Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975 3 Vitni vantar FIMMTUDAGINN 16. október var ekið á bifreiðina R-41228, seni er Volkswagenbifreið hvít að lit, þar sem hún stóð á Kalk- ofnsvegi sunnan við Tryggva- götu. Hægra afturbretti er dældað og var rauður litur í bevglunni. Talið er að ákevrsl- an hafi átt sér stað milli klukk- an 9 og 17. Þá var ekið á bifreiðina R- 19369 aðfararnótt föstudagsins 17. október. Bifreiðin er af gerðinni Citroen special, árgerð 1971, og stóð hún fyrir utan Sörlaskjól 92. Bifreiðin er mikið skemmd á stuðara, vinstra bretti, vinstra hjólbarða og felgu. Grænn litur var í skeínmdunum og á staðnum var krómlisti af bílnum sem ók á. Talið er að þetta hafi gerst eftir klukkan 2 um nóttina. 1 báðum tilvikunum hurfu tjónvaldar af vettvangi, og eru það tilmæli rannsóknarlögregl- unnar að þeir gefi sig fram, svo og vitni. 57 kandidatar brautskráðir FIMMTÍU og sjö kandidatar verða brautskráðir frá Háskóla Islands í dag, laugardag. Athöfnin hefst i hátíðasal Há- skólans kl. 14, en þá mun Guð- laugur Þorvaldsson háskóla- rektor ávarpa kandidatana, en deildarforsetar munu afhenda prófskírteinin. Þá mun Guð- mundur Jónsson óperusöngva’- syngja nokkur lög. Árshátíð Eyjaskeggja á Suðurlandi VESTMANNAEYINGAFÉLAG Suðurlands heldur árshátíð sína að Borg í Grímsnesi laugardaginn 18. okt. Hljómsveit Gissurar Geirssonar frá Selfossi mun leika fyrir dansi en sætaferðir verða á árshátíðina frá Eyrarbakka, Stokkseyri, Þorlákshöfn, Hvera- gerði, Hvolsvelli og Selfossi. Byssum stolið TVEIMUR rússneskum rifflum með kíki var í fyrranótt stolið úr sportvöruverzlun við Laugaveg. Málið er i rannsókn. Þá var í gær skotið úr loftriffli í framrúðu bíls sem ók eftir Fells- múla og kvarnaðist úr rúðunni. Tveir 16 ára piltar hafa viður- kennt verknaðinn. Síld finnst við Eyjar „VIÐ fundum eina góða síldar- torfu um 15 mílur austur af Elliðaey, en því miður var veður orðið það slæmt, að við gátum ekki skoðað þetta svæði nánar, né farið með flotvörpuna í gegnum torfuna,“ sagði Eyjólfur Frið- geirsson, leiðangursstjóri á rannsóknarskipinu Árna Frið- rikssyni í samtali við Morgun- blaðið í gær, en þá var Árni Frið- riksson á leið austur með landi í átt að sildarmiðunum SA af Ingólfshöfða. Eyjólfur sagði, að þeir hefðu leitað í fyrradag á svæðinu vestur af Surtsey og síðan við Vest- mannaeyjar, en ekki orðið varir við sild, nema austur af Elliðaey. Þá hefðu þeir á Árna leitað allt frá Jökli að Vestmannaeyjum án þess að finna neitt síldarmagn, sem heitið gæti. Tiltölulega fáir sildarbátar voru á veiðum SA af Ingólfshöfða í fyrrinótt og munu flestir hafa fengið síld og voru á landleið i gær. T.d. var vitað um Sæberg á leið til Eskifjarðar með um 50 lestir. FYRSTA sýning kín- verska loftfimleika- flokksins frá Tientsin verður í Laugardalshöll- inni í dag, en alls heldur flokkurinn fjórar sýn- ingar hér á landi. Kín- verjarnir komu hingað til lands á fimmtudaginn og í gær voru æfingar í Laugardalshöllinni. Alls telur hópurinn 66 manns, fimleikafólk, tónlistar- fólk og stjórnendur. Hingað kemur hópurinn frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Finnlandi, en í þessum fjórum ná- grannalöndum okkar vöktu sýningar hans mikla hrifningu. Þeir voru að liðka sig áður en aðalæfingin byrjaði, en máttu þó vera að þvf að senda Friðþjófi Ijósmyndara alúðarbros þegar hann smellti þessari mynd af. Andartaki síðar voru þeir komnir á fulla ferð og flugu hver á eftir öðrum yfir bekkinn og í gegnum hringina. Fyrsta sýning kínverska fimleikahópsins í dag Fyrsta sýningin verður í sýning tekur um tvo og hálfan Laugardalshöllinni i dag og klukkutíma. Næsta sýning byrjar klukkan 15.00, en hver verður á sama tíma á morgun, en síðan klukkan 20 á þriðju- dag og miðvikudag. Heimleiðis heldur hópurinn svo á föstudag eftir rúmlega tveggja mánaða sýningarferð. Með sýningunum í gær fylgd- ust fréttamenn og nokkrir for- ystumenn úr íþróttahreyfing- unni. en hingað koma Kín- verjarnir á vegum Iþrótta- bandalags Reykjavíkur. Þó svo að aðeins væri um æfingu að ræða voru áhorfendur á einu máli um að þarna hefðu þeir séð glæsilegri afrek og skemmtilegri tilburði en hjá öðrum sambærilegum hópum. 1 gær var lokið við að koma öllum tækjum og áhöldum í sal Laugardalshallarinnar og var þar ekki um neitt smávegis magn að ræða því tæki þau sem hópurinn hafði með sér til sýninganna hér vógu 6 tonn. nött frá Husquama REGINA gufugleypir. Breidd 60 og 70 cm. Mjög hijóðlátur 2ja hraða mótor. Bæöi fyrir útblásturog kola- filter. Ljós og 220 v. tengidós. STANDARD gufugleypir eingöngu fyrir útblástur. Breidd 50, 60 og 70 cm. Hljóðlátur 2ja hraöa mótor. GRAND MENU, kæliskápur, kæli og frystiskápur, frystiskápur. 350—360 'litrar. Stílhreint útlit. 45 mm. þykk polyurethan einangrun. Allar rafmagnsleiðslur og Ijós er staðsett utan einangrunarinnar. Þ.e. ekki er hætta á að kuldinn síist út eins og þar sem leiðslur ná í gegnum einangrun inn í skápínn. FESTIVAL uppþvottavélin. Sérstak- lega rúmgóð vél sem þvær leirtau eftir 12 manns. 6 þvottavöl, þar á meðal eitt fyrir krystalglös og postulín. Klædd að innan úr ryðfríu stáli. 3 snúningsarmar sem gefur þvottaeiginleika í sérflokki. SWING-OUT gufugleypir. Nýjung. Hægt er að draga framhlið viftunn- ar út yfir eldavélina. Útbúa má sama ytra byrði og er i öðrum eldhússkápum. REGINA KATALYX eldavél með 4 hellum. 2 ofnar þar sem efri ofn er sjálfhreinsandi grillofn með grill- motor og snúningsteinum. Fjöl- þættur tímamælir ásamt kjötmæli. REGINETT KATALYX. Sjálfhreinsandi grillofn til ínnbyggingar ásamt REGINETT TOP hellunni. Ofninn er með grillmótor, snúningsteinum og fjöl- þættum tímamæli og kjötmæli. MAXI uppþvottavélin fyrir 8 manns. Ætluð til innbyggingar, 60 cm breið. Þvær upp á 22 mín, fyrir utan upphitun á vatni. Kápan og hurðin eru úr svokölluðu polypropen efni sem er mjög hart og endingargott. Engin hætta á ryöi. Sérstaklega hljóðlát. @ Husqvarna MIDI nýja uppþvottavélin, sem þvær upp eftir 6 manns. 22 mín. að þvo fyrir utan upphitun á vatni. Ætluð til innbyggingar í 60 cm. breiðan skáp. Kápan og hurðin úr polypropen efni. REGINA CORNING. 60 eða 70 cm breið eldavél í sérflokki, þar sem hin margumtalaða Corning gler- hella kemur í stað venjulega 4 hellu borðsins. 2 ofnar, annar sjálf- hreinsandi með grillmótor og snún- ingsteini. Fjölþættur tímamælir og kjötmælir. Litir: Hvítt, AVOCADO grænt, COBOLT blátt og nýi liturinn LION gult. ' gunnar ásgeirsson hf. n Suðurlandsbraut 16 ReykjavíkSími: 35200 Glerárgötu 20 Akureyri Sími: 22232

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.