Morgunblaðið - 30.09.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975
17
ííþrðitirl
BERJA FRAZIFJ? -
ÉCÆTLAADÉTAHANN
— NEI, égætlaekki aðbcrja
Frazier, ég ætla hreinlega að
éta hann upp til agna. Varla
þarf að spyrja hver lét sér þetta
um munn fara. Muhammad Ali,
heimsmeistarinn f þungavigt
hnefaleika, hefur haft munn-
inn fyrir neðan nefið þegar
hann hefur rætt við fréttamenn
að undanförnu, en á morgun
miðvikudag, mætir hann
Frazier f keppni um heims-
meistaratitilinn, sem fram fer f
Manila.
Hljóðara hefur verið um ein-
vfgi þetta en flest önnur sem
Ali hefur tekið þátt f og er
sennilegasta skýringin að
menn séu orðnir leiðir á að éta
upp stóryrði hans. Það var ekki
fyrr en nú um helgina að Ali
tókst verulega að komast f
sviðsljósið, og þá fyrir það að
kona hans, Belinda, sem komin
var til þess að fylgjast með ein-
vfginu, sneri skyndilega til síns
heima. Ástæðan var sú að hún
var ekki ánægð með kvennafar
Ali f Manila, en kappinn hafði
stundað hið Ijúfa Iff af miklum
móð, og að sögn stundum haft
fleiri en eina f takinu f einu.
— Þetta mun ekki hafa áhrif
á mig f keppninni, sagði Ali, á
sunnudaginn, en var þó óvenju-
lega niðurdreginn. — Joe
Frazier mun kynnast gólfinu.
Ég er enn þá beztur — lang-
beztur
Joe Frazier hefur hins vcgar
minna viljað segja við frétta-
menn. Hann hefur einbcitt sér
að æfingum frá þvf að hann
kom til Manila, og þegar
kapparnir voru vigtaðir fyrir
keppnina s.l. sunnudag, tók
Frazier Iftið undir gffuryrði
Ali og stráksskap.
Ali viðurkenndi að hafa átt
vingott við margar stúlkur frá
því að hann kom til Manila. —
Eg á margar kærustur, sagði
hann, — en Belinda er eina
konan mfn og ég elska hana
ennþá. Fólk er að reyna að gcra
hávaða út af einkamálum
mfnum til þess að spilla fyrir
mér, sagði Ali, ég hef eitt ráð
handa þessu fólki: Hafið ekki
áhyggjur af því hjá hverri ég
sef, og þá mun ég ekki skipta
mér af þvf hjá hverjum þið
sofið. Þá sagði Ali, og, að það
væri álitinn glæpur ef svartur
maður liti á hvfta konu, hvað þá
meira, en hins vegar þætti
sjálfsagt að hvftir menn hefðu
næturgaman af svörtum
konum. Þessu þyrfti að breyta
og þessu ætlaði hann sér að
taka þátt f að breyta. —
Múhameðstrúin mun kenna
ykkur að láta konur annarra f
friði. Leggið hendur á systur
múhameðstrúarmanns eg þið
munið deyja, sagði Ali.
Þegar kapparnir voru vigt-
aðir á sunnudaginn, reyndist
Ali vera 102,82 kg en Frazier
hins vegar 97,73 kg. Almennt er
Ali spáð sigri f viðureigninni í
Manila, og þannig sagði t.d.
Ron Lyle, sem Ali keppti við
fyrr á þessu ári og sigraði, að
Joe Frazier myndi ekki eiga
möguleika f keppninni. — Ali
heur miklu meira baráttuþrek
en Frazier, hann er f betri út-
haldsþjálfun og hcfur sneggri
hreyfingar, sagði Lyle.
Viggó Sigurðsson er f góðri æfingu um þessar mundir og á meðfylgjandi mynd RAX sendir hann knöttinn
f net Þróttar með þrumuskoti.
Barningur í leikjum
Reykjavíkurmótsins
VlKINGAR hefðu mátt þakka unnið riðilinn á hagstæðri marka-
fyrir að ná jafntefli f Ieik sfnum
gegn Þrótti í Reykjavfkurmótinu
f handknattleik á sunnudags-
kvöldið. Er um mfnúta var til
leiksloka var staðan jöfn 24:24,
Þróttarar með knöttinn og Vfk-
ingarnir einum færri. En Þrótt-
arar höfðu ekki hcppnina með sér
og skot Trausta lenti f stöng,
Víkingarnir brunuðu upp og Jón
Sigurðsson skoraði laglegt mark
úr horni og færði það mark Vfk-
ingsliðinu sigur f leiknum. Þar
með unnu þeir riðil sinn með
fullu húsi stiga, en hefðu reyndar
mátt tapa fyrir Þrótti með nokk-
urra marka mun, en eigi að sfður
LÍKLEGUR LANDSLIÐSHÓPUR
18 MANNA landsliðs-
hópur sem leika á gegn
Póiverjum í handknatt-
leik í Laugardalshöll-
inni um helgina hefur
nú verið valinn. Form-
lega hefur hópurinn
ekki enn verið til-
kynntur, en ýmislegt
bendir til að hann verði
skipaður eftirtöldum
leikmönnum:
Gunnari Einarssyni
Göppingen, Ölafi
Einarssyni Donzdorf,
Bjarna Jónssyni Þrótti,
Marteini Árnasyni
Þrótti, Ingimar Har-
aldssyni Haukum,
Herði Sigmarssyni
Haukum, Arna Indriða-
syni Gróttu, Sigurbergi
Sigsteinssyni Fram,
Pálma Pálmasyni Fram,
Guðjóni Erlendssyni
Fram, Gunnsteini
Skúlasyni Val, Jóni
Karlssyni Val, Ölafi
Benediktssyni Val, Rós-
mundi Jónssyni Vík-
ingi, Viggó Sigurðssyni
Víkingi, Magnúsi Guð-
mundssyni Víkingi, Páli
Björgvinssyni Víkingi
og Björgvin Björgvins-
son kemur austan af
fjörðum til leikjanna.
Það skal tekið fram að
hópur þessi fékkst ekki
staðfestur í gær, en á
fundi með frétta-
mönnum i dag verður
liðið endanlega til-
kynnt.
tölu.
1 hinum riðlinum varð enn eitt
jafnteflið f leik Fram og Ár-
manns, en þar urðu úrslitin 14:14.
Leikurinn var allsögulegur þvf
Framarar höfðu yfir 8:4 í lcikhléi
og höfðu forystu fram yfir miðjan
seinni hálfleikinn. Þá komust Ár-
menningar yfir og leiddu 14:13,
er lftið var til loka leiksins. Fröm-
urum tókst þó að skora síðasta
markið og bjarga þar með öðru
stiginu.
Það hefði verið ósanngjarnt að
Fram hefði tapað þessum leik, því
liðið lék betri handknattleik
lengst af. Hefur Framliðið aðeins
unnið einn leik í Reykjavíkurmót-
inu, leik sinn gegn Leikni, tapað
fyrir KR og gert jafntefli við IR
og Armann. Eru möguleikar
Framara á sigri í riðlinum svo
gott sem úr sögunni. Ármenning-
ar, sem hafa misnotað flest víti
allra liðanna í Reykjavikurmót-
inu, eiga enn möguleika á sigri í
riðlinum ásamt IR og KR, en
síðastnefnda liðið hefur engu
stigi tapað, en hefur aðeins leikið
tvo leiki. Pálmi Pálmason átti
góðan leik með Fram og skoraði 9
mörk í leiknum. Fyrir Ár-
menninga skoruðu Pétur, Björn,
Hjálmar og Jón 2 hver.
Svo aftur sé vikið að leik
Víkinga við Þrótt, þá skoruðu
Víkingar sex fyrstu mörkin í
leiknum og virtust ætla að kaf-
sigla Þróttara. Svo varð þó ekki.
Ármenningar höfðu nær jafnað
um miðjan hálfleikinn, er Víking-
ar tóku aftur við sér og leiddu
þeir 15:11 í hálfleik. I byrjun
seinni hálfleiksins komust Vík-
ingar í 18:12, en Þróttarar gáfust
ekki upp og söxuðu jafnt og þétt á
forskot Víkinganna á lokamínút-
unum. Eins og áður sagði tókst
þeim að jafna 24:24, Víkingar
misnotuðu vítakast, Viggó var
visað af leikvelli, en eigi að síður
skoruðu Víkingarnir síðasta
markið og tryggðu sér sigur á
elleftu stundu.
Friðrik Friðriksson skoraði
mikið af mörkum að þessu sinni
eins og í fyrri leikjum sínum í
mótinu og með þeim 13 mörkum
sem hann skoraði gegn Víkingi
hefur hann nú skorað 37 mörk f
þremur leikjum Þróttar í mótinu.
Bjarna Jónssonar var vel gætt í
leiknum og skoraði hann aðeins 3
mörk, en Gunnar Gunnarsson
skoraði 4 sinnum úr hornunum.
Fyrir Víkinga var Páll drýgstur
við að skora, 6 mörk, Viggó gerði
5 mörk, Sigfús 4 og Jón 3.
— 6ij.
Marteinn fer á föstudag
Knattspyrnumaðurinn snjalli
úr Fram, Marteinn Geirsson,
heldur til V-Þýzkalands á föstu-
daginn. Mun Marteinn æfa með
þýzka liðinu Kickers Offenbach í
vikutíma og ef forráðamönnum
liðsins Ifzt á Martein mun liðið
væntanlega bjóða honum at-
vinnumannasamning.
Á fundi tveggja þjálfara Iiðsins,
framkvæmdastjóra og eigenda
félagsins í gær var ákveðið að
bjóða Marteini út og gera honum
samning ef hánn stæði sig vel
með liðinu þann vikutíma, sem
hann verður í æfingabúðum með
því. Má fastlega gera ráð fyrir að
Marteini verði boðinn samningur,
hefur hann líka góð spil á
hendinni þar sem.er skýrsla eins
af njósnurum félagsins, en sá
fylgdist með landsleik Islands og
Belga I Liege á dögunum. I
skýrslu sinni sagði hann að tveir
áberandi beztu leikmenn íslenzka
landsliðsins hefðu verið Marteinn
Hnefaleikakappinn Muhammed AIi var gerður að heiðursdoktor við
Ortanez háskólann f Manílla f sfðustu viku og er meðfylgjandi
mynd tekin af kappanum við þá hátfðlegu athöfn.
ÉG ÆTLA EKKI AÐ
Haukar í basli
með Stiörnuna
HAUKAR máttu taka á honum
stóra sínum f leik sfnum við
Stjörnuna úr Garðahreppi f 1.
umferð Reykjanesmótsins f hand-
knattleik, sem hófst f íþrótta-
húsinu f Hafnarfirði á sunnudag-
inn. Urslit leiksins urðu 17:14
Haukunum f vil og léku
Haukarnir mun verr en hin 1.
deildarliðin sem voru í sviðsljós-
inu í sama móti um helgina.
Þjálfarar Haukanna eru jafn-
framt leikmenn með liðinu, þeir
Elías Jónasson og Þórður Sigurðs-
son, og virðist vanta mikið á að
liðið sé komið f fulla æfingu.
FH-ingar unnu auðveldan sigur
í leik sínum gegn Breiðabliki úr
Kópavogi, skoruðu FH-ingar þrjú
mörk á móti hverju einu marki
Blikanna og úrslitin urðu 36:12.
Gróttumenn áttu þá ekki heldur í
erfiðleikum með Aftureldingu og
unnu 35:19. Mikil barátta var svo
í fjórða leiknum I umferðinni á
milli HK úr Kópavogi og Akur-
nesinga, sem nú taka þátt í mót-
inu. Urslitin urðu þau að HK
sigraði með 25 mörkum gegn 24,
þannig að sunnudagurinn varð
ekki tvöfaldur sigurdagur hjá
Skagamönnum.
Geirsson og Asgeir Sigurvinsson.
Er Morgunblaðið ræddi við
Martein Geirsson í gær, sagði
hann að þetta væri tækifærið sem
hann hefði beðið lengi eftir. — Ég
er ákveðinn í að fara til þeirra á
föstudaginn og svo er bara að
standa sig á æfingunum, ságði
Marteinn. — Ef mér lízt vel á mig
hjá þeim og þeir geta notað mig,
þá er ég ákveðinn í að reyna fyrir
mér hjá þeim.
Kickers Offenbach er eitt af
kunnari knattspyrnuliðum V-
Þjóðverja, en um þessar mundir
er staða liðsins ekki sérlega glæsi-
leg. Er félagið i 12.—17. sæti 1.
deildarinnar v-þýzku, en þar leika
18 félög. Um helgina tapaði liðið
1:5 fyrir Eintracht Braunschweig.