Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 1
36 SIÐUR MEÐ 4 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 311. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Portúgal: Upplausn inn- an hersins? Lissabon 29. september. Reuter —AP NÆSTUM allar sveitir portúgalska flotans, land- og flughers fengu í kvöld skipun um að vera við öllu búnar eftir að hersveitir sem að fyrirmælum Jose Pinheiro de Azevedo for- sætisráðherra höfðu yfir- tekið sjónvarps- og út- varpsstöðvar í Lissabon úr höndum vinstri manna sem einokað hafa starf- semi þeirra, gerðu sig lík- legar til að óhlýðnast yfir- mönnum sínum. Azevedo fyrirskipaði töku stöðv- anna í morgun og lét lesa upp yfirlýsingu þar sem fráfarandi stjórn þeirra var sökuð um undirróðurs- starfsemi og tilraunir til að skapa klofning meðal þjóðarinnar. En hermenn í einni stöðvanna neituðu að hlýða og lýstu stuðningi við stjórnendur hennar. Talsmaður COPCON- öryggissveitanna sagði í kvöld að allar hersveitir, nema í norðurhluta lands- ins væru f viðbragðsstöðu, sem þýðir að öll frf eru felld niður, vörður er um herbúðir og allir borgarar verða að yfirgefa her- stöðvac Azevedo sagði í út- varpi f kvöld að ástandið ógnaði ekki aðeins öllu valdi, heldur sjálfstæði þjóðarinnar. Þúsundir vinstri manna mót- mæltu þessum aðgerðum forsæt- isráðherrans f kvöld og fóru í mót- mælagöngu í Lissabon. Gerður var aðsúgur að Otelo Saraiva de Carvalho hershöfðingja yfir- manni COPCON, er hann kom til fundar við fréttamenn við upplýs- ingamálaráðuneytið. Herlögreglan varð að ryðja Car- valho braut gegnum þröngina, en múgurinn steytti að honum hnef- ana. Carvalho sagði að hánn væri að velta fyrir sér að segja af sér yfirmennsku COPCON. „Ef þið haldið að ég komi ekki lengur að gagni í byltingarstarfinu, þá mun ég segja af mér.“ Hópur hafnar- verkamanna hótaði að yfirtaka út- varpsstöðina ef Carvalho skipaði ekki hermönnum sínum að fara burt, en hann neitaði. „Ef þið haldið að þið getið náð völdum, þá Framhald á bls. 34 Símamynd AP MÓTMÆLI — Átök mótmælenda og lögreglu í mótmælaaðgerðum gegn aftökun- um á Spáni í Genf, sem í tóku þátt um 5000 manns. Verða fleiri Baskar líf- látnir um næstu helgi? Háværar kröfur um refsiaðgerðir á hendur Spánverjum ina Þeirra á meðal einn af helz,u Madrid og víðar, 29. september. AP—Reuter—NTB. • VERKFALLAALDA reið yfir Baskahéruðin f norðurhluta Spánar í dag. Verksmiðjur, skóiar, verzlanir og veitingastof- ur voru lokaðar er meir en Sfmamynd AP MÖTMÆLI — Mótmælendur f Lissabon flytja húsgögn úr spænska sendirððinu út á götu, þar sem þcim var varpað á bál til að mótmæla aftökunum. 120,000 manns urðu við leynilegri verkfallsboðun til að mótmæla af- tökunum á fimm spænskum and- ófsmönnum, þ.á m. tveimur Bösk- um, á laugardag, en þær hafa vakið meiri athygli og meiri reiði um heim allan en dæmi eru al- mennt til um. Ekki kom til neinna átaka, en lögreglusveitir voru á varðbergi. Spánska rfkis- stjórnin kom saman til skyndi- fundar f Madrid undir forsæti Carlos Arias Navarro forsætisráð- herra til að fjalla um þau gffur- legu mótmæli sem aftakan hefur leitt af sér og einangrað hafa Spán mjög verulega í alþjóðasam- skiptum. Háttsettir heimilda- menn sögðu að stjórnin væri reið og hrygg yfir þessum viðbrögðum en hefði ekki í hyggju að breyta stefnu sinni f þessum málum. Heimildir í Madrid sögðu enn- fremur að allt að 20 menn úr aðskilnaðarsamtökum Baska, sem handteknir voru eftir bardaga fyrr f þessum mánuði yrðu leidd- ir fyrir rétt f þessari viku, o allmargir þeirra gætu átt von á þvf að vera teknir af lffi um helg- leiðtogum aðskilnaðarhreyfingar- innar, Jose Ignacio Mugica Arregui. 1 yfirlýsingu f kvöld vfsaði spænska stjórnin mótmæl- um erlendis frá á bug, og boðaði sjónvarpsávarp frá Navarro Framhald á bls. 35 Mikilvægt ársþing Verkamannaflokksins hafið: Hættir Wilson eftir eitt ár? BlaCkpool, 29. september. AP—Reuter. Sjá grein um flokksþingið á bls. 34 HAROLD Wilson, forsætisráð- herra Bretlands, sem situr nú NV-Atlantshafsfiskveiðinefndin um veiðar undan N-Ameríkuströnd: 40 % minnkun veiða erlendra fiskiskipa Montreal, 29. september. AP. NORÐVESTUR-Atlantshafs- fiskveiðinefndin sam- þykkti á fundi sfnum f Montreal f gær tillögu Kanada- manna um 40% minni veiðar erlendra fiskiskipa á fiskistofn- um undan Atlantshafsströnd Bandarfkjanna, þ.á m. ýsu, þorski og lúðu. Tillaga Kanada, sem fyrst var lögð fram á fundi ncfndarinnar f Edinborg f júnf, nær yfir svæðið frá norðurodda Labra- dor, yfir Nýfundnaland og Nova Scotia, og miðin undan strönd New Brunswick. Sam- komulagið var talið mikill sig- ur fyrir kanadfska fiskimenn af sjávarútvegsráðherra lands- ihs Romeo Leblanc. Einnig tókst Kanada að fá aðildarlönd nefndarinnar til að samþykkja auknar takmarkanir á vciði fisktegunda sem taldar eru í hættu og auka hlut kanadfskra fiskimanna f heildaraflanum. Leblanc sagði að samkomu- lagið, sem ganga á f gildi á næsta ári, ætti að bæta hag fiskimanna á þessu svæði sem átt hafa í höggi við minnkandi afla. Samdráttur þessi um 40% fæst fram að nokkru leyti með fækkun veiðidaga erlendra fiskiflota undan Kanadaströnd á ári hverju, en þessi tala er meðaltalstala, og hún er ekki svo há á vissum svæðum. Aflatakmarkanirnar ná til allra aðildarlanda nefndar- innar nema Kanada og Banda- ríkjanna, sem land eiga að miðum þessum, og Frakklands sem ræður yfir eyjunum St. Pierre og Miquelon undan suð- urströnd Nýfundnalands. Á flestum svæðum geta kanadisk- ir fiskimenn veitt svipað magn og verið hefur og aflaminnk- unin mun næstum þvi algjör- lega takmarkast við erlenda fiskveiðiflota. Leblanc sagði að nú væri von til að fiskstofnarn- ir á þessum miðum gætu náð sér á strik að nýju vegna þess- ara reglna. Hinn nýi kvóti mun draga úr þorskafla sem nemur 20—50%, eftir því hvaða svæði á í hlut. Leblance kvaðst fullviss um að viðkomandi lönd myndu fylgja hinum nýju veiðireglum. Hann Framhald á bls. 35 ársþing Verkamannaflokksins sem hófst í Blackpool i dag, hefur sagt nánum vinum sfnum að hann hyggist draga sig í hlé sem for- sætisráðherra eftir eitt ár eða svo, að því er AP-fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimildum. 1 samræðum við nána vini í sfðustu viku lét W’ilson einnig í ljós hug- myndir um hugsanlega eftir- menn, og kom það á óvart að sá maður sem hann hefur helzt augastað á er Anthony Crosland, nú umhverfismálaráðherra, 58 ára. Einnig er Denis Healey fjár- málaráðherra sagður koma til greina. Ekki er Ijóst hversu alvar- lega Wilson er að velta afsögn fyrir sér, en hann er sagður hafa þungar áhyggjur af tilraunum vinstra arms flokksins til að hefta völd forsætisráðherra og ráðherra hans og knýja þá til róttækari stefnu, svo og af sla'mum horfum á bata í efnahagsástandi Bret- Iands. Wilson varð fyrst forsætisráð- herra 1964, og enginn maður hefur verið forsætisráðherra jafnlengi í Bretlandi á friðar- tímum á þessari öld. Þau mál sem Wilson er sagður hafa svo þungar áhyggjur af setja mjög svip sinn á ársþing flokksins sem hófst í dag. Þar tókst hins vegar Michael Foot atvinnumálaráðherra sem hingað til hefur verið i forystu fyrir rót- tæka vinstri menn innan flokks- Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.