Morgunblaðið - 30.09.1975, Side 36
AI'íílVsINííASÍMINN KK:
22480
lílarBiinbtflöií)
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1975
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SÍMI19294
á Keflavíkurvegi
ALVARLEGT umferðar-
slys varð á Keflavíkurveg-
inum, þar sem hann liggur
í gegnum Njarðvíkur
klukkan um 20.45 á laugar-
dagskvöldið. Ólafur Sigur-
jðnsson, hreppsstjóri í
Njarðvíkum, var þar á leið
yfir veginn og varð fyrir
bfl. Ólafur slasaðist mjög
illa, höfuðkúpubrotnaði,
kjálkabrotnaði, fótbrotn-
aði á báðum fótum og ligg-
ur nú í gjörgæzludeild
Borgarspítalans þungt
haldinn.
Myrkur var, er slysið varð, en
végurinn er á þessum kafla upp-
lýstur. Slysið varð í nánd við
sebrabraut við skemmtistaðinn
Stapa, en lögreglan í Keflavik vill
þö ekki fullyrða, hvort Ólafur
hefur verið á sebrabrautinni eða
ekki. Engin hemlaför voru á
staðnum, en lögreglan telur að
Ólafur hafi dregizt með bifreið-
inni, sem var úr Reykjavík, um 3
til 4 metra. Þó mun bifreiðin hafa
verið á talsverðri ferð að sögn
lögreglunnar.
ÞYRLAN BROTLENTI — Myndirnar eru af þyrlunni eftir óhappið í gær. Eins og
sést af myndunum er hún talsvert skemmd og sagði flugmaðurinn í viðtali við
fréttaritara Mbl. í gær, að hún væri líklegast ónýt.
EINAR ÁGtlSTSSON utanríkisráðherra flytur ræðu sína á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í gær. — Sjá ræðu Einars á miðsíðu
blaðsins í dag.
Gunnar Flóvenz:
w
„Olíklegt er að samn-
ingar náist við Svía”
„SAMNINGAVIÐRÆÐURNAR
við Svía hafa verið mjög erfiðar
og harðar og á þessari stundu er
erfitt að segja hvort slitnað er
upp úr þeim eða ekki. tslenzka
samninganefndin sat á fundum f
Sleppt úr
varðhaldi
MAÐURINN, sem Mbl. skýrði frá
síðastliðinn laugardag, að
hnepptur hefði verið í gæzluvarð-
hald vegna kynferðisafbrota, hef-
ur nú verið látinn laus. Maðurinn,
sem er á fimmtugsaldri, var úr-
s'kurðaður í allt að 30 daga varð-
hald, en lögreglan komst að af-
brotum mannsins í rannsókn
mjög umfangsmikils kynferðisaf-
brotamáls, sem nú er til rann-
sóknar hjá bæjarfógetaembætt-
inu í Kópavogi. Þar situr enn í
gæzluvarðhaldi 65 ára maður,
allan dag með 16 fulltrúum
sænskra sfldarkaupenda,“ sagði
Gunnar Flóvenz, framkvæmda-
stjóri Sfidarútvegsnefndar f sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en samninganefnd Síldar-
útvégsnefndar hefur undanfarna
daga verið f Gautaborg í þeim
tilgangi að reyna að semja við
Svfa um sölu á Suðurlandssíld.
Gunnar sagði, að það væri
ekkert leyndarmál, að Norðmenn
byðu síld á verði, miðað við sömu
fitu og stærðarflokka, sem er
meira en 50% lægra en það verð
sem íslenzka samninganefndin
gæti lægst sætt sig við. Þá hefði
það komið fram, að síldin, sem
Svíar fá frá Danmörku væri þeim
enn ódýrari.
„Fulltrúi sænsku samvinnu-
félaganna í viðræðunum, sem er
nýkominn frá Islandi, upplýsti í
dag, að hann hefði rætt við Jakob
Jakobsson fiskifræðing og fengið
hjá honum upplýsingar um stærð
og fitumagn síldarinnar frá
Hornafirði og séð hjá Jakobi
sýnishorn af þessari síld, og sagði
hann, að þessi sfld væri langtum
lélegri að gæðum en þeir ættu að
Framhald á bls. 35
Þjóðverjar undirbúa að leggja
nýjar tillögur fyrir íslendinga
„ÞAÐ ER misskilningur, að Is-
lendingar muni boða til viðræðu-
fundar með Þjóðverjum um út-
færsluna f 200 mflur innan hálfs
mánaðar," sagði Einar Ágústsson
utanríkisráðherra, er Mbl. spurði
hann um ummæli vestur-þýzka
utanrfkisráðuneytisins, sem frá
er greint síðar f þessari frétt.
Einar sagði, að hann myndi gefa
rfkisstjórninni skýrslu um fund
sinn með Genscher og hún sfðan
taka ákvörðun um það, hvort hún
tæki boði Þjóðverja um viðræður.
Ekki yrði um það að ræða að
tslendingar boðuðu ti! viðræðna.
I viðtölum hér á eftir, þar sem
m.a. er rætt við Ernst Stabel,
ræðismann tslands í Cuxhaven,
kemur f ljós, að Þjóðverjar eru að
undirhúa framlagningu tillagna f
landhelgismálinu og segir hann
að Þjóðverjar geri sér Ijóst að
tilgangslaust sé að fara fram á
viðræður um ívilnanir til handa
verksmiðjuskipum innan 50
mflnanna og að það fari nú að
verða sfðustu forvöð að ná samn-
ingum við tslendinga.
Talsmaður v-þýzka utanríkis-
ráðuneytisins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að V-
Þjóðverjar vonúðust til að Islend-
ingar myndu boða til samninga-
fundar um landhelgismálið innan
tveggja vikna. Talsmaðurinn stað-
festi ummæli Einars Ágústssonar
um að viðræður hans og Hans-
Dietrichs Genschers utanrikisráð-
Framhald á bls. 35
Talsvert
af síld
austan
við Eyjar
FYRSTA verulega sfldveiðin
átti sér stað um helgina. Þá
fengu nokkrir bátar sfld við
Vestmannaeyjar, allt upp í 110
tonn f kasti. 1 gær fann svo
rannsóknaskipið Arni Frið-
riksson talsvert síldarmagn
austur af Vestmannaeyjum, en
ýmislegt benti til þess, að hér
væri um smásfld að ræða.
Herpinótaskipin, sem fengu
sfld á þessu svæði um helgina,
héldu til hafnar með hana og
söltuðu sfldina við bryggju. I
gær var verið að athuga hvort
þessi söltunarmati skipanna
væri löglegur, en sem kunnugt
er, þá eru sfldveiðileyfi herpi-
nótaskipanna hundin þeim
skilyrðum, að þau salti sfldina
um borð. Er búist við að niður-
staða fáist f þessu máli f dag.
Aðfararnótt sunnudagsins
fengu þrír bátar síld skammt
frá Bjarnarey. Voru það
Rauðsey, sem fékk 110 lestir,
Bjarni Ólafsson, sem fékk um
100 Iestir og Hrafn Svein-
Framhald á bls. 35
Maður stórslasast
—Ljósm.: Albert Kemp.
Þyrla ónýttistá
F áskrúðsfirði
ÞAÐ óhapp vildi til austur á
Fáskrúðsfirði f gærmorgun, aö
Brantley-þyrla Andra Heiðberg
bilaði f flugtaki og datt niður á
skrúfuna og er þyrlan stór-
skemmd, ef ekki önýt, að þvf er
Jón Heiðberg flugmaður tjáði
fréttaritara Mbl. á Fáskrúðsfirði f
gær. Jón Heiðbcrg, scm var einn f
þvrlunni, er óhappið varð, meidd-
ist ekki.
Þyrlan hefur undanfarið verið
notuð við að steypa undirstöðu
fyrir mastur, sem verið er að reisa
á Fáskrúðsfirði, skammt fyrir
ofan þorpið. Hefur þyrlan- flutt
steypulögunina að mastursundir-
stöðunni og hafði, er óhappið
vildi til, um klukkan 09 i gær-
morgun, flutt 60 tonn af steypu i
130 ferðum. I gærmorgun, er
þyrlan var að fara enn eina ferð-
ina með tunnu fulla að steypu.
bilaði hreyfill hennar og að sögn
Jóns Heiðbergs, var þyrlan í of
lítilli hæð til að honum tækist að
Ienda henni eðlilega. Þó mun Jón
hafa getað losað sig við tunnuna,
en þyrlan kom niður i talsverðum
halla og slóst skrúfan þegar í jörð-
ina og skemmdist. Jafnframt slóst
skrúfan i kúlulaga glerhjúp, sem
er yfir stjórnklefa þyrlunnar og
brotnaði hann. Þar sem þyrlan
kom niður, er aðeins 20 metra
fjarlægð frá háspennulinunni inn
í kauptúnið á Fáskrúðsfirði.
Þyrla þessi, sem er eldri þyrla
Andra Heiðberg, var skráð hér á
landi 9. febrúar 1967 og er hún af
gerðinni Brantley 305. Andri
Heiðberg á aðra þyrlu og að sögn
Jóns sonar hans mun ætlunin að
sú þyrla fari nú austur til
Fáskrúðsfjarðar og Ijúki þeim
starfa, sem þessari þyrlu var
ætlað.