Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.10.1975, Blaðsíða 24
U (;iasin<;asíminn kr: 22480 Blor£(untiTntiií> LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975 sólargeislinn frá Florida Fulltrúar BSRB segja sig úr kjaradómi og kjaranefnd BSRB skipar verkfallsnefnd BANDALAG Starfsmanna ríkis og bæja sendi Matthíasi Matthíesen fjármálaráðherra bréf í gær, þar sem segir, að samþykkt hafi verið að tilnefndir fulltrúar BSRB í kjaradómi og kjaranefnd segi sig nú þegar úr þessum tvcimur lögskipuðu gerðardómum. Þá segir, að þegar hafi verið skipuð verkfallsnefnd bandalagsins. Þegar Morgun- hlaðið hafði samband við fjár- málaráðherra f gær hafði hann ekki fengið greinargerð BSRB með bréfinu í hendur og gat því ekki tjáð sig um málið. Hins vegar tókst blaðinu að ná tali af Kristjáni Thorlaeius, formanni Bandalags starfsmanna ríkis og hæja og sagði hann m.a.: „Við höfum dregið okkar menn út úr kjaradómi og kjara- nefnd og höfum þegar skipað verkfallsnefnd 10 manna, sem formaður og varaformenn BSRB munu starfa með. Hins vegar vonum við, að þetta verði til að sýna stjórnvöldum fram á, að okkur er alvara og að rætt verði í alvöru við okkur og að samningar takist, en við munum ekki láta Þjóðverjarnir við Færeyjar og á Dohrnbanka Enginn v-þýzkur togari mun hafa verió á ólög- legum veiðum innan I nýju fiskveiðilögsög- unnar í gær. Landhelgis- gæzlan rakst síðari hluta dags í gær á tvo togara, sem voru á siglingu aust- ur með landi og stefndu á Færeyjamið. Þegar fiskveiðilögsagan var færð út fyrir fáum dög- um, var vitað um 16 v- þýzka togara á veiðum hér við land. í gær var kunnugt um, að 7 þeirra voru komnir á Dohrnbanka um 130 míl- ur vestur af Bjargtöng- um og vitað var um 7 togara, sem komnir voru á Færeyjamið. deigan siga, heldur taka ákvarðanir okkar eftir því sem málin þróast. En við munum áreiðanlega ekki grípa til aðgerða nema við séum neyddir til þess. Sjálfur trúi ég þvi ekki fyrr en ég tek á, að stjórnvöld sjái ekki það ranglæti, sem lögin frá 1915 skapa, og veiti okkur fullan verk- fallsrétt.“ t fréttatilkynningu sem Morgunblaðinu barst í gær frá stjórn BSRB segir m.a.: „Á vegum Bandalags ríkis og bæja var haldin fundur 16. október til að ræða aðstæður í kjaramálum og samningsréttar- málum. Sátu stjórn bandalagsins, samninganefnd og verkfalls- réttarnefnd fundinn. Eftirfarandi samþykktir voru gerðar með 44 atkvæðum: „Sameiginlegur fundur stjórnar BSRB, samninganefndar og verkfallsréttarnefndar banda- lagsins ályktar að tilnefndir full- trúar BSRB í Kjaradómi og kjara- nefnd segi sig nú þegar úr þess- um tveimur lögskipuðu gerðar- dómum. í þessari ákvörðun felst, að BSRB ætlar ekki að una af- greiðslu þessara gerðardóma framvegis." Þá var eftirfarandi samþykkt einnig gerð: „Fundurinn beinir þvi til stjórnar BSRB að skipuð verði nú þegar verkfallsnefnd bandalags- ins. Hlutverk hennar er að undir- búa og stjórna eftir nánari ákvörðun samninganefndar og stjórnar BSRB aðgerðum til að knýja fram kröfur samtakanna. Einnig annist nefndin upplýs- ingastarfsemi, kynningu og öflun stuðnings við málið.“ 1 greinargerð, sem fylgdi með fréttatilkynningunni segir m.a.: „Samkvæmt lögum um kjara- samninga opinberra starfsmanna er það hlutverk kjaradóms og kjaranefndar að dæma um ágreining samningsaðila, ef ekki takast samningar um kjaramál ríkis- og bæjarstarfsmanna. I báða þessa gerðardóma til- nefnir Hæstiréttur þrjá dómara, en fjármálaráðherra og BSRB einn fulltrúa hvor aðili. Takist ekki samningar fyrir 1. nóvember n.k. ætti kjaradeila rfkisstarfsmanna að fara sjálf- krafa fyrir Kjaradóm skv. kjara- samningalögunum. Ennfremur segir, að BSRB hafi sett þá kröfu fram við ríkisstjórn að bandalaginu verði veittur verkfallsréttur á þessu ári og að málið sé einnig sett fram í kröfu- gerð og megintillögum BSRB í yfirstandandi samningsgerð. Framhald á bls. 17. HÓPUR námsmanna úr ýmsum skólum heimsótti f jármálaráðherra f gær og skiptist á skoðunum við hann um stöðu námslánasjóðs. Var hópurinn f göngum fjármálaráðuneytisins f tvo og hálfan klukku- tfma f gær, eða til kl. 1 e.h. A myndunum sést ráðherra ræða við nemendur, nokkrir úr hópnum við kröfuspjöld og neðst er hópur- inn fyrir utan fjármálaráðuneytið. Sjá frásögn á bls. 2. Ljósmynd Mbl. Sv.Þorm. Lánasjóður íslenzkra námsmanna: Fjárþörf sjóðsins 1700 milljónir á árinu 1976 ÁÆTLUN Lánasjóðs fslenzkra námsmanna um fjárþörf á næstu fjárlögum, svo að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt gildandi útlánsreglum nemur rúmlega 1700 milljónum króna. Er sú upphæð rétt tæplega 3% af fjárlögum þeim, sem ný- lega voru lögð fyrir Alþingi. Er þetta fjárþörf sjóðsins á árinu 1976. Á fjárlögum nú, hafði sjóðurinn talið sig, svo sem fram hefur komið f fréttum, þurfa 780 milljónir króna til þess að geta úthlutað haustlánum með eðlileg- um hætti, en á fjárlögum voru honum ætlaðar 680 milljðnir króna. Að auki var sjóðnum gefin lánsheimild fyrir 100 milljónum króna. Það lán hefur nú verið tryggt og getur úthlutun hafizt á mánudag. Enn vantar þó um 120 Sölur erlendis: Af 10 míllj. kr. sölu fær útgerðin 1.3 millj. kr. — OFT hefur verið rætt um hinar háu ísfisksölur íslenzkra skipa f Bretlandi og Belgíu að undan- förnu, en fæstir gera sér eflaust grein fyrir því, hvað útgerðirnar þurfa að borga f ýmiss konar gjöld og tolla. Sem dæmi má nefna að ef skip, selur fyrir 10 milljónir króna, hefur útgerðin ekki eftir nema um 1.3 millj. kr. til sinna þarfa og er þá veiðitap vegna siglingarinnar ekki tekið með f reikninginn, sagði Ágúst Einarsson fulltrúi hjá Landssam- bandi fslenzkra útvegsmanna f samtali við Morgunblaðið í gær. Ágúst tók sem dæmi, að nýverið hefði íslenzkur togari selt 70 lestir af fiski í Bretlandi fyrir 30 þús. pund eða 10.1 millj. kr. og var það metsala i krónum talið. Frá þessari aðalupphæð dragast strax, áður en tollar eru reiknaðir, umboðslaun, sem eru 2.5% eða 253 þús. kr., löndunarlaun sem eru 6% og voru 600 þús. kr. og svokölluð boxaleigá, sem eru 1.5% og voru 156 þús. í þessu tilfelli þá voru eftir 9.1 millj. kr. Af þessari upphæð, sagði Ágúst, eru tollar reiknaðir og reyndust vera rösklega 1 millj. kr. eða 10.2% af heildarupphæðinni. Síðan kemur hafnargjald sem er 1% eða 112 þús. kr., svonefnt tonnagjald er 2.589 pund af hverju tonni eða 61 þús. krónur. Ýmis kostnaður er talinn um 100 þús. krónur, útflutningsgjöldin eru 1438 þús. kr. eða 14.1% af heildarupphæð og stofnfjársjóðs- gjald 21% eða 2.1 millj. króna rösklega. Að lokum fær áhöfnin 2.8 milljónir króna f sinn hlut. Samtals er þetta ýfir 8.6 milljónir króna og á þá útgerðin ekki eftir nema um 1.3 millj. kr. eða tæp- lega 15% af heildarsölunni. Af þessari fjárhæð má reikna með, að einar 90—100 þús. krónur fari Framhald á bls. 17. til 130 milljónir króna á fjárþörf sjóðsíns, svo að skerða verður lán- in miðað við það sem tíðkazt hef- ur um mörg undanfarin ár. Með talin í þessum 1700 milljónum króna eru haustián næsta haust og er gert ráð fyrir um 50% verðbólgu í spánni. Sam- kvæirt upplýsingum Sigurjóns Valdimarssonar, framkvæmda- stjóra sjóðsins, var úthlutað lán- um á árinu 1974, 340 milljónum króna til námsmanna við nám innanlands, en 350 milljónum króna til námsmanna við nám er- lendis. Fyrir námsárið 1975 til 1976 er gert ráð fyrir að þurfi að lána til námsmanna innanlands um 600 milljónir króna, en 557 milljónir til námsmanna erlendis. Spá um umsóknir frá námsmönn- um erlendis hefur staðizt ná- kvæmlega, en þær eru um 1.200 talsins, en gert er ráð fyrir því, að umsóknir frá námsmönnum hér- lendis verði um 100 fleiri, en spáin hljóðaði um eða samtals 2.400. Samkvæmt því hafa sam- tals borizt umsóknir frá um 3.600 námsmönnum. Lánasjóðnum hefur nú borizt bréf frá menntamálaráðuneytinu, þar sem tilkynnt er að tekizt hafi að útvega lánsfjármagn að upp- hæð 100 milljónir króna — að því er Sigurjón Valdimarsson tjáði Mbl. Á úthlutun lána því að geta hafizt á mánudag, en lánin verða þó skert, þar sem enn vantar um 120 til 130 milljónir króna til þess að fullnægja fjárþörfinni. Sigur- jón sagði að undanfarin ár hefði í haustlán verið úthlutað 7/12 hlut- um af framfærslukostnaði, en fjárskorturinn hefur það I för með sér, að ekki er unnt að út- hluta nema 5/12 af framfærslu- kostnaði. Framfærslukostnaður fyrir tímabilið 1. júní til 31. mai 1976 — en það er starfsár sjóðsins Framhald á bls. 17. Menntamálaráðuneytið: Úthlutun námslána hefjist þeg- ar í stað HINN 16. október ritaði menntamálaráðuneytið Lána- sjóði islenzkra námsmanna á þessa leið: „Ráðuneytið hefur tryggt sér, að hægt verði að nýta lán- tökuheimild sjóðsins sam- kvæmt fjárlögum 1975, alls 100 milljón krónur að fullu. Ennfremur er tryggt, að bein fjárframlög úr ríkissjóði verði hækkuð um 40 milljónir króna á þessu ári (vegna gengisbreytinga fyrr á árinu). Auk þess verður til ráðstöf- unar í janúar 1976 alls 100 milljón krónur. Ráðuneytið leggur þvi til að úthlutun haustlána verði hafin nú þegar á grundvelli þess fjármagns sem þannig er til ráðstöfunar."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.