Morgunblaðið - 26.11.1975, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NOVEMBER 1975
Vinarkveðja:
Bragi Olafsson
verkfræðingur
Fæddur 3. febrúar 1918
Dáinn 19. nóvember 1975
Bragi Ólafsson Iést af hjarta-
slagi aðfararnótt miðvikudagsins
19. nóv. Hann var á ferðalagi á
vegum fyrirtækis síns, Fálkans
h.f.
Bragi var fæddur í Reykjavík 3.
febrúar 1918. Foreldrar hans
voru Þrúður Guðrún Jónsdóttir
og Olafur Magnússon, kaup-
maður, stofnandi Fálkans. Hann
lauk prófi frá Verslunarskóla
íslands ári 1936 og M.S. prófi í
vélaverkfræði frá háskólanum í
Manchester 1947. Að loknu prófi
varð hann verkfræðingur á
teiknistofu Landsmiðjunnar
1948—51, yfirverkfræðingur hjá
Vélsmiðjunni Héðni h.f.
1951—53, framkvæmdastjóri
Iðnaðarmálastofnunar Islands frá
stofnun hennar 1953 til ársins
1955 er hann gerðist fram-
kvæmdastjóri Fálkans h.f. Hin
síðustu árin var hann forstjóri
þess fyrirtækis.
Á námsárum sínum í Englandi
kynntist Bragi eftirlifandi konu
sinni, Mörtu Lakner frá Tékkó-
slóvakíu, sem stundaði nám við
sama háskóla. Hún lauk prófi í
læknavísindum sama ár og hann
lauk Magister Science prófi í véla-
verkfræði. Börn þeirra eru: Páll,
viðskiptafræðingur, fæddur 1948,
kvæntur Guðbjörgu Hjörleifs-
dóttur. Þau eiga þrjá syni. Ólafur,
fæddur 1955, stundar nám í verk-
fræði við Háskóla íslands. Helga,
fædd 1960 stundar nám við Ár-
múlaskóla.
Það var á vordögum 1953 að
leiðir okkar lágu saman í starfi.
Þá hafði risið upp ný stofnun, er
vera skyldi iðnaði landsmanna
lyftistöng, Iðnaðarmálastofnun
Islands. Bragi var ráðinn fram-
kvæmdastjóri hennar.
Við sem þetta ritum teljum það
mikla gæfu að hafa fengið að
vinna með Braga í þessari stofn-
un. Þar kynntumst við framúr-
skarandi stjórnunarhæfileikum
hans. Hann reyndi ætíð að leysa
vanda hvers og eins sem til stofn-
unarinnar leitaði eins fljótt og
verða mátti. Þá þurfti stundum að
Iáta hendur standa fram úr
ermum og var okkur öllum sem
með honum unnum það einkar
ljúft, þvf við fundum að honum
var það kappsmál að hvert verk
yrði leyst fljótt og vel af hendi,
enda lét hann ekki sjálfur sitt
éftir liggja. Það var hans ein-
kenni í starfi. Við lausn hvers
máls treysti hann samstarfs-
mönnum sínum til að vinna sjálf-
stætt, eftir að höfuðlínur höfðu
verið lagðar, og jók það hverjum
og einum ábyrgðarkennd og
starfsgleði. Á þann hátt laðaði
hann fram hið besta sem með
hverjum bjó.
Bragi var heill maður. Hann
gekk að hverju starfi með elju og
atorku sem smitaði frá sér.
Smámunasemi fór f taugarnar á
honum. Hann missti aldrei sjónar
á meginatriðum hvers máls. Og
þar kom honum til hjálpar hin
óskeikula kímnigáfa hans. Allt
smátt og óþarft varð honum að
skopi og kátínu svo að hin
erfiðustu mál urðu einföld úr-
lausnar. Ef eitthvað bar á milli í
t
Fósturmóðir okkar,
KRISTÍN ÖGMUNDSDÓTTIR,
frá Görðum Vestmannaeyjum,
lézt að Hrafnistu mánudaginn 24 þ.m.
Sigurína Friðriksdóttir,
Sigurjóna Ólafsdóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
GUNNAR GUNNARSSON,
rithöfundur
er lézt 25. þessa mánaðar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 27 nóvember n.k kl 10 30.
Franzisca Gunnarsson
Gunnar Gunnarsson
Úlfur Gunnarsson.
t
Hugheilar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúð
og hlýjan vinarhug við fráfall
ÞÓRHALLS JÓNSSONAR,
Hjallabraut 4 Hf.
Isllna Lára Kristjánsdóttir.
Ólafur Herbert Skagvik.
Sigrún Jónsdóttir. Jóhann Jónsson.
t
Þakka innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
mannsins mins
STEFÁNS KRISTJÁNSSONAR,
Melgerði 1,
Reykjavlk.
Kristin Bjarnadóttir.
t
Hjartanlegt þakklæti til allra er auðsýndu mér mikla samúð og kærleika
í veikindum og við andlát, elskulegs eiginmanns míns
ÁSMUNDAR EIRfKSSONAR,
trúboða
Bænir ykkar og vinsemd, hafa verið mér styrkur á erfiðum dögum
Drottinn allsherjar launi ykkur.
Þórhildur Jóhannesdóttir.
t
Við þökkum auðsýnda samúð
við fráfall
JÓHÖNNU VALGERÐAR
KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Stóru-Breiðuvik.
Andrés Sigfússon
Elisabet Andrésdóttir.
Friðrik Friðriksson
Björg Andrésdóttir
Lárus Karlsson
Sigfús Andrésson
Barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Einar Magnússon
verksmiðjustjóri
starfi voru málin alltaf rædd og
vinarböndin milli hans og okkar,
samstarfsmanna hans, slitnuðu
aldrei vegna þess að hann var sá
maður sem geymdi ekki smáerjur
óuppgerðar til næsta dags. Hann
lét hlutina heita sínum nöfnum
en að lokum voru vandamálin
leyst með léttum hlátri og góðum
sögum.
Bragi var prýðilegum gáfum
gæddur og fær f sínu starfi. Hann
var ekki mikið fyrir að sýnast og
gerði jafnvel í því að búast sem
maður er lítið kynni fyrir sér. En
þeim mun meiri varð undrun
þeirra sem hann átti viðskipti við
er hann opnaði munninn. Við sem
með honum unnum urðum oft
vitni að slíku og fannst okkur þá
sem við værum vitni að goð-
sögunni um íslenska bóndann
sem reynist jafningi konunga.
Bragi var víðlesinn og hvar sem
hann kom fram á mannfundum
eða í kunningjahópi hafði hann
eitthvað það fram að færa sem
vakti óskerta athygli hvort sem
það voru vísindi, stjórnmál eða
gamanmál. Hann var hrókur alls
fagnaðar hvar sem hann var.
Hann gerði alla hluti skemmti-
lega. Hann var enginn volari. Allt
umstang og víl var honum ógeð-
fellt. Hans létti hlátur og ljúfa
geð verður vinum hans minnis-
stætt.
Eftir að vegir okkar skildust á
vinnustað héldum við alltaf
hópinn. Og þá megum við ekki
gleyma Mörtu, hinni ágætu konu
hans og börnum þeirra. Við
urðum heimilisvinir þessarar fjöl-
skyldu. Bragi tók við starfi sem
framkvæmdastjóri og síðar for-
stjóri Fálkans, þvf fyrirtæki sem
faðir hans hafði stofnað. Hann
efldi það og færði út kvíarnar og
þjónusta við viðskiptavini var sér-
stök vegna kunnáttu hans og
hæfiieika. Sem dæmi má nefna,
Framhald á bls. 29
F. 2. september 1915
D. 19. nóvember 1975.
EINAR Magnússon, verksmiðju-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins á
Seyðisfirði, andaðist á Land-
spítalanum í Reykjavík hinn 19.
þ.m. eftir erfiða sjúkdómslegu.
Með Einari er genginn stórbrot-
inn og litríkur persónuleiki, sem
seint mun gleymast þeim, er hon-
um kynntust.
Einar var rúmlega sextugur er
hann lést, fæddur í Reykjavík 2.
sept. 1915, sonur Magnúsar
Halldórssonar verkamanns og
konu hans, Ragnhildar Lýðsdótt-
ur. Hér ólst hann upp og gekk í
skóla. Hann lauk prófi í vélsmíði
1937 frá Vélsmiðjunni Hamri.
Síðar gekk hann í Vélskóla
Islands og lauk þaðan prófi með
ágætiseinkunn árið 1954.
Af afloknu iðnprófi vann Einar
lengst af hjá Vélsmiðjunni Héðni
sem vélsmiður og verkstjóri við
uppsetningu frystivéla víðsvegar
um land. Einnig vann hann við
uppbyggingu síldarverksmiðj-
unnar Rauðku og verksmiðjunnar
S.R. 46 í Siglufirði, svo og verk-
smiðjanna f Ingólfsfirði, Vopna-
firði og víðar.
Árið 1957 fór Einar til Seyðis-
fjarðar á vegum Vélsmiðjunnar
Héðins til að sjá um breytingar á
verksmiöju Síldarbræðslunnar
j/f. Arið eftir fluttist hann til
Seyðisfjarðar og gerðist verk-
smiðju- og framkvæmdastjóri
Síldarbræðslunnar h/f. Arið 1962
keyptu Síldarverksmiðjur
rfkisins Síldarbræðsluna h/f og
hófust handa um byggingu nýrrar
verksmiðju á Seyðisfirði. Var
Einar ráðinn verksmiðjustjóri
þeirrar verksmiðju og gegndi því
starfi til dauðadags. Mikið starf
var við uppbyggingu hinnar nýju
verksmiðju, og má heita, að
stöðugt hafi verið unnið að upp-
byggingu hennar til ársins 1967.
Þær framkvæmdir hvfldu mjög á
Einari og má með sanni segja, að
hann hafi lagt nótt við dag til að
koma þeim áfram, en jafnframt
var unnið að síldarbræðslu hvert
sumar á þessum árum. Arið 1966
voru unnin í verksmiðjunni yfir
100.000 tonn síldar og mun það
vera algjört met f einni verk-
smiðju hérlendis.
Þrautseigja Einars og kunnátta
í meðferð véla og tækja auk glögg-
skyggni á vinnslu og meðferð
hráefnis gerði það að verkum, að
verksmiðjan skilaði eftir atvikum
góðri vöru, þrátt fyrir mengað
hráefni.
Eftir að loðna var tekin til
vinnslu 1973 komu hæfileikar
Einars einna gleggst f ljós, er
þurfti að gangsetja verksmiðjuna
með litlum fyrirvara, en þá hafði
verksmiðjan ekki verið hreyfð til
vinnzlu frá 1967 nema við vinnslu
beina og fiskúrgangs.
Vegna fjárhagsörðugleika
Síldarverksmiðja ríkisins á árun-
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og útför.
KETILS PÉTURSSONAR,
skipstjóra
Sérstakar þakkir færum við Gauta Arnþórssyni, yfirlækni og öðru
starfsfólki, handlæknisdeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
Klara Guðmundsdóttir,
Kristinn Ketilsson,
Guðmundur Sigurbjörnsson, Bjarney Sigvaldadóttir,
Einar Már Guðmundsson
Vegna jarðarfarar
Braga Ólafssonar, forstjóra,
verða verzlanir og skrifstofur lokaðar í dag
miðvikudaginn 26. nóv. frá kl. 1 2.
FÁLKINN
um 1967—1973 eftir að síldveiðar
brugðust með öllu fyrir austan,
var viðhald verksmiðjunnar f lág-
marki, er hún var sett í gang f
ársbyrjun 1973 til móttöku loðnu.
Þrátt fyrir vetrarhörku, margs-
konar bilanir og óvant starfslið,
tókst Einari að láta verksmiðjuna
skila góðri afkomu með hárri
nýtingu loðnunnar og góðum
afurðum.
Einar var einn þeirra manna,
sem því miður eru orðnir of fáir í
okkar góða landi, sem krafðist
ætíð meira af sjálfum sér en öðr-
um. Þess vegna var hann stund-
um misskilinn af samstarfsmönn-
um sínum og undirmönnum og
gat ekki þolað menn í vinnu, sem
eingöngu hugsuðu um kaup og
peninga, en ekki um þau störf,
sem þeim var trúað fyrir.
Einar Magnússon var mikill að
vallarsýn, herðabreiður, aðsóps-
mikill, og hraustmenni. Með
óbilandi kjarki, verkhyggni og út-
sjónarsemi lyfti hann mörgu
grettistaki á starfsævi sinni, enda
orðinn þjóðsagnapersóna.
Þrátt fyrir miklar annir gaf
Einar sér tíma til lestrar góðra
bóka og var vel að sér í íslenzkum
fræðum að fornu og nýju, enda
stálminnugur.
Við fráfall Einars Magnússonar
hafa Síldarverksmiðjur ríkisins
misst góðan og tryggan starfs-
mann og verður það skarð vand-
fyllt, er orðið hefur við fráfall
hans.
— 000 —
Einar Magnússon var tvíkvænt-
ur. Hann kvæntist Ingibjörgu
Steinsdóttur leikkonu árið 1941
og áttu þau saman eina dóttur,
Ragnhildi, skólastjóra, sem gift er
Valdemar Hjartarsyni, bústjóra
við Mjólkárvirkjun. Þau Einar og
Ingibjörg skildu.
Síðari kona Einars 1951 er Jar-
þrúður Karlsdóttir og áttu þau
saman fjögur mannvænleg börn:
Magnús f. 1952, nemandi í Tón-
listarskólanum, Rannveig, f. 1954,
nemandi í Menntaskólanum við
Tjörriina, Kristín, f. 1958 og
Hallfríður, f. 1963 og eru þau öll
enn í foreldrahúsum. Kjörsonur
Einars, sonur Jarðþrúðar, er Karl
Már, f. 1944, sjómaður f
Reykjavik, kvæntur Svanhvfti
Þorsteinsdóttur.
Eftirlifandi eiginkonu Einars
og börnum votta ég mfna inni-
legustu samúð.
Jón Reynir Magnússon
Minning, hvað er nú það? Jú,
hún er eitt af þvf nauðsynlegasta
sem til er, minningin er svo stór
hluti af kærleikanum að það verð-
ur ekki að skilið. Það er einmitt
minningin sem er ákvörðun þess
Framhald á bls. 19
t
Þökkum auðsýnda samúð við
fráfall
ÞÓRHILDAR JÓNSDÓTTUR.
Stefán Árnason,
Hrefna Magnúsdóttir,
Jónas Valdimarsson.