Morgunblaðið - 18.10.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1975
21
VELMAKAIMDI
Velvakandi svarar i síma 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
% Læknisvottorð
í skólum
Nemi i Fjölbrautarskölanum
skrifar:
„Það er varðandi læknisvottorð,
sem verður að koma með í skól-
ann, ef maður veikist einn dag.
Ætlar skólinn að borga það að fá
lækni heim til að athuga hvort
maður er veikur eða ekki.
Og þegar maður er ekki i
skyldunámi, er það þá ekki manns
sjálfs hvort maður mætir í sköl-
ann eða ekki? Aftur á móti eru
engin mánaðarfri og þá er hægt
að segja „þið eruð ekki i skyldu-
námi“.
Hvort erum við í skyldunámi
eða ekki í Fjölbrautarskólanum í
Breiðholti.
% Þá er það strætó
Hverjum þjónar hverfastrætó i
Breiðholti? Hann byrjar klukkan
9, en skólarnir byrja kl. 8.10 og
8.20. Svo gengur hann tömur
þangað til skólinn er búinn, þá
verður hann einu sinni á dag full-
ur. Hverjum þjónar hann?
Nemi í Fjölbrautarskólanum."
0 Bólusetning
gegn mænusótt
Bergljót Líndal, forstöðukona
Ileilsuverndarstöðvar Reykjavík-
ur, skrifar:
„1 Velvakanda miðvikudaginn 15.
október er birt grein undir fyrir-
sögninni: „Aðeins unnt að
bólusetja 1000 Reykvíkinga við
mænusótt á ári.“ Siðan koma út-
reikningar til að staðfesta þessa
niðurstöðu.
1 lok greinarinnar er beðið um
skýringu á þvi, hví svona sé staðið
að málum, þegar þjöðin öll er
jafnframt hvött til að fá þessa
ónæmisaðgerð.
Niðurstöðurnar eru ekki réttar,
enda ekki von, þar sem forsend-
urnar eru rangar.
Ég vil leyfa mér að útskýra,
hvernig hugsað er að fram-
kvæma þessa þjónustu.
• Allt að 600 á dag
A hverju vori stendur Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur fyrir
ónæmisaðgerðum gegn mænusótt,
um mánaðartíma, og leggur þá
sérstaka áherzlu á að hvetja fóik
til að koma. Þá er gert ráð fyrir
fjölda bólusetningum og starfið
skipulagt með það I huga. Hefur
verið bólusett allt að 600 manns á
dag. Ætlazt er til að fólk noti
þennan tima fyrst og fremst.
Hins vegar hefur undanfarin ár
æinnig verið opið á mánudögum
allan veturinn eina klst. á dag og
hefur sá tími einkum verið ætlað-
ur þeim, sem ekki hafa getað
komið að vori. S.l. vetur komu að
meðaltali 12 i þessa mánudags-
tima, og með þá reynslu og undan-
farinna ára í huga hefur þessi
tími nægt og vel það. Þennan um-
rædda dag komu að vísu 50
manns, sem er undantekning.
Reynist hins vegar aðsóknin
verða meiri en gert er ráð fyrir
verður að auka þjónustuna.
„Maður, sem kom að máli við
Velvakanda" fékk út úr reikn-
ingsdæminu að u.þ.b. 100.000
manns þyrftu að fá ónæmisaðgerð
gegn mænusótt á ári.
í fréttatilkynningum og auglýs-
ingum frá heilsuverndarstöðinni
kemur fram að bólusetningin er
ætluð fullorðnum, þ.e. 20 ára til
allt að 50 ára.
Auk þess er ætlunin að þetta sé
fyrst og fremst viðhaldsskammtur
og hann þarf að endurtaka aðeins
á 5 ára fresti.
£ Hinir
„Eftirlýstu“ hópar
Ef dæmið er reiknað að nýju
kemur í ljós að þarna er einkum
um sjö árganga að ræða. Ef áætl-
að er að 2000 séu að meðaltali i
hverjum árgangi verða það u.þ.b.
14000, sem þarf að bólusetja ár-
lega. Hér er ekki um lögboðnar
aðgerðir að ræða, én fólk hins
vegar hvatt til að viðhalda ónæm-
isvörnum til að þær komi að
gagni. En því miður of margir
taka þessi hvatningarorð ekki til
greina.
Samborgararnir gera skipu-
lagningu oft erfiða með þvi að
gleyma að koma á tilskildum
tíma, gleyma eða týna ónæmis-
skirteinum, svo að skrifá þarf á
ný, allt veldur þetta aukinni
vinnu.
Gott er að nota þetta tækifæri
og itreka við hina eftirlýstu hópa
þ.e. þá sem eru fæddir 1956, 1951,
1947 o.s.frv. (þ.e. á 5 ára fresti)
að koma, og þá helzt í vor. Aðrir,
sem hafa fengið ónæmisaðgerðina
óreglulega eða eru í einhverri
óvissu ættu að nota mánudagstim-
ana í vetur.
% Hætti lítilsigldu
pexi
„1336 — 3153“ skrifar eftirfar-
andi bréf i tilefni þess að nú
hefur alþingi setzt á rökstóla að
nýju:
„Nú hafa alþingismenn vorir
verið heimtir af fjalli og væntan-
lega nokkuð vænir eftir allgott
sumar(frí).
Þeirra bíður að takast á, ekki
bara hver við annan, heldur við
ýmsan vanda, sem steðjar að
landsmönnum, og mun oss ekki af
veita að styðja þá i hverju því
máli, sem til góðs horfir fyrir
heildina. Hins vegar vildum vér
gjarnan að alþingismenn tækju
hlutverk sitt alvarlega og ha'ttu
að sólunda timanum í pex um
gamlar ávirðingar sessunautsins
eða andstöðuflokksins. Hættu að
þrefa langtímum saman um lilils-
verð mál, sbr. Utvarpsráð, á með-
an stórmál eins og efnahagur
þjóðarinnar eru látin dankast. Og
hætti að miða málflutning sinn
við þá vitgrennstu meðal vor með
innantómum slagorðum og þul-
um, sem fyrir löngu hafa gengið
sér til húðar.
0 Láti eigin
laun síga
Alþingismenn mættu einnig
hafa i huga að fólkið í landinu
kann að meta það, sem virkilega
horfir til bóta fyrir það í framtið,
þótt illa komi við fyrst í stað, en
þá mega vissir hópar ekki sleppa
við sina bagga.
Gott ráð til að fá almenning til
liðs væri að byrja á að lækka laun
stjórnmálamanna og embættis-
manna ríkisins, en af þvi yrði
trúlega lítill hávaði. Það virðist
nauðsynlegt að meiri launajöfn-
uður verði í landinu til þess að
almenningur sætti sig við lakari
lífskjör. Þar sem stjórnmálamenn
hafa orðið svo mikla æfingu i því
að láta krónuna síga, gætu þeir
varla verið i vandræðum með að
láta háu launin siga lika og þar á
eftir alla verðbólguna smátt og
smátt.
1336 — 3153.
en ég veit þó að blóðið sem var ó
lfkama hans og í kringum hann
var ekki nýlt.
Christer kinkaði kolli.
— Læknirinn er á sömu
skoðun, enda þótt hann vilji ekki
kveða upp neinn endanlegan dóm
að sinni. Við verðum að bíða og
sjá hverjar verða niðurstöður
krufningarinnar.
Að þessum orðum mæltum
sneri Christer sér Ögn á stólnum
og horfði á Susann Motander.
— Mér hefur verið sagt að þér
hafið verið sfðasta manneskjan
eða að minnsta kosti með þeim
sfðustu, sem sáu Sandell f lifanda
Iffi. Þér stóðuð á tali við hann
skömmu eftir að söngæfingunni
lauk. Er það ekki rétt?
A þessari stundu varð mér allt í
einu Ijóst að Susann hafði hingað
til ekki sagt eitt einasta orð, og í
nokkrar sekúndur dró ég stórlega
f efa að ég myndi nokkurn tfmann
upplifa að fá að heyra hana segja
nokkuð. En roðinn f andliti henn-
ar jókst og hún starði bæði feimin
og ringluð á — þótt einkennilegt
megi vírðast ekki á Christer,
hcldur ekki á móður sfna, heldur
áTord Ekstedt.
En Tekla Motandcr skipaði
fyrir með mynduglegri röddu:
HÖGNI HREKKVÍSI
Ástæðulaust að sækja sfðustu laufblöðin upp í topp!
I
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
SjálfstæðisfloKksins
i Reykjavik
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins verða til viðtals í Galtafelli Laufás-
vegi 46 frá kl. 14—16. Er þar tekið á móti
hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og
er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa
Laugardaginn 18. október verða til viðtals:
Ellert B. Schram, alþingismaður,
Ragnar Júlíusson, borgarfulltrúi,
Hilmar Guðlaugsson, varaborgarfulltrúi.
ENNFREMUR HENTUGIR
í GANGA, STOFUR,
SVEFNHERBERGI
OG UTAN DYRA
SENDUMí PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS &ÖRKA
Suóurlandsbraut 12
sími 84488
OPIÐ TIL HÁDEGIS
70 TEGUNDIR
LOFT- OG VEGGLAMPA
í BÖÐ OG ELDHÚS