Morgunblaðið - 05.11.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.11.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1975 I GÆR voru rétt 100 ár liðin frá fyrsta hreppsnefndarfundi á Seltjarnarnesi og var það jafn- framt 957. fundur, sem getið er í bókum hreppsins. Af þessu tilefni var haldinn sérstakur hátfðarfundur bæjarstjórnar Seltjarnarness, en hreppurinn varð kaupstaður hinn 9. aprfl 1974. Ilátfðarfundinn sátu auk bæjarstjórnarinnar, Geir Ilallgrfmsson forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen félags- málaráðherra og Matthías A Mathiesen fjármálaráðherra, auk allra þingmanna Reykja- neskjördæmis, fulltrúa nágrannabyggðarlaga, fyrr- verandi oddvitar og sveitar- stjórar hreppsins, auk fjölda annarra gesta. A fundinum voru bornar upp fjórar tillögur, sem samþykktar voru með atkvæðum allra bæjarstjórnarmanna. I fyrsta Karl B. Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, flytur ávarp sitt I upphafi fundarins, sem haldinn var I Félagsheimili Seltjarnarness. Aðrir bæjarfulltrúar sitja við fundarborðið, en þcir eru: Snæbjörn Asgeirsson, varaforseti bæjarstj., Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Magnús Erlendsson, Vfglundur Þorsteinsson, Njáll Ingjaldsson og Njáll Þorsteinsson. 100 ár frá fyrsta hrepps- nefndarfundi á Seltjarnarnesi hófst með ávarpi forseta bæjar- stjórnar, Karls B. Guðmunds- sonar. Hann sagði frá fyrsta hreppsnefndarfundinum, sem haldinn var 4. nóvember 1875. Þann fund sátu: Kristinn Magnússon i Engey, Ólafur Guðmundsson I Mýrarhúsum, Ingjaldur Sigurðsson á Lamba- stöðum, Erlendur Guðmunds- son í Skildinganesi, Ólafur Ólafsson á Vatnsenda, og séra Hallgrímur Sveinsson sfðar biskup, og stýrði hann fundi. Tvö mál voru til umræðu á fundinum, veiðarfæri og vegar- bætur. Umræðu um þau mál lauk ekki á fundinum, heldur voru þau tekin til framhalds- umræðu á næsta fundi þar á eftir. Karl B. Guðmundsson rakti þá sögu hreppsins og gat þess m.a., að árið 1097 væri þess fyrst getið að hreppnum væri gert að innheimta og skipta tfund. Þá ræddi hann um félagslíf í hreppnum, sem alla tíð hefði staðið með miklum blóma. Að máli forseta loknu lék Blásarakvintett Kammersveit- ar Reykjavíkur svítu eftir Le Fevre, en þá lýsti varaforseti bæjarstjórnarinnar, Snæbjörn Ásgeirsson, tillögum og tók Njáll Ingjaldsson einn borgar- fulltrúa til máls um þær, en að því loknu voru þær bornar Margt góðra gesta sat hátfðarfund bæjarstjórnar Seltjarnarness, þ. á. m. ráðherrar, þingmenn kjör- dæmisins og fulltrúar nágrannasveitarfélaga. Hugmyndasamkeppni um endurskoðun aðalskipulags lagi að láta skrá sögu hreppsins síðustu 100 ár og fela það verk- efni Hersteini Pálssyni rit- stjóra. I öðru lagi að færa Mýrarhúsaskóla að gjöf lista- verk eftir Asmund Sveinsson í tilefni af aldarafmæli skólans nú í haust, og skyldi verkið fært skólanum svo fljótt sem auðið yrði. I þriðja lagi, að efna til hugmyndasamkeppni um endurskoðun aðalskipulags Seltjarnarness og veita sigur- vegara verðlaun að upphæð 1050 þúsund krónur. í fjórða lagi, að lýsa yfir stuðningi við stofnun minjasafns í Nesstofu. Um leið samþykkti bæjarstjórnin að leggja sitt af mörkum til að þetta verkefni mætti verða að raunveruleika. Dagskrá hátíðarfundarins undir atkvæði og samþykktar í einu hljóði, eins og áður segir. Þá tóku til máls gestir bæjar- stjórnar á hátíðarfundinum, þeirra fyrstur Gunnar Thor- oddsen félagsmálaráðherra. Flutti hann kveðjur og árnaðar- óskir frá ríkisstjórninni. Fyrir hönd þingmanna kjördæmisins talaði Matthías A. Mathiesen fjármálaráðherra, fyrsti þing- maður Reykjaneskjördæmis. I máli sínu rakti hann nokkuð samskipti sveitarfélaga í kjör- dæminu og minntist m.a. á hve Seltirningar hefðu jafnan verið hugkvæmir þegar um skatt- heimtu væri að ræða, eins og bezt hefði komið fram í því, að Seltjarnarneshreppur hefði fyrstur hreppa á landinu lagt Framhald á bls. 18 Aðalfundur Varðar í kvöld: Þróttmikið félagsstarf for- senda öflugs stjórnmálastarfs Ragnar Júlfusson Enn eitt umferðarslysið: Stúlka slasast lífs- hæ ttulega á Húsavík AÐALFUNDUR Landsmála- félagsins Varðar, sambands félags sjálfstæðismanna f hverfum Reykjavfkur, verður haldinn f kvöld f Átthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfundar- starfa leggur stjórn Varðar fyr- ir fundinn tillögur um laga- breytingar. Þá flytur forsætis- ráðherra Geir Ilallgrfmsson ræðu og fjallar um stjórnmála- viðhorfið. f tilefni af aðalfund- inum sneri Morgunblaðið sér til formanns Varðar, Ragnars Júlfussonar. Hver voru helstu viðfangs- efni stjórnar Varðar á sfðasta ári? „Vörður hefur staðið fyrir fundum með ráðherrum, alþingismönnum og borgarfull- Irúum Sjálfstæðisflokksins um þau málefni, sem efst hafa verið á baugi á hverjum tíma. Á liðnu sumri var farin fjöl- menn. Varðarferð um héruð Borgarfjarðar og efnt var til nokkurra utanlandsferða á veg um Varðar. Þá hélt Vörður nokkur spilakvöld á s.l. vetri, sem lókust vel og ég tel nauð- synlegt að halda þeirri starf- semi áfram.“ Á aðalfundi Varðar fyrir tveim árum var lögum félags- ins brevtt f grundvallaratriðum og það gert að sambandi félaga sjálfstæðismanna í hverfum Reykjavfkur. Hver hefur orðið reynslan af þessum breyt- ingum? „Að ýmsu leyti tókst vel til með þær breytingar, sem gerð- ar voru á lögum félagsins 1973, en hitt er Ijóst að ýmsir agnúar fylgdu f kjölfar þessara breyt- inga, en á aðalfundinum f kvöld verða lagðar fram tillög- ur um lagabreytingar, sem ætlað er að færa það til betri vegar. Vmis atriði f núverandi lögum Varðar eru ekki til þess fallin að efla skipulagsbundið starf hverfafélaga sjálfstæðis- manna f Reykjavfk og má þar nefna aðild félaganna að stjórn Varðar." Hvað felst f þeim lagabreyt- ingum sem stjórn Varðar leggur fyrir aðalfund félagsins í kvöld? „Hér er ekki um neinar grundvallarbreytingar á lögum Landsmálafélagsins Varðar að ræða. Félagið verður áfram samband félags sjálfstæðis- manna í hverfum Reykjavíkur en lagabreytingarnar, sem stjórnin leggur fyrir fundinn, eru fyrst og fremst til að hefla af þá vankanta, sem komið hafa í Ijós á undanförnum tveimur árum eða frá því að lögum Varðar var breytt. Breytingar- tillögur stjórnarinnar fela f sér, að aðild að Landsmála- félaginu Verði verði nú einungis f gegnum hverfafélög- in. Þá er einnig lagt til að formenn hverfafélaganna taki sæti f stjórn. Varðar og er ástæðan sú að þeir eru kjörnir til æðstu ábyrgðar- og trúnaðar- starfa í þágu hverfafélaganna og þvf eðlilegt að þeir sitji f þeirri stjórn, sem tekur ákvarðanir um samræmd og sameiginleg viðfangsefni félaganna. Þessar tillögur hafa verið ræddar f öllum hverfa- félögunum og stjórn Varðar og fengið almennan hljómgrunn. Ég tel þessar lagfæringar nauð- synlegar, ef við sjálfstæðis- menn viljum halda uppi skipu- legu og þróttmiklu félagsstarfi í Reykjavík, en það er forsenda öflugs stjórnmálastarfs. Um leið er tilgangur þessara breyt- inga að efla og styrkja hverfa- félög sjálfstæðismanna, sem nú eru starfandi í öllum hverfum Reykjavíkur. Með þessum breytingum eru tengsl stjórnar Varðar og hverfafélaganna Framhald á bls. 18 STULKA liggur Iffshættulega slösuð f gjörgæzludeildinni í Borgarsþitalanum eftir að hún og vinkona hennar urðu fyrir bifreið á Húsavfk f fyrrakvöld. Slysið varð með þeim hætti, að bifreiðin ætlaði að taka fram úr vélhjóli á einni götu Húsavíkur, er pilturinn á vélhjólinu ók skyndilega í veg fyrir bifreiðina. Til að forðast árekstur við vélhjól- ið brá ökumaður bifreiðarinnar á það ráð að sveigja bifreiðinni frá — VIÐ erum komnir með tölur, sem við teljum vera réttar, en mál, eins og þetta kvótamál mun að sjálfsögðu taka tíma hjá dóm- stólunum. Þó nokkrir bátar hafa farið vel yfir 215 tonna síldar- kvótann, og sumir þetta 30—50 tonn, aðrir þar fyrir neðan. Hins vegar vitum við ekki um neitt skip, sem farið hefur til veiða, eftir að það hefur farið yfir 215 tonna markið. Þetta hefur allt far- ið eftir því, hve mikið skipin hafa veitt í síðustu veiðiferðinni, sagði Þórður Ásgeirsson, skrifstofu- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu þegar Morgunblaðið innti hann en lenti þá upp á gangstétt og á tveimur stúlkum sem þar voru á gangi fyrir framan kaupfélagið. Báðar stúlkurnar slösuðust mikið og var önnur þeirra flutt illa beinbrotiri í sjúkrahúsið á Akureyri, en hin var látin liggja í sjúkrahúsinu á Húsavík fyrst um sinn þar eð hún var talin of slösuð til að þola flutning. Hún var hins vegar flutt suður með flugvél í gærdag og var í gærkvöldi enn þungt haldin. eftir hvernig rannsókn á veiði síldveiðiskipanna gengi. Að sögn Þórðar er það mjög misjafnt hve mikinn afla skipin hafa tekið umfram 215 tonna markið. Flestir hafa reynt að halda sig alveg við það mark, en dæmi er um skip sem tók um 140 tonnum meira en leyfilegt er, eins og sagt var frá i Morgunblaðinu fyrir nokkru. Sjávarútvegsráðu- neytið er nú að athuga við hvaða tölu á að miða, ef skipstjórar skip- anna verða lögsóttir. Ekki er ákveðið enn hvort miðað verður við 215 tonn, eða einhverja heldur hærri tölu. Kvótamálið 1 athugun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.