Morgunblaðið - 26.11.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 1975
19
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
atvinna j
—A^a_A_* a *AI\ . 1
Rösk 19 ára stúlka
óskar eftir vinnu strax. Uppl.
í síma 72300.
Atvinna óskast
Stúlka vön afgreiðslu óskar
eftir vinnu, helzt í sérverzlun.
Margt fleira kemur þó til
greina. Uppl. í síma 75721.
Norska stúlku
sem talar góða íslenzku vant-
ar vmnu við Ijósmyndun frá
ca. 1.1. '76 Hefur 4 ára
reynslu við auglýsingar —
fréttamyndir — glugga-
skreytingar. Tilboð sendist
Mbl. merkt: Jjósmyndun —
2373".
1 7 ára skólapilt
vantar vinnu frá 16. des. —
15. jan. Uppl. í s. 31 1 43.
Kjólar — ódýrt
stuttir og síðir kjólar. Lítið á
verðið hjá okkur.
Dragtin Klapparstíg 37.
Rauðamöl
Til sölu rauðamöl heimkeyrð
eða ámokuð. Sjáum einnig
um útjöfnun, þjöppun og
jarðvegsskipti.
Kambur, Hafnarbraut 10,
sími 43922.
Miðstöðvarketill
3ja—3'/2 ferm. til sölu. Sími
50210.
Verðlistinn
Munið sérverzlunina með
ödýran fatnað, Laugarnes-
vegi 82, slmi 31 330.
Rúmgott herbergi
óskast til leigu. Skilvis
mánaðargreiðsla. Uppl. i s.
74839.
I.O.O.F. 7 = 1571 1 268'/t
= E.T. II
1.0.0.F. 9 = 1571 1268’/2
= E.T. 11.
-~ryw—<nrv
tilkynningar'
X jLj—*
Söngmenn
Mosfellssveit —- nágrenni
Söngfélagið Stefnir óskar
eftir nokkrum karlröddum hið
fyrsta. Æfingar eru þegar
hafnar. Upplýsingar á kóræf-
ingu i barnaskólanum
þriðjudagskvöld eftir k|.
20.30 og aðra daga í simum
66330 og 66406.
RMR-26-9-20-VS-MT-HT
g HELGAFELL 59751 1267
IV/V.2.
Farfugladeild
Reykjavikur
Farfugladeild
Reykjavíkur
Myndakvöld verður haldið
fimmtudaginn 27. 11. kl.
8.30 að Laufásvegi 41,
sýndar myndir úr haust-
ferðinni úr Þórsmörk.
Kristniboðssambandið
Almenn samkoma verður í
kristniboðshúsinu Laufásvegi
13 í kvöld kl. 20.30. Sigur-
steinn Hversveinsson út-
varpsvirkjam. talar. Allir
velkomnir.
Hörgshlíð 1 2
Almenn samkoma — boðun
fagnaðarerindisins í kvöld,
miðvikudag kl. 8.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld. Verið
velkomin. Fjölmennið.
Óháði söfnuðurinn
Félagsvist á fimmtudags-
kvöldið kl. 8.30. Góð
verðlaun, kaffiveitingar.
Kvenfélag Óháðasafnaðarins.
i.o.G.T.
St. Einingin nr. 14
Fundur verður » Templara-
höllinni í kvöld kl. 20.15
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra
féiaga. 2. Dagskrá í umsjá
Kristjáns Þorsteinssonar og
Valdórs Bóassonar. 3. Önnur
mál. Félagar fjölmennið og
athugið breyttan fundartíma.
Æðstitemplar verður til
viðtals í síma 13355 frá kl.
17 til 18. Við viljum starfa
með þér — Vilt þú starfa
með okkur?
_____________________Æ.T.
Öldrunarfræðafélag
íslands
Félagsfundur verður haldinn
fimmtudag 27. nóv. kl.
20.30. í föndursalnúm á
Grund (gengið inn frá Brá-
vallagötu) Fundarefni: 1.
Öldrunarlækningar í Bret-
landi og Norðurlöndum., Ár-
sæll Jónsson læknir, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir
læknir og Þór Halldórsson,
yfirlæknir, 2. Ellimálin í land-
inu, Gísli Sigurbjörnsson. 3.
Önnur mál. Félagsmenn eru
vinsamlegast beðnir um að
fjölmenna. Stjórnin.
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
> 1 i i i i i i i i i i i i i i i i 150 1 1 300
r .. 1 i iiii i i i i i i i i i i i i i i i
É i j i i i i i ii i i i i i i ■ i i i ii 1 1 460
1 111 i iiii i i t i i i i i i i i i i i 1 1 600
I; I i i i i i i i iiii i i i i i i i i i i i 1 1 750
► i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i 1 1 900
> i i i i i i i i i i i i i i 1 1 1 1 L _l 11050
Hver lína kostar kr. 1 50 Meðfylgjandi er greiðsla kr,
NAFN: ..
HEIMILI:
Sl . A t.-A A-A—A-
.. .........SfMI: ...
*/I..A...a...a—JL
~r—>•
-r-*-
*.. "Mv. v
‘Athugið
Skrifið með prentstöfum og <
* setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Árlðandi er að nafn, heimili
og slmi fylgi.
_A......A, A i i i i»in
-A A A A-
-y—v
REYKJAVÍK:
KJÖTMIÐSTÖOIN, Laugalæk 2.
SLÁTURFÉLAG SUOURLANDS
Háaleitisbraut 68,
“v~v—
T./.i. A£/S.u..................
JuÆm. rfij/A x. .íæ/jsm '
AM dCftM I ./ I '
./. s/sia ,l,Áo,gi, , •
Ai * I * I 1«.w „i/l A IA....
HAFNARFJÖRÐUR:
LJOSMYNDA-
OG GJAFAVÖRUR
fteykjavíkurvegi 64,
KJÖTBÚO SUOURVERS, Stigahlíð45—47, VERZLUN •«
HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2—6 ÞÓRÐAR Þ^ROARSONAR' <
sláturfélag suourlands Su8urgotu 36'_________
KÓPAVOGUR
ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9,
ÁSGEIRSBÚO, Hjallabrekku2'
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
______Ani IH Lm—__A——^
Áttrœður sœgarpur og aflakóngur:
Ulfar Kjartans-
son Vattarnesi
Úlfar er fæddur að Vattarnesi
við Fáskrúðsfjörð 26. nóv. 1895,
sonur hjónanna Konráðínu
Kjartansdóttur og Kjartans
Sturlusonar, en ólst upp hjá hjón-
unum Karólínu Sturludóttur og
Jóni Oddssyni, sem þar bjuggu.
Hann naut þeirrar barnafræðslu
sem fáanleg var og vandist
snemma sveitastörfum. Ungur
byrjaði hann að stunda sjó með
fósturföður sínum og gerðist
brátt hinn mesti sægarpur og
aflakló, sem víðfrægt er.
Árið 1919 kvæntist hann Maríu
Halldórsdóttur, mikilhæfri
ágætiskonu, sem gætti heimilis og
barna af mikilli prýði. María dó
árið 1939. Þeim hjónum varð 11
barna auðið, þar af eru á lífi:
Halldóra, Jón, Eygerður, Indiana,
Bjarni Sigurður, Aðalbjörn,
Steinunn, Ingibjörg, Kjartan,
Hreinn og María Ulfheiður, allt
ágætisfólk. Afkomendur Úlfars
eru í dag 88. Úlfar hefur stundað
sjó í 65 ár, lengst af sem formaður
á eigin bátum, sem alls hafa verið
3. Meðan hann saltaði aflann og
verkaði, var fiskurinn ávallt
fyrsta flokks vara og sama gilti
um hákarlinn, hann var ávallt eft-
irsóttur vegna vandaðrar með-
ferðar framleiðandans, sem ekki
má vamm sitt vita i neinu. Hann
fiskaði ætíð meira en aðrir. Ég
minnist eins dags þegar Vattar-
nesbátar voru allir á sjó. Allir
komu þeir snemma að landi með
sáralftinn afla nema Ulfar. Hann
kom að landi siðastur með fulla
báða skuti af fiski, en ofaná afla-
kös annars skutar var selur en í
hinum skutnum hnisa. Aftan í
bátinn var bundið um það bil 30
feta langt rekatré. Svipað mun
það hafa verið oftast á útgerðar-
timabili Ulfars.
Vattarnesfjara er hár malar-
kambur og þar er erfitt uppsátur,
einnig brimasamt. Ulfar aflétti
þeim erfiðleikum með þvi að út-
búa rennibraut (Slipp) við sjóhús
sitt, en mótorvél sjóhússins dreg-
ur bátinn uppí sjóhús. Úlfar er
þrekmenni, hæglátur dreng-
skaparmaður, greindur vel og hið
mesta ljúfmenni, skemmtilegur
maður sem ánægjulegt er að um-
gangast.
Það er skemmtileg tilhugsun, ef
afkomendur Ulfars hefðu allir
búið í Ulfarsborg á Vattarnesi,
stundað þar landbúnað og sjávar-
útveg, með eigin verzlun, eigin
banka og yfirleitt öllu því, sem
menningarborg tilheyrir, því af-
komendur hans hafa til að bera
alla þá hæfileika sem þarf til að
byggja upp og stjórna slíkri borg.
Og þá hefði það kannski gerst að
ættarhöfðinginn hefði i gleði
sinni skroppið á gömlu dansana
eina kvöldstund. En það getur
hann gert hvort eð er.
Ég óska þessum vini mínum
framhaldi þeirrar gæfu sem hann
hefur hlotið, enn um mörg ár.
Hann tekur á móti gestum í
samkomusal Rafveitunnar við
Elliðaár I kvöld kl. 8.
Eiríkur Bjarnason.
— Minning
Einar
Framhalcl af bls. 20
að vinar og skólabróður er
minnst.
Það var bjart yfir skólafélögun-
um úr Vélskóla Islands veturinn
1951—54 og margar ánægjulegar
hugsanir sem koma upp í hugann.
Einn af þessum félögum var Ein-
ar Magnússon og var hann jafn-
framt sá athyglisverðasti, þar
kom margt til, hann var nokkuð
eldri en við hinir og því reyndast-
ur, svo var hann rammur að afli
og mikill á velli. Við fyrstu sýn
virtist hann nokkuð hrjúfur, en
það breyttist við nánari kynni, þá
kom i ljós það sem innra blund-
aði, ljúfur maður en ákaflega
skapstór. Það var gaman að
skemmta sér með honum, hann
var oft glaður á góðri stund, kom-
ið gat það fyrir að hann yrði of
staupastór en það er ekki
óalgengt um skaprika menn.
Mjög ungur að árum beindist
hugur Einars að tækni og því sem
við kom vélum. Hóf hann því nám
í Vélsmiðjunni Hamri h.f. og lauk
því 1937, en áfram var hann að
mennta sig með því að lesa sér til
um tækni og vísindi, þaó dugði
honum þó ekki, árið 1951 hóf
hann nám við Vélskóla islands og
lauk þaðan prófi 1954 með mjög
hárri einkunn, var hann þá 39 ára
gamall.
Einar Magnússon var fæddur í
Reykjavík 2. september 1915, son-
ur hjónanna Magnúsar Halldórs-
sonar verkamanns er ættaður var
úr Austur-Skaftafellssýslu og
konu hans Ragnhildar Lýðsdóttur
ættaðrar úr Biskupstungum. Eina
systur átti Einar sem Kristín heit-
ir.
Einar var tvíkvæntur, með fyrri
konu sinni átti hann eina dóttur,
Ragnhildi. Árið 1951 kvæntist
hann í annað sinn og þá Jarðþrúði
Karlsdóttur fæddri f Reykjavik,
dóttur Karls Karlssonar sem lengi
var vatnsmaður við Reykjavíkur-
höfn og konu hans Guðrúnar
Ólafsdóttur. Milli Jarðþrúðar og
Einars ríkti mikil virðing og
traust. Þau eignuðust fjögur
börn: Magnús Ragnar f. 1952,
Rannveig f. 1954, Kristín f. 1958
og Hallfríður f. 1963. Einn son,
Karl Má, átti Jarðþrúður áður og
gekk Einar honum í föðurstað.
Eins og að framan segir lauk
Einar járniðnaðarnámi frá Vél-
smiðjunni Hamri h.f. en lengst af
hafði hann unnið í Vélsmiðjunni
Héðni h.f. Að vélstjóranámi ioknu
hóf hann aftur störf hjá Vélsmiðj-
unni Héðni h.f. þar var honum
trúað fyrir mikilli ábyrgð, hann
var sendur um gjörvallt landið
með mikil mannaforráð til að
leysa hin erfiðustu verkefni á
sviði tækni bæði f frystiiðnaði og
við uppbyggingu síldarverk-
smiðja, en einmitt á því tímabili
sem hann var harðsnúnastur til
afreka á verklega sviðinu ásamt
sinni tæknikunnáttu, byggðist
upp mikill hluti þess verksmiðju-
kerfis sem nú er i kringum land-
ið, það þurfti því marga dáð að
drýgja á því sviði bæði hvað
snerti vinnuafrek og hugvit, svo
árangur næðist.
Það var oft gaman að hlusta á
frásagnir frá þessum árum, þær
voru stórkostlegar og væri það
efni í margar íslendingasögur.
Það hlaut að koma að þvi að
Einari yrði falinn enn ábyrgða-
meiri störf, 1958 var hann ráðinn
verksmiðjustjóri til Sildarverk-
smiðja ríkisins á Seyðisfirði. Allt-
af var hann að hugsa um hvernig
hann gæti náð sem mestri nýtni
út úr því hráefni sem okkar dug-
miklu sjómenn komu með að
landi og hann skildi vel hvað það
þýddi fyrir þjóð sína að ná sem
flestum proteineiningum, einfald-
lega betri lífskjör.
Einar hafði ekki mkinn tíma
aflögu frá sinumdaglegu störfum,
þó var hann farinn að gefa sér
tíma hin seinni ár til félagsstarfa,
hann var í Lionsklúbbi Seyðis-
fjarðar, einnig starfaði hann að
velferð bæjarfélagsins og sat þar í
bæjarstjórn.
Það er margs að minnast, Einar
hafði gaman af bókum og tónlist,
var búinn að ganga i gegnum mik-
inn háskóla. Við skólabræður
hans þökkum honum samfylgdina
og vottum eiginkonu hans, börn-
um og öðru venslafólki dýpstu
samúð. Far i friði.
Kristmundur Sörlason.