Morgunblaðið - 05.11.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 1975
31
— sagði Sveinn Jónsson
Iffi MKFA SKACHffli Á SMKIl
nitlNGI ÁHOKFENDA AB HALDA
Baað Kirby csii
laMteliðsUállarastiéa
SVEINN Jónsson, formaður KR,
hafði í gær samband við Morgun-
blaðið vegna fréttar er birtist í
Þjóðviljanum i gær um að hann
hefði lofað þjálfara Akranesliðs-
ins, Kirby, stöðu landsliðsþjálfara
vildi hann gerast þjálfari KR-inga
næsta sumar. Slíkt hafði einnig
komið fram í viðtali Morgunblaðs-
ins við Kirby, en nafn Sveins
Jónssonar var þá ekki nefnt.
— Ég hef ekki heimild til þess
að ráða þjálfara fyrir knatt-
spyrnudeild KR, — hvað þá fyrir
Knattspyrnusamband Islands,
sagði Sveinn Jónsson. — Ef Kirby
heldur fast við sina furðulegu
fullyrðingu þá stendur fullyrðing
gegn fullyrðingu. Reynsla KR-
inga er ekki það góð af því að hafa
þjálfara hjá okkur sem jafnframt
er landsliðsþjálfari að félagið fari
að endurtaka slikt, sagði Sveinn
Jónsson. Dynamo Kiev — sennilega bezta félagslið f heimi. Nýbakaðir Sovétmeistarar annað árið f röð og þessu
------------------------------ liði er teflt fram óbreyttu sem landsliði Sovétrfkjanna.
ÞEGAR Akurnesingar og sovézka
liðið Dinamo Kiev hefja leik sinn
á Melavellinum f kvöld, gera
örugglega fáir ráð fyrir þvf að
Akurnesingum takist að standast
hinum frægu köppum snúning.
Leikmenn Dinamo Kiev eru
ókrýndir Evrópumeistarar í
knattspyrnu, og hafa t.d. nýlega
leikið það að sigra hið fræga lið
Bayern Múnchen bæði á heima-
velli og útivelli, og var þó Bayern-
liðið Evrópumeistari I keppni
meistaraliða á sfðasta keppnis-
tfmabili.
Spurningin í kvöld verður
fremur sú, hvort Skagamönnum
tekst að koma í veg fyrir stórsigur
Dinamo-liðsins, og er ekki fjarri
lagi að álykta að svo verði. Akra-
nesliðið slapp t.d. mjög vel frá
leiknum í Sovétríkjunum, sem
tapaðist „aðeins" 3—0. Fyrir
þann leik voru spádómar á lofti
um stórsigur Sovétmanna í leikn-
um, og mátti t.d. sjá i frásögnum
erlendra fréttastofnana, að gert
var ráð fyrir mjög miklum mun,
og jafnvel mettölu i Evrópubikar-
leik. Og eftir leikinn fjölluðu svo
sömu fréttastofnanir um leik
þennan sem eitt það óvæntasta
sem gerðist í 2. umferð Evrópu-
bikarkeppni meistaraliða, og
hrósuðu Akurnesingum mjög fyr-
ir frammistöðu sína.
I kvöld ríður á miklu að áhorf-
endur veiti Akurnesingum dyggi-
legan stuðning. I baráttuleikjum
sem þessum, þar sem keppt er við
andstæðing sem vitað er fyrir-
fram að er miklu sterkari, getur
hvatning áhorfenda haft næstum
allt að segja. Og hingað til hafa
Akurnesingar átt allra fslenzkra
liða dyggastan stuðningshóp, og
eru í röðum þeirra ekki einungis
heimamenn þar, heldur og fjöl-
margir Reykvikingar sem gerðust
áhangendur Akranesliðsins á
gullaldarárunum svonefndu og
hafa fylgt liðinu síðan. Nú þurfa
Akurnesingar á þessum
aðdáendum sínum að halda og er
vonandi að þeir bregðist ekki.
Miðað við árstfma eru aðstæður
bærilegar á Melaveilinum, sem
verður enn einu sinni vettvangur
stórviðburða f íslenzku íþróttalffi.
Leikurinn í kvöld hefst kl. 20.00
Mun Akraborg fara sérstakar
ferðir milli Akraness og Reykja-
víkur f tilefni leiksins. Farið
verður frá Akranesi kl. 18.15 og
til baka að leik loknum, kl. 22.15.
Knappferekki
UlÞnándheims
TONY Knapp — fyrrverandi
þjálfari KR og landsliðsins —
verður ekki þjálfari norska
liðsins Rosenborg næsta sum-
ar. Höfðu farið fram viðræður
milli Knapps og félagsins, en
samningar tókust ekki. Fyrst í
stað setti Knapp það skilyrði
að félagið yrði að komast í
Evrópukeppni til að hann
hefði áhuga á að taka að sér
þjálfun leikmanna liðsins, sem
er frá Þrándheimi. Hann féll
þó frá þessu skilyrði sínu, en
Rosenborg mun hafa snúist
hugur á síðustu stundu, enda
gerði Knapp hærri fjárkröfur
en sá þjálfari, sem var ráðinn.
Sá er einnig Englendingur og
heitir George Curtis. Náði
hann á árunum 1969—70 mjög
góðum árangri með Rosen-
borg. Þá gerðist hann lands-
liðsþjálfari í Noregi, en slasað-
ist illa í bflslysi fyrir tveimur
árum og hefur lengst af verið á
sjúkrahúsi síðan.
Arsþing BSI
ÁRSÞING Badmintonsambands
fslands verSur haldiS sunnudag-
inn 9. nóv. n.k. — ÞingiS verSur
haldið að Hótel Loftleiðum og
hefst kl. 10.00 f.h.
Á þinginu fer fram kjör stjórnar
sambandsins fyrir næsta ár auk
annarra aðalfundarstarfa.
Þess er vænst að fulltrúar mæti
stundvlslega.
DINAMO-LIÐIÐ BETRA EN
OLYMPÍULIÐ SOVÉTMANNA
— sögðu Matthías Hallgrímsson og Jón Alfreðsson
** YONEX
— Þótt auðvitað forðist maður þá
hugsun að leikur sé fyrirfram tapað-
ur, þá er þvl ekki að leyna, að við
teljum möguleika okkar I leiknum
við Dinamo Kiev I kvöld harla litla,
sögðu þeir Matthias Hallgrlmsson og
Jón Alfreðsson, leikmenn með Akra-
nesliðinu, I viðtali við Morgunblaðið
I gær. — Þetta eru frábærir knatt-
spyrnumenn, sem geta nánast allt
með knöttinn og liðið er eins og vel
smurð vél. Leikur þeirra er t.d. gjör-
óllkur leik sovézka landsliðsins sem
Jón Alfreðsson
keppti hér I sumar, þar sem meira
var byggt upp á einstaklingsframtaki
en liðssamvinnu, og að okkar áliti er
Dinamo-liðið betra en sovézka lands-
liðið.
Sem kunnugt er hefur liði Dinamo
Kiev oftsinnis verið stillt upp
óbreyttu sem landsliði Sovétrlkj-
anna, og hefur það náð frábærum
árangri I sllkum landsleikjum, og
hefur m.a. forystuna I sinum riðli I
Evrópubikarkeppni landsliða I knatt-
spyrnu. Á þvl er enginn vafi að is-
lenzkum knattspyrnuáhugamönnum
gefst I dag einstakt tækifæri til þess
að horfa á það bezta sem til er I
evrópskri knattspyrnu, og er ástæða
til þess að hvetja fólk til þess að láta
það ekki framhjá sér fara.
— Dinamo Kiev lék nokkuð öðru
visi I leiknum I Sovétrikjunum en við
höfum séð áður, sagði Jón Alfreðs-
son. — Þeir sóttu mikið upp kant-
ana og komu þar venjulega 3—4
saman. Siðan var reynt að splundra
vörn okkar með snöggum skipting-
um og fyrirgjöfum. Um hraða Sovét-
mannanna getum við hins vegar litið
dæmt. Þeir fengu ekki tækifæri til
þess að sýna slikt i leiknum á móti
okkur úti. Við einfaldlega lögðum
höfuðáherzluna á að verjast þeim, og
létum þá ekki teyma okkur fram á
völlinn, heldur biðum eftir þeim uppi
við vitateiginn.
— Það var oft stórkostlegt að sjá
til þeirra, sagði Matthias. — Leik-
mennirnir virtust þekkja hreyfingar
hvers annars fullkomlega, og það var
fremur fátitt að þeir reyndu að leika
á okkar menn heldur var knötturinn
alltaf gefinn. Þeir reyndu mikið til
þess að skora mörk og fengu tæki-
færi til þess I leiknum. Það voru ef til
vill ekki beztu marktækifærin sem
þeir skoruðu úr I leiknum — tveimur
af mörkunum áttum við möguleika á
að verjast.
Þegar þeir Matthias og Jón voru
að þvi spurðir hvernig Akurnesingar
myndu leika gegn Sovétmönnunum I
kvöld, hvort þeir myndu leika stifan
varnarleik eða reyna að sækja, svör-
uðu þeir þvi til, að Kirby væri ekki
búinn að leggja liðinu linurnar, en
hann myndi að sjálfsögðu ráða
mestu um hvernig leikið yrði.
— En ætli það komi ekki af sjálfu
sér, að við munum leggja höfuð-
áherzlu á vörnina, sagði Jón Alfreðs-
son. — Þeir eru það sterkir að við
eigum ekki mikla möguleika á að
sækja mikið gegn þeim.
Þeir félagar sögðu að I leiknum i
Sovétríkjunum hefðu Akurnesingar
þó átt góð marktækifæri, sem komið
hefðu eftir gott spil liðsins, þegar
knötturinn var látinn ganga frá
manni til manns, likt og gerðist er
Akurnesingarnir skoruðu mörkin sin
fjögur á móti Kýpurbúum i Evrópu-
keppninni.
— Við hefðum ef til víll getað gert
meira, sagði Matthias, — en við
vorum einfaldlega hræddir við þá og
sú hugsun efst hjá okkur að yfirgefa
aldrei varnarsvæðið um of. Þetta eru
leikmenn sem ekkert ráðrúm mega
fá, ef voðinn á ekki að vera vis.
Þeir Matthias og Jón voru sam-
mála um að malarvöllurinn myndi
ekki koma Akranesliðinu verulega til
góða I leiknum I kvöld, jafnvel þótt
Sovétmennirnir séu með öllu óvanir
að leika á slikum völlum.
— Þetta eru það leiknir knatt-
spyrnumenn. að þeir geta strax lag-
að sig að aðstæðunum, og kunna
svo mikið og geta svo mikið, sögðu
þeir félagar.
Matthfas Hallgrfmsson
Badmintonvörur
Spaðar, 6 gerðir
verð frá
kr. 1110 — 8835.
Fjaðraboltar, 4 gerðir
verð frá
kr. 2567 per Doz.
Nælonboltar,
verð kr. 770 per '/2 Doz.
Spaðapokar,
verð kr. 765.
Töskur
Verð kr. 4960.
II KLAPPARSTÍG 44
SÍMI 11783,
LÓUHÓLUM 2—6
SÍMI 75020.