Morgunblaðið - 05.11.1975, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1975
29
VELA/AKAIMOI
■Velvakandi svarar I sima 10-100
kl 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
• Æsifregnir
ollu vandrædum
Sigurður Svavarsson á Eyr-
arbakka hefur beðið okkur að
koma þessu á framfæri:
„Hverjir bera ábyrgð á þeim
fréttum, sem komu I útvarpi
snemma þann 3. nóvember þegar
stórtjón varð á Eyrarbakka?
Fyrstu fréttir voru á þá leið, að
engu líkara væri en fellibylur
hefði fengið yfir þorpið og þorpið
væri ófært öðrum farartækjum
en þeir, sem hefðu drif á öllum
hjólum. Þvilikar fréttir hlutu að
valda miklum áhyggjum hjá þvi
fólki, sem átti skyldfólk á Eyrar-
bakka, enda varð raunin sú, að
simaálag varð svo gifurlegt, að
mjög erfitt varð að ná nokkru
sambandi innan þorps eða út úr
því. Siðan voru lesnar itrekaðar
tilkynningar i útvarpi þess efnis,
að fóik notaði ekki síma.
Ég spyr: Hefði ekki verið nær
að segja bara sannleikann í fyrstu
fréttum til að komast hjá þvi að
vekja siíkan ótta hjá fólki, en
vera ekki að blása þetta svona út?
Tjónið varð alveg gífurlegt, en
ef þessir menn hefðu séð um-
merki fellibylja þá held ég að þeir
hefðu látið þetta orð liggja á milli
hluta. Litið sem ekkert sá á
íbúðarhúsum, — reyndar fór vatn
í kjallara fáeinna húsa og grjót og
þang barst upp á götu vestast I
þropinu og á afleggjarann niður á
höfn, en í mið- og austurþorpinu
var útlit ekki öðru visi en venju-
lega, fyrir utan þang, sem hafði
borizt með særoki upp á göturnar.
Hefði bara verið farið með réttar
fregnir i byrjun er ekki að efa að
símaálag og aðrar óþarfa áhyggj-
ur hefðu ekki komið fram.“
Lundgren bölvaði. Hjördis Holm
nötraði eins og strá I vindi, faðir
minn stundi hátt og Neferite sem
vakin hafði verið af blundi sfnum
reis upp og mjálmaði samúðar-
full. En Christer kveikti öll ljós f
stofunni, tók litla hvfta kettl-
inginn f kjöltu sér, fékk talið
Lundgren á að setjast f hæginda-
stól og beið svo þolinmóður þess
sem hann myndi segja. Og smám
saman virtist Lundgren hafa
fengið nóg af bölsótinu. Hann
þerraði svitann af enni sér, gaut
augunum iðrandi til systur sinnar
og tautaði:
— Það get ég svarið að mér er
hulin ráðgáta hvers vegna allt illt
kemur fyrir mig. Ég hef gætt
kirkjusilfursins eins og sjáaldurs
auga mfns og samt sem áður
hverfur það einmitt þegar ég ber
ábyrgð á því. Og f gærkvöldi . . .
ég . . . það vakti ekkert Ijótt fyrir
mér með þvf að skreppa f verzlun-
ina og sækja mér brennivín og
auðvitað gat mig ekki grunað ég
myndi steypast þar um Ifkið á
Arne . . . og að á aðfangadags-
kvöidinu sjálfu. Ekki dettur mér
f hug að bera á móti þvf að ég
hafði verið argur út f hann. Hann
keypti verzlunina fyrir framan
hefur ekki skynjað hraða öku-
tækisins.
Eru þessi hroðalegu bflslys
bara daglegt brauð — einskonar
lögmál lffsins?
Nei og aftur nei! Við megum
aldrei falla f það fen að hugsa
þannig. Við verðum að taka hönd-
um saman og binda enda á þenn-
an slysafaraldur, sem á síðustu
árum hefur verið blóðtaka fyrir
þjóðiaa. Börnin okkar eiga rétt á
að fara yfir götu án þess að þurfa
að gjalda fyrir það með lífi sínu.
0 Banaslysið
við Tjarnarból
— óhapp eða...
Björg Arnadóttir skrifar:
„Piltur með glænýtt ökuskír-
teini I vasanum ekur á geysiferð
framhjá fjölbýlishúsunum við
Tjarnarból. Skyggni er gott,
dagurinn bjartur, en smávegis
blettahálka, sem fáir ökumenn
verða varir við. Ung, lífsglöð
stúlka hjólar yfir götuna í átt að
skólanum. Það verður skemmti-
legur dagur, þvi að hún ætlar að
bjóða vinkonum sínum í 12 ára
afmælið sitt.
Bremsuhvinur — hræðilegt
slys:
Piltinum tekst ekki að hemla i
tæka tið — bíllinn er á of mikilli
ferð. Unglingsstúlkan á hjólinu
Hvað getum við gert? Er öku-
kennslu ábótavant?
Hjá flestum ökukennurum læra
unglingar aldrei að aka hratt.
Þeir fá bara tölur úm vegalengd,
sem ökutæki þarf til þess að geta
stöðvazt á ákveðnum hraða. Ef
þeir freistast til að aka of hratt er
þeir hafa fengið ökuskirteini vita
þeir ekki hvernig þeir eiga að
bregðast við ef eitthvað kemur
fyrir.
Hví ekki að hafa sérstakar
akstursbrautir, þar sem þeir geta
æft sig og kynnzt þessu af eigin
raun?
Hinn félagslega þátt ökuprófs
vantar næstum alveg. Einstakl-
ingseðlið er ríkt I Islendingum,
tillitssemi við aðra vantar þvi
miður oft. Það ætti að kenna verð-
andi ökumönnum hvaða skyldur
þeir hafa gagnvart öðru fólki í
samfélaginu — lika að láta þá
heimsækja sjúkrahús þar sem
þeir getá hitt fyrir fórnarlömb
umferðarslysa, sum örkumla og
hjálparlaus til æviloka.
Silkihanzkatök eru þýðingar-
laus
Nú þýðir ekki lengur að taka
með silkihönzkum á skaðvöldum.
Viða i Evrópu eru bifreiðastjórar,
sem valda dauðaslysum af gáleysi
sóttir til saka og fá refsingu I
samræmi við það.
Þátturinn Kastljós ætti að taka
þessi mál fyrir sem fyrst. Slik mál
þoia enga bið og slík mál má ekki
lengur þegja I hel.
Björg Arnadóttir."
Einhverju sinni var þeirri hug-
mynd komið á framfæri, að
merkja ætti bfla sérstaklega
þegar fólk með ný ökuskírteini
sæti undir stýri. Þetta gæti ef-
laust komið til athugunar nú,
þegar umferðarslysavarnir eru til
athugunar i fullri alvöru. Um leið
mætti e.t.v. hugsa sér að merkja
einhvern veginn bifreiðar fólks,
sem valdið hefur umferðar-
óhöppum eða slysum. Þetta þættu
eflaust nokkuð harkalegar að-
ferðir, en útlit er fyrir að ekki
dugi nein vettlingatök.
HOGNI HREKKVISI
Jæja, þá er komið að rjðmanum?
Kaupum, v
i vandaðar
lopa-peysur
MÓTTAKA MIÐVIKUDAGA
MILLI3&6
m/tvöföldum kraga
#%
GRAFELDUR HF.
INGÓLFSSTRÆTI 5
^ *
sTjórnunarfélag íslands
CPM
CPM-námskeið haldið að Skipholti 37, 1 4., 15., 1 7. og 1 8. nóvember
ir Námskeiðið stendur yfir föstud. 14.11 kl. 15:30—19:00, laugard.
15.11 kl. 9:15 — 12:00, mánud. 17.11. kl. 13:30—19:00 og
þriðjud. 18.1 1 kl. 13:30—18:00.
Critical Path Method er kerfisbundin aðferð við áætlanagerð, sem á að
tryggja, að valin sé fljótvirkasta og kostnaðarminnsta leiðin að settu
marki og sparar þvi tima, mannafla og fyrirhöfn.
CPM hentar hvers konar framkvæmdum hjá hinu opinbera og einka-
aðilum. Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja og stofnana og
öllum þeim sem sjá um skipulagningu verkefna. Áhersla verður lögð á
verklegar æfingar.
Leiðbeinandi verður Egill Skúli Ingibergsson verkfræðingur.
Þátttaka tilkynnist í sima 82930.
ÞEKKING ER GÓÐ FJÁRFESTING
núnn
opnar
Dúnn
nýja glæsilega
húsgagnaverzlun
að Síðumúla 23
VERIÐ VELKOMIN
SIGEA V/öGA £ t/LVtRAW
É6 V/Z. E-NN <bl9)A
'tftitroWA
>6-2