Morgunblaðið - 26.11.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1975 7
L
Yfirlit Þjóð-
hagsstofnunar
í 5. hefti ritsins „Þjóð-
arbúskapur", sem Þjóð-
hagsstofnun gefur út, er
athygiisvert yfiriit um þró-
un efnahagsmála á árun-
um 1973—1974, fram-
vindu þeirra mála á árinu
1975 og horfur á árinu
1976. Þar er á hlutlausan
og fræðilegan hátt fjallað
um efnahagsvanda þjóð-
arinnar. Þær niðurstöður,
sem í yfirlitinu eru dregn-
ar fram í dagsljósið, eiga
brýnt erindi til allra hugs-
andi manna í þjóðfélag-
inu.
Orsakir örrar verðbólgu
og hækkunar framfærslu
á árinu 1975, eru þannig
skýrðar:
„Þessi hækkun stafar
þó að verulegu leyti af
gengissigi á fyrri helmingi
árs 1974, og gengislækk-
unum í ágúst 1974 og
febrúar 1975, ásamt
hinni miklu verðhækkun
innfluttra vara á árinu
1974. Loks koma svo tií
kostnaðaráhrif hinna
ógætilegu kjarasamninga
á fyrra helmingi ársins
1974. Aukning innlendrar
eftirspurnar af völdum
þessara kjarasamninga og
stóraukin fjárfesting,
bæði einkaaðila og hins
opinbera, leystu — með
útlánaaukningunni 1974
— úr læðingi sterk verð-
bólguöfl, sem gætti alveg
eflaust langt fram á árið
1975. "
Um gengislækkanir
1974 og 1975 segir:
„Endurteknar gengisfell-
ingar voru óhjákvæmileg
ar til þess að varðveita
samkeppnishæfni útflutn
ingsatvinnuveganna,
halda fullri atvinnu og
hamla gegn óhóflegri
gjaldeyriseftirspurn, án
þess að grípa til innflutn-
ingshafta. Á þær verður
hins vegar að líta sem
beggja handa járn, þar
sem þær hafa ýtt undir
verðbólguna, og glætt
vonir um verðbólgugróða,
en þar er einmitt komið
nærri rótum margra efna-
hagserfiðleika íslendinga
á síðustu árum og áratug-
um."
Batavottur
Um þróun verðlags á
síðari hluta yfirstandandi
árs segir: „Verðhækkanir
á þriðja og fjórða fjórð-
ungi þessa árseru um það
bil helmingi minni en
þær voru að meðaltali
1974—75. Þetta stafar
að verulegu leyti af þeim
hófsömu kjarasamning-
um, sem gerðir voru f júnf
1975, en þeir bentu til
þess, að verkalýðshreyf-
ingin viðurkenndi þörfina
á að samræma innlenda
eftirspurn skertum tekju-
öflunarmöguleikum þjóð-
arinnar út á við. Niður-
staða þessara samninga
var mikilsverður árangur í
jafnvægisviðleitni í efna-
hagsmálum. Júnísamn-
ingarnir og ýmsar ráðstaf-
anir stjórnvalda hafa vald-
ið mestu um það, að 10%
samdráttur þjóðarútgjalda
hefur orðið, án þess að til
nokkurs atvinnuleysis
hafi komið ..."
Þjóðarfram-
leiðsla og
viðskiptakjör
Um þetta efni segir:
„Eru nú taldar horfur á,
að þjóðarframleiðslan
minnki um 3!/2% í ár. Þá
er spáð um 16% versnun
viðskiptakjara við útlönd i
kjölfar rýrnunar viðskipta-
kjara á sl. ári um 10%.
Viðskiptakjaraáhriíin á
þessu ári svara til um
4V2% skerðingar þjóðar-
framleiðslu að raunveru-
legu verðgildi. Þannig er
spáð að raunverulegar
þjóðartekjur dragist sam-
an um 8% í heild á þessu
ári, eða sem nemur 9% á
mann."
í yfirlitinu segir enn-
fremur: „Horfur á siðasta
ársfjórðungi þessa árs og
á árinu 1976 eru dekkri
en vænzt var f ársbyrjun.
Hinn langþráði bati f al-
þjóðlegri efnahagsþróun
kann að vera f sjónmáli,
en hann er enn ekki í
hendi. Máttur samdráttar-
afla hefur verið vanmet-
inn. Eins og svo oft áður
hefur einnig láðst að meta
réttilega þann langa tfma,
sem líða hlýtur frá upp-
hafi breytinga mikilvægra
efnisþátta og þar til að
áhrif þeirra koma að fullu
fram um flókinn veg
heimsviðskipta og breyta
þróun efnahagsmála á al
þjóðvettvangi. Margar
þjóðir glfma enn við þrf-
höfða þurs verðbólgu, at-
vinnuleysis og óhag-
stæðra viðskiptakjara. .
Niðurstöður yfirlitsins
virðast vera þær fyrst og
fremst, að fylgja þurfi hóf-
samri launastefnu með
sem næst óbreyttum
kaupmætti, viðhafa
strangt aðhald í fjármál-
um og peningamálum,
ekki sízt ríkisfjármálum
(gerð og framkvæmd fjár-
laga), viðhalda fullri og
helzt vaxandi verðmæta-
sköpun f þjóðfélaginu en
draga úr þjóðareyðslu
(einkum gjaldeyriseyðslu)
og fresta um sinn fram-
kvæmdum (einkum þeim
sem ekki skila skjótri arð-
gjöf).
Fréttabréf frá Patreksfirði:
Veðurfar
Það sem af er vetri hafa sunn-
an- og suðvestanáttin séð okkur
Patreksfirðingum fyrir meir en
nógri vætu, það má segja að nær
samfelld rigningartíð hafi verið
hér um slóðir síðan i byrjun júni
sl. Heyfengur í sveitunum hér í
kring er því víðast mikið hrakinn,
þó að hann sé allmikill að vöxtum,
þar sem spretta var viðast hvar
góð. Almennt er fólk orðið dauð-
þreytt að allri þessari rigningu og
er farið að þrá frost og hreinviðri.
Aflabrögð
Afli handfærabáta var með lak-
ara móti sl. sumar enda gæftir
slæmar. Afli dragnótabáta var
misjafn, einstaka bátur aflaði
nokkuð v.el, en hjá meirhluta bát-
anna var heldur tregt. Togbátar
öfluðu aftur á móti nokkuð vel.
Flestir bátanna róa nú með línu
og er afli nú um 3—5 lestir í róðri,
en hefur komizt upp i 7 lestir
þegar bezt hefur verið.
Slysfarir
Hörmuleg slys urðu hér að þjóð-
veginum nú nýverið eins og kunn-
ugt er í fréttum, þar sem þrennt
lét lífið í bifreiðaslysum. Þörf
væri á að setja meira af endur-
skinsstaurum á beygjur og blind-
hæðir, en sökum þess hve vega-
lengdir eru miklar er það að sjálf-
sögðu mikið verk.
Skólamál
Nýr skólastjóri hefur verið ráð-
inn að Iðnskóla Patreksfjarðar
Gunnar Karl Guðjónsson, tækni-
fr. Um 40 nemendur stunda nú
nám i Iðnskólanum, sem er til
húsa eins og er i félagsheimili
staðarins. Brýn nauðsyn er að
Iðnskólinn eignist sitt eigið hús-
næði. Það er reynsla manna hér
að þeir, sem stunda iðnnám t.d. í
Rvk. komi yfirleitt ekki heim aft-
ur, en þeir sem stunda nám í
heimabyggð ílendast þar í flest-
um tilfellum.
Ef byggðamál eru höfð i huga
sjá allir hvílikt nauðsynjamál er
hér um að ræða: I barna- og
miðskóla Patreksfjarðar stunda
nám um 240 nemendur. I vetur er
í fyrsta skipti starfræktur 4.
bekkur. Landsprófsdeild hefur
verið um árabil. Skólastjóri er
Daði Ingimundarson. Tónlistar-
skóli er starfandi með um 40—50
nemendum. Skólastjóri er Ólafur
Einarsson.
Félags- og menningarmál
Mikil gróska er í starfsemi
Leikfélags Patreksfjarðar. Sl.
vetur var Erlingur Halldórsson
hér með námskeið i frjálsri tján-
ingu og framsögn. I vor var Jónas
Jónasson hér og sviðsetti 2
einþáttunga eftir sig og voru þeir
sýndir við opnun félagsheimilis-
ins. N.k. föstudag er Erlingur
Halldórsson aftur væntanlegur til
að sviðsetja „Ertu nú ánægð, kerl-
ing?“, Junior Chambers var
stofnað hér fyrir 2 árum og
starfar af miklu fjöri. Hafa þeir
gengizt fyrir mörgum félagsmála-
námskeiðum nú í haust og hafa
þau verið vel sótt.
Lionsklúbbur Patreksfjarðar
hefur nýlega afhent sjúkrahúsinu
hér augnlækningatæki, sem kost-
uðu um 1,5 millj. kr. Hjá Kvenna-
deild Slysavarnafélagsins Unnar
er mikið um að vera þessa dag-
ana, undirbúa þær nú sinn árlega
jólabasar. Búa þær allt til sjálfar
á basarinn og eru oft um 30 konur
að starfi hjá þeim við undirbún-
ing þegar flest er.
Kvenfélagið Sif var 60 ára þann
24. okt. sl. og í tilefni þess gáfu
félagskonur kr. 300 þús. til kaupa
á flygli í nýja félagsheimilið.
Kvenfélagskonur halda mánaðar-
lega skemmtifundi.
Dýralff
Nokkuð hefur borið á þvi að
vart hefur orðið við sérkennilega
fugla nú í haust í allri sunnan- og
suðaustanáttinni, sem ríkt hefur.
Fyrir nokkrum dögum varð frú
Jóhanna Kristjánsdóttir, Aðal-
stræti 39, vör við sérkennilegan
og fallegan fugl í garði sfnum,
sem af lýsingu hefur að öllum
líkindum verið „silkitoppa".
Einnig hafa nokkrar svölur sézt í
hóp.
Ekki virðist vera mikið um
mink hér, en allmikið er um refi.
T.d. hafa tvær refaskyttur á
Bildudal fengið um 40 refi það
sem af er árinu.
Páll Ágústsson.
AÐALFUNDUR Samtaka sveitar-
félaga ! Vesturlandskjördæmi verður
haldinn ! Munaðarnesi 28.—29.
nóv. n.k. Kjörnir fulltrúar á fundinum
verða 54 frá 39 sveitarfélögum á
Vesturlandi.
Ávörp flytja Halldór E Sigurðsson
landbúnaðar- og samgöngumálaráð-
herra og Páll Líndal, form Sambands
isl. sveitarfélaga Þá flytja Alexander
Stefánsson formaður samtakanna
skýrslu stjórnar, Guðjón Ingvi Stefáns-
son framkvæmdastjóri, reikninga sam-
takanna og Gunnar Guðbjartsson
skýrslu fræðsluráðs
Erindi á fundinum flytja: Njörður
Tryggvason verkfr er ræðir um fjarhit
unarstöðvar og Vesturlandsveitu;
Jóhannes Ingibjartsson byggingafr
um heilbrigðismálaáætlun; Aðalsteinn
Júliusson vitamálastjóri um uppbygg-
ingu hafna á Vesturlandi; Birgir
Guðmundsson umdæmisverkfr um
vegamál og Tómas Sveinsson
viðskiptafr. um samgöngumál
almennt; Snorri Þorsteinsson fræðslu-
stjóri ræðir um verkefni fræðsluskrif-
stofu og Valgeir Gestsson skólastjóri
skýrir könnun á skólahúsnæði á Vest-
urlandi
Á fundinum verða lagðar fram
skýrslur um samgöngumál, raforku-
mál, jarðhita og heilbrigðismál. Auk
þess niðurstöður könnunar á skólahús-
næði á Vesturlandi.
Að venju munu nefndir starfa I hin-
um ýmsu málaflokkum og verður þar
rætt um helztu framfaramál Vestur-
lands og ýmis hagsmunamál sveitar-
félaganna
Umboðssala
Hlutafélag með umboðs og heildverzlun á
Norðurlandi vantar vörur í umboðssölu. Allt
kemur til greina. Uppl. í dag og næstu daga í
síma 23776 frá kl. 9 —14.
Útsala á
vetrarhjólbörðum
5
10%
afsláttur
á negldum vetrarhjólbörðum til 1. des. n.k.
Einstakt tækifæri til að gera góð kaup.
Opið virka daga frá 8—10 laugardaga 8—8 sunnu-
daga 10—6.
Hjólbarðaviðgerðin Nýbarði,
Garðahreppi, simi 50606.
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga
í Vesturlandskjördæmi um helgina
flunfl
kynnir
>ÚÍ1A
Norska
FRISKUS
sófasettið
dúha
Síðumúla 23 og Glæsibæ.
.