem nú liggur fyrir í handriti. Árni Björnsson gjaldkeri félagsins lagði fram endurskoð- aða reikninga félagsins. Hagur félagsins er mjög góðúr og öll undirstaða þess mjög styrk fjár- hagslega. Félagið hefur fest kaup á svo til allri húseigninni á horni Skipholts og Nóatúns þar sem Sjúkrahótelið, skrifstofur félags- ins og kennslusalur eru til húsa, þar er og hjálpartækjabanki fyr- irhugaður. Ólafur Mixa formaður fjárhags- nefndar félagsins lagði fram fjár- hags- og framkvæmdaáætlun félagsins 1975—7. Var hún sam- þykkt. 1 fjárhagsnefnd félagsins sátu auk Ólafs Helga Einarsdóttir og Árni Björnsson. Samkvæmt henni eru áætlaðar tekjur ársins 87,5 milljónir króna. Renna 9,2 milljónir króna beint til deilda skv. lögum félagsins og aðrar 9,2 til sérstakra stærri verkefna sem deildir hafa á prjónunum. 14 verkefni sem 10 deildir hafa á prjónunum voru samþykkt á þessu ári. Stærsti liðurinn er vegna kaupa á tækjum til sjúkra- urinn fer fram I Skiphóli og hefst kl. 15. Aðalhvatamenn að stofnun klúbbsins eru þeir Guðmundur Steingrímsson og Hermann Þórð- arson. Guðmundur sagði 1 gær, að þeir stefndu að því að frá sem flesta jassunnendur í klúbbinn og fljótlega væri hugmyndin að koma dixieland-hljómsveit á lagg- irnar, en gert er ráð fyrir að fund- ir verði haldnir tvisvar í mánuði. flutninga á vegum Reykjavíkur- deildar en til verkefna á vegum deildarinnar voru veittar 5,860 þúsund krónur. Af öðrum verkefnum var aðallega um að ræða kaup á sjúkraflutningatækj- um. Sambærileg áætlun var sam- þykkt fyrir næsta ár. Þá var og samþykkt að tekjuafgangi þessa og næsta árs, að upphæð 7,7 milljónum króna, skyldi á næsta ári varið til eftirtalinna verkefna: hjálpartækjabanka (2,6 millj.), kaup á blóðsöfnunarbifreið (2,5 millj.), skyndihjálparkerfis (1,0 millj.), neyðarvarna (0,4 millj.), kennslukerfis í aðhlynningu sjúkra (0,2 millj.) og styrks til rannsókna á heilsugæslu aldraðra (0,5 millj.), Sambærileg áætlun var gerð fyrir 1977 en þá er gert ráð fyrir 8,7 millj. kr. tekju- afgangi. I stjórn voru kosin: Björn Tryggvason formaður, í aðal- stjórn til fjögurra ára Kjartan J. Jóhannsson, Kópavogi, Ragnheið- ur Jónsdóttir, Egilsstöðum, Jónas B. Jónsson, Reykjavík, og Njáll Guðmundsson, Akranesi. Fyrir f aðalstjórn eru til næstu tveggja ára: Arinbjörn Kolbeinsson, Reykjavík, Gísli Ólafsson, Akur- eyri, Ólafur Mixa, Reykjavík, og Ragnheiður Guðmundsdóttir, Reykjavík. I varastjórn eru: Alda Jónsdóttir, Njarðvik, Benedikt Blöndal, Reykjavík, Guðrún Holt, Reykjavfk, Lovísa Ibsen, Súg- andafirði, Ólafur Helgason, Vest- mannaeyjum, Sigurjón Jóhannes- son, Húsavfk, Sigríður Helgadótt- ir, Reykjavík og Þórir Stephens- en, Reykjavfk. Varaformaður fé- lagsins hefur verið kosinn Arin- björn Kolbeinsson, gjaldkeri Ólafur Mixa og ritari Jónas B. Jónsson. Björn Tryggvason endurkjörinn formaður Björn Tryggvason. Á fundinum lagði fram- kvæmdastjóri félagsins Eggert Asgeirsson, fram nýja skýrslu sem gerð hefur verið um alla starfsemi Rauða krossins f heiminum, bæði yfir hjálparstörf, stofnanir félagsins og alþjóða- fundi auk athugunar á starfsemi landsfélaga og þær tillögur sem helstar hafa komið fram um end- urbætur á starfseminni. Athugun þessi er talin mjög sterk þar sem þetta er sennilega í fyrsta sinn sem stofnun af þessu tagi hefur Iátið af fúsum vilja fara jafn rækilega niður í saumana á sjálfri sér og birt niðurstöður opinber- lega. Þeir þættir skýrslunnar sem fjalla um landsfélög Rauða kross- ins voru teknir til umræðu í 5 hópum. Skiluðu þeir áliti til ný- kjörinnar stjórnar og má búast við endurbótum í félaginu í sam- ræmi við margar framkomnar tillögur og ábendingar. Fundarmenn sóttu boð heil- brigðismálaráðherra f sambandi við aðalfundinn. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.