Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975 5 verður í Iðnó n.k sunnudag 19. okt. kl. 2. Fundarefni: 1. félagsmál. 2. kosning fulltrúa á 7. þing verkamanna- sambands íslands. 3. Tillaga um uppsögn kjarasamninga. Félagsmenn eru kvattir til að fjölmenna og sýna skírteinivið innganginn. Stjórnin. Kínversku Laugardaginn 18. OKtóber kl. 15. Sunnudaginn 19. október kl. 15. Þriðjudaginn 21. október kl. 20. Miðvikudaginn 22. október kl. 20. r^kasÝnjngama Verð aðgöngumiða: sæti kr. 800 stæði kr. 500. Laugardalshöll Miðasala í Laugardalshöll frá kl. 1 laugardag og sunnudag. íþróttabandalag Reykjavíkur. BIFREIÐA- EIGENDUR í Rafkerfið Félagsfundur RAFGEYMAR ALTERNATORAR 12&24VOLT STARTARAR, DÍNAMÓAR STRAUMLOKUR ANKER SPÓLUR SEG ULROFAR BENDIXAR KOL, FÓÐRINGAR HÁSPENNUKEFLI KERTI, PALTÍNUR KVEIKJUÞRÆÐIR HLEÐSLUTÆKI 6 8.1 2 VOLT GEYMASAMBÖND StARTKAPLAR LJÓSAPERUR LJÓSASAMLOKUR HALOGENPERUR OG MARGT FL. f RAFKERFIÐ í FLESTAR TEG. BIFREFÐA. Opið á laugard. til 1 2. Bílaraf.h.f. Borgartúni 19 S. 24700 Concorde krefst fyllsta öryggis og notar þvi hjoibaróa C23©IlIX3D> Vetrarhjólbarðar nýkomnir STÆRÐIFS: 135X 1 3 145X15 145X10 165X15 145X14 175X14 HAFRAFELL HF. CRETTISGÖTU 21 SlMI 23511. GARÐAHREPPUR Blaðberi óskast í Arnarnesið Upplýsingar í síma 52252 Leikfélag Kópavogs: Bör Börsson □ Söngleikurinn BÖR BÖRSSON jr., gerður eftir skáldsögu Johans Falkberget. Q Texti: Harald Tussberg Q Tónlist: Egil-Monn Iversen □ Leikstjóri: Guðrún Þ. Stephensen □ Hljómsveitarstjóri: Björn Guðjónsson □ Dansstjóri: Ingibjörg Björnsdóttir Q Þýðandi: Kristján Árnason □ Leikmyndahönnuður: Gunnar Bjarnason „Við ætlum að skapa raunveru- lega menningarmiðstöð." Þessi viljayfirlýsing stendur feitletruð aftan á leikskrá að þessari sýn- ingu Leikfélags Kópavogs sem nú hefur verið endurvakið og tekið á leigu það húsnæði þar sem áður var Köpavogsbíó. Þetta er í sam- ræmi við þá þróun sem orðið hef- ur á síðasta áratug viða um lönd; byggðastefna i menningarmálum hefur borið umtalsverðan árang- ur og ágætir leikflokkar haslað sér völl utan höfuðborga sem tek- i^t hefur að laða til sín nýja áhorf- endur. Jafnframt hefur verið mikið um það að stofnuð hafi ver- ið leikhús f úthverfum stórborga og þar sem ég þekki gerst til hafa áhugaverðustu sýningarnar ein- mitt oft verið hjá þessum leik- flokkum, en ekki í hinum gömlu, rótgrónu leikhúsum miðsvæðis. Einatt eru það hugsjóna- og bylt- ingarmenn sem litið hafa fengið að gera hjá hinum þekktu leik- húsum þar sem gróðasjónarmið sitja i fyrirrúmi er ásamt ungu Ieikhúsfólki hafa byggt þessi leik- hús upp. Væri ánægjulegt og raunar sé ég ekkert þvi til fyrir- stöðu að slikt mætti takast hér. Leikfélag Kópavogs mun hafa staðið með nokkrum blóma fyrir allmörgum árum, en ekki verður sagt að verkefnaval þess nú þegar það er endurvakið beri vott um mikla dirfsku eða stórhug. Eitt- hvað rámar mig í þegar Bör Börs- son var lesinn upp í útvarpi á sinum tíma og mér er sagt að þá hafi götur Reykjavikur tæmst og þakklátir áheyrendur hafi skilið eftir heilagfiski og annað góðgæti utan dyra hjá Helga Hjörvar. En hvaða erindi þetta verk á til okkar i dag er skilningi minum ofvaxið: mannlýsingar ,eru ein- feidningslegar, þjóðlifslýsingin yfirborðskennd, atburðarásin ódramatísk og fyndnin komin til ára sinna. Guðrúnu Stephensen hefur ver- ið mikill vandi á höndum að koma þessum rýra efnivið til skila með misjöfnum leikkröftum og fæ ég ekki betur séð en henni hafi tek- ist að ná fram þvi sem sanngjarnt er að ætlast til við viðlika skilyrði. Tónlistin og söngvarnir lifga tals- vert upp á sýninguna, sömuleiðis hrífst maður ósjálfrátt með æsku- fjöri og ferskleika dansaranna og voru þau atriði einna best heppnuð á sýningunni. Leikararnir voru misjafnir að LelKllst eftir EMIL H. EYJÓLFSSON vonum en komust þó flestir vel frá sinu, sumir ágætlega. Sigurður Jóhannesson í hlutverki Börs stóð sig prýðilega, svipbrigði og hreyfingar voru með ágætum og lítill viðvaningsbragur á leik hans. Hann hefur auðsjáanlega ágætt upplag sem leikari. Sömuleiðis brá Sigurður Grétar Guðmundsson upp skemmtilegri mynd af Óla í Fitjakoti. Af öðrum leikurum eru mér einna minnis- stæðust þau Geirlaug Þorvalds- dóttir, Guðriður Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Norðfjörð og Björn Magnússon og raunar verður ekki sagt að neins staðar hafi verið hjáróma rödd þegar tillit er tekið til allra aðstæðna. Verkið býður bókstaflega ekki upp á tækifæri til tilþrifa. Sýningunni var vel fagnað af áhorfendum, en vonandi fáum við að sjá eitthvað bitastæðara næst. Emil II. Eyjólfsson. ALGLYSINGA SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.