Morgunblaðið - 21.12.1975, Side 36

Morgunblaðið - 21.12.1975, Side 36
DAGAR TIL JÓLA AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JtUrgunlitatiiti SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975 Hér sést vel afstaðan milli Kröfluvirkjunar og gosstöðvanna Gæsafjöll í baksýn. Ljósmynd ÖI.K.M. „Gæti orðið mikið og langvinnt gos” — segir Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur EFTIR þeim upplýsingum forstöðumaður Norrænu eldfjallarannsóknastöðvar- innar, í viðtali við Mbl. í gær. að dæma, sem við höfum nýjastar gæti orðið um að ræða allverulegt eldgos og samkvæmt fyrri reynslu af gosi á þessum stað gæti það einnig orðið Iangvinnt,“ sagði Guðmundur Sig- valdason jarðfræðingur, „Annars er erfitt að dæma nákvæmlega um framvinduna á byrjunárstigi gossins," sagði Guðmundur. „En samkvæmt þeim upplýsingum sem við vorum Kortið sýnir gossprunguna og afstöðu hennar til Kröflu og Revkja- hlfðar. Á milli sprungunnar og mannvirkjanna við Kröflu er háls og þau eru þvf ekki f bráðri hættu vegna hraunrennslis. 1 gær opnaðist sprungan til suðvesturs, eins og örin sýnir og stefndi hún þá í átt að Reykjahlfð. Skarðið sem merkt er inná kortið er á milli Hlíðarfjalls og Þríhyrnings, en hugmvndir eru uppi um að ryðja í það með jarðýtum, til að freista þess að koma f veg fyrir að hraunstraumur renni að Reykjahlfð. að fá núna, er gufugos í öðrum enda sprungunnar, sem bendir til þess að hraunið sé að brjóta sér leið upp í gegnum jarðvatn og það rennir stoðum undir það sem ég sagði í byrjun. Jarðvatnið heldur aðeins við hraunið til að byrja með en þegar Sú fyrirstaða er ekki lengur fyrir hendi vellur hraunið upp.“ Guðmundur sagði að það hefði verið fylgst með þessu svæði f allmarga mánuði og hefði það ver- ið ofarlega í tali manna um væntanleg gos. Þetta hefði þó ekki verið umrætt áður en Alþýðubankamálið: Hin fyrirtæk- in sjö einnig rannsökuð MORGUNBLAÐINU hefur borizt afrit af bréfi þvf sem rfkissak- sóknari sendi vfirsakadómara með kröfu um að embættið taki nú til rannsóknar hvort banka- stjórar Alþýðubankans hf. og sjö skuldunautar hafi gerzt sekir um saknæmt atferli og að rannsóknin verði með samsvarandi hætti og upphaflega rannsóknin, er snýr að Guðna Þo'rðarsyni og Air Viking og Ferðaskrifstofunni Sunnu. Þessir skuldunautar eru samkvæmt bréfi rfkissaksóknara Cudogler hf„ og Hilmar Vil- hjálmsson, Landsýn hf; Breiðholt Framhald á bls. 35 ákvörðun var tekin um virkjun við Kröflu. Guðmundur sagði að Iokum, að hann væri á förum til eld- gossvæðisins ásamt fleiri sér- fræðingum, en nokkrir jarð- fræðingar héldu norður i gær, um leið og fréttir bárust um að eldgos væri hafið. .9? „Okkur var sagt að það væri að koma eldgos Spjallað við Hann- es Hilmarsson vakt- mann í Kröflu EINS OG skýrt hefur verið frá f fréttum fór allt starfslið Kröfluvirkjunar í jólaleyfi á föstudagskvöldið utan tveir vaktmenn, sem áætlað er að verði á virkjunarstað yfir há- tíðarnar. Mbl. náði sambandi við annan vaktmanninn, Hann- es Hilmarsson, f stöðvarhúsinu við Kröflu, en hinn vaktmað- urinn, Snorri Snorrason frá Húsavfk, var útivið. Við báð- um Hannes að lýsa atburðun- um fyrir okkur. „Þetta byrjaði með stöðug- um jarðskjálftakippum um 10 leytið i morgun og stóð svo til óslitið fram til kl. 11.30. Ég var að taka til í íbúðarskálunum þegar þetta gerðist og fannst þetta nokkuð undarlegt, en við erum hér á hverasvæði svo ég hélt þetta væri ekkert óeðli- legt. En þegar klukkan var far- in að ganga tólf fannst okkur þettaorðið dálítiðmikið og við hringdum niður i Reykjahlið og töluðum við Jón Ármann Pétursson, sem er með jarð- skjálftamæli þar og hann sagði okkur að þetta væru mjög óvenjulegir skjálftar og von á eldgosi. Okkur fannst það nú hálf ótrúlegt, en svo hringdi móðir mín í mig örskömmu síð- ar og sagði mér að það væri byrjað að gjósa, við vissum ekki af því fyrr og urðum ekk- ert varir við neitt, sem benti til Framhald á bls. 35 Drukknuðu í Sundahöfn UNGMENNIN tvö, sem drukknuðu þegar bifreið fór út í Sundahöfn í fyrrakvöld, hétu Hallgrfmur Indriðason, Flóka- götu 43, Revkjavfk, og Sigríður Þóra Traustadóttir, Æsufelli 2, Reykjavík. Hallgrímur var fæddur 4. nóvember 1957 og því 18 ára gamall en Sigríður var fædd 4. júlí 1958, og því 17 ára gömul. Þau voru bæði ógift og barnlaus. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar eru tveir bryggjukantar þar sem bifreiðin fór út af. Sá innri er 8 cm á hæð og sá ytri 10 cm. Mótstaðan hefur þvi verið allt of lítil til að slysi yrði forðað Bifreiðin var skoðuð í gær og reyndist hún vera í full- komnu lagi. Mishermt var í frétt blaðsins í gær að ökumaðurinn hefði beðið bana. Hann komst Iífs af ásamt stúlku sem var í aftur- sæti. Sigrfður Þóra Traustadóttir. Haligrfmur Indriðason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.