Morgunblaðið - 11.10.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.10.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1975 7 -----------------------------1 fiskveiðimörkin færð út I ; 200 sjómilur, og að það er Matthlas Bjarnason, sjáv- arútvegsráðherra úr Sjálf- stæðisflokknum, sem hef- ur forystu um þá útfærslu, en ekki Lúðvlk Jóseps son. Það er alkunna, að þegar krafan um 200 mílna útfærslu kom fyrst fram fyrir tveimur árum tók Lúðvlk henni önug- lega og taldi, að sllk út- færsla kæmi ekki til greina fyrr en I fyrsta lagi einhvern tlma að lokinni Hafréttarráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna. Það var ekki fyrr en þungi al- menningsálitsins var orð- inn sllkur, að kommúnist- um var Ijóst. að þeir gátu ekki staðizt hann, að Lúð- vlk og flokksmenn hans hengsluðust til þess að lýsa yfir stuðningi við 200 milna útfærsluna. En sú staðreynd. að annar mað- ur en Lúðvlk Jósepsson I stendur fyrir þessari út- færslu, er kommúnistum sllkur þyrnir i augum, að ékki linnir árásum á Matt- hlas Bjarnason, sjávarút- v.egsráðherra, I forystu- greinum Þjóðviljans. Hann er talinn „huglaus", "liðónýtur", I hópi „arg- vltugustu fjandmanna fs- lendinga i landhelgismál- inu" og svo mætti lengi telja upp fúkyrði Þjóðvilj- ans I garð Matthiasar Bjarnasonar. Hér er ein- faldlega að brjótast fram I forystugreinum Þjóðvilj- ans sálarkreppa Lúðvlks Jósepssonar yfir þvi að aðrir menn en hann standa fyrir þessari út- færslu. Slík persónuleg vandamál eiga menn ekki að bera opinberlega á borð. Hverjir eru bandamenn Croslands? f forystugrein Þjóðvilj- ans siðastliðinn miðviku- dag er þvi varpað fram, að hættan fyrir okkur fslend- inga i landhelgisdeilunni við Breta sé fólgin i þvi „ef Anthony Crosland á islenzka bandamenn". Aldrei þessu vant hefur Þjóðviljinn rétt fyrir sér. Það er viss hætta i því fólgin fyrir okkur ef Ant- hony Crosland, umhverf- ismálaráðherra Breta. á sér bandamenn og skoð- anabræður á islandi. En hverjar eru skoðanir hans á landhelgismálum? Það kom glögglega fram í ræðu þeirra, sem þessi brezki ráðherra og þing- maður fyrir Grimsby flutti siðastliðinn laugardag. Bæði efni ræðunnar og sú tóntegund sem einkenndi ræðuna sýna. að þessi brezki ráðherra hefur eng- an áhuga á samningum við fslendinga i fiskveiði- deilunni. Hans sjónarmið er bersýnilega það, að Bretar eigi að beita valdi til þess að halda áfram veiðum innan islenzkra fiskveiðimarka. Hann tal- aði mjög skýrt á þennan veg, hótaði áframhaldandi veiðunr innan gömlu 50 milna markanna, þegar bráðabirgða samningur- inn rennur út 13. nóvem- ber n.k. og setti fram slík- ar kröfur, að óhugsandi er, að íslendingar gangi að þeim. Ræða Anthonys Croslands verður ekki skilin á annan veg en þann, að hann vilji ófrið á fiskimiðunum við fsland. En þvi miður á þessi ráðherra i brezku rikis- stjórninni sér skoðana- bræður og bandamenn hér á fslandi. Það er þeir aðilar hér, með kommún- ista i broddi fylkingar, sem vilja enga samninga við Breta. Þessir sömu að- ilar vilja kalla fram ófrið- arástand á miðunum, og það er gömul reynsla fyrir þvi, hvers vegna þeir vilja ófrið á fiskimiðunum. Þeir vildu það líka 1958 og 1972. Þeir hafa reynslu af þvi, að ófriðarástand á fiskimiðunum leiðir mjög fljótlega til vaxandi erfið- leika i sambúð Islendinga og bandalagsþjóða þeirra I Atlantshafsbandalaginu. Þennan þátt málsins skilja menn eins og Ant- hony Crosland ekki en kommúnistar hér á íslandi þeim mun betur. Þeir og Anthony Crosland eru sammála um að vilja enga samninga. Þess vegna þarf Þjóðviljinn ékki að leita langt til þess að finna hina raunverulegu bandamenn brezka ráð- herrans hér á fslandi Var ræðan ekki fréttnæm? Annars er það eftirtekt- arvert, að þessi ræða brezka ráðherrans virðist ekki vera fréttnæm I aug- um þeirra Þjóðvilja manna. Ræðan var flutt á laugardagsmorgni i Grimsby en ekki var staf- ur um hana i Þjóðviljanum á sunnudag. Látum það vera. Ætla mætti. að Þjóð- viljinn hefði séð ástæðu til að skýra lesendum sín- um frá þvi á þriðjudag, en svo var heldur ekki. Enn hefur engin frétt birzt um ræðu Anthony Croslands i Þjóðviljanum. Hins vegar 'var loks fjallað um hana i forystuarein á miðviku- dag. Hvað veldur þessari þögn Þjóðviljans um ræðu Croslands? Ástæðan er ákaflega nærtæk. Þeir Þjóðviljamenn vita sem er, að stundum verða öfgafullar yfirlýsingar á borð við ræðu Croslands til þess, að hinir hófsam- ari og skynsamari menn sem að jafnaði fara sér hægt, gera sér grein fyrir, að við svo búið má ekki standa. Ekki dugar að láta öfgaöflin, hvort sem er i Bretlandi eða á Íslandi, stjórna ferðinni i land- helgisdeilunni. Þess vegna þegja þeir um ræðu Croslands. Árásirnar á Matthías Bjarnason Bersýnilegt er af for- ystugrein Þjóðviljans i gær, að kommúnistar geta með engu móti sætt sig við þá staðreynd, að eftir örfáa daga verða | er Dersyniiega pao, ao herrans ner a Isianoi. eftir orfáa daga verða borð. Jtleööur á ntorgun DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd. Séra Óskar J. Þorláksson dómprófastur. Barnasamkoma í Barnaskólanum við Öldugötu kl. 10.30 árd. Séra Þórir Stephensen. Messa fellur niður kl. 2 síðd. vegna tónleika kirkjukórsins. Klukkan 5 síðd. verða tónleikar Oratoriukórs Dómkirkjunnar í Fíladelfíu- húsinu. HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar Lárusson Fjölskyldumessa kl. 2 síðd. Séra Karl Sigurbjörnsson. LANGHOLTSPRESTAKALL: Ferming kl. 10:30 séra Árelfus Níelsson. Ferming kl. 13:30 séra Sig. Haukur Guðjónsson. HÁTEIGSKIRKJA Barnaguð- þjónusta kl. 10.30 árd. Síðdeg- isþjónusta kl. 5 síðd. Séra Arngrimur Jónsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Jón Þorvarðsson DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS í Landakoti Lág- messa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. FRÍKIRKJAN í REYKJAVlK Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðni Gunnarsson Messa kl. 2 siðd. Séra Þorsteinn Björns- son. BREIÐHOLTSPRESTAKALL Sunnudagaskóli kl. 10.30. — Messa kl. 2 siðd. í Breiðholts- skóla. Séra Lárus Halldórsson. Arbæjarprestakall Barnasamkoma í Árbæjarskóla kl. 10.30 árd. Guðþjónusta i skólanum kl. 2 siðd. Séra Guðmundur Þorsteinsson. HJALPRÆÐISHERINN Klukkan 11 árd. helgunarsam- koma. Kl. 2 síðd. sunnudaga- skóli. Kl. 8.30 siðd. hjálpræðis- samkoma. Ofursti Hagen og major Brotkorb tala. Kapt. Daniel Óskarsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND Messa kl. 10 árd. Séra Lárus Halldórsson. LAUGARNESKIRKJA Messa kl. 2 síðd. Séra Gfsli Brynjólfs- son. Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. GRENSASKIRKJA Guðþjón- usta kl. 10.30 árd. Ferming. — Altarisganga (athugið breyttan messutíma). Séra Halldór S. Grönddal BÚSTAÐAKIRKJA Barnasam- koma kl. 11 árd. Pálmi Matthíasson. Guðþjónusta kl/ 2 siðd. Séra Magnús Guðmunds- son fyrrum prófastur prédikar. — Séra Ólafur Skúlason. NESKIRKJA Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Altarisganga. Sóknar- prestarnir. ÁSPRESTAKALL Barnasam- koma kl. 11 árd, í Laugarásbíói. Messa kl. 2 siðd. að Norðurbrún 1. Séra Grlmur Grímsson. FÍLADELFÍUKIRKJAN Almenn guðþjónusta kl. 8 siðd Ræðumaður Willy Hansen. Einar J. Gíslason. FELLA- OG HÓLASÓKN Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 árd. Almenn guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjartarson. LÁGAFELLSKIRKJA Barna- guðsþjónusta kl. 2 síðd. Sr. Bjarni Sigurðsson. SELTJARNARNESSÓKN Barnaguðþjónusta í Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi kl. 10.30 árd. Sóknarnefndin. KARSfýESPRESTAKALL Barnaguðþjónusta kl. 11 árd. I Kársnesskóla. Séra Arni Páls- son. DIGRANESPRESTAKALL Barnaguðþjónusta I Víghóla- skóla kl. II árd. Guðþjónusta I Kópavogskirkju kl. 2 siðd. Ferming. Altarisganga. Séra Þorbergur Kristjánsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA Messa kl. 2 síðd. Barnaguðþjón- usta kl. 11 árd. Séra Garðar Þorsteinsson. FRlKIRKJAN I IIAFNAR- FIRÐI Barnasamkoma kl. 10.30 árd. i umsjá Stinu Gisladóttur. Safnaðarprestur. GRINDAVÍKURKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Séra Jón Árni Sigurðsson. HVALSNESKIRKJA Barna- guðþjónusta kl. 11 árd. Séra Guðmundur Guðmundsson. INNRI-NJARÐVlKURSÓKN Sunnudagaskóli í safnaðar- heimilinu kl. 2 siðd. Séra Ólaf- ur Oddur Jónsson. KEFLAVlKURKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Guð- þjónusta kl. 2 síðd. Æskulýðs- samkoma kl. 8.30 síðd. Séra Ólafur Oddur Jónsson. STOKKSEYRARKIRKJA Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd. Almenn guðþjónusta kl. 2 siðd. Sóknarprestur. STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA Messa kl. 2 siðd. Barnaguðþjón- usta kl. 3 siðd. i kirkjunni. Séra Stefán Lárusson. AKRANESKIRKJA Barna samkoma kl. 11 árd. Messa kl. 2 síðd. Þess er vænzt, að væntan- leg fermingarbörn og foreldrar þeirra mæti við messuna. Séra Björn Jónsson. SÝNINGIN „Impressionista listmálararnir" verður opnuð almenningi laugardaginn 1 1 október kl. 20 í Franska bókasafninu, Laufás- vegi 1 2. Sýningin verður opin til sunnudagsins 26. október 1975. Opnunartími er frá kl. 1 7 — 22 alla daga. Atvinnurekendur — Innflytjendur Ensk stúlka sem er að flytjast til landsins óskar eftir vinnu á skrifstofu. Vön hvers konar skrif- stofustörfum svo sem hraðritun og telexnotkun. Hefur unnið undanfarin ár sem einkaritari for- stjóra hjá bókaforlagi í Englandi. Nánari uppl. í síma 82733 kl. 9 — 5 og í síma 75145 á kvöldin. RJP 8296 R O Y A L SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir Ferðaskrifstofan ÚTSÝN UTSYNARKVOLDm Grísaveizla Súlnasal Hótel Sögu sunnudagskvöldiö 12. okt. if Kl 1 9.00 Húsið opnað if Kl. 1 9.30 Grisaveizla. Verð kr. 1200.— if Skemmtiatriði if Myndasýning: íslenzkar fegurðardísir á sólarströndum. if Fegurðarsamkeppni: Ungfrú ÚTSÝN 1976. Forkeppni if Ferðabingó — Vinningar 3 glæsilegar Útsýnarferðir til sólarlanda á næsta ári. if Hin nýja frábæra hljómsveit Ftagnars Bjarnasonar. V_______________________________________________, Missið ekki af óvenju glæsilegri og spennandi en ódýrri skemmtun. Hátiðin hefst stundvíslega og borðum verður ekki haldið eftir kl. 19.30. Munið, alltaf fullt hús og fjör hjá ÚTSÝN Tryggið ykkur borð hjá yfirþjóni á föstudag frá kl 1 5.00 i síma 20221. Verið velkomin — Góða skemmtun. Ferðaskrifstofan ÚTSÝN | _____________________________________________________j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.