Morgunblaðið - 28.12.1975, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1975
9
Allgóð rækjuveiði í
Isafirði 21. des.
REÆKJUVEIÐUM við Djúp lauk
þ. 12. des. s.l. Nokkur töf varð á að
veiðarnar hæfust, eða þar til 3.
nóvember, þar sem sjðmenn
vildu ekki sætta sig við ákveðið
verð á veiddri rækju. Nokkru
færri bátar stunduðu veiðarnar f
haust, eða um 40 bátar miðað við
50 síðastliðið ár.
Að sögn Péturs Bjarnasonar
eftirlitsmanns með veiðunum
hafa þær gengið allvel það sem
komið er. Alls munu hafa borizt á
land um 550 tonn. Afli í nóvemb-
er var nokkru lægri en í fyrra en
í desember er afli hinsvegar svip-
aður. Þess ber þó að gæta að færri
bátar stunda veiðarnar þannig að
útkoma hvers báts verður betri.
Allmiklar breytingar hafa orðið
siðan í fyrra á fyrirkomulagi veið-
anna. Þá var það þannig að heild-
arkvótinn var 160 tonn á viku.
Var þá oft mikið kappsmál að ná
s(num skammti sem fyrst, eða áð-
ur en veiðisvæðinu yrði lokað. Nú
er það hins vegar þannig að hver
bátur má fiska allt að 6 tonnum á
viku. Og er heildaraflamagninu
RÆKJUVINNSLA — Konur að störfum í Rækjustöðinni
á Isafirði.
Ljósm. Sig. Grímsson.
Ný díselrafstöð
sett upp á ísafirði
ísafirði 21. des.
NOKKURRA rafmagnstruflana
hefur gætt á lsafirði undanfarnar
vikur og hefur suma daga jafnvel
þurft að grfpa til rafmagns-
skömmtunar á orkuveitusvæði
Rafveitu Isafjarðar. Var þar bæði
um að kenna að bilun varð f raf-
stöðinni f Engidal aðalstrengur
til bæjarins bilaði og staurar á
leiðinni frá Mjólkárvirkjun
brotnuðu í óveðri.
En brátt bætist nýtt varaafl við
Rafveitu Isafjarðar og er verið að
vinna að uppsetningu nýrrar
díselaflstöðvar í ísafjarðarkaup-
stað. Er þetta 3600 hestafla vél
sem mun geta framleitt 2100 kíló-
wött. Að sögn Jakobs Ölafssonar
rafveitustjóra á tsafirði standa
vonir til að þessi nýja stöð verði
komin í notkun i febrúar næst-
komandi.
Vatnsaflsstöðin í Engidal skilar
að jafnaði 1100 kílówöttumen auk
þess er þar einnig varaaflstöð sem
getur framleitt 700 kílówött. 1100
kílówött eru að jafnaði keypt frá
Rafmagnsveitum ríkisins frá
Mjólká.
Þessi nýja stöð mun því skapa
mikið öryggi fyrir ísfirðinga og
þá sem búa á norðanverðum Vest-
fjörðum svo að ekki ætti að þurfa
að koma til mikillar rafmagns-
skömmtunar.
Orkustofnunin hefur staðið fyr-
ir tilraunaborun í Tungudal inn
af botni Skutulsfjarðar. Er þetta f
framhaldi af þeim árangri sem
náðist að Laugum í Súgandafirði
fyrr í haust, en þar fannst á rúm
lega 500 m dýpi allmikið af 60°
heitu vatni.
Búið er að bora niður á 500 m
dýpi í Tungudal. Könnun þessi er
gerð til að sjá hve jarðlögin hitna
mikið og lauslegar mælingar hafa
sýnt að botnhiti í holunni er um
40°.
Rannsóknunum verður haldið
áfram eftir áramót, en aðeins
verður unnt að bora niður á 600 m
með þessum bor.
— Siggi Grfms.
Frá tilraunaborunum eftir heitu vatni í Tungudal.
Ljósm. Sig. Grfmsson.
Djúpinu
sem veiða má úr Djúpinu í ár,
2200 tonnum, skipt hlutfallslega á
milli byggðarlaga. Hefur þetta
orðið til þess að mun betri rækja
hefur borizt á land, þar sem sjó-
menn geta nú gefið sér betri tíma
til að velja sér veiðisvæði og þá
með tilliti til stærðar rækjunnar.
Rækjuveiðarnar hefjast að nýju
12. janúar næstkomandi.
— Siggi Grfms.
35 sólarlandaferðir
Vinningar í happdrætti Blaksambands íslands
eru 35 sólarlandaferðir. Þú getur unnið 5 ferðir
á aðeins einn miða, vegna þess að dregið
verður 4 sinnum, 5. janúar, 15. janúar, 15.
febrúar og 15. marz n.k. Miðana þarf ekki að
endurnýja.
KAUPENDAÞJÓNUSTAN
Ásgarður
Góð einstakllngsibúð.
2ja herb. ódýrar
ibúðir við Fálkagötu, Grettisgötu
og Öldugötu.
Suðurbraut Kópavogi
3ja herb. rúmgóð risibúð i tvibýl-
ishúsi, sérinngangur. Hagstæð
greiðslukjör.
Þingholtsstræti 15, sími
10 2 20
Neðra Breiðholt
rúmgóð 4ra herb. ibúð á 1.
hæð.
Skipti óskast
Fremur litil vönduð sérihæð i
Hlíðum, fæst i skiptum fyrir
stærri eign i Reykjavik.
Skipti óskast
3ja herb. íbúð á 2. hæð í Háa-
leitishverfi fæst í skiptum fyrir 5
herb. íbúð eða sérhæð.
Hafnarfjörður
norðurbær. Sem ný 5 — 6 herb.
íbúð á 3. hæð. Glæsileg eign.
Hafnarfjörður
3ja herb. sérhæð. Vönduð eign.
Vogar Vatnsleysuströnd
Einbýlishús i byggingu ásamt
bilskúr.
Efra Breiðholt
2ja herb, sem nýjar ibúðir.
KVÖLD OG HELGARSÍMI 30541
kjólskyrtan. sem ekki þarf að strauja.
"BOSWEEL kjólskyrturnareru
komnar aftur, hr.ambassador!"
CSb
Lauth hf.
Álfheimum 74 Vesturgötu 17 Laugavegi 39