Morgunblaðið - 12.12.1975, Side 1

Morgunblaðið - 12.12.1975, Side 1
56 SIÐUR 285 tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Erum enn ákveðnari að vinna þetta stríð” -viðbrögð varðskipsmanna í samtali við Morgunblaðið á Loðmundarfirði Lloydsman siglir á fullri ferð inn í bakborðssfðu varðskipsins Þórs í gærdag. Myndin er af sfðari ásiglingu Lloydsman á Þór. — Ljósm.: Friðgeir Olgeirsson. Leki að vélarrúmi Þórs og 18 m af þyrluþilfari í rúst D --------------------------□ Sjá einnig myndir og frásögn á miðopnu og baksfðu □ -------------------------□ Frá blaðamönnum Morgunblaðs- ins, Sigtrvggi Sigtryggssyni og Þórleifi Ólafssyni. ÞAÐ var allt f fullum gangi um borð í varðskip- unum Þór og Tý um 8- leytið í gærkvöldi þegar blaðamenn Morgunblaðs- ins komu á vettvang þar sem varðskipin lágu hlið við hlið innarlega í Loð- mundarfirði. Varðskips- menn á Þór unnu af fullum krafti við bráðabirgðavið- gerðir vegna þeirra skemmda sem dráttarbát- arnir Lloydsman og Star Aquarius höfðu unnið á varðskipinu fyrr um daginn. Týr lá aðeins nokkra metra frá Þór og lýsti skipið upp svo hægara væri að vinna við við- gerðir. Þegar Morgunblaðsmenn komu upp að Þór blöstu við mjög miklar skemmdir á bakborðshlið varð- skipsins. Þyrluþilfar lá niðri á um 18 metra löngum kafla og 24 stoðir á þilfarinu höfðu beyglazt, stór bátagálgi var mikið skemmd- ur, dæld var á bakborðsskorsteini og rafsuða hafði sprungið á plötu- samskeytum rétt ofan við sjólínu. Sjór hafði runnið inn í vélar- rúmið um þá glufu þegar skipið valt á hafi úti, en dælur skipsins höfðu vel undan að dæla úr vélar- rúmi. ! gærkvöldi var fyrst og fremst unnið að því að þétta gatið á bakborðshlið. Blaðamenn Morgunblaðsins fengu ekki leyfi til þess að fara um borð í Þór, aðeins fékkst leyfi til að mynda skemmdirnar utan frá og sögðu varðskipsmenn að þetta væri skipun frá æðri stöðum. Það reyndist því ekki unnt að taka viðtöl við varðskipsmenn eins og ætlunin var, en stutt samtal fékkst við 2. stýrimann á Þór, Hermann Sigurðsson, í gegnum talstöð. ,,Ef þessir menn eru ekki eitthvað skrýtnir, hljóta þeir að hafa haft fyrirmæli frá æðri stöð- um um þessar aðgerðir," sagði Hermann í upphafi samtalsins. Hann sagði að Þór hefði verið á leið út frá Seyðisfirði skömmu eftir hádegi I gær þegar varð- skipsmenn urðu varir við dráttar- bátana rétt utan við fjarðarkjaft- inn. Lloydsman og Star Aquarius voru norðanmegin f fjarðarmynn- inu, en Star Polaris súnnan megin. Nokkur aðdragandi varð að ásiglingunum. „Lloydsman kom að okkur á fullri ferð og lenti á þyrluþil- farinu bakborðsmegin,“ sagði Hermann í samtalinu, „varðskipið kastaðist til og hallaðist að minnsta kosti 30—40 gráður á stjórnborða. Maður sem var á stjórnpalli féll við þegar Lloyds- man sigldi á okkur i seinna skipt- Framhald á bls. 31. Fjaðrafok á Nato-fundi vegna ofbeldis Breta á Islandsmiðum Brtíssel 11. des. AP, Reuler og flelri. SlÐUSTU atburðir í fisk- veiðideilu íslendinga og Breta settu sterklega svip sinn á ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins, sem nú stendur yfir í Briissel. Tveir ráðherrar auk Einars gerðu deiluna að umtalsefni f ræðum sfnum á fundinum. James Callaghan, utanrfkisráð- herra Breta, sagði að brezka stjórnin væri reiðu- búin til að hefja viðræður við tslendinga, en að skil- yrðið fyrir því að freigát- urnar á íslandsmiðum yrðu kallaðar heim væri það, að íslenzk varðskip létu brezka togara óáreitta. Hans Dietrich Genscher, utan- ríkisráðherra Vestur-Þýzkalands, hvatti Breta til að sýna eftirgjöf f deilunni við tslendinga. Sagði hann að Vestur-Þjóðverjar hefðu veitt Islendingum eftirgjöf vegna hins mikilvæga hlutverks Islands í samstarfi Atlantshafsbandalags- ríkjanna. Hann beindi sérstak- lega orðum sínum til Callaghans og bað hann um að taka sem fyrst upp viðræður við tslendinga. Danski utanríkisráðherrann, K.B. Andersen, minntist ekki á fiskveiðideiluna í sinni ræðu. Einar Ágústsson, utanríkisráð- herra, hafði ekki fengið nema óljósar upplýsingar af atburðun- um úti af Seyðisfirði í gær, þegar hann talaði strax eftir hádegið. Hann minntist þvf ekki á þá í ræðunni, en gerði deiluna við Breta þó að aðalumtalsefni. Hann minnti á, að umtalsverð andstaða væri meðal Islendinga gegn aðild Islands að Atlantshafsbandalag- inu, Nato. Islendingum er sagt." sagði utanríkisráðherra. „að hernaðar- legt mikilvægi Islands sé nú meira en nokkru sinni fyrr.“ „En herra forseti," hélt hann áfrant. „herskipin, sem nú eru við Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.