Morgunblaðið - 12.12.1975, Síða 17

Morgunblaðið - 12.12.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 17 3 Bardaganum lauk síðar, er Þór sneri við á leið til lands.“ • SKEMMDIR M.A. A REYKHÁF ÞÓRS Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, sagði í við- tali við Morgunblaðið í gærkveldi að hann hefði gefið Helga Hall- varðssyni, eftir að einu sinni hefði verið skotið, fyrirskipun um að freista þess að draga sig í hlé og um leið og varðskipið gerði það, héldu dráttarbátarnir út. Skemmdir á varðskipinu eru aðal- lega bakborðsmegin á bátaþilfari og ná þær alveg upp á reykháf skipsins vegna þess hve byrðing- ur Lloydsman er hár að framan. Engar hættulegar skemmdir eru á skipinu. Pétur sagði að Þór hefði átt að koma inn í næstu viku, þar sem ferð skipsins hefði verið orðin það löng og hann kvað ekki nauðsyn að gera við allar skemmdirnar fullkomlega, þar sem slíkt tæki og langan tíma. Sem dæmi nefndi hann að Ægir væri enn með skellur, sem honum áskotnuðust í sfðasta þorskastríði. arbátana þrjá rúmlega eina sjó- mílu frá landi og var að því er virtist taug á milli tveggja þeirra, Lloydsman og Star Aquarius. Þegar varðskipið kom nær, var taug þessari sleppt og tveir drátt- arbátanna héldu til hafs. Hinn þriðji, Lloydsman, hélt hins vegar kyrru fyrir og töldu varðskips- menn hann bilaðan. Varðskipið sinnti ekki Lloydsman, en hélt á eftir dráttarbátunum Star Aquarius og Star Polaris og gaf þeim stöðvunarmerki með ljós- morsi og hljóðmerkjum. Dró varð- skipið um leið úr ferð sinni, er það nálgaðist dráttarbátana. Þessum viðbrögðum varðskips- ins svaraði Star Aquarius með því að beygja skyndilega þvert inn á bakborðshlið varðskipsins sem sneri undan á stjórnborða til þess að forðast árekstur. Aquarius skall utan í varðskipið, en sá skellur var ekki mikill. Við þenn- an minniháttar árekstur lifnaði heldur betur yfir Lloydsman, sem sigldi nú á fullri ferð á varðskipið bakborðsmegin. Lét þá skipherr- ann, Helgi Hallvarðsson, taka of- an af byssu varðskipsins og skaut viðvörunarskoti, púðurskoti, að Lloydsman, sem svaraði með því einu að sigla aftur á varðskipið. Gaf þá Helgi Hallvarðsson skipun um að skjóta kúluskoti að Lloyds- man og kom það í bol hans. Við það lauk þessari viðureign og Lloydsman hélt til hafs. • SKIPVERJI A ÞÓR SLASAÐIST A HENDI Einn skipverji varðskipsins slasaðist lítilsháttar á hendi. Skemmdir á varðskipinu urðu hins vegar talsverðar, en eftir að lokið er við að logsjóða í rifu á skammdekki verður skipið ferða- fært á ný. Upphaflega voru skipin eins og áður segir rúma mílu frá landi en ásigling dráttarbátanna verður 1,9 sjómilur frá landi eða 0,8 sjómilur innan landhelgi Is- lands, þar sem sömu reglur gilda - ld*klega 4 togarar I ___ X' •,'B'RlGHTCtý X- AREKSTOR: ÞÓR - LLOYDáMAN STA-R /QUARTOS STAR POLARIS ---»--M-I8ANDA ♦Kollumuh -V, 30 togarar • GALAI EURCfrAI' OTHEJ EA tinaones 3 toe arar Þyrluþilfar Þórs lagðist saman á 18 metra kafla, þegar Lloydsman sigldi á varðskipið f sfðara skiptið. 24 styttur, sem halda þvf uppi, bognuðu, bátakrani, sem stendur á þyrluþilfarinu, lagðist inn og reykháfur skipsins dældaðist. Einnig kom gat á skipið ofan við sjóifnu, þannig að sjór flæddi inn f vélarrúmið. A myndinni sést hvernig þyrluþilfarið lftur út bakborðsmegin. Ljósm. Mbl.: Frióþjófur. samkvæmt alþjóðalögum og sem landi væri. Líklegast hafa drátt- arbátarnir verið að flytja vatn á milli sín og hefur þá einhver þeirra verið orðinn vatnslítill og þeir því þurft að miðla hver öðr- um vatni. Fát hefur komið á þá, þegar varðskipið kom og þeir sleppt línunni. I sama mund og þessar grófu ásiglingar eiga sér stað flaug gæzluflugvélin SYR yf- ir og var tekin kvikmynd af at- burðinum, sem að öllum líkindum verður sýnd í sjónvarpi í kvöld, • „ÞETTA ER HLUTVERK DRATTARBATANNA“ Pétur Sigurðsson sagði: „Þetta er í raun ekkert meira en við höfum ávallt búizt við að myndi gerast. Hlutverk dráttar- bátanna á Islandsmiðum er þetta — að sigla á varðskipin og hafi þeir ekki haft um þessa árás bein fyrirmæli — þá vita þeir einfald- lega hvert hlutverk þeirra er. Öll stærri varðskipin eru með yfir- burðahraða yfir þessa dráttarbáta og því standast þeir þeim ekki snúning sem verndarskip. Þór er hins vegar minnstur og léttbyggð- astur stóru varðskipanna." Pétur Sigurðsson, forstjóri, sagði ennfremur: „Þetta atvik er eitt grófasta brot, sem ég man eftir innan landhelgismarka Is- lands. Þarna er um að ræða sam- antekin ráð tveggja skipa að vinna tjón á löggæzluskipi án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. Yf- irstjórn þessa flota mun verða að svara fyrir þetta brot. Um áhrif þessa atburðar á Landhelgisgæzl- unni má segja að hún þarf nú að gæta aukinnar aðgæzlu og meiri en nokkru sinni fyrr og kanna verður gaumgæfilega hverju sinni, hvaða skip eru að flækjast innan landhelgi landsins. Land- helgisgæzlan getur í raun haft uppi mun harðari aðgerðir gagn- Fyrsta ásiglingin á varðskipið Þór I gær — Star Aquarius siglir á varðskipið. en einnig voru teknar myndir af farþegum í flugvélinni, en þeir voru þeir Ragnar J. Ragnarsson, framkvæmdastjóri, og Baldur Sveinsson, kennari. Baldur tók þær myndir, sem teknar voru úr lofti og birtast í Mbl. í dag, en Ragnar skýrði Morgunblaðinu svo frá atburðum. Þeir félagar voru að vinna að gerð blaðagreinar um sögu fluggæzlunnar á Islandi fyr- ir brezka flugmálablaðið Aviation News. Ragnar sagði: „Þegar við komum fyrst á vett- vang voru skipin i aðeins einnar mílu fjarlægð frá landi og þvi varð flugvélin að fljúga mjög ná- lægt fjöllunum til þess að geta flogið yfir skipin. Þar sem veður var allókyrrt lét flugvélin mjög illa. Þegar aðför dráttarbátanna að Þór hófst varð æsispennandi að fylgjast með hinum grófu ásigl- ingum og ásiglingartilraunum Bretanna og fljótlega eftir að að- förin var hafin af fullum krafti, sáum við að byssurnar á Þór voru mannaðar og ég sá einu sinni eld- glæringu úr fremri byssu Þórs. vart þessum dráttarbátum, en verið hefur.“ • OTHELLO FÉKK LEYFI TIL AÐ FARAt VAR Þá ber að geta þess, að á meðan á öllu þessu stóð, sótti aðstoðar- skipið Othello um leyfi til þess að fara í var undan Dalatanga, þar sem skipið þurfti að flytja mann á milli skipa. Leyfið var veitt og fór Othello í var ásamt brezka togar- anum Boston Stirling FD 247. Allar ásiglingarnar voru þannig að dráttarbátarnir sigldu á bak- borðshlið varðskipsins Þórs. Þess vegna er ekki úr vegi að birta 19. gr. siglingareglna, sem hlotið hafa alþjóðlega samþykkt og sjófar- endum ber að fara eftir. 19. gr.. sem ber yfirskriftina „Þegar leið- ir tveggja vélskipa skerast", hljóðar svo: „Þegar tvö vélskip stefna þannig, að leiðir þeirra liggja á mis og hætt er við árekstri, skal það skipið víkja. sem hefur hitt á stjórnborða." Það þarf því ekki lengur vitnanna við — myndirnar í Mbl. í dag tala.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.