Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 21

Morgunblaðið - 26.11.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. NOVEMBER 1975 21 Jón Þorgilsson: Kaupfélagsstjórinn, félagsheimilið og oddvitinn I MORGUNBLAÐINU birtist þann 15. þ.m. fréttatilkynning um samskipti sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu og félags- heimilisins að Hvoli og stjórnsemi kaupfélagsstjórans í Hvolsvelli á félagsheimilinu. Oddviti Hvolhrepps virðist ekki hafa verið alveg ánægður með þessa frétt, því í Morgunblaðinu þann 20. nóv. er birt „leiðrétting" frá honum. Þótt grein oddvitans sé ekki löng, er þar ýmislegt, sem þarf nánari athugunar við. Áður er þó rétt að taka fram, að frétt- iha þann 15. nóv. sendi ég sem fréttaritari blaðsins, af þeirri ástæðu einni, að mér þótti frammistaða forráðamanna félagsheimilisins að Hvoli, i þessu máli, öll vera með þeim hætti, að um fréttaefni væri að ræða. Þótt ég eigi aðild að stjórn sjálfstæðis- félaganna, er fréttagreinin frá mér einum, eins og hún raunar sannar sjálf, ef hún er skoðuð og sjálfstæðisfélögunum því með öllu óviðkomandi. Um þetta virð- ist gæta misskilnings í grein odd- vitans og því rétt að leiðrétta það, þótt þetta skipti ekki miklu máli. I upphafi greinar sinnar segir oddvitinn að í grein minni gæti svo „gróflegrar mistúlkunnar" að hann fái ekki orða bundist, og ætli nú heldur betur að upplýsa sannleikann í málinu. Oddvitinn segir: „Hið rétta í því máli er, að um miðjan október óskaði Norr- æna félagið í Rangárvallasýslu eftir að fá að halda aðalfund sinn í félagsheimilinu þann 14. nóv.“ Vel hefði nú mátt geta þess að formaður Norræna félagsins í Rang. er Ólafur Ólafsson, kaup- félagsstjóri og varaþingmaður. Það má vel vera að þessi fundur hafi verið ákveðinn eins og odd- vitinn segir, um það veit ég ekk- ert, en ekki var fundurinn boðað- ur fyrr en þremur dögum áður en hann átti að vera, og þá með símtölum við félagsmenn. Hitt er aðalatriði þessa máls, að þessi fundur átti aldrei að vera i aðal- samkomusal félagsheimilisins, heldur í hliðarsal, en þetta nefnir oddvitinn ekki. Mistök húsvarðar verða því þau, að hann gefur sjálfstæðis- félögunum loforð fyrir afnotum af húsinu, þar með nefndum hliðarsal, á sama tíma og fundur- inn átti að vera. Þegar þessi mis- tök verða Ijós, tilkynnir húsvörð- urinn fulltrúa sjálfstæðis- félaganna, að ef fundurinn fáist ekki færður til, þá verði svo að vera, og sjálfstæðisfélögin verði að láta sér nægja afnot af húsinu með þessum takmörkunum. Þetta gerist á þriðjudegi, en samkoman átti að vera næsta föstudagskvöld. Þessari ákvörðun húsvarðar ætluðu sjálfstæðisfélögin að una úr þvi sem komið var, enda stutt- ur tími til stefnu að breyta þessu og búið að auglýsa samkomuna m.a. í Morgunblaðinu. Það er því rangt hjá oddvitanum, að mistök- in hafi komið í ljós, þegar báðir aðilar fari að auglýsa sama dag. Oddvitinn segir að endanleg af- greiðsla málsins hafi dregist vegna þess að hann og húsvörður- inn hafi verið að leita að viðun- andi lausn á því. Þessi lausn mun hafa verið fólgin í því að fá Ólaf kaupfélagsstjóra til að færa fund sinn i fundarsal á efri hæð i félagsheimilinu, og var sá salur með öllu fullnægjandi fyrir Ólaf, en á hans fund mun hafa komið 21 maður. Segja má að það hafi ekki verið vitað fyrir, hvað marg- ir kæmu á fundinn, en starfsemi Norræna félagsins í Rang. hefur ekki verið með þeim hætti að búast mætti við fjölmenni, enda hefur félagið lokið hlutverki sínu í núverandi mynd að mestu leyti fyrir löngu síðan, eins og síðar verður að vikið. Ólafur ætlaði líka að láta sér nægja hliðarsal, eins og áður er sagt. Eftir að oddvitinn, húsvörður- inn og kaupfélagsstjórinn höfðu þæft þetta mál með sér í tvo sólar- hringa, tilkynntu þeir sjálfstæðis- félögunum niðurstöðu sína á fimmtudagskvöld, og var hún eins og fram kom i fréttagrein minni sú, að Ólafur kaupfélagsstjóri þverneitaði að gefa nokkuð eftir af þeim „rétti“, sem hann teldi sig eiga til fundarhalds í félags- heimilinu og auk þess aftæki hann með öllu, að sjálfstæðis- félögin fengju þar inni á sama tima. Þetta var megin inntak fréttagreinar minnar og þetta er sannleikurinn í málinu. Svo sjálfsagt þótti oddvitanum að kaupfélagsstjórinn réði þessu, að hann, samkvæmt eigin sögn, taldi með öllu óþarft að tala við samstarfsmenn sína í hrepps- nefndinni um þetta mál, og kem- ur þetta fram í grein oddvitans næst á eftir tali hans um fjar- stýringu og fór vel á því. Ekki virðist auðvelt að koma auga á hvað kosningafyrirkomu- lag við hreppsnefndarkosningar f Hvolshreppi kemur því máli við, sem hér er tii umræðu. Oddvitinn segir: „Til hreppsnefndar Hvol- hrepps hefur verið kosið um menn en ekki pólitiska flokka og þar af leiðandi ákvarðanir hreppsnefndar, varðandi rekstur félagsheimilisins svo og um önn- ur hreppsmál, aldrei teknar eftir pólitískum línum eða þrýstingi frá einhverjum allsherjargoð- um.“ Þetta ásamt tali oddvitans um fjarstýringu minnir þó óneitan- lega á það, að ekki eru mörg ár síðan að allir hreppsnefndarmenn í Hvolhreppi, þar með oddvitinn sjálfur, voru starfsmenn Ólafs kaupfélagsstjóra í kaupfélaginu. Kaupfélagsstjórinn lætur ekki við það sitja að stýra kaupfélagi sínu ,og félagsheimilinu að Hvoli. Athafnasemi hans kemur víðar fram. I næsta húsi við kaupfélagið er sýsluskrifstofa Rangárvallasýslu til húsa. Húsráðandi þar hefur um árabil verið stjórnarformaður í kaupfélaginu hans Ólafs. Meðal verkefna sýr' askrif- stofunnar er útborgun trygginga- bóta frá almannatryggingum. Eins og eðlilegt má teljast gengur misvel að koma öllum trygginga- bótum í hendur réttra eigenda. Þegar á þessu hafa verið teljandi erfiðleikar að dómi sýsluskrif- stofunnar, hefur fundist snjallt ráð til úrbóta. Bæturnar eru bara „lagðar inn“ í kaupfélaginu Hvort kaupfélagsstjórinn hefur sjálfur „kvittað" fyrir móttöku bótanna eða látið einhvern undir- manna sinna gera það skiptir ekki megin máli í þessu sam- bandi. Sagt er að þetta sér gert til umhreinsunar í bókhaldi sýslu- skrifstofunnar, og að sjálfsögðu besta ráðið til þess. Annað verkefni sýsluskrif- stofunnar er reikningshald og varsla á fjármunum sýslusjóðsins. Helsta verkefni hans og það lang fyrirferðarmesta í reikningum sjóðsins eru styrkveitingar til ýmiss konar félaga og stofnana. Þegar styrkþegarnir koma á sýsluskrifstofuna til að vitja um styrki sína, er svarið gjarnan það að búið sé að „leggja styrkinn inn“ hjá kaupfélaginu. Ekki vejt ég hvort kaupfélagsstjórinn „kvittar“ sjálfur fyrir þessum styrkveitingum. Um viðskipti sýsluskrifstofunnar við það tryggingaumboð sem kaupfélagið rekur, ætla ég ekki að ræða að sinni. Einn af undirmönnum kaup- félagsstjórans hefur með höndum nokkurs konar fram- kvæmdastjórn fyrir vörubifreiða- stjórafélagið i Rangárvallasýslu, þar á meðal innheimtu á reikning- um fyrir einstaka bifreiðastjóra. Þegar bifreiðastjórarnir ætla svo að sækja andvirði reikninga sinna til framkvæmdastjórans, þá er stundum svona óviljandi búið að „leggja það inn“ í kaupfélaginu. Eins og áður er komið fram er Ólafur Ólafsson, kaupfélagsstjóri, formaður Norræna félagsins í Rangárvallasýslu. Það var síðari hluta vetrar árið 1973, sem hann fékk allt í einu ákafa löngun til að stofna það félag. Ekki voru liðnar nema nokkrar vikur frá stofnun félagsins þar til Ólafur var farinn til Norðurlanda með fríðu föru- neyti á afsláttarfagjöldum félags- ins. Undarleg tilviljun. Ég vil taka fram til að fyrir- byggja hugsanlegan misskilning, að þótt Norræna félagið komi hér við sögu, er' þar nánast um til- viljun að ræða, enda er það vafa- laust hinn merkasti félagsskapur. Einhverjum kann nú að finnast að þetta sé orðið nógu langt mál, og of mikið gert úr íitlu tilefni, jafnvel smámistökum, sem átt hafi sér stað. Fyrir allmörgum árum var frá því skýrt i fjölmiðlum að einn kaupfélagsstjóri væri svo stjórn- samur, að þegar viðskiptamenn kaupfélagsins óskuðu eftir að fá eitthvað af þeim peningum, sem þeir áttu, inni i kaupfélaginu, krefðist hann þess að þeir gerðu fyrst grein fyrir hvað þeir ætluðu að gera við peningana. Fyrir nokkrum árum var einnig skýrt frá því að annar kaupfélags- stjóri hefði brugðist hinn versti við, þegar ljóst varð að eitthvað af starfsfólki kaupfélagsins hafði aðrar skoðanir en honum voru þóknanlegar. Kaupfélagsstjórinn i Hvolsvelli fékk að njóta varaþingmennsku sinnar með setu á Alþingi á s.l. vori. Þar flutti hann tvær ræður, svo sem frægt varð, þar sem hann fjallaði aðallega um stjórnsemi sína og starfsbræðra sinna. Báðar þessar ræður hafa komið út i Alþingistíðindum og þær ættu sem allra flestir að lesa. Mér finnst að mál það, sem varð upphaf þessara blaðaskrifa, beri ansi sterkan keim af þessu öllu. Að þrátt fyrir alla svardaga oddvita Hvolhrepps um, að hann þekki enga slíka, séu enn til „alls- herjargoðar" sem vilja hafa öll ráð manna í hendi sér. Það vill svo til að um áratugaskeið hefur kaupfélagsstjórinn í Hvolsvelli, nánustu samstarfsmenn og sálu- félagar hans og fyrirrennarar þeirra, vart mátt lýsa harmi sínum yfir því, að þeir einir skuli ekki hafa ráðið yfir öllum at- vinnutækjum og öllu fjármagni héraðsbúa. Um þetta hafa þeir skrifað fjölda blaðagreina og haldið fleiri ræður en tölu verður á komið. Ég var aö kaupa jðtaÍHþtíbina SUMIR JOLASVEINAR DREKKA EGILS PILSNER............. OG AÐRIR JOLASVEINAR DREKKA EGILS MALTÖL................... EN ALLIR JOLASVEINAR DREKKA AUDVITAO EGILS APPELSÍN ” #leöileg jól meö Sjiis ctrpkkjum W* H.F ÖLGEROIN EGILL SKALLAGRÍMSSON REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.