Morgunblaðið - 28.12.1975, Side 8

Morgunblaðið - 28.12.1975, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1975 / Ökukennslan hér er langt á eftir tímanum og þó tsland sé ekki eina landið f heiminum þar sem ökukennslunni er ábótavant setti nú að gera rót- tækar brevtingar á kennslunni. Einmitt nú þegar ýmis brevt- ingafrumvörp við gildandi um- ferðarlög liggja fvrir Alþingi. — I Bandarfkjunum er mikið stuðst við akstursherma (driving simulators) þar sem menn sitja undir stýri inni f húsi og aka eftir kvikmvnda- tjaldi. Þessi aðferð er mikið notuð við þjálfun flugmanna og mætti eflaust taka hana upp hér f stórum mæli við þjálfun ökumanna. Það drægi kannski eitthvað úr þeirri plágu hér í umferðinni, sem kennslubif- reiðar vilja oft vera. Ford Escort 1300 L, 2ja dvra Mælaborðið er einfalt en smekklegt og þægilegt að lesa af mælunl með Ijósar tölur að svörtum grunni. Gott rými er undir vélarhlffinni og auðvelt að komast að flestum hlutum vélarinnar. NfJ ER liðið meir en ár síðan Ford-verksmiðjurnar bresku komu með gjörbreyttan Ford Escort á markaðinn erlendis. En eins og efnahagsástandið var hérlendis í fyrra kom hing- að lítið af ýmsum nýjum bila- tegundum af árgerð 1975. Fyrir skömmu komu til lands- ins fyrstu Escort-bílarnir með þessu breytta útliti. Útlit bíls- ins er vægast sagt íhaldssamt og má segja að bíll þessi beri ýmis merki þeirrar tilhneiging- ar, er gætt hefur í ríkari mæli en áður, til sparnaðar og hag- kvæmni í rekstri. I Escortinn eru fáanlegar 4ra strokka vélar frá 1,1 lítra til 1,6 lítra. Bíllinn, sem aðallega er ( rætt um hér er 1300 L gerðin. Nýi Escortinn er um 4m langur, um 1,6 m breiður og tæpl. 1,4 m hár. Hann vegur 885 kg óhlað- inn en 1325 kg fullhlaðinn. Vélin er lítið breytt frá eldri gerðum Escortsins. Hún er 1298 rúmsm., 54 hestöfl (DIN) með þjöppun 8:1 en einnig er þessi vél til með þjöppun 9,2:1 og gefur þá 57 hestöfl. Viðbragðið 0—100 km/klst er um 22 sek. , Hámarkshraðinn er 140 km/- klst. Bíllinn er með diska- bremsur að framan. Dekkja- stærðin er 155x 13. Nokkuð virðist enn vanta á að evrópskir smábílaframleiðend- ur standist þeim japönsku snúning er út í smáatriðin er farið. Á Escortinum er t.d. ekki stillanlegt bak framsætanna þó þau séu að öðru leyti nokkuð þægileg. Aftursætið er frekar ,,Iint“ og lágt er til lofts aftur í. Rými inni í bílnum er allgott og farangsursgeymslan er mjög rúmgóð. Stýrishjólið er lítið og sport- legt a.m.k. miðað við fólksbíla- stýri yfirleitt og mættu ýmsir bílaframleiðendur taka sér það til fyrirmyndar. Girstöngin er stutt og skiptingar auðveldar og léttar. Þessi atriði ásamt frem- ur stifum dempurum gera bíl- inn góðan í akstri og hann ligg- ur vel á vegi. Hins vegar er hann nokkuð hastur a.m.k. meðan hann er splunkunýr. — Bensíneyðslan er áætluð um 8,5 1/100 km til jafnaðar. Miðstöð- in er góð og hitastrengir eru í afturrúðu en upphitaðar aftur- rúður gera sitt til að koma i veg fyrir móðu og ísingu og er vart annað boðlegt hér í dag en slík- ur búnaðar. Escortinn er fáanlegur ýmist tveggja eða fjögurra dyra. Verðið á 2ja dyra bílnum er rétt tæpar 1200 þúsund krónur. Ödýrasti Escortinn er hins veg- ar 1100 gerðin 2ja dyra á kr. 1045 þúsund. Ford Escort 1600 Sport myndi kosta hér um kr. 1460þúsund. br.h. Að baka brauð Döðluhrauð ÞAÐ eru áreiðanlega orðin fá heimilin þar sem kökur eru daglega á borðum og er það vel. Kökubakstur miðast nú meir en áður við helgarneyzlu, og svo auðvitað þegar sérstök tilefni gefast eins og afmæli eða gesta- komur. En þó við höldum i við heimilisfólkið með kökur (og þar með sykurinn) er ekki úr vegi að baka stöku sinnum brauð, sem eru fljótleg, fremur ódýr, hvað efni snertir, sykur- lítil, og ákaflcga góð skorin i þunnar sneiðar og smurðar. Brauð þessi eru með venjulegu geri, en ekki þurrgeri og geta varla misheppnast. Hvftt hnetuhraud. 2 bollar hveiti, sigtað 3 tsk. ger bolli sykur t4 t.sk. salt 'A holli saxaðar hnetur, 'A bolli rúsínur. 1 egg, 1 bolli mjólk. Hveiti, ger, sykur og salt sigtað saman, rúsínur og hnet- ur settar út í. Egg og mjólk hrært saman og sett út í þurr- efnin, blandað vel saman með sleif. Sett í ílangt form, látið standa i 20 mín. og síðan bakað í um 55 mín. við 350° F. Bananahrauð 'A bolli smjörlíki, 1 bolli sykur 2 egg, 1 holli stappaður banani 1 tsk. sítrónusafi, 2 bollar hveiti 3 tsk. ger, 'A tsk. salt. Dálítið af söxuðum hnetum, ef vill. Sykur' og smjörlíki þeytt saman, eggin þeytt þar til þau eru ljós og bætt í. Stappaður bananinn settur í gegnum sigti og bætt i ásamt sítrónusafan- um. Hveiti, ger og salt sigtað saman og sett út í (ásamt hnetunum). Bakað í 1!4 klst. við 375° F. Gráfíkjubrauð 'á bolli rúsínur, 'A bolli gráfíkj- ur 2 matsk. smjörlíki, 1 bolli hunang 1 egg, 'A tsk. salt, 1 tsk. ger. 'A tsk. natrón 2'A bolli hveiti, '/> bolli súrmjólk, kí bolli mjölk, Hnetur ef viil Rúsínur og fíkjur smátt skornar, smjörlíki og hungang eru þeytt vel, þeyttu eggi bætt í, þurrefnin sigtuð og bætt i ásamt mjólk og síðast ávöxtun- um. Bakað í 1'/ klst. við325° F. Appelsínu — hunangs- brauð. 2 matsk. sm jörlíki 1 bolli hunang 1 þeytl egg l'A matsk. rifinn appelsinu- börkur 2% bolli hveiti 2'Á tsk. ger 'á tsk. natrón 'á tsk. salt Vt bolli appelsínusafi. Smjörlíki og hunang þeytt vel, egg og appelsínubörkur settur út í. Hveiti, ger, natrón og salt sigtað vel saman, bætt út í hræruna ásamt appelsínusafa. Hnetur settar i ef vill. Bakað i rúml. 1 klst. við 325° F. Sveskjubrauð. 1 matsk. smjörlíki 1 bolli sykur 1 egg þeytt 'á bolli sveskjusafi 1 bolli súrmjólk 2 bollar heilhveiti, 1 bolli hveiti 5 tsk. lyftiduft, 'A tsk. natrón 'á tsk. salt. 2 bollar soðnar steinlausar sveskjur, smátt skornar. Valhnetukjarnar ef vill. Sykur og smjörlíki hrært saman, eggi bætt i og blandað vel saman. Súrmjólk og sveskjusafa bætt út í ásamt heilhveitinu. Hvíta hveitið, ger óg natrón sigtað vel og bætt i ásamt sveskjunum. Bakið í um 1 klst. v. 350° F. Tvö brauó. Döðlubrauð 1 bolli smátt skornar döðlur 1 bolli sjóðandi vatn 1 matsk. smjörlíki' 2 bollar hveiti, 3 tsk ger 'á tsk. salt 3/í bolli svkur 1 egg- Saxaðar hnetur, ef vill. Döðlur, vatn, smjörliki látið standa i skál og kólna. Hveiti, ger, salt sigtað saman, sykur og egg þreytt saman í skál, sett út í döðlurnar ásamt þurrefnum. Látið standa f um 20 mín. í forminu, og siðan bakað í 50—60 mín. við 325° F. Sírópsbrauð. 1 Cgg % bolli súrmjólk eða mjólk 1 bolli síróp 1 bolli hveiti 1 bolli heilhveiti, 1 tsk. natrón 'A tsk. salt, 2—4 matsk. sykur 'á bolli rúsínur. Eggið þeytt lítillega í hræri- vél, súrmjólk og sírópi blandað í, síðan þurrefnin öll sett út í og rétt blandað saman. Bakað í um 1 klst. við 350° F.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.