Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.12.1975, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975 25 FRÁ LEIÐBEININGASTÚÐ HÚSNIÆÐRA Möndlur, hnetur og marsípan Nokkur orð um verð og gæði Um þessar mundir er verið að undirbúa jólabaksturinn, þarf þvf að kaupa hnetur og möndl- ur, enda er það afbragðs hrá- efni til kökubaksturs og eru flestir sælkerar sammála um það, að möndlurnar bæti kök- urnar til mikilla muna. A jólunum þykir mörgum gaman að bera fram hnetur með öðrum ávöxtum og með sæl- gæti, enda er það skemmtilegt föndur að brjóta hnetur, þegar setið er í góðum félagsskap. Andstætt öðrum ávöxtum eru hnetur og möndlur mjög fitu- ríkar, í þeim eru um 35—65% fita. Þar af leiðandi eru þær með orkuríkari fæðutegundum sem við leggjum okkur til munns. 100 g af hnetukjörnum eða möndlum gefa 650 hita- einingar eða um það bil '4 af því orkumagni sem fullorðinn karlmaður sem er í jólafrfi þarf á að haida yfir daginn. í hnet- um og möndlum er einnig mikil hvfta. Þeir, sem eingöngu lifa á jurtafæðu, nota því gjarnan hnetur. Þar að auki er í hnetum og möndlum mikið af stein- efnum eins og kalíum, fosfór og járni og mikið af B-vftamínum. Möndlur og hnetur eru hins- vegar mjög dýrar og skulu hér nefnd nokkur dæmi um verð í tveim verslunum sem valdar voru af handahófi. Að sjálf- sögðu getur verið um mismun- andi sendingar að ræða sem skýrir þennan mismun, ef til vill er einhver gæðamunur á þeim varningi 'sem hér er gerður að umtalsefni, um það skal ekkert fullyrt. Kaupendur geta sparað stórfé með því að athuga vel, hvað verið er að kaupa. U (.I.VSIM, \- SÍMINN KK: 22480 100 g af möndlum f poka (er- lendar umbúðir) kosta 125 kr. eða 1250 kr. hvert kg. 40 g af möndlum í islenskum umbúð- um kosta hinsvegar 110 kr. eða 2750 kr. hvert kg. Einnig er unnt að kaupa 50 g af möndlum fyrir 110 kr. eða 2200 kr. hvert kg. Getið var um þyngd á umbúðunum en ekki hefur verið tækifæri til þess að ganga úr skugga um, hvort rétt sé vigtað. Nokkrir valhnetu- kjarnar voru seldir i poka á 125 kr., en ekkert var getið um þyngdina á umbúðunum. Það er því erfitt að gera sér grein fyrir verðmismun á ólíkum tegundum af hnetum. Æskilegt væri að slíkur varningur væri seldur í pokum með 50 eða 100 g, svo auðveldara væri að gera sér grein fyrir verðinu. 40 g af afhýddum möndlum kosta 175 kr. eða 4375 kr. hvert kg. Það er þvf unnt að hafa á annað þúsund kr. upp úr því að afhýða 1 kg af möndlum. Séu möndlurnar hinsvegar saxaðar kosta þær ekki nema 1900 kr. hvert kg. Einnig voru fáanleg 50 g af söxuðum möndlum fyrir 75 kr. eða 1500 kr. hvert kg. Bragðið af þessum ódýru „möndlum" virtist vera líkt og af jarðhnetum (pea-nuts), þótt á umbúðunum stæði skýrum stöfum möndlur. 100 g af svo- kölluðum „bökunarhnetum", en það eru víst jarðhnetur, kosta hinsvegar 118 kr. eða 1180 kr. hvert kg. Besta matreiðsla á jarðhnetum er að salta þær og rista, bragð þeirra nýtur sín best þannig. Hið sér- kennilega bragð þeirra nýtur sfn hinsvegar ekki í bakstri, þar eru möndlur og heslihnetur mun betri. En"kflóvérðið á jarð- hnetum er nokkuð lægra en á möndlum og hnetum. Möndlur er aðalhráefnið í marsípan en 500 g af marsípani kostar 1067 kr. eða 2134 kr. hvert kg. A umbúðunum er þess getið, að auk mandlna sé notaður sykur í marsípanfram- leiðsluna og nemur sykurinn einum þriðja af þyngdinni. Marsípan er unnt að drýgja heima hjá sér með því að hnoða upp í það flórsykur og dálftið af vatni (250—500 g flórsykur f Ví kg af marsípani). Að sjálfsögðu þarf að sáldra flórsykurinn áður en hann er hnoðaður saman við marsípanið, enda er erfitt að bjarga málunum við, ef flórsykurkekkir eru komnir út í marsípanið. A markaðnum er einnig til marsípan sem kostar ekki nema 1536 kr. hvert kg. Á vörulýsing- unni á umbúðunum má sjá að við marsípanframleiðsluna eru einnig notaðar apríkósukjarnar úr apríkósusteinum, en það þykir ekki eins gott hráefni og möndlur, enda er þó nokkur verðmunur á þessum tveim teg- undum af marsipani. En neytandinn veit hvað hann er að kaupa, þar sem þetta er allt tekið fram í vörulýsingunni á umbúðunum. Þess skal getið að möndlur og hnetur hafa takmarkað geymsluþol, þar sem fitan jjránar þegar möndlur og hnet- ur fara að verða gamlar. Geymsluþolið styttist, þegar búið er að afhýða eða saxa möndlurnar. Þar er þvf æski- legt að getið sé um pökkunar- dag á slíkum varningi. Ennfremur skal að lokum tekið fram að samkvæmt upplýsingum frá Statens Husholdningsrád í Danmörku skal neytandinn tvímælalaust henda parahnetum og jarðhnet- um sem eru myglaðar eða hafa dökknað. I slíkum hnetum geta verið eiturefni sem heitir afla- toxin. Sigrfður Haraldsdóttir Peter Hallberg- HAILD0R L Höfundur lýsir þátttöku Halldórs Laxness í skoöanaskiptum, einkum um eftirtalin efni: 1. Þjodernis-ísland og umheimurinn. 2. Trú og lífsvidhorf. 3. Stjórnmál og þjóöfélag. 4. Listræn vidhorf. ... ___ ., * u# ■■■ •■■■'? - ■ Enginn lesandi Halldórs Laxness ættí aö láta þessa bók vanta í safn sitt. Bókin fæst hjá helstu bóksölum og kostar Kr. 2.400.-(+ sölusk.). Félagsmenn og aö sjálf- sögöu þeir sem gerast félagsmenn nú, fá bók- ina meö 20% afslætti á afgreiöslu Hins íslenzka bókmenntafélags, Vonarstræti 12 í Reykjavík. Hiö íslenzka bókmenntafélag. !l"hi Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks Ma^nus Magnusson ÍSLANDS 1904 - 1971 Magnús Magnússon Ráöherrar Islands 1904 — 1971 Magnús Stormur, höfundur þessarar bók- ar, er landskunnur fyrir ritstörf og blaða- mennsku og fyrir það. a8 vera ómyrkur i máli, tala tæpitungulaust. Hann segir I formála bókarinnar: ... . . ég vil taka fram að ég einn ber alla ábyrgð á þvi, sem sagt er ráðherrunum til lofs eða lasts. nema þar sem ummæli annarra eru tilfærð." Og hann biður menn að hafa I huga, að þetta eru aðeins svipmyndir og því hvergi um alhliða lýsingu að ræða, en segir jafn- framt að hann telji sig hafa góða aðstöðu til að geta lýst ráðherrunum með nokkrum sannindum. „Þvi ég hef séð þá alla, talað við flesta, kynnzt mörgum þeirra mikið og sumum allnáið." — Allir, sem þekkja Magnús Storm og skrif hans vita að hér er bók sem þeir verða að eignast. Faðir minn — bóndinn Gísli Kristjánsson ritstýrði Fjórtán þættir um stórbrotna og á ýmsan hátt fyrirferðarmikla bændahöfðingja, skráðir af börnum þeirra: Guðmundur Þor- bjarnarson, Stóra-Hofi, eftir Hákon Guð- mundsson — Bjarni Jensson, Ásgarði eftir Torfa Bjarnason — Kristinn Guðlaugsson, Núpi, eftir Unni Kristinsdóttur — Glsli Jónsson. Hofi, eftir Gunnlaug Glslason — Þórarinn Jónsson, Hjaltabakka, eftir Hjalta Þórarinsson — Friðrik Sæmunds- son, Efri-Hólum, eftir Sæmund Friðriksson — Þ. Magnús Þorláksson, Blikastöðum, eftir Helgu Magnúsdóttur — Jón Konráðs- son, Bæ, eftir Björn Jónsson — Guðbjart- ur Kristjánsson, Hjarðarfelli. eftir Gunnar Guðbjartsson — Björn Þorkelsson, Hnefils dal, eftir Þorkel Björnsson — Jakob H. Ltndal, Lækjamóti eftir Sigurð Llndal — Sverrir Glslason, Hvammi, eftir Ólaf Sverr- isson — Jón Sigurðsson, Yztafelli, eftir Jónas Jónsson — Helgi Jónsson, Segl- búðum, eftir Jón Helgason. — Allir voru þessir bændur brautryðjendur, hver með sínum sérstæða hætti, og allir voru þeir héraðshöfðingjar. kraftmiklir kjarnakarlar sem settu sterkan svip á samtið sina. Skuggsjá-Bókabúö Olivers Steins-Sími 50045

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.