Morgunblaðið - 12.12.1975, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1975
31
Milliöxullinn
var skakkur
— en Pólverj-
arnir neituðu
VEGNA blaðaskrifa f Reykjavfk-
urblöðum f gær um skuttogarann
(varðskipið) Baldur viljum við
undirritaðir sem falið var að fara
með skipfð til Póllands til við-
gerðar á togvindu skipsins taka
eftirfarandi fram:
Um var að ræða breytingar á
togvindunni, samskonar og þegar
er búið að gera á hinum pólsk-
byggðu framleiðendum togvind-
unnar og vorum við yfir þessum
breytingum til eftirlits og fylgd-
umst þvf með þeim. Þegar að því
kom að reyna skyldi togvinduna
eftir þessa breytingu kom í ljós,
að svonefndur milliöxull — milli
rafmótors og vindunnar sjálfrar
— var skakkur og gerðum við
strax athugasemdir við það. Pól-
verjarnir reyndu að rétta hann og
mældu hann upp eins og það er
kallað að því loknu. Pólverjarnir
héldu því fram að mælingar
þeirra sýndu að driföxullinn
væri nægilega réttur — og
fullyrtu að hann væri betri
en krafizt væri. Vorum við all-
ir sammála um, að driföxullinn
væri skakkari en mælingar
Pólverjanna sýndu og mót-
mæltum við þeim (mælingun-
fallast á frekari viðgerð á driföxi,
og tilkynntu jafnframt að frekari
viðgerð yrði ekki framkvæmd á
þeirra vegum, en gáfu um leið sex
mánaða garantí á togvindunni eft-
ir þessa viðgerð. Þess skal að lok-
um getið, að aðalvél Baldurs er í
lagi og kom engin bilun í henni í
ljós f þessari ferð skipsins — en
vegna hins breytta hlutverks
Baldurs er óhjákvæmilegt að gera
smávægilegar breytingar á still-
ingu aðalvélar og skrúfu.
Aðrar fullyrðingar um bilanir
eru ekki á rökum reistar að okkar
dómi, aðeins smávægilegt stilling-
aratriði.
Reykjavfk 11. des '75
Gunnar Auðunsson
Ragnar Hermannsson
Sigurður Sigurðsson
Bergvin Jónsson
Geir Geirsson
Guðmundur Guðmundsson.
Fundu hass við
leit í skipi
TOLLVERÐIR fundu nokkurt
magn af hassi við leit f m/s. Sel-
fossi í gærmorgun. ToHgæzlan
hefur sent málið áfram til fíkni-
efnadómstólsins til umfjöllunar
og sátu þrír skipverjar í gæzlu
vegna þessa máls í gær. Hassinu
höfðu mennirnir vafið inn i plast-
poka og komið fyrir i óhreinu taui
skipverja.
— Ennákveðnari
Framhald af bls. 1
ið og meiddist hann lltillega á
hendi. Þegar þessi átök voru af-
staðin héldum við inn til Loð-
mundarfjarðar og var það aðeins
15 mínútna sigling. Sýnir þetta
vel hve skammt frá landi atburð-
irnir gerðust.“
Hermann sagði að allt benti til
þess að brezku dráttarbátarnir
hefðu legið fyrir Þór í mynni
Seyðisfjarðar frá því varðskipið
kom inn til hafnar á Seyðisfirði á
miðvikudagskvöldið:
„A meðan á aðförinni stóð,“
sagði Hermann, „töluðu Bretarnir
f talstöðvarnar og þóttust heldur
betur karlar í krapinu. Það kom
ekki beint fram hjá þeim hvort
þetta hefði verið undirbúið, en
við vissum að þeir höfðu áður
talað um aðgerðir gegn einhverju
varðskipanna og eins og fram
hefur komið urðu yfirmenn
brezku gæzluskipanna alveg æfir
eftir að við klipptum á togvira
brezka togarans Saint Giles á
þriðjudaginn rétt við nefið á frei-
gátunni Brighton."
Að lokum spurðum við Her-
mann að því hvort þessi atburður
í gær hefði eitthvað dregið kjark-
inn úr varðskipsmönnum. „Það er
ekki sfðri hugur í okkur eftir
þennan atburð," sagði Hermann,
„þar sem Bretarnir sýndu allar
sínar verstu hliðar. Við erum
ennþá ákveðnari en áður að vinna
þetta strfð."
Blaðamenn Morgunblaðsins
lögðu af stað með flugvél frá
Flugstöðinni um kl. 3 i gær til
Egilsstaða, en vegna myrkurs var
ekki unnt að fljúga yfir varðskip-
ið þar sem það lá á Loðmundar-
firði. Var því lent á Egilsstöðum,
farið með bíl niður á Seyðisfjörð
þar sem báturinn Vingþór beið
tilbúinn og flutti Morgunblaðs-
menn i Loðmundarfjörð á einni
og hálfri klukkustund.
„Þegar Vingþór átti eftir
nokkur hundruð metra að Þór
kallaði varðskipið okkur upp og
spurði hverjir væru á ferð. Var
því svarað og var okkur þá tjáð að
ekki fengist leyfi til þess að koma
upp að varðskipinu til að mynda
skemmdirnar og ennþá siður leyfi
til að fara um borð og tala við
varðskipsmenn og þótti okkur
þetta bæði kynlegt og súrt í broti
eftir að hafa farið alla þessa leið
til að fá gleggstu fréttir af atburð-
um. Vorum við að bera saman ráð
okkar þegar varðskipið kallaði
okkur upp og sagði að leyfi hefði
fengizt frá æðstu stöðum til að
koma upp að skipshlið Þórs og
taka myndir, en um borð fengjum
við ekki að fara.“
— Mótmæltum
Framhald af bls. 2
þannig að það vekti athygli og
hann var mjög hjálplegur við
það.“
Aðspurður um hvort Luns hefði
boðizt til að miðla málum, sagði
Einar, að hann hefði ekki gert
það, enda óskar ríkisstjórnin ekki
eftir þvf eins og stendur.
Einar var spurður um það hvort
aðrir ráðherrar hefðu gert fisk-
veiðideiluna að umtalsefni á ráð-
herrafundinum. Einar kvaðst
ekki hafa heimild til að skýra frá
ræðum annarra ráðherra, en sagð-
ist vita til þess, að vestur-þýzki
utanríkisráðherrann, Hans
Dietrich Genscher, hefði getið
málsins á blaðamannafundi, sem
hann hélt í gærkvöldi og verið
mjög hliðhollur Islendingum.
Þá sagðist Einar mundu eiga
fund með Knut Frydenlund, utan-
rfkisráðherra Noregs, í dag, en
hann situr í forsæti ráðherra-
fundarins.
— Lítil
Framhald af bls. 10
laus og þó skemmtileg. málið
einfalt og skýrt og laust við alla
tilgerð, og er það höfuðkostur.
Þetta er ein af þeim bókum,
sem ég oft glugga í, og svo ætla
ég um fleiri, sem kynnast
henni.
Einar Magnússon.
— Dýraríki
Framhald af bls. 32
að ræða og þó ef til vill hefði
mátt nota þessar arkir, þð
hefði bókaútgáfan ákveðið að
láta endurprenta þær. Bókin
er prentuð á sérunninn pappfr
og tekur um tvo mánuði að
vinna pappfr til að nota f þær
arkir, sem þarf að endur-
prenta. Einnig tekur prentun
þeirra nokkurn tfma og sagði
örlygur, að stefnt væri að þvf,
að bókin kæmi út fyrri hluta
næsta árs.
Bókin Dýrarfki tslands hef-
ur meðal manna verið nefnd
dvrasta jólabókin f ár en átti
að kosta um 40 þúsund krónur
hvert eintak en alls verða að
þessu sinni gefin út 1500 ein-
tök og að sögn Örlygs Hálf-
dánarsonar hefur verulegur
hluti upplagsins verið pantað-
ur nú þegar.
Islenzkar
hlj ómplötur
í Karnabæ
X
ýmsir listamenn
Gleðileg jól
hljómsveit
Hljómar
og
félagar
Bætiflákar
Gefið Islenska
hljómplötu
í jólagjöf
II1 p Q mrj JZtl
71 B 1**1
HKr %' . >. v
Yerzlið þar
sem hljómplötuúrvalið
er mest