Morgunblaðið - 18.10.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975 7
. .
n
Framkvæmda-
stofnun ríkisins
í stjórnarsáttmála nú-
verandi ríkisstjórnar er
fyrirheit um endurskoðun
núgildandi laga um Fram-
kvæmdastofnun ríkisins
og nýtt stjórnarfrumvarp
til laga um stofnunina.
Stjórnarflokkarnir settu á
fót þingmannanefnd, sem
gert hefur drög að laga
frumvarpi, sem nú er í
athugun hjá rikisstjórn-
inni. Forsætisráðherra
hefur gefið um það yfir-
lýsingu á Alþingi að
stjórnin muni, í samræmi
við ákvæði stjórnarsátt-
málans, leggja fram á yfir-
standandi þingi frumvarp
um þetta efni.
Á meðan umrædd lög
eru i endurskoðun og þar
til þeim verður breytt, lá
beint við, að þessari
stofnun væri sett stjórn
og til hennar ráðið starfs-
lið í samræmi við þau lög,
sem vinstri stjórnin setti á
sínum tíma, og þinglið Al-
þýðuflokksins greiddi
„allt" atkvæði með.
Þrátt fyrir þessar stað-
reyndir málsins, sem þing-
mönnum Alþýðuflokksins
eru að sjálfsögðu kunnar
(en einn þeirra er ritstjóri
Alþýðublaðsins), rjúka
þeir nú til með frumvarps-
flutning um stjórnun
stofnunarinnar og dylgju-
skrif I blaði sinu, þess
efnis, að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi skipt um skoð-
un í þessu efni. Það er að
vísu góðra gjalda vert, að
Alþýðuflokkurinn sé
óþreyjufullur um fram-
gang sjónarmiða Sjálf-
stæðisflokksins, og telji
sér það til giftu og gengis
að ganga fram fyrir
skjöldu í baráttu fyrir
þeim, en að fyrsta þing-
mál flokksins (2. mál
þingsins, næst á eftir fjár-
lögunum) sé af þvi tagi er
meiri viðbragðsflýtir en
búast mátti við, jafnvel
þótt vitað væri um boðað
stjórnarfrumvarp um hlið-
stætt efni!
Verðbólga og
kjarabætur
Þeirri skoðun vex fylgi,
að aðsteðjandi efnahags-
vanda hafi á umliðnum ár-
um verið um of mætt
með verðbólguhvetjandi
aðgerðum, þann veg að
verðbólguafleiðingar eða
aðgerðir gegn þeim hafi
leitt til enn aukins verð-
bólguhraða Hvorki stjórn-
málamenn né forystu-
menn launþega samtaka
hafa spyrnt við fæti I
þessum efnum, amk. ekki
á nægilega raunhæfan
hátt.
Á tlmabilinu 1963 til
1973 vóru raunhæfar
kjarabætur launþega í
landinu, þ.e. kaupmáttar
aukning launa, aðeins
1/12 hluti krónutölu-
hækkunar kaups. Það er
þvl að vonum, að forseti
ASÍ hvetur nú til baráttu
gegn orsökum verðbólg-
unnar, ekki siður en af-
leiðingum hennar. Krónu-
töluhækkun kaups er sem
sé ekki einhllt til kjara-
bóta. Brezka verkalýðs-
hreyfingin hefur nu lýst
yfir samstöðu með þar-
lendri rlkisstjórn jafnaðar-
manna, sem I senn á við
að kljást mikinn verð-
bólguvöxt, þó mun minni
sé en hér, og viðtækt at-
vinnuleysi. Mótaðgerð-
irnar koma m.a. fram I
þvi, að kaupgjald þeirra
lægst launuðu hækki
aðeins að vissu þaki, I
áföngum á 12 mánuðum,
en laun betur settra alls
ekki.
Bæði þjóðartekjur og
kaupmáttur útflutnings-
framleiðslu okkar hafa
lækkað verulega siðast
liðið eitt og hálft ár. Við
slikar aðstæður er
naumast jarðvegur fyrir
krónuhækkun kaupgjalds.
A.m.k. er hætt við að slik
óraunhæf krónuhækkun
hverfi i verðbólguna. sem
ýmsar fyrri.
Frumvarp að fjárlógum
fyrir komandi ár felur i sér
stefnubreytingu um
stjórnun rikisfjármála, að-
haldsstefnu, sem er eða
gæti orðið, jákvætt upp-
haf raunhæfrar baráttu
gegn verðbólgunni. Fái
þessi aðhaldsstefna byr á
Alþingi, sem vonandi
verður, þurfa aðilar vinnu-
markaðarins og starfshóp-
ar þjóðfélagsins að fylgja
henni eftir með nýjum
viðhorfum i svokallaðri
kjarabaráttu.
Forsendur kjarabóta,
sem verða varanlegar,
ekki eidsmatur verðbólgu,
er aukin verðmætasköpun
i þjóðarbúinu. vaxandi
þjóðartekjur, svo meira
verði til staðar og skipta.
Til þess að svo megi verða
þarf að tryggja rekstrar-
grundvöll atvinnuveganna
og atvinnuöryggi almenn
ings, jafnframt þvi sem
standa þarf trúrri vörð um
verðgildi launa og pen-
inga, gjaldmiðils okkar,
en hingað til.
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11
árd. Ferming og altarisganga.
Séra Þórir Stephensen. Messa
kl. 2 síðd. Ferming og altaris-
ganga. Séra Óskar J. Þorláks-
son. Barnasamkoma kl. 10.30 í
Vesturbæjarskólanum við
Öldugötu. Hrefna Tynes.
NESKIRKJA. Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Fermingarmessa
kl. 2 síðd. Séra Frank M.
Halldórsson.
HATEIGSKIRKJA. Barnaguð-
þjónusta kl. 10.30 árd. Séra Jón
Þorvarðsson. Messa kl. 2 siðd.
Séra Arngrímur Jónsson.
Bibliulestur verður í kirkjunni
n.k. þriðjudagskvöld kl. 9 siðd.
Séra Arngrímur Jónsson.
BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11 árd. Séra Ólafur
Skúlason.
FÍLADELFlUKIRKJAN. Safn-
aðarguðþjónusta kl. 2 síðd. Al-
menn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar Gislason.
FRÍKIRKJAN I REYKJAVÍK.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Séra Þorsteinn Björnsson.
DÓMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS. í Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30.
Lágmessa kl. 2 síðdegis.
GRUND elli- og hjúkrunar-
heimili. Messa kl. 2 siðd. Séra
Þorsteinn Jóhannesson fyrrv.
prófastur messar. Fél. fyrrv.
sóknarpresta.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Arelíus Níelsson.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Ræðu-
efni: Dauðinn? Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson.
KIRKJA ÓIIAÐA
SAFNAÐARINS. Messa kl. 2
síðd. Væntanleg fermingarbörn
ársins 1976 komi til messunnar
og innritunar. Séra Emil
Björnsson.
IIALLGRlMSKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. Séra Karl Sigur-
björnsson. Fjölskyldumessa kl.
2 siðd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
HJALPRÆÐISHERINN.
Helgunarsamkoma ki. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
síðd. Kapt. Daniel Óskarsson.
Arbæjarprestakall.
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Fermingarguð-
þjónusta og altarisganga i Ár-
bæjarkirkju kl. 1.30 síðd. Séra
Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Fermingarguðþjónusta kl. 1.30
í Bústaðakirkju. Altarisganga.
Sunnudagaskóli i Breiðholts-
skóla kl. 10.30 árd. Séra Lárus
Halldórsson.
GRENSÁSKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 10.30 Guðþjónusta kl.
2. Séra Haildór S. Gröndal.
FELLA- OG HÓLASÓKN.
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Fermingaguðþjónusta i
Bústaðakirkju. Altarisganga.
Sóknarpresturinn.
LAUGARNESKIRKJA. Messa
kl. 2 siðd. Barnaguðþjónusta kl.
10.30 árd. Séra Garðar Svavars-
son.
ÁSPRESTAKALL. Barnasam-
koma í Laugarásbiói kl. 11 árd.
Messa að Norðurbrún 1 kl. 2
siðd. Safnaðaraðalfundur að
lokinni guðþjónustu. Séra
Grimur Grimsson.
DIGRANESPRESTAKALL.
Barnasamkoma i Vighólaskóla
kl. 11 árd. Guðþjónusta i Kópa-
vogskirkju kl. 11. Séra Þorberg-
ur Kristjánsson.
KÓPAVOGSKIRKJA. Ferming-
arguðþjónusta kl. 2 siðd. Altar-
isganga. Séra Árni Pálsson.
GARÐASÓKN. Barnasamkoma
1 skólasalnum kl. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA. Messa
kl. 2. síðd. Séra Garðar Þor-
steinsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Bjarnaguðþjónusta kl. 11 árd.
Séra Garðar Þorsteinsson.
FRlKIRKJAN I HAFNAR-
FIRÐI. Barnasamkoma kl.
10.30 árd. Guðþjónustá kl. 2
siðd. Séra Haukur Ágústsson
annast messugerð. Kirkjukaffi
kvenfélagsins að lokinni messu
í Góðtemplarahúsinu.
Safnaðarprestur.
LÁGAFELLSKIRKJA. Guð-
þjónusta kl. 2 síðd. Séra Bjarni
Sigurðsson.
kalfatjarnarkirkja.
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Bragi Friðriksson.
INNRI-NJARÐVÍKURSÓKN.
Guðþjónusta kl. 5 siðd. og
sunnudagaskóli i safnaðar-
heimilinu á sama tima. Séra
Ólafur Oddur Jónsson.
YTRI-NJARÐVlKURSÓKN.
Sunnudagaskóli í Stapa kl. 11
árd. Séra Ólafur Oddur Jóns-
son.
KEFLAVÍKURKIRKJA.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Ólafur Oddur Jónsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA. Messa
kl. 2 síðd. Séra Jón Árni Sig-
urðsson.
UTSKALAKIRKJA. Messa kl.
2 siðd. Séra Guðmundur
Guðmundsson.
GRINDAVlKURKIRKJA.
Barnaguðþjónusta kl. 11 árd.
Séra Jón Árni Sigurðsson.
SAURBÆJARKIRKJA á
Kjalarnesi. Messa kl. 2 siðd.
Séra Einar Sigurbjörnsson.
INNRA-HÓLMSKIRKJA.
Barnaguðþjónusta kl. siðd.
Séra Jón Einarsson.
AKRANESKIRKJA. Barna-
samkoma kl. 11 árd. Messa kl. 2
siðd. Séra Björn Jónsson.
Sýningin
„Impressionista
listmálararnir"
stendur nú yfir í franska bókasafninu, Laufás-
vegi 12, og verður opin til sunnudagsins 26.
október 1975 að honum meðtöldum. Sýningin
er opin frá kl. 1 7 — 22 alla daga.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
að Hallveigarstöðum (báðir salir) kl. 1 5 i dag.
Ótrúlegt úrval af nýjum fatnaði og öðrum varningi.
Auk þess útvarpstæki, barnarúm, barnavagga, ryk-
suga, eftirprentanir, matvara, leirtau og kristalsvörur,
leikföng glæsilegur silfurrefur og pelskápa úr ekta
skinni.
Lukkupakkar á 100 krónur. Komið og gerið reyfara-
kaup.
Verið öll velkomin. Nefndin.
Vorboðakonur, Hafnarfirði
Aðalfundur félagsins verður haldinn 1 Sjálf-
staeðishúsinu mánudaginn 20. október kl
8.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á þing landssambands sjálf-
stæðiskvenna. Frú Ragnhildur Helgadóttir
verður gestur fundarins
Stjórnin
Launþegaráð
Reykjaneskjördæmis
Framhaldsstofnfundur Launþegaráðs Reykjaneskjördæmis, verður
haldinn i Sjálfstæðishúsinu. Hafnarfirði, þriðjudaginn 21 október
1975 kl. 20.30.
Matthias Á. Mathiesen, fjármálaráðhérra og Gunnar Helgason. for-
maður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins mæta á fundinn
MatthiasÁ. Mathiesen
Gunnar Helgason.
AHt Sjálfstæðisfólk i kjördæminu i launþegastétt, velkomið á fundinn
meðan húsrúm leyfir. ., .. . . .
Undirbunmgsnefndin.
Aðalfundur
kjördæmisráðs sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi Vestra,
verður haldinn laugardaginn 25. okt. n.k. kl. 14 i sjálfstæðishúsinu á
Siglufirði.
Aðalfundur félags
sjálfstæðismanna í Langholti,
verður haldinn sunnudaginn 19. okt. kl. 4 e.h. að Langholtsveg 124
Rvik.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Styrmir Gunnarsson ritstj. flytur ræðu og svarar fyrirspurnum.
Stjórnin.