Morgunblaðið - 12.12.1975, Qupperneq 1
56 SIÐUR
285 tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Erum enn ákveðnari
að vinna þetta stríð”
-viðbrögð varðskipsmanna í samtali við Morgunblaðið á Loðmundarfirði
Lloydsman siglir á fullri ferð inn í bakborðssfðu varðskipsins Þórs í gærdag. Myndin er af sfðari ásiglingu
Lloydsman á Þór. — Ljósm.: Friðgeir Olgeirsson.
Leki að vélarrúmi Þórs og 18 m af þyrluþilfari í rúst
D --------------------------□
Sjá einnig myndir
og frásögn á
miðopnu og baksfðu
□ -------------------------□
Frá blaðamönnum Morgunblaðs-
ins, Sigtrvggi Sigtryggssyni og
Þórleifi Ólafssyni.
ÞAÐ var allt f fullum
gangi um borð í varðskip-
unum Þór og Tý um 8-
leytið í gærkvöldi þegar
blaðamenn Morgunblaðs-
ins komu á vettvang þar
sem varðskipin lágu hlið
við hlið innarlega í Loð-
mundarfirði. Varðskips-
menn á Þór unnu af fullum
krafti við bráðabirgðavið-
gerðir vegna þeirra
skemmda sem dráttarbát-
arnir Lloydsman og Star
Aquarius höfðu unnið á
varðskipinu fyrr um
daginn. Týr lá aðeins
nokkra metra frá Þór og
lýsti skipið upp svo hægara
væri að vinna við við-
gerðir.
Þegar Morgunblaðsmenn komu
upp að Þór blöstu við mjög miklar
skemmdir á bakborðshlið varð-
skipsins. Þyrluþilfar lá niðri á um
18 metra löngum kafla og 24
stoðir á þilfarinu höfðu beyglazt,
stór bátagálgi var mikið skemmd-
ur, dæld var á bakborðsskorsteini
og rafsuða hafði sprungið á plötu-
samskeytum rétt ofan við sjólínu.
Sjór hafði runnið inn í vélar-
rúmið um þá glufu þegar skipið
valt á hafi úti, en dælur skipsins
höfðu vel undan að dæla úr vélar-
rúmi. ! gærkvöldi var fyrst og
fremst unnið að því að þétta gatið
á bakborðshlið. Blaðamenn
Morgunblaðsins fengu ekki leyfi
til þess að fara um borð í Þór,
aðeins fékkst leyfi til að mynda
skemmdirnar utan frá og sögðu
varðskipsmenn að þetta væri
skipun frá æðri stöðum. Það
reyndist því ekki unnt að taka
viðtöl við varðskipsmenn eins og
ætlunin var, en stutt samtal
fékkst við 2. stýrimann á Þór,
Hermann Sigurðsson, í gegnum
talstöð.
,,Ef þessir menn eru ekki
eitthvað skrýtnir, hljóta þeir að
hafa haft fyrirmæli frá æðri stöð-
um um þessar aðgerðir," sagði
Hermann í upphafi samtalsins.
Hann sagði að Þór hefði verið á
leið út frá Seyðisfirði skömmu
eftir hádegi I gær þegar varð-
skipsmenn urðu varir við dráttar-
bátana rétt utan við fjarðarkjaft-
inn. Lloydsman og Star Aquarius
voru norðanmegin f fjarðarmynn-
inu, en Star Polaris súnnan
megin. Nokkur aðdragandi varð
að ásiglingunum.
„Lloydsman kom að okkur á
fullri ferð og lenti á þyrluþil-
farinu bakborðsmegin,“ sagði
Hermann í samtalinu, „varðskipið
kastaðist til og hallaðist að
minnsta kosti 30—40 gráður á
stjórnborða. Maður sem var á
stjórnpalli féll við þegar Lloyds-
man sigldi á okkur i seinna skipt-
Framhald á bls. 31.
Fjaðrafok á Nato-fundi vegna
ofbeldis Breta á Islandsmiðum
Brtíssel 11. des. AP, Reuler og flelri.
SlÐUSTU atburðir í fisk-
veiðideilu íslendinga og
Breta settu sterklega svip
sinn á ráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins,
sem nú stendur yfir í
Briissel. Tveir ráðherrar
auk Einars gerðu deiluna
að umtalsefni f ræðum
sfnum á fundinum. James
Callaghan, utanrfkisráð-
herra Breta, sagði að
brezka stjórnin væri reiðu-
búin til að hefja viðræður
við tslendinga, en að skil-
yrðið fyrir því að freigát-
urnar á íslandsmiðum
yrðu kallaðar heim væri
það, að íslenzk varðskip
létu brezka togara óáreitta.
Hans Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýzkalands,
hvatti Breta til að sýna eftirgjöf f
deilunni við tslendinga. Sagði
hann að Vestur-Þjóðverjar hefðu
veitt Islendingum eftirgjöf vegna
hins mikilvæga hlutverks Islands
í samstarfi Atlantshafsbandalags-
ríkjanna. Hann beindi sérstak-
lega orðum sínum til Callaghans
og bað hann um að taka sem fyrst
upp viðræður við tslendinga.
Danski utanríkisráðherrann,
K.B. Andersen, minntist ekki á
fiskveiðideiluna í sinni ræðu.
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra, hafði ekki fengið nema
óljósar upplýsingar af atburðun-
um úti af Seyðisfirði í gær, þegar
hann talaði strax eftir hádegið.
Hann minntist þvf ekki á þá í
ræðunni, en gerði deiluna við
Breta þó að aðalumtalsefni. Hann
minnti á, að umtalsverð andstaða
væri meðal Islendinga gegn aðild
Islands að Atlantshafsbandalag-
inu, Nato.
Islendingum er sagt." sagði
utanríkisráðherra. „að hernaðar-
legt mikilvægi Islands sé nú
meira en nokkru sinni fyrr.“ „En
herra forseti," hélt hann áfrant.
„herskipin, sem nú eru við
Framhald á bls. 18