Morgunblaðið - 30.09.1975, Side 3

Morgunblaðið - 30.09.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975 3 Sommeruga aðstoðarframkvæmdastjóri, B. Rabaeus, framkvæmdastjóri EFTA, Ólafur Jóhannesson ráðherra, formaður EFTA-ráðsins, Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri, Valgeir Ástráðsson deildarstjóri og Sveinn Björnsson deildarstjóri. leysi í EFTA-löndum ÓLAFUR Jóhannesson við- skiptaráðherra, núverandi for- maður EFTA-ráðsins, setti fund ráðgjafarnefndar samtak- anna á Ilótel Loftleiðum kl. 16,30 í gær. Áður höfðu full- trúar haft óformlegar viðræður við fulltrúa Danmerkur og Bretjands, en þeir koma á fundi EFTA til slfkra viðræðna sfðan löndin fóru I Efnahags- bandalagið og hættu störfum innan EFTA. Ráðgjafar- nefndarfundinn sitja um fjöru- tfu fulltrúar aðildarrfkjanna, fslands, Svíþjóðar, Noregs, Portúgals, Austurrfkis, Sviss og Finnlands sem er aukaaðili að samtökunum. Á fundinum sfðdegis gáfu fulltrúar einstakra aðildarrfkja skýrslur um ástand og horfur í efnahagsþróun f heimalöndum sfnum og er sagt frá ræðu Hjartar Hjartarsonar, fulltrúa Verzlunarráðs fslands f EFTA annars staðar á þessari sfðu. f óformlegu viðræðunum í gær- morgun hafði Guðmundur Garðarsson fjallað um sam- skipti fslands við Efnahags- bandalagið og gagnrýnt Vestur- Þjóðverja fyrir að koma f veg fvrir að samningur fslendinga við bandalagið kæmist til fram- kvæmda. Er og sagt frá ræðu Guðmundar á öðrum stað sfð- unnar. t setningarræðu Ólafs Jó- hannessonar benti hann á að ekki væri á þessum fundi hægt að flytja neinar batafréttir þar sem efnahagsástandið f heimin- um hefði dýpkað enn og væri nú verra en nokkru sinni síðustu fjörutfu ár. Flestar þjóðir heims hefðu að meira eða minna leyti orðið fyrir barðinu á þessari þróun og verðbólguvöxturinn væri alvarlegur nánast hvarvetna. Frá setningu fundar ráðgjafanefndar EFTA á Hótel Loftleiðum í gær. Ólafur Jðhannesson sagði að fyrr á þessu ári hefðu menn haft nokkrar vonir um að breyt- ing yrði til hins betra, en nú væri allt útlit fyrir að það bezta sem næðist væri að framleiðsla minnkaði ekki öllu meira en orðið væri á sfðari hluta ársins. Þó mætti ætla að meiri bjart- sýni væri fært að tengja við árið 1976. Ólafur Jóhannesson sagði að EFTA-löndin hefðu ekki farið varhluta af efnahags- kreppunni og verðbólgunni, en meirihluti þeirra væri þó skár settur en ýmsar stórþjóðir. Að sumu leyti væri þetta óvænt, þar sem öll EFTA-löndin væru mjög háð alþjóðaviðskiptum. Sem betur fer hefði f EFTA- löndum til dæmis nokkurn veg- inn tekizt að hafa hemil á þvf að atvinnuleysi yxi ekki yfir höfuð. Fundur ráðgjafarnefndar- innar heldur áfram f dag. Verður þá á dagskrá umræða um efnahagsástandið f Portúgal og aðstoð EFTA við landið. Þá verður flutt skýrsla formanns frá sfðasta fundi ráð- gjafarnefndarinnar, rætt um frfverzlun f Evrópu með tilliti til Miðjarðarhafssvæðisins og að lokum upprunareglur sam- takanna. Oiafur Jóhannesson við fundarsetningu: Ekki hefur dregið úr erfið- leikunum, en tekizt hefur að hamla gegn atvinnu- „Horfnr í efnáagsmálnm óvissar og alvarlepr" - rætt við Hjört Hjartarson fulltrúa Verzlunarráðs íslands í ráðgjafarnefnðinni I ræðu þeirri, sem Hjörtur Hjartarson flutti á fundi ráðgjafanefndar EFTA i gær kom fram, að Islénding- ar hafa ekki, nú sem komið er, þann hag, sem að var stefnt, af veru sinni í EFTA og fríverzlunarsamningnum við Efnahagsbandalagið. Af- staða Þjóðverja í landhelgis- málinu hefur tvívegis orðið þess valdandi, að friverzlun með íslenzkar sjávarafurðir innan Efnahagsbandalags- ins hefur enn ekki hafizt. Nú um áramótin nálgast Danmörk og Bretland enn frekar ytri tolla Efnahags- bandalagsins á innfluttar sjávarafurðir, sem kemur til með að hafa mjög alvarleg og neikvæð áhrif á þá mark- aði, sem við höfum í þessum löndum. Sem dæmi nefndi Hjörtur, að tollur á frystri rækju í Danmörku og Bret- landi hækkar úr 12% í 16% um næstu áramót, en i þessum löndum er aðal- markaður okkar fyrir frysta rækju. í ræðu sinni taldi Hjörtur horfur i efnahagsmálum bæði óvissar og alvarlegar. Aðspurður sagði Hjörtur, þegar hann var beðinn að gera nánari grein fyrir þessum horfum, að hér væri sérstaklega þrennt, sem kæmi til: „I fyrsta lagi hefur þróun utanríkisviðskipta verið mjög óhagstæð. Viðskipta- kjörin koma til með að versna um 17% á þessu ári að mati Þjóðhagsstofnunar, sem bætist við 11 % rýrnun á s.I. ári. Samtals hafa við- skiptakjörin þá versnað um 26% að meðaltali síðan 1973. Vöruskiptajöfnuðurinn, eins og Hagstofan reiknar hann, var óhagstæður um 16,5 milljarða króna i lok ágúst og kemur til með að verða óhagstæðari um áramót. Við þetta bætist svo, að gjald- eyrisstaða bankanna var nei- kvæð um 13,2 milljónir dollara í lok ágúst, en kemur þó til með að batna til ára- móta. Framhald á bls. 35 i Guðmundur Garðarsson í óformlep viðræðunum: | r j „Gætí komið að því að IslemJingar > enðuraieti gildi þess að vera í EFTA” I ÓFORMLEGU við- ræðunum, sem fram fóru í gær á vegum ráðgjafar- nefndarinnar talaði Guðmundur Garðarsson og fjallaði um þá skoðun Is- lendinga hversu marklítill samningur þeirra við Efna- hagsbandalagið hefði reynzt vegna afstöðu Vestur- Þjóðverja. Sagði Guð- mundur að með þessari þróun hefði verið komið í veg fyrir að fríverzlunar- samningur Is'Iands við Efna- hagsbandalagið gæti komið til framkvæmda og hefði samningurinn gagnvart Vestur-Þjóðverjum sérstak- lega og Bretum takmarkaða þýðingu fyrir Islendinga. Afstaða Þjóðverja innan Efnahagsbandalagsins hefði komið í veg fyrir að Islend- ingar fengju þau tollfríðindi sem um var samið á fiskaf- urðum frá Islandi og auk þess hefðu Þjóðverjar sett löndunarbann á íslenzkan fisk. Þetta hefði haft mjög skaðleg áhrif á útflutnings- atvinnuvegi okkar. Það væri skoðun Islendinga, sagði Guðmundur, að samningur- inn við EBE ætti að koma strax til framkvæmda og deilur um fiskveiðilögsögu ætti ekki að blanda inn i þessi mál. „Verði ekki breyt- ing á til batnaðar hlýtur að koma að því að íslendingar endurmeti umræddan frí- verzlunarsamning og taki til endurskoðunar gildi þess fyrir ísland að vera í EFTA,“ sagði Guðmundur. Hann sagði einnig að meiri- hluti Islendinga væri fylgj- andi frjálsri verzlun og teldi Franihald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.