Morgunblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1975 Þeir veiöa stórþorsk við bryggj- una, en kerfið hefur ekki kjveikl Ingibjörg Þórhallsdóttir Kaupfélagi Langnesinga Bryggjan á Bakkafirði. Innarlega á bryggjunni er bátakraninn, sem lyftir trilluflotanum á þurrt þegar sjðr er ókyrr, en stóra skarðið f brimbrjótinn handann við kranann, þar sem tveir menn eru að vinna, brotnaði er brotsjór reið yfir bryggjuna s.l. vetur. Brotið liggur ennþá innan hafnar til vandræða fyrir heimamenn. Bakkafirði Það er hægt að veiða stór- þorsk við bryggjusporðinn á færi, fengsæl fiskimið eru steinsnar frá þorpinu og þar býr duglegt fólk sem vill fram- farir og þróun í nýtingu gjöf- ulla fiskimiða og sama er að, segja um landgæðin, þau bjóða upp á ágætisbúskap ef rétt er á málum haldið. Aflaverðmæti sjávarafurða frá þessum stað, Bakkafirði, voru 30—40 millj. kr. sl. ár og verðmæti land- búnaðarafurða um 15—20 millj. kr. AIIs er þarna um að ræða 500—600 þús. kr. á mann í verðmætaöflun og er það með því mesta á landinu ef ekki hreinlega það mesta. Nú skildi maður ætla að slíkum stað væri sinnt cðlilega af opinbera kerf- inu, sem hvarvetna er með fingurna til bæja og sveita. Nei, Bakkafjörður hefur gleymzt að mestu, hann er stikkfrf, það er ýtt undir kyrr- stöðuna. Það eru ekki margir fbúar f hreppnum, liðlega eitt hundrað, en ef bryggjan yrði lengd þar og hafnaraðstaðan bætt, eru allir möguleikar opn- ir fyrir fjölmenna byggð, sem öruggt er að borgar sig. Þótt okkar opinbera kerfi sé yfir- leitt allt of seinvirkt þá er það að mörgu leyti opið fyrir ýmis- konar tilþrifum, en því miður hefur það allt of lengi verið allt of lokað gagnvart skynsömum ráðstöfunum f sjávarútvegi og eitt lítið en gott dæmi þar um er höfnin á Bakkafirði. Þar er ágætis bryggjuhaus svo langt sem hann nær, en bara allt of stuttur til að þar sé örugg höfn með eðlilega möguleika. ! lok sfldaráranna var reist á Bakka- firði 600 mála sfldarbræðsla til að gleypa kúfinn. Hvað svo? Hún var seld burtu og bakk-' firzkir sjómenn þurfa ennþá að salta allan sinn afla. Fólk f þéttbýlinu talar oft um að það borgi sig ekki að vera að leggja lið þessum litlu stöðum úti á landsbyggðinni. Þetta er kyn- legt sjónarmið, en að sumu leyti ekki óútreiknanlegt, þvf flestir þessara staða byggjast á fiskveiðum og það þykir yfir- leitt ekki nógu skemmtilegt umræðuefni á Stór- Reykjavíkursvæðinu að ræða útgerð og fiskvinnslu. Því veit fólk afskaplega Iftið um þessi mál og fjöldi fólks trúir þvf meira að segja að sjávarút- vegurinn sé baggi á þjóðarbú- inu. Hitt er svo að margir þess- ara staða geta sjálfum sér um kennt að nokkru, því þeir hafa ekki verið nógu ákveðnir og háværir f kröfum sfnum, þótt auðvitað ætti að vera hægt að vinna mál skynsamlega og án hávaða. Til fróðleiks og skemmtunar um ástand og möguleika f einu litlu hrepps- félagi, koma hér á eftir atriði sem séra Sigmar I. Torfason prófastur á Skeggjastöðum og oddviti hreppsins reit í kynn- ingarrit um félags- og atvinnu- mál f Austurlandskjördæmi. BAKKAFJÖRÐU (SKEGGJASTAÐAHREPPUR): Fvrrum miklu stærri byggð. I þorpinu búa um 56 íbúar, en í sveitarfélaginu bjuggu alls 124 íbúar 1. des. s.l. Árið 1960 voru íbúarnir 175. Skeggja- staðahreppur í Norður- Múlasýslu er nyrsti hreppur Austurlands. Hann tekur yfir strandlengjuna frá Skammdals- höfða, utan Gunnólfsfells á Langanesi, að Stapaá á austan- verðu Digranesi (milli Viðvík- ur og Strandhafnar). Hreppur þessi var fyrrum miklu stærri, sem sjá má af frásögn Landnámu um landnám Gunnólfs og af öðrum heimildum um mörk fjórðunga og biskupsdæma á Skoruvíkur- bjargi, en árið 1841 var sá hluti hreppsins, er náði yfir mikinn hluta Langaness, lagður til Norður-Þingeyjarsýslu og er nú í Sauðaneshreppi. Byggðin í Skeggjastaðahreppi ber þó enn hið forna heiti Langanes- strandir eða Langanesströnd. ATVINNUMÁL: Ónotaðir útvegsmöguleikar — góðar jarðir f eyði Heimabátar byrja grásleppu- veiði um miðjan apríl. Hrognin eru söltuð. Þeirri veiði lýkur í júní og er þá byrjað með hand- færi og sfðar með línu, nokkrir hafa þorskanet. Að jafnaði lýk- Við smelltum þessari mynd af Ingibjörgu Þórhallsdóttur f verzluninni á Bakkafirði, en hún var að setja bensfn á nokkra brúsa, hress og dug- mikil eins og Bakkafjörður býður upp á. 99 Að ngta land- kosti íslands, eða ekki •99 Unga kynslóðin á Bakkafirði byrjar snemma að taka til hendinni og það stóðu aldeilis hendur fram úr ermum hjá þessum félögum sem léku sér f vænu moldarbarði með skóflur, hjólbörur, bfl og allt tilheyrandi. FLUGBRAUT: Flugvallarbætur björguðu mannslffum Um 1957 var gerður sjúkra- flugvöllur vestan við bæinn Djúpalæk, nærri miðri sveit. Kom hann að liði við að bjarga lffi nokkurra fársjúkra manna en þótti síðar svo ófullkominn, að notkun var bönnuð, enda þótti staðarval eigi hafa vel tekist. Haustið 1972 var gerð 600 metra löng flugbraut í landi jarðarinnar Bakka og er flugbrautin um 2 km frá þorp- inu. Flugfélag Austurlands á Egilsstöðum heldur uppi áætl- unarferðum þangað þrisvar í Framhald £ bls. 25. Skeggjastaðahreppi ur veiðitíma í byrjun október, það fer þó eftir veðráttu. Undanfarin sumur hafa verið gerðir út frá Bakkafirði 12—15 trillubátar. Ekki hefir verið reist hér frystihús, en einn þorpsbúa, Hilmar Einarsson á Sólbakka, hefir stofnsett og rekið saltfisk- verkun nokkur ár, sem kom í góðar þarfir og veitti atvinnu fólki, sem ella hefði þurft að sækja hana til annarra byggðar- laga. Hilmar fékk keypt af Ríkisábyrgðasjóði hús síldar- verksmiðju, sem reist var hér seint á síldveiðiárunum, en ekki fullgerð, hús þetta nýtist nú til fiskverkunar. Þegar gæftasamt er og góður afli fást góðar tekjur á hinum stutta út- gerðartíma, en margir fara að heiman á vetrum til vinnu eða náms. Heildarverðmæti sjávarafla árið 1973 var 25,0 milljónir króna, eða sem næst 446.000,00 kr. á hvern íbúa þorpsins. Þó að Skeggjastaðahreppur hafi bæði fyrr og nú fengið verulegan hluta síns bjargræðis af sjávargangi og eigi þar ónot- aða mikla möguleika, þá hefir sveitin einnig góð skilyrði til landbúnaðar. Viðlendu heiðarnar, sem liggja að byggð- inni, reynast ákjósanlegt hag- lendi fyrir sauðfé, enda er væn- leiki sauðfjár með ágætum. Ræktunarskilyrði eru mikil og víða ágæt, einkum siðan góð tæki komu til landþurrkunar. Vegna lélegra vega til mjólkur- flutninga geta bændur ekki haft mjólkurframleiðslu nema til heimilisnota. Bústofn er þvi mestmegnis sauðfé. Vorið 1974 voru i hreppnum 17 bændur á 14 jörðum. Bústofn var sem hér segir: sauðfé 3.250 nautgripir 25 hross 23. Sum búanna eru mjög smá. Kemur þar ýmislegt til, hár aldur sumra bænda, heilsubrestur o.fl. Telja má í eyði a.m.k. 11 jarðir og jarðar- hluta. Af þeim eru a.m.k. 6 vel fallnar til búskapar, þó að bæði þurfi þar að efna til bygginga og ræktunar til viðbótar því, sem er. Ekki hafa jarðir þessar verið til sölu, nema þrjár þeirra seldust vegna veiðiréttinda í ám. Fram að þessu hefir litlum sveitarfélögum verið ofviða að fara í kappboð við slíka kaup- endur. IIÖFNIN: Miklir möguleikar með hafnarbótum Mikið aðdýpi er við lending- una á Bakkafirði og hrein og skerjalaus leið að bryggju, sem strandferðaskip og önnur skip leggjast að, þegar fært reynist. Hefir öll aðstaða batnað við lengingu bryggjunnar og mundi stórum batna við meiri lengingu. Þar sem setja þarf báta upp á land um vetrartimann og einnig í stórviðrum á sumrum, er útgerð úr þorpinu einungis á litlum vélbátum, en síðustu árin færist í vöxt, að stærri handfærabátar sunnan af Fjörðum, sem fiska við Langa- nes, leggi hér daglega upp fisk til söltunar. Hafa skipstjórar slíkra báta talað um að þeir vildu setjast að á Bakkafirði, ef þeir gætu fengið þar húsnæði og mættu vænta framhalds á hafnarbótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.