Morgunblaðið - 13.01.1976, Page 1

Morgunblaðið - 13.01.1976, Page 1
36 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 9. tbl. 63. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. JANtJAR 1976___________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins. £ ISLENDINGAR munu taka þátttöku sína í Atlantshafsbanda- laginu til endurskoðunar ef brezk herskip fara ekki út úr 200 mílna fiskveiðilögsögu Islands, að því er fréttastofurnar AP og Reuter hafa eftir Tómasi Tómassyni, fastafulltrúa fslands hjá Atlants- hafsbandalaginu. í Brússel, en fastaráð bandalagsins hélt sér- stakan fund í gær að ósk Is- lendinga um fiskveiðideiluna við Breta. Eftir fundinn, sem stóð f tæpar tvær klukkustundir, var gefin út fréttatilkvnning, þar sem segir m.a. að „ráðið hafi almennt lýst áhvggjum sínum vegna deilu þessarar, sem ekki aðeins skaðar samband tveggja bandalagsþjóða, heldur einnig bandalagið í heild.“ Eru deiluaðilar hvattir til að gæta stillingar og skýrt frá því að framkvæmdastjóri NATO, dr. Joseph Luns, fari til Reykjavíkur til að reyna að miðla málum og síðan sennilega til London (Sjá viðtal við Luns á þessari sfðu) Lætur ráðið f Ljós „von um að þessar heimsóknir muni Ieiða til lausnar sem mjög brýn þörf er á.“ 0 Um þá grundvallarkröfu Is- lendinga að brezku herskipin færu út fyrir 200 mílurnar sagði fastafulltrúi Breta, Sir John Kill- ick, við fréttamenn eftir fundinn, að slfkt væri ógerlegt nema á móti kæmi einhver tr.vgging fvrir „samsvarandi" aðgerð af hálfu ís- lendinga, þ.e. að varðskip hættu áreitni við brezka togara, að sögn AP-fréttastofunnar. Þá hafa AP og Reuter eftir Sir John, að hann lfti hótun um úrsögn Islands úr NATO „mjög alvarlegum augum“ þvf aðild landsins að bandalaginu sé sérstaklega mikilvæg, — ekki sízt á sama tíma og „Sovétrfkin auka flotastvrk sinn á Norður- Atlantshafssvæðinu“. ^ Aðspurðum um það hvort David Bruce, aðalfastafulltrúi Bandaríkjanna, hefði tjáð sig um hugsanlega úrsögn Islendinga úr NATO, hefur AP eftir Tómasi Tómassvni að bandarfski fulltrú- inn hafi verið einn af þeim sem töluðu lengi um málið og hafi hann lýst þungum áhyggjum Bandarfkjanna af deilunni og Framhald á bls. 35 • LÖGREGLUSVEITIR í Madrid beittu í kvöld táragasi hvað eftir annað gegn miklum mótmælaaðgerðum verkamanna og stúdenta, sem æddu um götur borgarinnar hundruðum saman og brutu ljósaperur jólaskrevt- ingar og gerðu talsverðan usla. Táragasmekkir fvlltu strætin og vegfarendur urðu að halda vasa- klútum fvrir vit sér. Mótmælin beindust að fjármálaráðunevtinu og kröfðust mótmælendur þess að ríkisstjórnin sleppti taki sfnu á kaupgjaldsmálum og vki jafn- framt stjórnmálaréttindi. • Ný verkföll og ofbeldisaðgerð- ir brutust út á Spáni f dag og er þetta alvarlegasta ögrun sem fram hefur komið við rfkisstjórn- ina eftir lát Francos. Lögreglan beitti táragasi og kvlfum á verk- fallsmenn í miðborg Madridar, og gerði áhlaup á háskólasvæðið til að lumbra á mótmælendum úr hópi stúdenta sem hvöttu til lýðræðislegri stjórnarhátta og allsherjarverkfalls. Meira en 125,000 verkamenn lögðu niður vinnu í verkföllunum. sem kunna að valda miklu umróti f efnahags- málum landsins og ýmissi félags- legri þjónustu, t.d. samgöngum. Ennfremur er hætta á, að alls- herjarverkfall bankamanna mvndi leiða til þess, að 100,000 Spánverjar til viðbótar legðu nið- ur vinnu, og lfkur eru á verkfalli flutningamanna og starfsmanna raforkuvera í Barcelona. Þessi nýja kreppa fvlgir f kjölfar verk- falls starfsmanna neðanjarðar- brautanna í Madrid sem lamað hafa höfuðhorgina í fimm daga. Upplýsingamálaráðuneytið sagði að margar af vinnúdeilum þessum væru af löglegum, efna- hagslegum rótum runnar, en hins vegar væru vinstri sinnaðir undir- róðursmenn að baki ýmsum ólög- legum mótmælaaðgerðum og þar yrði lögreglan að grípa inn í. í háskólanum í Madrid hélt lögreglan sig fjarri til að byrja með en var svo kvödd þangað að nýju til að stöðva mótmælaað- gerðir gegn JuanCarlos, konungi, og stjórn hans. Leiðtogar stúdenta sögðu að aðgerðirnar myndu halda áfram. A aðeins einum stað náðist Framhald á bls. 35 Sex nýir á lista Nordlis Ósló 12. janúar — NTB RAÐHERRALISTI ríkisstjórnar Odvar Nordlis lá fvrir f kvöld, og eru f henni sex nýir ráðherrar sem ekki voru í stjórn Trvgve Brattelis. Rolf Hansen, stórþings- maður, verður varnamálaráð- herra, Hallvard Bakke verður viðskiptaráðherra, Kjölv Eve- land, rektor, verður kirkju- og menntamálaráðherra, Oskar Öksnes, fvlkisbúnaðarmálastjóri, verður landbúnaðarráðherra, Ragnar Christiansen, stórþings- Framhald á bls. 35 OAU nærri málamiðlun? Addis Ababa 12. janúar — Reuter LEIÐTOGAR Afríkuríkja sem af miklum hita hafa rætt leiðir til að finna aðkallandi lausn á verstu pólitísku kreppu álfunnar í langan tíma — borgarastvrjöld- inni í Angóla — samþvkktu f kvöld að halda næturfund og voru vonir um að samkomulag í málinu væri að takast. „Okkur hefur miðað áfram. Við erum nálægt málamiðlun," sagði vara- forseti Kenýu, Daniel Arap Moi, fréttamönnum. Fundur æðstu manna Einingarsamtaka Afrfku- ríkja. OAU, hafði þá staðið í þrjá daga og einkennzt af deilum um stuðning við hreyfingu marxista, MPLA, eða hinar tvær frelsis- hrevfingarnar, FNLA og Unita. Að sögn heimilda á fundinum var til umræðu málamiðlunartil- Framhald á bls. 35 „Kem til Reykjavík- ur á miðvikudaginn” „ÉG vonast til að verða kominn til Revkjavfkur upp úr hádeg- inu á miðvikudag til að revna að miðla málum f fiskveiði- deilu vkkar og Breta,“ sagði dr. Joseph Luns, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, í samtali við Morgunblaðið f gær. „Ég verð í Reykjavfk fram á föstudag og vonast til að geta farið síðan til Lundúna til við- ræðna við brezk stjórnvöld." „Nærri öll NATO-löndin létu í sér hevra á fundi Atlantshafs- ráðsins í dag og eru þau sér — sagði dr. Joseph Luns, í samtali við Morgunblaðið mjög vel meðvitandi um hversu alvarlegt ástandið er,“ sagði Luns. „Þau létu öll í Ijós þá von að mér mætti takast að finna leið sem gerir kleift að finna skjóta og réttláta lausn á deil- unni. Hvað það gæti falið í sér eða hverjar tillögur mfnar kunna að verða get ég ekkert sagt um á þessu stigi.“ Laing vongóður um málamiðlun Luns Reuter-fréttastofan hefur eft- ir áreiðanlegum heimildum Framhald á bls. 35 Fastaráð NATO: Deilan skaðar Atlants- hafsbandalagið í heild Hörð mótmæli og verkföll á Spáni Madrid 12. janúar AP Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.