Morgunblaðið - 05.11.1975, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5, NÓVEMBER 1975
Þjóðræknisfélag
íslendinga.
Hátíðasamkoma í tilefni 100 ára landnáms íslendinga
í Nýjaíslandi verður i Þjóðleikhúsinu, laugardaginn 8.
nóvember kl. 14.
Þættir úr hátíðardagskrám fluttum vestanhafs:
Leiksýning — leikarar og kór Þjóðleikhússins.
Danssýning — Þjóðdansafélag Reykjavíkur.
Glímusýning — Glímusamband íslands.
1. Kvikmynd frá byggðum íslendinga i Manitoba.
2. Ávörp: Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráð-
herra íslands.
Stefán J. Stefánsson, forseti Þjóðræknisfélags-
ins i Vesturheimi. Kórsöngur — Karlakór
Reykjavíkur.
3. Lúðrasveit Reykjavikur leikur.
Sala aðgöngumiða hefst i Þjóðteikhúsinu miðvikudag-
inn 5. nóv. á venjulegum tima.
Aðalfundur
sjálfstæðisfélags Akraness verður haldinn föstudaginn 7. nóv. kl.
20.30. í sjálfstæðishúsinu að Heiðarbraut 20.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál, bæjarmálefni, bæjarfulltrúar sjálfstæðisflokksins mæta.
Stjórnin.
Spilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði, miðvikudag 5, nóvember kl. 8.30,
kaffiveitingar og góð kvöldverðlaun.
Nefndin.
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins
i Suðurlandskjördæmi, verður haldinn i Leikskálum Vík i Mýrdal,
laugardaginn 8. nóvember n.k. kl. 1 1 fyrir hádegi.
Stjórn kjördæmisráðsins.
Aðalfundur
sjálfstæðisfélag Keflavíkur heldur aðal-
fund sinn fimmtudaginn 6. nóv. kl.
20.30.
Matthías Á. Mahtiesen, fjármálaráðherra
mætir á fundinum.
Stjórnin.
Garðahreppur
Byggung, Garðahreppi
Aðalfundur Byggung I Garðahreppi verður haldinn í félagsheimilinu við
Lyngás, miðvikudaginn 5. nóv. kl. 8.30 stundvislega.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa, mun Páll Friðriksson, framkv.stj.
segja frá nýjungum i byggingariðnaði og rætt verður um stofnun nýrra
byggingarhópa.
Fjölmennið og mætið stundvislega.
Stjórnin
Landsmálafélagið Vörður
Samband Félaga sjálfstæðismanna
i hverfum Reykjavikur
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins 1975 veráur haldinn i Átthagasal Hótel Sögu
miðvikudaginn 5. nóv. kl. 20:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Nánar auglýst siðar. Stjórnin.
Týr, FUS Kópavogi
Aðalfundur Týs
FUS Kópavogi
Aðalfundur Týs Félags Ungra sjálfstæðismanna i Kópavogi verður
haldinn laugardaginn 8. nóv. kl 2 i Sjálfstæðishúsinu við Borgarholts-
braut.
Dagskrá
I Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Baldur Guðlaugsson, stjórnarmaður i SUS mætir á fundinn og ræðir
um helstu viðfangsefnin i stjórnmálum i dag.
Félagar mætið stundvislega
Stjórnin.
SUÐUREYRI, 23. OKTÓBER — Um þessar mundir er verið að ljúka við að steypa 260 metra kafla í
aðalgötu þorpsins. Eru það fyrstu framkvæmdir í varanlegri gatnagerð hér á Suðureyri. — Halldór.
Sigurður Hafstein formaður
Stúdentafélags Reykjavíkur
Fyrir skömmu var haldinn að
Hótel Loftleiðum aðalfundur
Stúdentafélags Reykjavfkur, 104.
aðalfundur félagsins.
Fráfarandi formaður, Guð-
mundur Vignir Jósepsson, hrl.,
flutti skýrslu stjórnar um störf
félagsins á liðnu ári. Þá voru af-
greiddir reikningar félagsins og
önnur aðalfundarstörf. Fráfar-
antíi formanni voru þökkuð ágæt
störf í þágu félagsins. Ný stjórn
var kjörin og skipa hana eftirtald-
ir menn:
Sigurður Hafstein, hrl., formaður.
og aðrir í aðalstjórn:
Helgi V. Jónsson, lofr., varafor-
Jón Ingvarsson, löfr.,
Páll Skúlason, löfr.,
Sveinn Gústafsson, viðskiptafr.,
og
Þorsteinn Pálsson, lögr.
Stúdentafélagið hefur jafnan
gengizt fyrir fullveldisfagnaði í
sambandi við fullveldisdaginn 1.
desember. Fuilveldisfagnaðurinn
verður haldinn að Hótel Sögu
f-östudaginn 28. nóv. n.k. og mjög
vel til hans vandað eins og venja
er.
(Frá stúdentafélagi
Reykjavfkur.)
Sigurður Hafstein.
Furða sig á tollaívilnunum stjórnvalda
maður.
Björn Teitsson, sagnfræðingur,
ritari,
Sveinbjörn Hafliðason, löfr.,
gjaldkeri og
Stefán Hermannsson, verkfr.
1 varastjórn:
Guðmundur Malmquist, löfr.,
■ ASIMINN KR:
22480
JlloröiuiþTtibit)
AÐALFUNDUR Sveinafélags
járniðnaðarmanna í Vestmanna-
eyjum, sem haldinn var nýlega,
samþykkti ályktun þar sem fálag-
ið lýsír yfir stuðningi sfnum við
þá einstaklinga og félagasamtök,
sem mótmælt hafa skattalöggjöf-
inni oe er skorað á viðkomandi
yfirvöld að flýta endurskoðun lag-
anna með það fyrir augum að
jafna skattlagninu á þegna lands-
ins. Þá lýsir félagið furðu sinni á
því að menn, sem þjóðin kýs til að
fará með mál sín skuli geta gefið
eftir tolla og eða aðflutningsgjöld
til sinna þarfa en ekki til samtaka
lamaðra og fatlaðra eða annarra
slíkra.
Þessi glæsilegu sófasett eru komin aftur.
Viöur: Mahoni ogfura.
Bóístrun: ekta leöur ■■■
eóa áklæói.
UORGARÐI