Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.12.1975, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975 28 Minning: Jóna Kristinsdóttir fyrrv. Ijósmóðir F. 21. desember 1895. D. 27. október 1975. Jóna Kristinsdóttir var fædd 21. desember 1895 i Steinkoti á Ár- skógsströnd, og hefði orðið 80 ára í dag. Foreldrar hennar voru Helga Baldvinsdóttir og Kristinn As- grímsson, skipstjóri. Hún ólst upp til 8 ára aldurs hjá foreldrum sínum en fór þá til frænku sinnar, Guðrúnar Guðmundsdóttur, og manns hennar, Jóhanns Gunnars- sonar, að Hallgilsstöðum á Arnar- nesi við Eyjafjörð, og var þar öll sín unglingsár í faðmi þeirra góðu hjóna. Þegar foreldrar hennar fluttust búferlum til Fljóta í Skagafirði fluttist Jóna til þeirra. Þaðan fór hún 22ja ára til ljós- móðurnáms i Reykjavík haustið 1918 og árið 1919 snýr hún aftur norður í Fljót þá útlærð ljósmóðir og dvelur þar næstu tvö árin. Ljósmóðurstarfið var erfitt og ábyrgðarmikið, en þó sérstaklega hér áður fyrr, þegar ljósmæður þurftu að ferðast langar leiðir um vegleysur og í öllum veðrum til að sinna störfum sfnum. Jóna var þessum vanda vaxin og var trú starfi sínu, hún bar ljós, hlýju og styrk með sér til þeirra sem Ieit- uðu hennar. En hennar starfsvettvangur beið á öðrum stað. Arið 1921 fór hún sem ljósmóðir til Vestmanna- eyja. Þar vann hún öll sín mann- dómsár og fannst henni hún aldrei eiga annars staðar heima. Árið 1922 giftist hún Hjálmari Eiríkssyni, verzlunarmanni, og eignuðust þau 6 börn og eru 5 dætur á iífi en eini sonur þeirra, Eiríkur, lézt 5. september 1971. Þó að samvistir þeirra Hjálmars og Jónu yrðu ekki langar voru þær kærleiksríkar en Hjálmar lézt eftir átján ára sambúð aðeins 40 ára gamall, og varð mikill harmdauði öllum en þó sérstak- lega henni, sem eftir stóð með 6 börn á ungum aldri. En hún lét ekki bugast og hélt starfi sínu áfram. Hún kom upp öllum börn- um sínum og gat menntað þáu með góðra manna hjálp, en á þeim árum var erfitt að kosta börn til náms. En líf hennar og starf mun verða geymt i minningu allra þeirra er kynntust Jónu á vegferð lifsins og þakklæti er efst I huga margra til hennar, sem af fágæt- um kærleika og mikilli fórnfýsi gat ávallt rétt öðrum hjálpar- hönd. Jóna var ekki aðeins ljós- móðir heldur allt í senn, Ijósmóð- ir, hjúkrunarkona, læknir og sálu- sorgari. 1 starfi sínu kynntist hún heim- ilum margra Vestmannaeyinga og ekki var Iffið allstaðar dans á rósum. Varhúnöllumtil uppörv unar sem til hennar leituðu, enda eðli hennar að lina þjáningar ann- arra. Hún var lánsöm f starfi enda ábyrg ogsamvizkusömog starfaði í Vestmanneyjum í 28 ár og ljósu börnin hennar urðu yfir átján hundruð að tölu. Jóna fluttist til Reykjjavíkur 1949 og starfaði þar á sjúkrahúsinu Sólheimum með- an þrek hennar entist. Árið 1968 fór hún á dvalarheimilið Hrafn- istu og dvaldist þar uns yfir lauk, en Jóna lézt 27. okt. síðastliðinn. Jóna var lánsöm með börn sín öll og naut þess að vera hjá þeim og barnabörnum sínum, en alltaf þráði hún að fara aftur til Eyja og nú í haust stóð til að hún fengi að eyða síðustu árum sínum þar, en æðri máttarvöld tóku í taumana áður en af þvf yrði. Jarðneskar leifar hennar voru fluttar til Vest- mannaeyja og lagðar til hinztu hvfldar við hlið manns hennar í kirkjugarði Landakirkju 3. nóv. s.l. Við minningarathöfn Jónu í Fossvogskapellu og jarðarför I Eyjum sást bezt hve vinmörg hún var, allt til hinztu stundar. Guð blessi minningu þessarar góðu konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu og þakklæti okkar til hennar er mikið. Tengdabörn. Kveðja: Guðrún Sig- urgeirsdóttir Fædd 2. maí 1910. Dáin 28. nóbember 1975. Kallið er komið, það kall sem allir verða að hlýða. Það kemur óvænt. Guð einn sem öllu ræður á himni og jörðu ákveður tímann. Mig Iangar til að þakka allan kærleika sem ég hef notið á heimili þeirra hjóna og barna þeirra alla tíð. Ég þakka alla vin- áttu sem mágkona mín alltaf hefur sýnt mér. Guð huggi og styrki börn hennar á kveðju- og saknaðar- stund. Hvfl í Guðs friði. Hanna Sandholt. — Bókmenntir Framhald af bls. 24 kistu. Helgafell gerði á sínum tíma virðingarverða tilraun i þessa átt með árbókum skálda. Síðan ekki söguna meir. Sennilega eru þessar hugleið- ingar ósanngjarnar i umsögn um bækur þeirra Árna Ibsens og Björns Birnis. Þeir eru ekki verri fulltrúar nýs skáldskapar en aðrir. Þó bendir margt til að sú regla að flýta sér hægt geti komið þeim að gagni. Það er ljóst að þeir Árni og Björn hafa kynnt sér skáldskap annarra. Bergmál er að vonum frá fslenskum nútímaskáldum og Ifka erlendum. Árni hefur lesið Charles Olson. Ljóð Árna Ibsens eru mark- vissari en ljóð Björns Birnis. Það er meiri heildarsvipur yfir Kom en Uppsprettum. Arni reynir að minnsta kosti að tak- marka sig, fága ljóð sfn. Máltil- finning hans er ekki nægileg til góðs árangurs, en það held ég að standi til bóta. Stundum tekst honum að laða fram ljóð- rænan hugblæ: eitt andvarp og eirðarlaust hafið háran byltir mér heim eitt kvöld og máninn silfrar hafið þú ferð fjöruna og faldurinn strýkur sandínn hönd þín strýkur saltið úr augum mfnum (Ljóðaljóð) Arni er nokkuð fyrir heim- spekilega þanka eins og í ljóð- unum Hin fyrirhugaða dagbók og Uppruni tungumáls (næstum því heppnað ljóð), en hann getur líka ort skemmti- lega opið eins og f ljóðinu um ömmuna á Akranesi. I Uppsprettum Björns Birnis er töluverð fjölbreytni yrkis- efni frá Akureyri, Wales, París, Indlandi, New York og Djúpi. Helst tekst Birni að vekja at- hygli lesandans með ljóðum, sem eru kaldhæðin, háðsk. Honum lætur stráksskapurinn betur en rómantíkin. Eitt mikil- vægt tíðarbrot skýrir til dæmis frá heldur dapurlegri reynslu: Hvað er voðalegra en krjúpa augliti til auglitis við rauðsokku með linan skaufann? Löngu ljóðin gjalda þess að höfundurinn veldur ekki efn- inu (Rapsodía i karfa, Yom Kippur í japönskum garði), en dæmi eru um frískleg stutt Ijóð: Hinn hvíti fugl er friðarboði fljúgandi steik stálör kviðfull af sprengjum. Þess skal að lokum getið að Kom eftir Arna Ibsen er mynd- skreytt af Eirfki Smith svo að ljóðin fá góða samfylgd. — Þorskveiðar Framhald af bls. 20 nokkru á aðrar veiðar og önnur fiskimið en bau hefðbundnu. Takist þessar fyrirbyggjandi aðgerðir, þá er ástæða til þess að ætla að aflamagn mundi stór- aukast á sóknareiningu á næstu árum og tryggja bætta afkomu útvegsins og þjóðarbúsins f heild. Ef hins vegar sú þjóðarógæfa dyndi yfir að þorskstofninn hryndi þá mundi það án efa hafa hörmulegri afleiðingar fyrir þjóðina alla en við getum í dag gert okkur grein fyrir. Við höfum nú þegar samið um 6500 tonna veiði útlendinga á þorski hér við land á árinu 1976.“ t Sonur okkar og bróðir, SIGÞÓR RÚNAR VESTFJÖRÐ sem andaðist 12 þ.m. verður jarðsunginn mánudaginn 22. þ.m. kl. 1.30 frá Fossvogskirkju. Matthildur Elíasdóttir, Sigurður Þorsteinsson og systkini. t Bróðir okkar, HRAFNKELL FINNBOGASON Snorrabraut 34, lézt að heimili sínu 1 2. desember s.l. Bálför hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna Björg Finnbogadóttir, Þorbjörn Finnbogason, Danival Finnbogason. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og vinsemd við andlát og útför BIRGIS GUNNARSSONAR Böm og systkini hins látna. t PÉTUR PÉTURSSON stýrimaöur (sömand), vistmaBur á Hrafnistu. lézt 19. desember Fyrir hönd vandamanna, SigrfSur Vilhjálmsdóttir. t Þökkum innilega auðsúnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu HELGU TÓMASDÓTTIR Hátúni 4 Þakkir eru og færðar, læknum og hjúkrunarfólki við sjúkradeildina Hátúni 10 B, þar sem hún naut hlýju og umönnunar síðustu ævistundirnar Jón Sæmundsson Theodór A. Jónsson Elfsabet Jónsdóttir Ragnar S. Jónsson Christa Jónsson og barnabörn. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SIGURÐAR GUÐNASONAR Sérstakar þakkir viljum við færa Verkamannafél Dagsbrún Kristfn Guðmundsdóttir. Guðný Sigurðardóttir, Bjöm Bjarnason. Ágústa Sigurðardóttir, Hörn Sigurðardóttir, Finnur Kristinsson, Guðfinna Sigurðardóttir, Farifax G. Drewry Auður Sigurðardóttir. Hafsteinn Einarsson, Bamabörn og barnabarnaböm. t Eiginmaður minn, EIRÍKUR STEFÁNSSON myndskeri, Grjótagötu 4, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 22. desember, kl 1.30. Blóm eru vinsamlega afbeðin. Fyrir mfna hönd og barna okkar, tengdabama og bamabarna, Kristrún Þorleifsdóttir, t Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför ÓLAFS D.S. JÓHANNESSONAR kaupmanns. Grundarstfg 2. Guðrún Sigurðardóttir, Ástrfður Ólafsdóttir, Torfi Torfason, Jóhannes Ólafsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma ÁSTRfÐUR s. SIGURÐARDÓTTIR Grenimel 43 verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. (Þorláksmessu) kl. 19.30. desember Blóm vinsamlegast afbeðin Kristinn Guðnason Helga Kristinsdóttir ólafur Magnússon Ása Kristinsdóttir Svavar Björnsson Ólafur Kristinsson Auður Linda Zebitz og bjrnaborn. Útför föður okkar t ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR skipstjóra Vffilsgötu 21 verður gerð frá Dómkirkjunni á Þorláksdag klukkan 1 3.30. Þeim sem vildu minnast Akranesi. hans er bent á Byggðasafnið að Görðum á Sigurjón ÞórSarson Guðmundur Þórðarson. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakín á þvl, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast I sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.