Morgunblaðið - 13.01.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1976
7
Skap og
skynsemi
Framferði Breta á ís-
landsmiðum eftir hing-
aðkomu vígdreka henn-
ar hátignar, er með þeim
fádæmum, að jafnvel
telst til tfðinda I sam-
skiptum „heimsveldis-
ins" við þjóðir minni
máttar. Sú var raunar
tíðin í heimssögunni, að
reisn Bretlands kom
fram með öðrum hætti
en valdníðslu gegn fá-
, mennustu þjóð veraldar,
vopnlausri, sem á lífs-
hagsmuni að verja. Lífs-
hagsmuni, sem byggjast
á auðlindum sjávar, sem
gert hafa landið byggi
legt, en er nú stefnt að
eyðingu með tækni-
væddri rányrkju nútím-
ans.
Það er engan veginn
óeðlilegt, að almenn-
ingsálitið í landinu
bregðist við með þeim
hætti, sem raun er á
þegar „heimsveldi" lýt-
ur svo lágt sem fram
kemur I hegðan breska
sjóhersins við strendur
landsins. Hins vegar er
það skylda ábyrgra
stjórnvalda hérlendra að
láta skynsemi fremur en
skap stjórna ákvörðun-
um sínum og gjörðum.
Enga ákvörðun má taka
sem veikir málstað okk-
ar á erlendum vettvangi,
eða tekur ekki mið af
þvi lokamarki, sem að er
stefnt.
Imperium
Britannicum
Þróun hafréttarmála á
alþjóðavettvangi hefur
verið sú, að 200 sjó-
milna auðlindalögsaga,
sem alþjóðaregla, er að-
eins tímaspursmál. Fjör-
brot Breta i þessu efni,
eins og þau lýsa sér í
valdniðslu við smáþjóð,
sem við vissulega erum,
geta með engum hætti
snúið þessari þróun við.
Timans rás verður ekki
snúið til baka, aftur til
hins liðna, sem betur
fer. Þeim bætist e.t.v.
„svart blóm" á sögu-
spjöld, sem tákn brezku
jafnaðarmannastjórnar-
innar, sem i framkvæmd
færir stefnu sina undir
þá gjörð, er i söguskoð-
un og réttarvindund al-
mennings flokkast undir
„að ræna lambi fátæka
mannsins". Þegar fram
er litið verður árangur
ofbeldisaðgerða Breta
naumast annar né meiri.
í þessu sambandi er
ekki úr vegi að minnast
lokaerindis úr kvæði
Steins Steinars: Imper-
ium Britannicum: „Og
jafnvel þótt á heimsins
nyrstu nöf / þú næðir
þrælataki á heimskum
lýð, / það varð til einsk-
is, veldur stuttri töf. /
Það vinnur aldrei neinn
sitt dauðastríð."
Stærsta
verkefni
samtímans
og
sjálfstæðismál
En samhliða átökum
út á við varðandi land-
helgi okkar, má okkur
ekki gleymast sú
ábyrgð, sem að okkur
snýr sjálfum, um skyn-
samlega nýtingu fisk-
stofna á íslandsmiðum.
Fyrirhuguð löggjöf um
nýtingu fiskveiðiland-
helginnar þarf að hafa
það markmið eitt að
leiðarljósi, að nytjafisk-
ar okkar nái sem allra
fyrst eðlilegri stofn-
stærð, sem færi
hámarksnýtingu i
þjóðarbúið. Þar þarf
hvort tveggja að koma
til, nauðsynlegar
friðunaraðgerðir á
hrygningar- og uppeldis-
svæðum fiskstofnanna
og hæfileg veiðisókn,
sem taki mið af skyn-
samlegri nýtingu þeirra.
Veiðar og vinnslu þarf
að samræma þann veg,
að hyggindi og hag-
kvæmni ráði ferð; full-
vinnsla hráefnis fari
fram I landinu, og vöru-
gæði og verðmæti út-
flutningsafurða okkar
verði sem mest.
Hér er mikið vanda-
verk á höndum okkar —
og það verður að vinna
með þeim hætti, að við
getum skilað þessari
undirstöðu mannsæm-
andi búsetu I landinu
óskemmdri I hendur
komandi kynslóða. Það
er I senn stærsta sjálf-
stæðismál samtima
sögu okkar og afdrifarík-
asta viðfangsefni þeirrar
kynslóðar, sem nú lifir i
landinu.
Karpov er góður, en
Fischer er snillingur
UNGVERSKI stórmeistarinn
Zoltan Ribli vann öruggan og
góðan sigur ð svæðismótinu í
skák, sem fram fór að Hótei
Esju. Hann tefldi af krafti og
öryggi og komst aldrei í tap-
hættu. f sfðustu umferðinni
samdi Ribli jafntefli f 9 leikj-
um við Belgfumanninn H. van
den Broeck og tryggði sér þar
með sigurinn. Þá um kvöldið
tókum við Ribli tali:
Þetta var stutt skák. Já, ég
vildi enga áhættu taka, maður
getur alltaf leikið af sér, og mig
langaði ekki í aukakeppni við
hina stórmeistarana.
Ertu ánægður með tafl-
mennskuna í mótinu?
Ég get ekki verið annað, ég
tefldi nokkuð jafnt allt mótið,
en hins vegar hef ég oft teflt
betri skákir en ég tefldi hér.
Hefurðu náð góðum árangri á
þessu ári?
Ég er bærilega ánægður með
hann. Þessi lota hófst í desem-
ber á siðasta ári með þátttöku í
ungverska meistaramótinu,
sem ég vann. Sfðan tefldi ég í
alþjóðamóti í Búdapest og varð
þar í 1.—2. sæti ásamt
Polugajevsky með 10,5 v. af 15.
í minningarmóti um dr.
Vidmar í Dortoroz varð ég i
3.—5. sæti ásamt Hort og Éur-
man. Þar sigraði Karpov, en
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Gligoric varð annar. Telurðu
Karpov bezta skákmann heims-
ins í dag?
Hann er beztur að Fischer
undanskildum. Þvi miður kem-
ur sennilega ekki til einvígis
þeirra í milli. Slíkt einvígi
myndi Fischer örugglega vinna,
hann er snillingur en Karpov er
góður.
Heldurðu að Fischer sé
hættur að tefla?
Það er ég hræddur um, því
miður.
Þú varst eini þátttakandinn í
þessu móti, sem hafði aðstoðar-
mann. Var það til bóta?
Tvímælalaust. Góður að-
stoðarmaður er góður félagi, og
auk þess getur hann hjálpað
mikið við biðskákir og undir-
búning keppni.
Verða margir Ungverjar f
millisvæðamótunum?
Portisch hefur réttindi, og nú
hef ég fengið þau. Senniléga
Zoltan Ribli.
vinnur Csom sér rétt á svæða-
móti í Júgóslavíu, en Sax nær
líklega ekki tilskildum árangri
í Búlgarfu, Adorjan hefði haft
dágóða möguleika á Spáni, en
það mót fór ekki fram sem
skyldi.
Hvar verða svæðamótin?
Ég er ekki viss, en ég hef
heyrt að annað verði í Ziirich
en hitt á Filipseyjum. Á hvor-
um staðnum vildir þú heldur
tefla?
I Ziirich. I keppnum i Asíu
getur hreinlega ráðið úrslitum,
hver hefur sterkasta magann.
Þú virtist koma mjög vel
undirbúinn til þessa móts.
Hvað ,,stúderaðu“ lengi á dag?
Svona fimm til sex tíma eftir
því hvernig ég er upplagður.
Að lokum, hvert verður
næsta mót þitt?
Ungverska meistaramótið,
það verður haldið í næsta
mánuði.
Við þökkum Ribli fyrir spjall-
ið og óskum honum góðs gengis
í meistaramótinu og þá ekki
síður í millisvæðamótinu, þar
sem hann á vafalaust eftir að
láta mikið að sér kveða.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
30
Pl AUGLÝSIR l'M AI.LT
LANÐ ÞEGAR M AUG-
LYSIR I MORGINBLAÐIM
Tamningastöð
verður starfrækt að Tungulæk í Borgarhreppi
og hefst 1. febrúar n.k. Þeir, sem vilja koma
hrossum í tamningu hafi samband við Einar
Karelsson, tamningamann sem rekur stöðina,
og veitir allar nánari upplýsingar i síma 7236,
Borgarnesi.
Sölumannadeild
Aðalfundur
Aðalfundurinn sem vera átti 27. 12. en var
frestað verur haldinn 15. janúar n.k. að Haga-
mel 4 kl. 20.30.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjaramál.
Sölumenn mætið vel og stundvíslega.
Stjórn sölumannadeildar V.R.
burðarfólk
Austurbær
Miðbær
Ingólfsstræti
Skólavörðustígur
Óðinsgata,
Baldursgata
Úthverfi
Laugateigur
Sólheimar,
Kirkjuteigur
Snæland
Austurgerði
Vesturbær
Ægissíða
Lambastaðahverfi
Skerjaf.s. flugv. I
og II.
Uppl. 1 síma 35408i
Námskeið
Nýtt námskeið í næringafræði hefst mánudaginn 19 janúar Kennt
verður: grundvallaratriði í næringarfræði, fæðuval, gerð matseðla,
megrunarfæði fyrir þá sem þess óska, uppskriftir
Veist þú að góð næring hefur áhrif á:
9 Vöxt og heilbrigði ungviðsins.
£ Byggingu beina og tanna.
4) Endanlega stærð.
9 Mótstöðuafl gegn sjúkdómum og andlegu álagi.
£ Lfkamlegt atgerfi og langlffi.
0 Andlegan og félagslegan þroska allt frá frumbernsku.
% Utlit þitt.
% Persónuleika þinn.
0 Lfkamsþungd þfna, en hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki og
margir fleiri sjúkdómar eru langtum algengari meðal þeirra, sem
eru of feitir.
Upplýsingar og innritun í síma 44247, eftir kl. 8 á kvöldin
Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisf ræðingur
Næringarf ræði.
Skóbær
Skóbær
Laugavegi 49
Simi 22755
Fóöruð
kuldastígvél
karlmanna.
Stæröir
40-46.
Verð kl. 3.510.-
Póstsendum samdægurs